Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 21
r DV Sport FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 21 Hnefaleikakappinn Skúli Ármannsson er staðráðinn í að gerast atvinnumaður í hnefaleikum þótt ekki hafi það gengið í fyrstu atrennu. Hann fékk ekki atvinnuleyfi en kemur heim fljótlega og ætlar þá að ganga frá öllum pappírum svo hann geti farið aftur utan og uppfyllt draum sinn. m 0 Hinn stóri og stæðilegi leigubflstjóri úr Mosfellsbæ, Skúli Ármannsson, er hvergi af baki dottinn þótt honum hafi ekki tekist að gerast atvinnumaður í hnefaleikum í fyrstu atrennu. Hann er þessa dagana í Bandaríkjunum en ætlar að snúa heim aftur, ganga frá sínum málum, og fara svo út aftur með alla pappíra klára. Þá má Kaninn fara að passa sig á ísmanninum. Skúli fór út með stóra drauma í ferðatöskunni 19. janúar síðastliðin. Áfangastaðurinn var Duluth í Minnesota þar sem íslandsvinurinn Chuck Horton ræður ríkjum. Það var einmitt Horton sem mætti með strákana sína til íslands þegar ísland atti kappi við Bandaríkjamenn í fyrstu opinberu hnefaleika- keppninni hér á landi í 50 ár. Horton hreifst mikið af landinu og ekki síður af íslenskum hnefaleikamönnum sem síðan hafa heimsótt hann nokkrum sinnum enda Horton allur af vilja gerður til þess að hjálpa íslenskum hnefaleikamönnum við að uppfylla draumana sína. Frekar svekkjandi „Það var frekar svekkjandi að þetta skyldi ekki ganga núna,“ sagði Skúli í samtali við DV Sport frá Duluth. „Ég kem heim aftur 19. mars og þá verður allt sett á fullt við að ganga frá öllum málum svo ég geti farið aftur út og hafið minn atvinnumannsferil." Skúli segist ekki vita hversu langan tíma það muni taka að redda öllum pappírum en hann mun í millitíðinni æfa hjá sínum gamla þjálfara, Guðmundi Arasyni, og keppa hér heima. „Það er ekki amalegt að æfa með Guðmundi enda er hann algjör snillingur. Ég á honum allt að þakka enda hefur hann kennt mér allt sem ég kann,“ sagði Skúli og hlýjan í garð hins 85 ára gamla hnefaleikaþjálfara leynir sér ekki. Hinn 13. febrúar keppti Skúli í einum bardaga í Duluth gegn sér reyndari manni. Sá var lítil fyrirstaða fyrir Skúla sem vann öruggan sigur. Framganga hans vakti athygli staðarblaðanna sem sum hver greindu ítarlega frá hans frammi- stöðu. Hann mun keppa í öðrum bardaga áður en hann kemur heim en það verður 6. mars. Mun höggþyngri Æfingafélagi Skúla í Minnesota er strákur að nafni Zach Walters. Sá gengur undir viðurnefninu Frum- skógardrengurinn en Skúli hefur fengið hið „frumlega" viðurnefni ísmaðurinn. Walters þykir vera með efnilegri hnefaleikaköppum Bandaríkjanna og er hann settur í 34. sæti í sínum þyngdarflokki. „Ég hef tekið miklum framförum eftir að ég kom út. Ég hef aðallega bætt höggþungann og er orðinn mun höggþyngri en ég var. Svo er það mikill munur fyrir mig að fá að æfa með eins góðum boxara og Zach. Það sem mig helst vantaði heima voru góðir strákar í mínum þyngdarflokki til þess að æfa með. Því varð ég að fara út til þess að geta bætt mig,“ sagði Skúli sem segist vera velkominn í æfingasalinn hjá Horton eins lengi og hann vill. Keyrði leigubíl um helgar Hnefaleikamir hafa verið í fyrsta sæti hjá Skúla lengi en hann hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að æfa hnefaleika. Hann hélt sér síðan uppi fjárhagslega með því að keyra leigubíl um helgar. Það er dýrt að helga sig íþrótt sinni og Skúli hefur ekki farið varhluta af því. „Ég er eingöngu að æfa hnefa- leika en ekki í neinni vinnu. Ég hef reynt að fá styrktaraðila til liðs við mig en annars standa foreldrarnir þétt við bakið á mér og styðja mig í þessu,“ sagði Skúli sem hér með auglýsir eftir fyrirtækjum til þess að styrkja sig. henry@dv.is Staða Leeds United er ekki góð eftir að annar hópurinn af þeim tveimur sem þótti líklegastur til að kaupa félagið dró í land og ákvað að bjóða ekki í félagið Syrtir í álinn hjá Leeds Nú er aðeins einn hópur fjárfesta eftir í viðræðum við Leeds og efþær viðræður ganga ekki upp gæti allt farið á versta veg hjá félaginu. Það skal engan undra að stuðningsmenn Leeds United séu á nálurn þessa dagana. Fjárhagsstaða félagsins hefur verið í umræðunni undanfarna mánuði enda rambar félagið á barmi gjaldþrots. Annar þeirra hópa af fjárfestum sem höfðu lýst yfir áhuga á að kaupa félagið og voru í slíkum viðræðum drógu í land í gær og því er félagið aðeins í viðræðum við einn hóp af fjárfestum í dag. Ef þær viðræður ganga ekki upp er félagið vægt til orða tekið í vondum málum. Mikil vonbrigði Þessi hópur fjárfesta var undir stjórn Terrys Fisher, fyrrverandi stjórnarformanns Huddersfield, og höfðu Fisher og félagar verið í viðræðum við Leeds síðustu tvær vikur. „Eftir ítarlega fjárhagsrannsókn eru það okkur mikil vonbrigði að tilkynna að við munum ekki gera tilboð í Leeds United," sagði í yfirlýsingu frá fjárfestahópnum í gær. Fresturinn að renna út Þessar fréttir koma aðeins 24 tímum áður en nýjasti frestur félagsins til þess að ganga frá sínum málum rennur út. Það er því ljóst að menn verða að hafa mjög hraðar hendur á næstu klukkutímum því ekki er ljóst að það fáist nýr frestur í dag. Nú er aðeins einn hópur fjárfesta eftir í viðræðum við botnlið ensku úrvalsdeildarinnar og ef þær viðræður ganga ekki upp gæti allt farið á versta veg hjá félaginu. Sá hópur er undir stjórn Jacks Petchey, sem er fyrrverandi stjórnarmaður hjá Watford sem Heiðar Helguson leikur með en þeir hafa verið að skoða málið síðustu fimm vikur. „Hlutirnir eru á réttri leið. Það þokast hægt hjá okkur en við erum þó komnir lengra en við vorum komnir í síðustu viku. Við erum að vonast til þess að ganga frá málinu en það er of snemmt að segja til um hvort það takist," sagði Gerald Krasner sem er talsmaður hópsins. henry@dv.is I /V >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.