Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Page 29
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚÁR 2004 29
r
DV Fókus
Mamætan Jolie Reynir aö
sinnlra draumapari
Jennifer Aniston verður vart ánægð þegar hún fréttir af nýjasta uppátæki kærastan ,
Brads Pitt. Hann er þessa dagana að undirbúa tökur á kvikmyndinni Mr. and Mrs. Smith
þar sem hann leikur á móti „mannætunni" Angelinu Jolie. Brad og Angelina voru á dög-
unum að æfa senur í miðborg Los Angeles þegar myndir náðust af þeim látandi vel
hvort að öðru. „Það voru augljóslega neistar á milli þeirra,“ sagði heimildarmaður
sem sá til þeirra. „Þau gengu meira að segja svo langt að leiðast og láta vel hvort að
öðru, jafnvel þó að fullt af fólki væri í kring. Síðar tók Brad höndina á Angelinu og
setti hana inn á sig.“
í myndinni leika hinn fertugi Brad og 28 ára Angelina hjón sem eru bæði leigu-
morðingjar og fá það verkefni að drepa hvort annað. Það eru þó ekki morðin
heldur möguleg ást þeirra í mUium sem Jennifer Aniston þarf að hafa áhyggjur
af þessa dagana.
„Ég held að Jennifer hafl kviðið því lengi að Brad myndi léki á móti Angel-
inu,“ sagði vinur þeirra og benti á að hún hefði margoft lent í því að vera yfirgef-
in af þeim sem hún elskar. Ótti við það nái alveg aftur til barnæsku þegar pabbi
hennar, John Aniston, yfirgaf hana og móður hennar fyrir aðra konu.
Það hjálpar svo eflaust ekki til að Angelina Jolie er þekkt fyrir að negla mót-
leUcara sína í kvikmyndum. Hún hefur gifst tveimur þeirra; Johnny Lee MUler
sem hún lék á móti f Hackers og BUly Bob Thornton sem hún lék á móti í Pus-
hing Tin. Þar að auki hefur hún verið orðuð við nokkra aðra mótleikara sfna.
Þar á meðal má telja
rad og Jennifer Aniston Hún situr heima, tilbúin ^stofna fjol-
(yldu, en á meöan þarfBrad að forðast mannætuna Jolie sem er
ön að negla mótleikara sina.
Olivier Martinez,
Nicolas Cage og
Colin Farrell. A
meðan þessu fer
frambíður Jenni-
fer Aniston
heima og
undirbýr
það að
stofna
fjölskyldu
með Brad
sínum Pitt.
Spurningin
er hvort
samband
þeirra
endist tU
þess.
Kammerkór Hafnarfjarðar hélt tónleika í Hásölum
Idol-stjarna á kammertónleikum
Kammerkór Mosfellsbæjar Það vantar töluvert upp á það hjá kórnum að geta komið fram
á tónleikum sem þessum.
Með Hafnarfjarðarkórnum
sungu Kammerkór Reykjavíkur,
undir stjórn Sigurðar Bragasonar, og
Kammerkór Mosfellsbæjar sem
Tónleikar
3 '-.....stjórnaði.
Fyrrum Idol-stjarnan Ardís Ólöf fór
á kostum og framan af voru tónleik-
arnir nokkuð góðir. Frammistaða
eins kórsins skyggði þó óneitanlega
á heildarmyndina.
Tónleikarnir hófust á madrígala-
syrpu Kammerkórs Hafnarfjarðar.
Þar var flutt vönduð efnisskrá sem
bæði kórinn og stjórnandinn, Helgi
Bragason, höfðu mikla ánægju af.
Madrígalinn „Go crystal tears" var
sérstaklega fallegur; studdur af pí-
anói þótt láðst hafi að geta þess í
efnisskránni. í madrígalanum „You
want my pipes to sound" eftir
Thomas Morley bar þó á því að
tónninn yrði örlítið flatur þegar
sungið var á sérhljóðanum í - sem er
einna erfiðasti sérhljóðinn að flytja í
kórsöng. Bassinn var hins vegar frá-
bær; þéttur og með fallegan hljóm,
en vafalaust hefði einn aukatenór
ekki skemmt fyrir heildarmyndinni.
Síðasti madrígalinn „Lasciate mi
morire" eftir Claudio Monteverdi
var hápunktur prógrammsins. Kór-
inn sýndi mikla innlifun og tókst að
láta verkið lifna við í frábærum
hljómburði Hásala.
Kammerkór Reykjavíkur var næst-
ur í röðinni og hóf prógramm sitt á
dúetti úr Stabat mater dolorosa eftir
G. B. Pergolesi. Dúettinn var fluttur af
Sigurlaugu Arnardóttur og Ardísi
Ólöfu Víkingsdóttur en báðar syngja
þær með kórnum. Ardís hefur þegar
getið sér gott orð með þátttöku sinni í
Idol-stjörnuleit, en sýndi hér á sér
aðra hlið. Gullfalleg rödd Ardísar
skein í gegnum verkið og engin
spurning er að klassíkin liggur jafn vel
fyrir henni og poppsöngurinn.
Það skyggði hins vegar á dúettinn
að undirleikarinn, Arnhildur Val-
garðsdóttir, yfirgnæfði á köflum
sönginn. Ásláttur hennar var harður
og á köflum keyrði hún verkið áfram
líkast því sem spilað væri á fótstigið
orgel en ekki Steinwey and sons
flygilinn sem prýðir Hásali.
Þrátt fyrir slæman píanóleik
sýndi Kammerkór Reykjavfkur vel
hvers hann er megnugur. Islensku
þjóðlögin voru glæsilega flutt með
skemmtilegum styrkleikamun og
hreinum tón. Hápunkturinn var þó
Heilræðavísa Jóns Nordals þar sem
hendingarnar voru hárrétt mótaðar
og hver einasta öndun á réttum stað.
Áhorfendum ekki skemmt
Síðasti kórinn til að stíga á stokk
var Kammerkór Mosfellsbæjar.
Efnisskrá hans, sem samanstóð af
gospelsöng og indjánadansi, var í
engu samræmi við það sem á und-
an hafði gengið og kórinn sjálfur á
allt öðru stigi en hinir tveir; bæði
var hann fáliðaður, kórmeðlimir
gamlir og mikið vantaði upp á
hreinleika og intóneringu milli
radda. Til að vega upp á móti gæð-
um söngsins voru lögin skreytt
með hringlum, hristum, bongó-
trommum og gítarspili; eitthvað
sem á engan veginn heima í öguð-
um kammersöng.
Ölerindi eftir Gunnar Reyni
Sveinsson, við texta Hallgríms Pét-
urssonar, sýndi glöggt þann vanda
sem kórinn á við að etja. í miðkafla
verksins, sem er í þjóðlegum stíl,
liggur mikið á hreinum fimmunda-
söng. Fimmundirnar voru nær alltaf
óhreinar og fékk maður þá tilfinn-
ingu að hér væri „tónskrattinn“
frægi að minna á sig. Tveimur
gospelsöngvum síðar ákvað kór-
stjórinn að taka aukalag sem bætti
litlu við það sem á undan var gengið.
Það vottaði því fyrir kaldhæðni þeg-
ar kórstjórinn bauð hinum kórunum
að sameinast þeim í „söng“ fyrir
lokalag tónleikanna.
Mistök skipuleggjenda
Þrátt fyrir þau mistök að blanda
áhugamannakór inn í vandaða efn-
isskrá tveggja kammerkóra voru
ljósir punktar á tónleikunum. Sér-
staklega lét Ardís Ólöf ljós sitt skína
og er greinilega efni í góða óperu-
söngkonu. Það er hins vegar ekki
hægt að bjóða áheyrendum upp á
hvað sem er og ábyrgðin á því hlýtur
að liggja hjá skipuleggjendum tón-
leikanna. Símon Birgisson
Stjörnuspá
Haukur Ingibergsson, forstjóri Fast-
eignamats ríkisins, er 57 ára í dag.
„Maðurinn vill f ein-
lægni að fólkinu í
kringum þig líði
vel. Afstaða tungls
og sólar, ásamt
veðrabreyting-
um, hefur jafnvel
sterkáhrif á líðan
þess sem hér um
ræðir," segir í
stjörnuspá
hans.
Haukur Ingibergsson
VV Vatnsberinnf2o./<m.-/«./efcj
VV -------------------------------------
Gleymdu ekki smáatriðum líð-
andi stundar því þau eiga það til að sýn-
ast smá í þínum augum en eru stór og
mikilvæg. Ekki hika við að setja óskir þín-
ar fram þótt þær virðist sérviskulegar á
einhvern hátt. Þú nærð þínu fram hvort
sem um starf þitt eða einkalíf ræðir.
F\skm\f (19.febr.-20.mars)
Ef þú stendur í fjárfestingum
þessa dagana er þér ráðlagt að fara var-
iega í þeim efnum. Ekki fjárfesta eins og
þú sért að spila póker, og allra síst án þess
að kanna hvað liggur að baki.
Hrúturinn 121.mars-19.aprn,>
H
T
Skoðaðu ávallt spilin þín vand-
lega, ef svo má segja, frekar en nokkuð
annað til að tryggja hvaða eiginleika þú
ert fær um að nýta hverju sinni til að var-
anlegur árangur náist. Ef þér Ifst nógu vel
á spilin þfn ættir þú að spila úr þeim og
reyna að ná eins góðum árangri með
þeim og þú getur.
ö
Nautið (20.april-20.maH
n
Þú ættir að fylgja óskum þfnum
eftir án þess að snúa við á miðri leið því
markinu verður náð hjá stjörnu nautsins.
Millivegurinn er góður fyrir fólk eins og
þig, sér f lagi vikuna fram undan.
Tvíburarnire/. mal-21.júni)
Þú átt sérstaklega auðvelt með
að sjá hvernig náunganum Ifður, sem er
jákvæður eiginleiki í fari þínu. Kappsfullur
er tvíburinn um þessar mundir þar sem
þú undirbýrð ómeðvitað nýjan kafla sem
hefst þegar líða tekur á febrúar.
Krabbinnpj ,júnl-22.júll)
Kjarkur einkennir stjörnu
krabbans hérna. Þú birtist sem sannfær-
andi manneskja sem er fær sem að láta
drauma sína lifna við á auðveldan hátt. Þú
hefur stundum tiihneigingu til að gefast
upp þegar mest á reynir en þar ættir þú
að herða sjálfið og finna lausn því hún er
vissulega ávallt til staðar.
1
di
l]Ón\<!) (23. júli-22. ágúst)
Um þessar mundir ert þú
minnt/ur á að þótt þú standir betur að
vígi er ekki þar með sagt að þú þurfir að
færa þér það í nyt. Ef það er mikil ábyrgð
sem hvílir á þér þessa stundina, munt þú
eiga auðvelt með að takast á við allt sem
kann að blása á móti þér.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.)
Þú munt ná hámarksárangri
þetta árið ef þú stendur við orð þín gagn-
vart sjálfinu. Athugaðu að hlusta vand-
lega á tilfinningar þínar sem vísa þér
sannarlega fram á réttan veg. Ekki kyngja
tilfinningum þinum, opnaðu hjarta þitt.
Q Vogin (23.sept.-23.okt.)
Fólk fætt undir stjörnu vogar ætti
að ganga frá lausum endum þegarfjármál-
in eru annars vegar. Nýr kafli er um það bil
að hefjast hérna og á sama tíma birtist
spennandi og langt ástarsamband sem þró-
ast í áttina að öilu alvarlegri málum.
TIL
Sporðdrekinn i2iokt.-21.n0vj
Ef þú átt erfitt með að vakna í
upphafi dags er það hreyfingaleysi sem
kann að valda því og ef það er mikil
ábyrgð sem hvílir á þér þessa stundina,
munt þú eiga auðvelt með að takast á við
allt sem kann að blása á móti þér.
/
Bogmaðurinn P2. nóv-21.«
Stjarna bogmanns sýnir
ómælda heppni og lukku hérna. Njóttu
þess að vera á meðal vina þinna í stað
þess aðdraga þig íhlé.
z
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Hreyfing og heilsuefling mun
efla stjörnu steingeitar til muna og ætti
fólk fætt undir stjörnu þessari að hafa það
hugfast. Ef dagsformið er ekki í lagi ættir
þú að taka þér stutt leyfi og hlaða orku-
stöðvar þínar.
SPÁM AÐUR.IS
I