Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2004, Blaðsíða 31
r
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2004 31
DV Siðast en ekki sist
Heimastjórnarhátíð fyrir alþýðuna - forsetanum boðið
Fjórir ísfirðingar vinna nú að und-
irbúningi heimastjórnarhátíðar fyrir
alþýðuna íyrir vestan. Hátíðin verður
haldin í sumar og er ákveðið að Ólafi
Ragnari Grímssyni forseta verði
formlega boðið. Nú þegar hefur ein
heimastjórnarhátíð verið haldin á
ísafirði og önnur í Reykjavík, báðar
mjög umdeildar vegna fjarveru for-
setans og almennings.
„Ég kalla það ekki hátíð þegar bæj-
arstjórnin heldur kvöldverðarboð íyrir
sjálfa sig. Það eru engin tímamót í sjál-
fu sér. Bæði hér og fyrir sunnan var
forsetaembættið sniðgengið í þessu
öllu saman, það er með eindæmum,"
segir Jón Fanndal Þórðarsson, veit-
ingamaður á flugvellinum á Isafirði og
einn skipuleggjenda hátíðarinnar.
Hátíðin á Isafirði hefur vinnuheit-
ið „Heimastjómarhátíð fyrir alþýð-
una.“ Ástæða þess að enn ein heima-
stjórnarhátíð verður haldin er sú
skoðun skipuleggjendanna að hinar
hátíðirnar hafi ekki verið fyrir al-
menning heldur ráðamenn. „Við vild-
um skilyrðislaust að þetta væri hátíð
almennings eins og allar aðrar hátíðir
frá árinu 1874. Við þurfum að fá ein-
hvern mann til að halda hátíðarræðu.
Forsetaembættið er sameiningartákn
þjóðarinnar og það er uppi á teningn-
um að bjóða Olafl og Dorrit," segir
Jón Fanndal.
Útlit er fyrir að engum öðrum en
forsetanum verði boðið formlega, en
allir eru guðvelkomnir, að sögn Jóns.
Hlutverk forsetans, ef hann undir-
gengst það, verður að halda hátíðar-
ræðu og opna hátíðina.
Deilurnar um hvort forsetanum
hafi verið boðið eða ekki boðið á
heimastjórnarhátíðina í Reykjavík,
sem skipulögð var af forsætisráðuneyt-
inu, em af mörgum sagðar hafa litast af
pólitík. Jón Fanndal er fyrmm félagi í
Sjálfstæðisflokknum og ræktaði garða
fyrir hönd Davíðs Oddssonar, þáver-
andi borgarstjóra, þegar hann starfaði
sem garðyrkjufræðingur hjá Reykjavík-
urborg. Hann segir að engin pólitík sé
viðloðandi hátíðina fyrir vestan. Þeirri
stefnu verði þó fylgt að halda hátíð fyr-
ir fólkið, meðal annars verði söngkraft-
ar fengnir til að fara með texta Hannes-
ar Hafsteins, ekki síst „Sú kemur tíð, er
sárin foldar gróa." jontrausti@dv.is
Jón Fanndal Þórðarson
Fyrrí hátíðir vegna Heima-
stjórnarafmælisins voru
handa hástéttinni, að mati
fjögurra Isfirðinga sem ætla
að halda aðra hátíð í sumar
fyrír aiþýðuna. Forsetan
um verður boðið form-
lega.
• Áform sjónvarpsþáttar Stöðvar
tvö, íslands í bítið, og söngkon-
unnar og fyrrum barnastjörnunnar
Ruthar Reginalds um að leggja út í
allsherjar lýtaaðgerð og klössun á
Ruth virðast hafa tekið á sig hinar
furðulegustu myndir. Er þá ekki
verið að vísa til þess hversu um-
deildar lýtaaðgerðir eru eða hvort
lýtalæknir Ruthar brjóti með þessu
þá grein læknalaga sem kveður á
um hvað lækni sé leyfilegt að gera
til að auglýsa sig - og hvað ekki.
í gær fylgdist fsland í dag, dæg-
urmálaþáttur þáttur Stöðvar tvö, í
tengslum við fréttir, í umsjá þeirra
Þórhalls Gunnarssonar og Jóhönnu
Vilhjálmsdóttur, með því hvernig
til tókst við að flikka upp á andlit
Ríkeyjar Ingimundardóttur, móður
Ruthar.
Eins og landsmenn þekkja
gagnrýndi Ríkey Ruth harkalega
fyrir opinskáar og, að því er hún
segir, rangar yfirlýsingar í bók sinni
sem kom út fyrir síðustu jól. Sumir
vildu halda því fram að þetta væri
öðrum þræði stríð eða keppni
mæðgna um athygli. Nú er það
hins vegar deginum ljósara að það
stefnir í harða keppni um athygli
milli Ruthar og Ríkeyjar annars
vegar og hins vegar Islands I bítið
og Islands í dag, sem byggist á
áhuga almennings á lýtaaðgerðum
í sjónvarpi að hætti ameríska þátt-
arins Extreme makeover.
• Atli Ásmundsson, hægri hönd
HaUdórs Ásgrímssonar og sérlegur
blaðafulltrúi hans í utanríkisráðu-
neytinu, hefur verið gerður aða!-
ræðismaður íslands í Kanada. Það
er ígildi sendi-
herratitils. Atli
mun að vísu hafa
verið formlegur
starfsmaður utan-
ríkisþjónustunnar
en þó vekur at-
hygli að maður
sem fyrst og
fremst hefur verið
pólitískur ráðgjafi ráðherra sé
gerður að sendiherra. Óánægðir
menn innan utanríkisþjónustunn-
ar halda því fram að staðan sé fyrst
og frernst verðlaun til Atla fyrir þátt
hans í að lyfta Framsóknarflokkn-
um upp úr lægðinni fyrir kosning-
arnar í fyrra.
RÁÐSTEFNA f DAG
FR A.IN/ITÍÐ IINJ
í fasteignaviðskiptum
í dag verður ráðstefna haldin á Nordica Hóteli þar sem rætt verður
hvaða breytingar eru framundan á fasteignamarkaðinum.
Félagsmálaráðherra hefur kynnt breytingar á opinbera húsnæðislánakerfinu, bankar og lánastofnanir ætla sér
að keppa af fullum krafti við opinber lán og nýttfrumvarp liggur fyrir Alþingi sem mun breyta rekstrarumhverfi
fasteignasala. í Ijósi þessa er tímabært að halda ráðstefnu sem ætlað er að skoða stöðuna á markaðinum og
líta fram á veginn til þess að meta hvernig aðstaða fasteignasala og kaupenda verður á næstu misserum.
13.00 -13.10
13.10 -13.40
13.45 -14.05
14.10 -14.30
14.35 -14.50
14.55 -15.15
15.20 -15.40
15.45 -16.05
16.10 -17.00
Fundarstjóri setur fundinn
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík
Nýtt húsnæðislánakerfi
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra
Samanburður á lánamöguleikum til húsnæðlskaupa
Guðrún Mjöll Sigurðardóttir, hagfræðingur
Ný lög um starfsemi fasteignasala
Björn Þorri Viktorsson, formaður Félags fasteignasala
Kaffihlé
Helstu nýjungar í rafrænu vinnuumhverfi fasteignasala
Habilis hugbúnaðarhús, rekstraraðili fasteignavefsins habil.is
Notkun fasteignablaðana
Hafsteinn Már Einarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri IMG Gallup
Fasteignamarkaðurinn - Hver hefur þróunin verið?
Haukur Ingibergsson frá Fasteignamati ríkisins
Léttar veitingar í boði íslandsbanka
ÍSLANDSBANKI
habil.is
-fastelgnlr á netlnu
fréttablaðið
Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna með því að senda póst á radstefna@habiMs - Þátttökugjald er 3.000 krónur.
Nordica Hótel 12. febrúar 2004 frá kl. 13 -17
FRAMTÍÐI l\l
í fasteignavióskiptum
f-mynd Birgir Þór Halldórsson