Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Page 19
DV Sport
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 1 9
Keflavík vann tvöfaldan bikarsigur í Laugardalshöllinni á laugardaginn
og náði því afreki í fjórða sinn á aðeins ellefu árum. Ekkert annað félag
hefur unnið tvöfalt oftar en einu sinni. Frá því að kvennalið Keflavíkur
vann fyrsta bikarmeistaratitil félagsins 1988 hefur Keflavík unnið 16
bikarmeistaratitla á sfðustu 16 árum, 5 í karlaflokki og 11 í kvennaflokki.
Það félag sem kemur næst þeim í sigursæld á þessum 16 árum eru
Njarðvíkingar, sem hafa unnið tíu bikurum færra. Laugardalshöllin var því
einu sinni sem oftar vettvangur gleðistundar fyrir Keflvíkinga.
Karlalið Keflavíkur varði
bikarmeistaratitil sinn með 19 stiga
sigri á nágrönnum sínum í Njarðvík,
93-74, en þetta var í fyrsta sinn í
heilan áratug sem félag náði að verja
þennan titil. Keflvíkingar höfðu
einnig gert það síðast þegar þeir
unnu, árin 1993 og 1994.
Það var tvítugur strákur úr
Keflavík sem átti sviðið í Höllinni;
byrjaði inná í sínum fyrsta
bikarúrslitaleik og blómstraði frá
fyrstu sekúndu. Arnar Freyr Jónsson
skoraði níu stig í fyrsta leikhluta þar
sem Keflavík náði frumkvæðinu í
leiknum og endaði með 20 stig, 9
stoðsendingar og 5 stolna bolta.
Derrick Allen var einnig traustur að
vanda með 29 stig og 20 fráköst.
Nick Bradford bætti síðan við 22
stigum en þessir þrír fóru fyrir liðinu
í Höllinni á laugardaginn.
Njarðvík fékk 8 stig frá nýja
Kananum, Larry Bratcher, í upphafi
leiksins en síðan ekki söguna meir
og sárþjáður Brandon Woudstra
skilaði enn ffemur aðeins 2 stigum á
31 mínútu. Friðrik Stefánsson fór
mikinn með 18 stig, 18 fráköst og 7
varin skot og Brenton Birmingham
var með 24 stig.
Frábær auglýsing
Kvennalið Keflavíkur vann
bikarinn í 11. sinn á þessum 16 árum
með því að vinna KR, 72-69, í enn
einum klassískum úrslitaleik
kvenfólksins en síðustu þrjú ár hafa
kvennaleikirnir verið frábær
auglýsing fyrir íslenska körfu-
boltann, uppfullir af spennu og
óvæntum atburðum.
KR-liðið virtist með sigurinn í
sínum höndum en tapaði niður 11
stiga forskoti á sfðustu íjórum
mínútum leiksins. Katie Wolfe, sem
hafði skoraði 30 stig á fyrstu 37
mínútum leiksins, náði ekki að
skora á þremur síðustu mínútum
leiksins, en þess í stað skoruðu
Erlurnar í Keflavíkurliðinu,
Reynisdóttir og Þorsteinsdóttir, 15
síðustu stig Keflavíkurliðsins sem
vann að lokum þriggja stiga sigur,
72-69.
Svava Ósk Stefánsdóttir átti
frábæra innkomu af bekknum hjá
Keflavík, skoraði 15 stig og gaf 6
stoðsendingar og tók af skarið á
mikilvægum augnablikum. Erla
Þorsteinsdóttir spilaði lítið vegna
villuvandræða en skoraði engu að
síður 15 stig á 20 mínútum og Anna
María Sveinsdóttir var traust að
vanda með 14 stig og 15 fráköst.
Keflavík hefur nú unnið 16
bikarmeistaratitla, aðeins tveimur
færri en KR sem hefur unnið flesta
eða alls 18. Haldi Keflvíkingar áfram
bikarbyltingu sinni á næstu árum er
stutt í að þeir verði orðnir mesta
bikarlið íslenskrar körfuboltasögu,
enda hafa lið félagsins komist 23
sinnum í bikarúrslitin í Höllinni á
síðustu 17 árum.
Gunnar lyftir bikarnum Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflavíkur, varð annar maðurinn ísögu Keflavíkur til að lyfta bikarnum en Guðjón
Skúlason hafði tekið á móti honum i öll hin fjögur skiptin sem Keflavik hafði unnið hann. DV-mynd Valli
Annar titillinn korninn í hús Kvennalið Keflavikur hefur unnið báða titlana tilþessa ikvennakörfunni, vann Hópbilabikarinn rétt fyrirjól og
hér fagnarþað bikarmeistaratitlinum i gær. Talið frá vinstri: Birna Valgarðsdóttir, Svava Ósk Stefánsdóttir, Erla Reynisdóttir, Anna María
Sveinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Rannveig Randversdóttir, Maria Ben Erlingsdóttir og Bryndis Guðmundsdóttir. DV-mynd GVA
200 STIGA MÚRINN BROTINN
ANNA MARÍA SVEINSDÓTTIR HEFUR
SKORAÐ 201 STIG í BIKARÚRSLTALEIKJUM
BIKARÚRSLITALEIKIR ÖNNU MARÍU
1987 1 1
1988 8
1989 14
1990 19
1992 24
1993 Ófrísk
1994 16
1995 22
1996 10
1997 20
1998 2000 9 j
17
2003 6
2004 14
201 stig í úrslitaleikjum
Keflvfkingurinn Anna María
Sveinsdóttir náði merkum áfanga í
sínum 13. bikarúrslitaleik því með
því að skora 14 stig á laugardaginn
varð hún fyrst af öllu körfuboltafólki
til að skora 200 stig í
bikarúrslitaleikjum. Anna María
hefur nú skorað 201 stig í 13
bikarúrslitaleikjum sem gerir
meðalskor upp á 15,5 sdg í leik.
KEFLAVIK-NJARÐVIK
93-74 (47-40)
Gangur leiksins:
0-2, 2-6, 6-8,10-10, 19-10,
(31-171,31-21,39-29,43-34,
(47-40), 47-44, 56-44, 66-49,
(74-60), 74-63, 77-65, 85-67,
87-72, 93-74.
Stig skoruð (Fráköst) Stoðsendingar
Teitur Örlygsson hafði skorað flest
fyrir leikina á laugardag, eða 199
stig, þau síðutsu í bikarsigri
Njarðvíkur fyrir tveimur árum.
Anna María hefur verið
stigahæsti leikmaðurinn í sjö
bikarúrslitaleikjum, þar á meðal í
þeim fyrsta fyrir 17 árum þegar hún
skoraði 22 stig í 61-65 tapi fyrir KR.
ooj@dv.is
Derrlck Allen 29 20) 2
Nick Bradford 22(6)2
Arnar Freyr Jónsson 20 9
Gunnar Einarsson 8(7) 3
Magnús ÞórGunnarsson 6(1 1
Hjörtur Harðarson 3(1)1
Halldór Örn Halldórsson 3 1
Jón Nordal Hafsteinsson Sverrir Þór Sverisson 2(2! 1 0 4, 5
Davíð Þór Jónsson lék ekki
SAMAi
Keflavlk NJarövík
45(17) Fríköst (sókn) 44(17) Allen 20 - Friðrik 18, Brenton 8
25 Stoðsendingar 15
Arnar 9, Sverrir 5- Friðrik 4, Brenton 4 19 Stolnir boltar 8
Derrick Allen, Keflavík 46
Friðrik Stefánsson, Njarðvík 33
Nick Bradford, Keflavik 27
NJARÐVÍK
Stig skoruð (Fráköst) Stoðsendingar
Brenton Birmingham 24(8) 4
Friðrik Stefánsson 18(18; 4
Larry Bratcher 8í6) 3
Ragnar H. Ragnarsson 8(3) 0
Halldór Rúnar Karlsson 8:1
Guðmundur Jónsson 4f1) 1
Kristján Sigurðsson 2(0,0
Brandon Woudstra 2(7)2
Ólafur Aron Ingvason 0(0) 0
Arnar Þór Smárason lék ekki
Arnar Freyr 5 - Brenton 2, Woudstra 2
4 Varln skot 11
15 Allen 4 — Friðrlk 7 Tapaðir boltar 25
23/7 (30%) 3ja stiga skot 24/5 (21%)
15/12 (80%) Vítanýting 26/17 (65%)
25 Villur fengnar 18
14 Stig frá bekk 14