Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Síða 23
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 23 *r DV Fókus Finnar eru þunglyndir og drykkfelldir, og hjá þeim er dimmt og kalt helming ársins. íslendingar eru drykkfelldir, eru stöðugt að reyna að sannfæra hver annan um að þeir séu hressir, og hjá þeim er rok og rigning árið um kring. Finnar eyða frítíma sínum í sánunni og á barnum, og íslendingarnir sínum í heitu pottunum og á barnum. Það er ýmislegt líkt með þessum tveimur þjóðum norðursins. Af þekktum Finnum má nefna leikstjórann Aki Kaurismaki, bílstjórann Mika Hákkinen og hljómsveitirnar Len- ingrad Cowboys, 22 Piste Pirrko Boomfunk MC’s og The Rasmus. En hvaða íslendingar eru þekktir í Finnlandi? Sigur Rós Fádæma vinsælir IFinnlandi, enda hentar tónlist þeirra finnskum aðstæðum vel. Baltasar Kormákur Ersmám saman að verða fræguri Finnlandi. „Leikstjórinn aö 101 Reykjavlk, en ég man ekki hvað hann heilir". Listamaðurinn Jón Sæmundur sagði um daginn að hann væri á góðri leið með að verða költfígúra í Finnlandi. Aðrir íslendingar hafa áður náð sama status, svo sem dr. Gunni og svanurinn Kári. Blaða- maður kynntist doktornum reyndar fyrst á skemmtiferðaskipi sem var að sigla ffá Helsinki til Tallinn í Eist- landi, en hljómsveitin Unun var þá á rokktúr um Eystrasaltið. Mikil gleði var um borð, dansað og sungið Uhro Kekkonen Varforsetl Finnlands í næstum 30 ár, þannig að gárungar kölluðu landið Kekkóslovakiu. Kom til Islands að kaupa kindur afVigdisi. karókí, þar til doktorinn tæmdi dansgólfið með útgáfu sinni af Yell- ow Submarine og var skömmu síðar slökkt á vélinni. Þó að skipverjar hafi ekki kunnað að meta túlkun dokt- orsiris (líklega hafa þetta mest verið Svíar), þá er hann enn lifandi goð- sögn í undirheimum finnskrar neð- anjarðartónlistar. Hinn geðvondi svanur Kári átti það til að bíta börn við Reykjavíkurtjörn, sem varð finnskum tónlistar- manni efniviður í lag, og varð svanurinn því um stund með þekkt- ustu íslendingunum meðal finnsks almenn- ings. En hann var í minni metum í heima- landi sínu, og vonsvik- inn yfirgaf hann Reykjavík og flaug aust- ur á land, en ekki kunnu Austfirðingar betur að meta hann og var honum lógað þar. DV setti sig í samband við nokkra Finna, og reyndar íslending bú- settan f Finnlandi, til að kanna í hvaða metum við erum í landi hinna mörgu vatna. Björk, Vigdís og leikstjóri 101 Reykjavík Hrönn er 25 ára íslendingur sem er nýflutt í bæinn Karjaa í Finnlandi og starfar þar sem leikskólakennari: „Eg hef nú ekki orðið vör við að Finnar þekki nokkuð til frægra ís- lendinga. Sú eina sem ég hef verið spurð um er Björk, og þá auðvitað í tengslum við tónlist hennar. Get ekki einu sinni sagt að fólk viti hver sendiherrahjónin eru. Ég er reyndar búin að segja svolítið frá Jóni Bald- vini og Bryndísi, nú og hljómsveit- inni Sigur Rós, en veit samt ekki hvort áheyren'durnir koma til með að muna eftir því.“ En hvað segja Finnar sjálfir? Olka Horila er leikkona, býr í Helsinki og er 3J árs: „Ég þekki Björk, Vigdísi Finnbogadóttur og svo leikstjóri 101 Reykjavík, en ég man ekki hvað hann heitir." Pekka er jarðarberjabónffl* sem býr á eyju í miðju Finnlandi í Karttula-héraði: „Ég kannast við þennan kraftamann þarna (líklega Jón Páll Sigmarsson), og kven- kyns forsetanri." Pekka er það þó minniástætt þegar Urho Kekkonen, fyrrum forseti Finnlánds, var í heimsókn á Islandi og keypti kindur af Vigdísi. Kekkonen var forseti Finn- lands í hartnær 30 ár og kölluðu gárungarnir landið Kekkóslóvakíu í valdatíð hans. Er Jón Páll ekki annars látinn? Mikko Pihala er 28 ára skógarfræðingur, eða tré- höggvari með.meiru eins og hann er kallaðúr, sem býr ná- lægt Pori í Vestur-Finnlandi: „Ég man bara eftir fyrrverandi forsetan- um, Vígdísi Finnbogadóttur, og kraftakarlinum Jóni Páli Sigmars- syni. Er hann ekki annars látinn?" Tuovi er þrítugur upplýsingarfulltrúi og býr í Helsinki: „Eg verð að viður- kenna að ég þekki bara Björk og Vigdfsi Finnbogadóttur." Riika er 21 árs stúdent frá Helsinki sem var Nordjobbari á ís- landi í fyrrasumar en er nú búsett í París: „Áður en ég kom til íslands kannaðist ég bara við tónlistar- mennina. Björk, Sigur Rós, sem eru mjög stór nöfn, og múm. Og svo Vig- dísi, auðvitað. Það var alltaf minnst á hana í sögu og landafræðibókun- um í skóla, með mynd af sér og allt. Ég fór að sjá Nóa albínóa um daginn á kvikmyndahátíð sem var tileinkuð áhrifamestu myndum ársins 2003. Keppt í því að skíra lög Sigur Rósar Anna er 36 ára kennari sem býr í Helsinki: „Ég man eftir einhverri hljómsveit sem er svona pínufræg en ég man ekki nafnið. Þeir gáfu út plötu sem hét bara „()“, og ekkert af lögunum hét neitt heldur. Jú, þeir hétu Sigur ross eða eitthvað þannig, er það ekki? Radio Helsinki, eina Vigdís Finnbogadóttir Var og er súperstjarna á Nordurlöndum en lltið þekkt annars staðar. Fáir kannast hins vegar vid ÓlafRagnar Crímsson. minni hy/jj,'álk2mmtífe?6askipumtamfk'mUm Flnnlands ™ nýtur Jón Páll Sigmarsson Vann titilinn ISkotlandí en Finnarmuna enn eftirhonum sem *Kraftakarlinum í Ftnn frjálsa út- varpsstöðin í bænum, var með keppni um daginn þar sem hlustendur áttu að skýra lögin á plötunni. Ég vann allavega ekki. Og svo man ég eftir Vigdísi. Gerir það mig nokkuð að rosknum Norðurlandabúa?" Þannig virðist sem Vigdís sé enn frægasti Islendingur- inn í Finnlandi, enda var hún súperstjarna á Norður- löndum en lítið þekkt utan þeirra. Það kemur kannski mest á óvart hversu margir muna enn eftir Jóni Páli, enda talsvert síðan hann lést. Hljómsveitir eins og Sigur Rós og múm hafa gert það gott víða, en eru líklega hlut- fallslega þekktari í Finnlandi en annars staðar, þannig að þeir skyggja jafnvel á sjálfa Björk, enda á tónlist þeirra að öllum líkindum vel við finnskan þjóðarkarakter. 101 Reykjavík og Nói albínói eru þekktar myndir, þótt nöfn aðstandenda þeirra séu ekki þekkt á hverju heim- ili, að minnsta kosti ekki enn. Svo virðist sem hver einasti íslendingur fari einhvern tímann á ævinni til London eða New York í þeim til- gangi að öðlast heimsfrægð, en flest- ir koma þó fljótt heim aftur og sætta sig við heimsfrægð á íslandi. En það er aldrei að vita hvaða íslendingur verður næstur til að öðlast heims- frægð í Finnlandi. vatur@dv.is Jón Baldvin og Bryndís Schram Sendiherrahjónin eru lltið þekkt með- al almennings i Finnlandi. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.