Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Síða 25
DV Fókus
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 25
Fartölvur eru jafn nauðsynlegar og klósett í dag. Ólíkt klósettum verða tölvurnar þó æ meiri stöðutákn.
Tölva er ekki bara tölva því að hún verður að vera flott til þess að fólk tolli í tískunni. Einu sinni var nóg
að eiga fartölvu til að vera töff alveg eins og þegar það voru bara bankastjórar sem áttu GSM. Nú eigi hins
vegar allir tölvu og þá er ekki nóg að eiga eina slíka - maður verður að eiga þá flottustu.
Fartöjvan í fanginu Stöðu-
tákn Islandsæskunnar
Ekki nauðsyn
„Gæðin réðu nú mestu
þegar ég keypti þessa tölvu
en það eru sumir sem pæla
greinilega dálítið í útlitinu
þegar þeir fá sér tölvu og
kaupa þess vegna frekar
sumar tegundir en aðrar.
Þetta hjálpar manni samt
mikið við námið en ég myndi
ekki segja að tölvan væri
nauðsynleg - þetta getur ver-
ið mikill tímaþjófur líka.
Jón Ómar Gunnarsson
Nemendur nútímans geta vart lifað án fartölvu.
Þetta á reyndar ekki bara við um nemendur því
apparötin eru orðin jafn algeng og armbandsúr -
svo það er að sjálfsögðu ekki sama hvernig tölvurn-
ar líta út. Tölva er ekki bara tölva, alveg eins og föt
eru ekki bara föt. Það eru til flottar tölvur og ljótar
tölvur. Fartölvurnar eru að verða ákveðið stöðutákn
alveg eins og bíll, klæðnaður eða húsnæði.
Útlitið farið að skipta meira máli
„Það er að færast í vöxt að fólk kaupi sér tölvur
eftir útliti," segir starfsmaður tölvuverslunar áhöf-
uðborgarsvæðinu sem DV setti sig í samband við
vegna málsins. „Auðvitað spá samt flestir fyrst og
fremst í gæði tölvunnar og eru ekki að velta útlitinu
neitt sérstaklega fyrir sér. En svo eru aðrir sem pæla
mikið í hvernig tölvurnar líta út og virðast fara fyrst
og fremst eftir því þegar þeir versla."
Annar starfsmaður í annarri verslun tók undir
þetta og sagði útlitið á tölvunum vera farið að skipta
miklu meira máli en áður.
„Hérna áður fyrr voru þetta alltaf stórir, Ijótir,
kassalaga klumpar og þá var nóg að vera með far-
tölvu til að vera töff - því þetta var mjög dýrt. Með
aukinni tækni og framförum hefur þetta náttúrlega
Engin blikkandi Ijós
„Það er fyrst og fremst þægilegt að vera
með tölvu í skólanum og mér flnnst það í
raun vera nauðsynlegt. Eg var nú sjálf ekk-
ert að spá í útlitið þegar ég keypti mína
tölvu heldur var ég aðallega að hugsa um
gæðin. Þetta er nú bara venjuleg tölva og
engin blikkandi blá Ijós eða neitt þannig
sem rnaður sér hjá sumum öðrum. Það er
samt örugglega eitthvað af fólki sem veltir
útlitinu á tölvunni mikið fyrir sér og tekur
útlitið fram yflr gæðin."
Anna Ólafsdóttir,
Varðað vera
1 hljóðlát og góð
„Tölvan er alveg nauðsyn-
I leg í námið en útlitið skipti
ekki svo miklu máli þegar ég
keypti hana. Ég var aðallega j
að hugsa um verðið og stærð-
ina en það eru eflaust margir
I sem pæla dálítið meira í útlit-
inu. Ég vildi líka hafa tölvuna
hljóðláta og góða þannig að
það réð því nú eiginlega að ég
keypti þessa.“
Ragna Pálsdóttir
breyst. Tölvurnar verða stöðugt minni og ákveðinn
stíll er kominn yfir þær. Það er því með þetta eins og
annað að fólk vill hafa hlutina flotta. Maður fær
stundum ungt fólk hingað inn sem hefur ekki
hundsvit á tölvum en kaupir samt það dýrasta og
flottasta. Stelpurnar eru t.d. mikið fyrir litlu Apple-
tölvurnar en strákarnir leggja meira upp úr að hafa
þetta með sem mestum búnaði, t.d. með DVD-
skrifara og nýjum örgjafa.“
Útlit og gæði ráða enn
Báðir tölvusérfræðingarnir sem rætt var við
segja að framleiðsluaðilar fartölva séu í auknum
mæli farnir að hugsa út í útlitið og þarfir neytenda.
Þannig eru sömu tölvurnar nú farnar að vera fáan-
legar í nokkrum mismunandi litum, svo dæmi séu
tekin.
í óformlegri könnun sem gerð var meðal nokk-
urra nemenda í Háskóla íslands og Háskólanum í
Reykjavík sögðu flestir nemendur tölvurnar vera
gagnlegt hjálpartæki í náminu en ekki nauðsynlegt.
Fæstir sögðust hafa hugsað út í útlitið þegar tölv-
urnar voru keyptar, heldur réðu verð og gæði
mestu. Útlitið virðist þó vera farið að skipta meira
máli og staðfestu nokkrir nemendanna það.
Ánægður með
svarta litinn
„Ég hugsaði ekkert út í útlitið
þegar ég keyptri mína tölvu. Það
var þannig að ég var skiptinemi
erlendis og keypti tölvuna til að
geta verið í sambandi við um-
heiminn á meðan ég var úti. Ég
hugsaði aðallega um hversu góð
tölvan væri og keypti þess vegna I
ekki það allra ódýrasta heldur fór
í aðeins dýrari verðflokk til að fá
meiri gæði. Svo er ég reyndar
bara mjög sáttur við útlitið á
henni - ég var aðallega að hugsa
um að hafa hana svarta."
Þórir Hall Stefánsson
Tímaþjófur
„Þetta er nauðsynlegt í náminu og það
| fylgja þessu mikil þægindi. Ég lít ekki á tölv-:
una sem stöðutákn heldur sem hjálpartæki *
| við námið. Ég er glósandi allan daginn og er J
miklu fljótari að nota tölvuna heldur en að j
skrifa. Það getur reyndar stolið af manni dá-
I litlum tíma að vera með tölvu, sérstaklega j
j þegar maður er nettengdur. En mér flnnst 1
þetta vera nauðsynlegt í náminu og útlitið á ii
tölvunni skiptir mig engu. Það var bara mælt ;i
með þessari og verðið var viðráðanlegt."
Unnur Edda Sverrisdóttir
I .......................... I