Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Blaðsíða 29
r
0V Fókus
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 29
Orew Barrymore er hrædd
við að skuldblnda slg VIII ekki
Stjörnuspá
Bjarni Daníelsson óperustjóri er 55 ára í
dag.„Maðurinn getur
heillað og töfrað
fólk og á auðvelt
með að vera flek-
andi ef því er að
skipta og persónu-
legar þarfir hans
knýja hér á af
miklum hraða,"
segir í stjörnuspá
hans.
isheppnað hjonaband
Kvikmyndastjarnan Drew Barrymore
hefur rekið rýting í hjartastað á kærasta
sínum Fabrizio Moretti með því að
neita að ákveða dagsetningu fyrir
brúðkaup þeirra. Barrymore er svo
upptekin aif því að rifja upp öll gömlu
og misheppnuðu samböndin sín að
hún á í miklum erfiðleikum með að
binda sig og af þeim sökum segja
heimildarmenn að samband þeirra
sé í hættu.
„Drew er ástfangin af Fab en hún
er dauðhrædd við að giftast
aftur ef það skyldi ekki
ganga upp,“ sagði vinur
leikkonunnar. Nýlega lét
stúlkan svo þessi orð
falla sjálf: „Mig langar
svo mikið að eignast
t fjölskyldu og mér
I finnst kærastinn
minn rétti maðurinn
tO að vera með en ég
vil ekki gera nein
mistök.“
1*
\ -
\ t"
Nei í þriðja sinn
Fab, 23 ára, er
trommari í rokksveit-
inni The Strokes og
nýtur þar með mikillar
velgengni sjálfur.
Hann kýs þó frekar
rólegt líf með kærust-
unni en að elta
grúppíur sem fylgja
hlj ó m sveitalífinu.
Fab og Drew byrjuðu
saman í maí 2002 og
hann bað hennar fyrst
þegar þau voru búin
að vera saman í ein-
ungis fjóra mánuði.
Drew varð mjög ánægð
með bónorðið og
hoppaði af gleði
og sagði: „já, já,
ekki spurning!" að
sögn vinar þeirra.
Síðan þá hefur aftur á
móti ekki verið eins bjart yfir málum
hjá skötuhjúunum og Drew hefur ekki
viljað negla niður dagsetningu á brúð-
kaupinu. Nýlega gekk Fab á hana í
þriðja sinnið og vonaðist til þess að
henni hefði snúist hugur en hin 29 ára
stjarna sagði nei.
Allt of mörg misheppnuð sambönd
„Hún horfir fast á þau augljósu mistök
Drew og Fab Búin að vera saman slðan i mal2002. Hann
bað hennar þegar þau voru búin að vera saman i fjóra mán-
uði. Hún sagðijá en hefur siðan fengið bakþanka.
Victoria Beckham er orðin ljóshærð
Ég vil ekki líta út eins og fíflið Jordan
Victoria Beckham er komin méð
sítt ljóst hár. „Ég vil ekki líta út eins
og fíflið Jordan," sagði fína kryddið
við hárgreiðsludömurnar en hún og
glamúrgellan Jordan hafa rifist op-
inberlega í nokkurn tfma. Þegar
Victoria kom inn á hárgreiðslustof-
una hafði hún axlasítt dökkt hár en
þegar hún fór þaðan 5 klukku-
stundum síðar var hún mjög breytt.
„Við höfum séð um hárið á henni í
nokkur ár og þetta er langmesta
breytingin sem hún hefur þorað í,“
sagði starfsfólk hárgreiðslustofunn-
ar. Victoria fékk að nota sér her-
bergi sem sérstaklega er ætlað fyrir
fína og fræga fólkið. Tvær konur
voru í 5 klukkutíma að lengja og lita
á henni hárið en auk þess tók hún
með sér sína eigin hárgreiðslu-
dömu til að greiða nýja hárið. Ljósu
lokkarnir voru úr spænsku hári en
Victoria býr einmitt á Spáni ásamt
Beckham manni sínum.
Sama stofa sér um hárið á Jord-
an þannig að Victoria gat verið viss
um að fá ekki nákvæmlega eins hár
og erkióvinkona sín því hár-
greiðslufólkið þekkir hár þeirra
beggja mjög vel. Jordan hefur upp á
síðkastið verið að saka Victoriu um
að ljúga í fjölmiðla um hvort hún sé
með sflikon í brjóstunum og ekki
var það til að slaka á spennunni á
milli þeirra.
Lfklega er fyrrverandi kryddpían
að gera sig svona fína fyrir fimm ára
afmæli Brooklyn sonar síns en af-
mæli hans var haldið hátíðlegt dag-
inn eftir útlitsbreytinguna í Beck-
ingham-höll, eins og hús þeirra
hjóna í London er kallað.
sem hún gerði í fyrri samböndum sínum," sagði
heimildarmaður sem þekkir vel til stúlkunnar.
Þegar Drew var 17 ára trúlofaðist hún leikaran-
um Jamie Walters en þau slitu samvistum fimm
mánuðum síðar. Tveimur árum eftir þetta giftist
hún bareigandánum Jeremy Thomas, aðeins
nokkrum klukkustundum eftir að hún bað hans.
Það liðu þó ekki nema 19 dagar þar til þeim sinn-
aðist og skilnaður fylgdi fljótlega í kjölfarið. Árið
2001 giftist hún svo grínistanum misheppnaða
Tom Green en það hjónaband entist einungis í
fimm mánuði.
Eins og þetta sé ekki nóg hefur Drew
Barrymore mátt ganga í gegnum ýmsa harmleiki
í íjölskyldu sinni. Pabbi hennar var kolgeggjaður
alkóhólisti sem skildi við móður hennar áður en
Drew fæddist.
Pressan magnast á Drew þessa dagana því
Fab segist ekki viss um hvort hann geti haldið
sambandinu áfram án endanlegrar skuldbind-
ingar. Drew er á milli steins og sleggju og hefur
frestað ákvarðanatöku um giftinguna fram á
sumarið. Þessa dagana leitar hún ráða hjá fólki
sem hún þekkir og ein þeirra er leikkonan
Cameron Diaz sem lék með henni í Charlie’s
Angels.
„Cameron sýnir Drew mikinn stuðning og
segir henni að fylgja eðlisávísun sinni. En hún
hefur einnig áhyggjur af henni," sagði vinur
þeirra. „Ef Fab gefst upp og fer frá henni á Drew
eftir að verða í rusli."
Bjarni Daníelsson
VV Mnsbemn (20. jan.-18.febr.)
vv ---------------------------------------
Ef þú hefur orðið fyrir von-
brigðum í tilhugalífinu ættir þú ekki að
örvænta heldur opna hjarta þitt fyrir ást-
inni. Þú hefur án efa lagt grunn þinn að
farsælli framtíð og tekist það sem þú ætl-
ar þér. Hér á vel við stjörnu vatnsberans
að hver er sinnar gæfu smiður.
M
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
Stundum áttu það til að taka
ekki eftir því hvað þú ert að velja yfirhöfuð.
Þú getur látið drauma þína rætast ef þú
starfar eftir hjarta þínu með því að hlusta
gaumgæfilega á langanir þínar og þrár.
CVO MWm(21.mars-19.aprll)
Leyfðu draumum þínum að
fylgja löngunum þínum og þú getur verið
fullviss um að hlutirnir breytast óvænt þér
í hag í fyllingu tímans. Mikil birta umlykur
stjörnu hrútsins hérna þegar helgin fram
undan er tekin fyrir, sem er vissulega já-
kvætt.
ö
NaUtÍð (20. aprll-20. mai)
n
Fólki fætt undir stjörnu nautsins
er ráðlagt að missa ekki móðinn. Þú ættir
að setjast niður og ræða við yfirmann
þinn eða kennara um þau atriði sem
kunna að valda þér vanlíðan í starfi/námi.
Tvíburarnirpf .mai-21.júní)
Þú ert fædd(ur) foringjaefni en
ættir að læra að næra sjálfið til muna sem
og dýpstu tilfinningar þínar, sem þú átt til
að gleyma þegar mikið gengur á hjá þér.
KrMm(22.júni-22.jM
Ef tilhugalífið er ekki eins og
það ætti að vera milli þín og manneskju
sem er þér kær er það árstíminn sem
veldur, en ekki tilfinningar ykkar til hvors
annars. Setjist niður og takið ykkur tíma
fyrir tilhugalífið og njótið selskaparins yfir
helgina.
LjÓn Íð (23.júli- 22. ógúsr)
Fólk fætt undir stjörnu Ijónsins
kýs án efa að réttlæti og friður ríki í kring-
um það. Yfir helgina værir þú vis til að
velja ranga leið ef þú hugsar ekki máiið til
enda. Hugaðu að þörfum þínum fyrst og
fremst.
Meyjangj. ágúst-22.sept.)
Þú nærð góðum árangri í starfi
þínu sem leiðtogi og munt eftir helgina
miðla þekkingu þinni til annarra með
réttu viðhorfi. Kannaðu vel eigin gildi og
undirbúðu verkefni sem er nú þegar hafið
en gleymdu ekki að virkja fólkið sem
starfar með þér í verkið.
Q Voginf21.sepr.-21.ofrj
Helgina fram undan munt þú
jafnvel þreifa varlega fýrir þér í tengslum
við starf þitt á einhvern hátt. Þér er ráðlagt
að sýna varkárni, fara varlega og taka eitt
skref í einu. Skipulag á vel við viðskipti en
ekki í einkalífi, mundu orð þessi og hug-
aðu vel að áherslum þínum yfir helgina.
Sporðdrekinn (24.ot.-21. ™w
Manneskja birtist von bráðar
sem mun hjálpa þér mikið næstu daga
(yfir helgina jafnvel) tengt starfi þínu eða
áhugamáli. Láttu til leiðast og taktu mark
á viðkomandi. En hlustaðu þó ávallt á
hjarta þitt.
Bogmaðurinn (22. n&-2;.<Hj
/
Ekki halda í falskar hugmyndir
eða vonir sem tengjast draumórum sem
styðjast ekki við raunveruleikann. Líttu (
eigin barm og ákveddu hvað er raunsætt
og hvað ekki því nýr kafli birtist hjá
stjörnu bogmanns sem færir þér margar
gjafir sem efla þig fjárhagslega og ekki
síðurandlega.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Þú ert fljót(ur) að skynja ástand
eða tilfinningar annarra í þinn garð. Njóttu
þín á meðal vina og kunningja helgina
fram undan án þess að huga að því hvað
aðrir hugsa eða gera án þinnarvitundar.
SPÁMAÐUR.IS
L
»