Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2004, Page 9
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2004 9
Grunur leikur á að maðurinn sem fannst myrtur í höfninni í Neskaupstað ígær, með skot- og stungusár, kunni að
vera erlendur skipverji en einskis manns er saknað íplássinu. Starfsmenn á pöbbnum í Egilsbúð á laugardags-
kvöld telja sig hafa séð manninn á barnum sem var þétt setinn enda Neskaupstaður einangraður vegna óveðurs.
Skotinn, stunginn - pakkað í plast
Það var um klukkan ellefu í gærmorgun sem
Þorgeir Jónssonkafari fann líkið dularfulla við svo-
kallaða Netabryggju á Neskaupstað. Þorgeir var að
kanna skemmdir sem urðu á bryggjunni í óveðri í
síðustu viku. Samkvæmt heimildum DV var líkið
vafið í plast sem fest var með límbandi. Keðjur
höfðu verið vafðar yfir brjósthol líksins og þungar
gúmmíkúlur bundnar við fætur þess til þess að
sökkva því. Samkvæmt heimildum DV var skotsár
á hálsi og þrjú stungusár. Það leit ekki út fyrir að
líkið hefði legið lengi í sjónum, í mesta lagi í
nokkra daga.
Óhugnarlegt
Gísli Gíslason hafnarstjóri var á bakkanum
þegar líkið fannst enda var Þorgeir að kafa fyrir
hann. „Hann kom upp og var brugðið. Ég hringdi
strax í lögregluna og vék af vettvangi þegar hún kom á
staðinn," segir Gísli. „Maður er vægast sagt mjög hissa,"
segir hann og bætir við að hann viti ekki til þess að nokk-
urs sé saknað úr bæjarfélaginu.
„Þetta hefur farið um eins og eldur í sinu og fólk er
mjög slegið,“ sagði Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar
Fjarðabyggðar. „Mönnum flnnst þetta mjög óhugnanlegt
en fólk veit mest lítið. Ég hef ekki heyrt um að nokkurs
manns sé saknað í bænum en menn verða að hafa í huga
að það er mikið um erlendar skipakomur. Maður fer að
velta fyrir sér þeint möguleika að þetta kunni að vera er-
lendur maður." Lögreglan rannsakaði alla þræði og fljót-
lega var farið að kanna hvort einhvers af erlendu skip-
i væri saknað.
H
Gísli Gíslason, Egilsbúð og Jóhannes Pálmason Grunurlékáað hinn myrti hafi verið
útlendingur sem sat að drykkju i Egiisbúð um helgina. Lögregla kannar þó alla þræði.
Norskt loðnuskip
Farið var um bæinn með Polaroid-mynd af andliti hins
látna og spurst fyrir um manninn. Starfsfólk í Hótel Egils-
búð þóttist kannast við hann. Einn þeirra taldi víst að hinn
myrti væri útlendingur, einn þriggja manna sem hefðu set-
ið út af fyrir sig á barnum á Egilsbúð á laugardagskvöld.
Veður var fremur hryssingslegt og Neskaupstaður hafði ver-
ið einangraður frá því kvöldið áður þegar skall á með stór-
hríð þannig að fjallvegir tepptust. Nokkuð fjölmennt var í
Egilsbúð, meðal annars hópur manna frá Eskifirði sem var
veðurtepptur á staðnum. Starfsmaðurinn í Egilsbúð taldi
víst að hinn myrti hefði farið með drykkjufélögum sínum
tveimur og fengið far niður á bryggju með bflstjóra Sfldar-
vinnslunnar.
Þrír hásetar á Súlunni voru einnig í Egilsbúð þetta Iaug-
ardagskvöld. Jóhannes Gísli Pálmason var einn
þeirra og mundi vel eftir þessum þremur útlend-
ingum. „Þeir voru af norska loðnuskipinu Seni-
;j v or, allavega tveir þeirra. Þeir sátu á næsta borði
og þegar verið var að loka staðnum um klukkan
þrjú eða hálf ijögur komu tveir þeirra niður í
Súlu.“ Jóhannes segir að þessir tveir, skipstjórinn
og yfirvélstjórinn hafi, þegið veitingar og boðið
þeim síðan yfir í Senior. Þeir kvöddust undir
morgun og hélt Súlan úr höfn um klukkan átta
en áformað var að Senior færi um klukkan tíu.
Jóhannes taldi víst að þriðji maðurinn við borð
Norðmannanna, - rnaður þéttur á velli, meðal-
maður á hæð, hefði horfið á milli klukkan tólf og
eitt. „Hann var um þrítugt, með gleraugu og
svona eftir á að hyggja var dáh'tið undarlegt að
hann skyldi hverfa svona snemma. Fljótlega eftir
miðnætti tók maður ekkert eftir honum," segir Jóhannes og
fullyrðir að það hafi ekki aðrir útlendingar en þessir þrír
verið á staðnum. Það var annars fremur rólegt yfirbragð á
mönnum í Egilsbúð þetta kvöld að sögn hásetans.
Vitlaust veður
Hafi líkinu verið varpað fram af Netabryggjunni aðfaranótt
sunnudags virðist enginn hafa orðið var við atburðinn eða dul-
arfullar mannaferðir. Netabáturinn Guðmundur Ólafur var
skammt undan netabryggjunni við Ioðnufrystingu þessa nótt.
Maron skipstjóri varð einskis var. I netagerð Friðriks Vilhjálms-
sonar upp af Netabryggjunni voru nienn að vinna fram á að-
faranótt sunnudags. Guðmundur Freyr Gilsson var þar við
störf: „Það var vitlaust veður. Við urðum ekki varir við neitt
nema vindinn."