Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Auglýsinga-
deila Skjás
eins og RÚV
„Já, ég hefvísað þessari
auglýsingadeilu okkar við
RÚV til útvarpsráðs. RÚV
neitaði okkur um birtingu
auglýsingar frá okkur á
grundvelli reglugerðar sem
sem fallin er úr gildi og bít-
ur höfuðið af skömminni
með því að telja sig sam-
kvæmt hefð eiga einkarétt á
orðunum „greiðendur
afnotagjalda". Sem
hlýtur að teljast
vafasamt í meira
lagi,“ segir Sverrir
Agnarsson, auglýs-
ingastjóri Skjás eins, en
RÚV stendur fast við þá
ákvörðun sína að neita
birtingu svohljóðandi aug-
lýsingar frá Skjá einum:
„Greiðendur afnotagjalda
athugið - Skjár 1 er alltaf
ókeypis. Skjár l.“ Sverrir
vill ekki una þeirri ákvörð-
un og afgreiðslu Þorsteins
Þorsteinssonar, forstöðu-
manns markaðssviðs RÚV.
arett a
Skúli Ármannsson stefnir á að verða fyrsti íslenski atvinnuboxarinn 1 50 ár. Hann
dvelst í Bandaríkjunum, er kallaður Ice Man og æfir með einum af 40 bestu boxur-
unum í landinu. Móðir hans er hjúkrunarfræðingur og meðhöndlaði boxara vegna
heilablæðingar á dögunum.
Skúlí „ísmaður" Ármannsson
Þjálfari hans i Bandarikjunum
berst fyrir atvinnuleyfi fyrir hann
og segir hann eiga fulla mögu-
leika áadnáá toppinn.
l
Q.
7Ö?
Fengu Bréf frá RÚV
Sverrir hefur undir
höndum bréf frá Þorsteini,
sem hann segir lýsandi fyrir
afstöðuna. „Þetta er athygl-
isverð lesning og ég læt það
ekki eftir honum, þrátt fyrir
neðanmálsgrein, að hafa
þetta sem einkaskeyti bara
fyrir viðtakanda. Þetta
er opinbert gagn í
deilu okkar við rík-
ismiðilinn,'1 segir
Sverrir sem veit
ekki alveg hvort
hann á að hlæja eða
gráta. DV birtir hér brot úr
bréfi Þorsteins sem mis-
býður Sverri svo mjög:
„Auglýsingin sem um ræð-
ir, og sem RÚV hefur neitað
Skjá einum um birtingu á,
hljómar þannig: Greiðend-
ur afnotagjalda athugið -
Skjár 1 alltaf ókeypis. Skjár
1. RÚV hefur einungis gert
athugasemdir við forskeyt-
ið: Greiðendur afnotagjalda
athugið. Upphaflega var
auglýsingunni hafnað á
grundvelli 3. liðar í 5.gr.
Reglugerðar um auglýsing-
ar í Ríkisútvarpinu, frá nóv.
1983."
Höfða til þeirra sem
ekki borga
Og Þorsteinn heldur
áfram: „Við hjá RÚV höfum
alltaf farið afar sparlega
með það að ávarpa greið-
endur afnotagjalda þar sem
92% þeirra greiða gjöldin
skilvíslega. Auglýsingum af
þessu tagi er því fyrst og
fremst beint til þeirra 5-8%
sem greiða helst ekki gjöld-
in. Með því að ofnota
ávarpið gætum við verið að
styggja þá skilvísu. Þvf er
það afleitt ef önnur fyrir-
tæki en RÚV ætla sér að
beina sínum auglýsingum
að greiðendum afnota-
gjalda eins og Skjár einn
ætlaði sér að gera í þessu
tilfelli. Það myndi draga úr
möguleikum RÚV að nálg-
ast þá óskilvísu með aug-
lýsingum og þá erum við
farin að kljást við s.k. mis-
munum í skilningi lag-
anna."
fyrir box í Bandaríkjunum
„Ég veit ekki hvað maður á að segja. Ég myndi
vilja að hann væri í fótbolta eða fimleikum," seg-
ir Margrét Hallgrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur
á heila- og taugaskurðlækningadeild Landspítal-
ans og móðir Skúla Ármannssonar úr Mosfells-
bæ, sem nú reynir að fá atvinnuleyfi í Bandaríkj-
unum til að stunda hnefaleika í atvinnuskyni.
Skúli dvelst nú í borginni Duluth í Minnesota við
æfingar. „Hann ætlar að hætta að nota hlífarnar.
Ég get ekkert sagt við því og styð við bakið á hon-
um og hans ákvörðun. En þjálfarinn hans segist
þora að senda hann á móti hverjum sem er,“
segir Margrét.
Fjallað er um mál Skúla, og tilraunir hans til
að verða fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í hnefa-
leikum í 50 ár, í blaðinu The Daily Telegram.
Skúli er undir verndarvæng boxarans Zach Walt-
ers, öðru nafni „Frumskógardrengsins", sem er
einn af 40 bestu yfirmillivigtarboxurum f Banda-
ríkjunum. „Hann er virkilega hraður og hefur
frábærar varnir," segir Walters um Skúla, en þeir
æfa saman daglega.
Þjálfari Skúla,
Chuck Horton, er
mikils metinn í
hnefaleikaíþrótt-
inni og í samfélag-
inu í Duluth, þar
sem eiginkona
hans starfar. Hann
hefur lýst því fyrir
Margréti að hann
trúi því að Skúli nái
á toppinn. Foreldr-
um Skúla hefur
verið boðið út til að
sjá aðstæður og
soninn. í viðtali við
Daily Telegram
segir Horton að
Guðmundur Arason, 85 ára hnefaleikamaður,
hafi þjálfað hann vel. „Hann mun standa sig vel í
þungavigt því þjálfarinn hans á íslandi kenndi
honum að berjast eins og millivigtarmaður.
Hann kann að hreyfa sig, er með framúrskarandi
boxhæfileika og er í frábæru formi. Hann mun
berjast án nokkurs vafa, en við getum ekki gert
hann að atvinnumanni strax vegna atvinnuleyf-
isins," segir Horton.
Til stóð að Skúli tæki þátt í sínum fyrsta bar-
daga sem atvinnumaður 13. febrúar næstkom-
andi, en vegna vandræða með atvinnuleyfi mun
hann keppa sem áhugamaður. Hann er í Banda-
ríkjunum sem ferðamaður en Horton þjálfari
berst nú fyrir því að útvega atvinnuleyfið. „Ég er
mjög stoltur af honum því hann er hér á eigin
vegum, það er mikil pressa á honum og enginn
talar tungumálið hans. Ég kann bara fimm orð í
íslensku, og ekkert þeirra er hól," segir Horton
þjálfari. Daily Telegram lýkur umfjöllun sína um
Skúla á því að segja að ef söguleg ferð ísmanns-
ins væri rétt að byrja ættu áhugamenn um
hnefaleika að drífa í því að læra að hæla á ís-
lensku sem allra fyrst.
jontrausti@dv.is
Móðir hnefaleikamanns Mar-
grét Hallgrímsdóttir, móðir björt-
ustu vonar íslenskra hnefaleika, er
hjúkrunarfræðingur á heila- og
taugaskurðdeild Landspitalans.
Hervör Þorvaldsdóttir er nýr formaður landskjörstjórnar
Náfrænka Davíðs stýrir Landskjörstjórn
Hervör Lilja Þorvaldsdóttir, hér-
aðsdómari í Reykjavík, hefur tekið
við formennsku í landskjörstjórn.
Hervör og Davíð Oddsson eru
systkinabörn. Hervör er systir
Olafs Barkar Þorvaldssonar sem
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra skipaði í fyrra í embætti
hæstaréttardómara. Vakti sú skip-
an miklar deilur sem ekki sér fyrir
endann á. Hæstiréttur sjálfur taldi
aðra ummsækjendur en Ólaf Börk
vera heppilegri.
Hervör tók sæti í landskjör-
stjórn 27. maí í fyrra, samkvæmt
kjöri Alþingis. Við sama tækifæri
gekk úr stjórninni faðir hennar,
Þorvaldur Lúðvíksson, sem einmitt
hafði gegnt formennsku í
landskjörstjórninni um skeið.
Það var landskjörstjórnin sjálf
sem valdi Hervöru í formennsku-
stólinn á
fundi 13.
janúar síð-
astliðinn.
Gestur Jóns-
son hæstar-
réttarlög-
maður var þá
valinn vara-
formaður.
Þórður
Bogason
Davíð Oddsson Þau eru
systkinabörn, hann og
gegnir áfram Hervör, en bróðir hennar
ritarastöð - er Ólafur Börkur Þorvalds-
son, sem Björn Bjarnason
dómsmáiaráðherra skip-
aði hæstaréttardómara i
fyrra.
unm.
Lands-
kjörstjórn
hefur úr-
skurðarvald í margvíslegum mál-
um sem snerta opinberar kosning-
ar á íslandi.
gar@dv.is
Hervör Lilja Þorvaldsdóttir Héraðsdómarinn Hervör Þorvaidsdóttir gegnir nú helsta trún-
aðarstarfi þjóðarinnar gagnvart framkvæmd kosningar; formennsku i landskjörstjórn.