Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Side 6
6 MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 Fréttir DV ElduráÞorra- götu Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út að Þorragötu á föstudagskvöld en þar hafði kviknaði í kvöldmatnum. Par sem býr í húsinu var flutt á slysadeild vegna gruns um reykeitrun en konan var þar að auki tölu- vert brennd á fingrum. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var konan að elda og hafði sett smjör á pönnu er hún þurfti að bregða sér frá. Skipti þá engum togum að smjörið brann og eldurinn komst í innréttingu eldhússins í gegnum viftu sem var yfir hellunum. Er slökkviliðið kom á staðinn logaði glatt í eldhúsinu en greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Ibúðin mun vera talsvert skemmd eftir þetta óhapp. Erfyrirtækið Decode loks- ins að rétta úr kútnum? Guðlaugur Þór Þórðarson Þingmaður Sjálfstæðisflokksins „Ég vona bara að þessu fyrir- tæki sem og öðrum vegni sem best. Það er frábært effyrir- tæki á borð við Decode geta starfað hér á landi og slíkt hlýtur að vera öllum íslending- um til hagsbóta. Einnig má nefna að hér er mikið afungu og mjög vel menntuðu fólki sem getur fengið störfvið hæfi hér á landi hjá fyrirtækjum á borð við Decode og það er einnig afhinu góða." Hann segir / Hún segir „Það er margt sem bendir til að fyrirtækið sé á réttri leið. Að vísu er ofsnemmt að spá fyrir um áhrif samningsins sem gerður hefur verið við lyfjafyr- irtækið Merck. Hins vegar má segja að þrátt fyrir sveiflur á gengi hlutabréfa í Decode þá virðist fyrirtækið vera á upp- leið þessa dagana. Og það er óskandi að svo sé." Bryndís Hlöðversdóttir Þingmaður S amfylkingarinnar. Atlot lögreglunema og ástmeyjar hans á Hverfisbarnum vöktu hneykslan. Aðrir lögreglunemar tilkynntu skólastjóra Lögregluskólans um atvikið. Lögreglu- nemanum vísað úr skóla eftir fund með skólastjóra. Nema í Lögregluskólanum var vísað úr skóla á föstudaginn vegna uppákomu sem varð á Hverfls- barnum gegnt Þjóðleikhúsinu fyrir rúmri viku. Nokkrir nemendur Lögregluskólans voru þar að skemmta sér þegar ástarhiti gagntók einn þeirra, karlmann á þrítugsaldri. Fór lögregluneminn undir borð ásamt aðila af gangstæðu kyni og þáði munn- mök. Nemendur klöguðu Athæflð vakti hneykslan samnemenda hans sem staddir voru á Hverfisbarnum. Á skyndifundi þeirra daginn eftir var afráðið að tilkynna skólastjóra Lögregluskólans um það sem þau töldu vera „hegð- un sem samrýmdist ekki væntingum sem gera verð- ur til verðandi lögregluþjóna". Arnar Guðmundsson skólastjóri brá skjótt við og á mánudag vísaði hann nemandanum, sem starfað hefur sem lögreglumað- ur í afleysingum, úr skóla til bráðabirgða þar sem um væri að ræða ósæmilega hegðun á almannafæri og því hugsanlega hegningalagabrot. Lögreglunem- anum var gefinn kostur á því að neyta andmæla- réttar áður en honum var endanlega vísað úr skóla á föstudag. Á Hverfisbarnum þetta sama kvöld voru einnig hjúkrunarfræðinemar sem þar voru að skemmta sér eftir að vísindaferð lauk síðdegis. Góðrar framkomu krafist Arnar skólastjóri vill ekki tjá sig um einstök atvik en staðfesti þó að nemanda hefði verið vísað úr skólanum. „Við gerum kröfu til þess að nemendur sýni góða framkomu sem sæmir verðandi lögreglumönnum,“ segir Arnar sem vill hafa góðan aga í skóla sínum og leggur áherslu á að lögreglunemar sýni gott fordæmi hvar sem þeir fara, hvort sem er í skóla, við störf eða í frístundum. Skólasystkin hins brottrekna sem DV ræddi við í gær viidu fátt um málið segja en lýstu því að at- hæfið hefði í senn vakið hneykslan þeirra og undrun vegna þess sem þau töldu vera siðleysi. Enginn lögreglunemanna vildi tjá sig um málið opinberlega þar sem skóla- stjórinn hefði beðið þau um að fara með málsatvik á Hverfis- barnum sem trúnaðarmál. Stór fjölskylda „Við erum ein stór fjölskylda og stöndum saman í blíðu sem stríðu," segir einn nemend- anna sem var á Hverfisbarn- um örlagakvöldið þegar ástar- leikur fór yfir siðsamleg mörk. Rósant Birgisson, skemmt- anastjóri Hverfisbarsins, kannaðist við atvikið og sagði það nánast spaugilegt. „Það er samt hræðilegt að drengurinn skuli hafa verið rekinn úr skól- anurn," segir Rósant. rt@dv.is simon@dv.i. Lögreglunemi rekinn Athæfí hans á Hverfisbarnum vakti hneykslun og undrun samnemenda. kynmök á har Bandaríkjaher refsar sjóliðanum sem vitni sögðu hafa stungið íslenskan pilt Dúsaði í einangrun í 45 daga Við réttarhöldin Heimildir DVsegja að sjóliðanum Escalante hafi verið vikið úr Bandaríkja- her en varnarliðið neitar þvi. Eins og fleiri sem voru í Hafnarstræti aðfaranótt l.júnl i fyrra bar Escalante vitni i Héraðsdómi Reykjavikur þegar réttað var yfir fétaga hans. Vamarliðsmaðurinn Escalante, sem vitni sögðu hafa stungið íslensk- an pilt með hnífi í Hafnarstræti í fyrra, var settur í 45 daga einangrun vegna þátttöku sinnar í slags- mál- unum. Varnarliðið neitar á hinn bóg- inn fregnum um að Escalante hafi verið vikið úr herþjónustu. Escalante var einn úr hópi banda- rískra hermanna sem voru að skemmta sér í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 1. júní f fyrra. Félagi hans John Edwin Rehm III iiefur þegar verið dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að stinga ungan íslenskan pilt. Sá lifði atlöguna af. Escalante hafði upphaflega verið handtekinn vegna atviksins en var sleppt. Við réttarhöldin yfir Rehm kom fram að hnífurinn sem Rehm viður- kenndi að hafa beitt gat ekki hafa valdið öllum stungunum á piltinum. Fleiri en eitt vimi sögðu Escalante hafa stungið fómariambið. Hann var þó ekki ákærður í málinu. Bandaríkjaher mun ekki hafa litið mildum augum á þátttöku sinna manna í átökunum í Hafnarstræti. Þannig mun áðumefnd 45 daga einangrunarvist Escalantes hafa ver- ið hluti refsingar sem hann var beitt- ur fyrir sinn hlut. Máli hans mun ekki vera lokið með þessu. Það blasti við öllum sem fylgdust með réttarhöld- unum yfir félaga hans Rehm að sterkar líkur eru á að Escalante hafi tekið þátt í hnífaárásinni. Lögfræð- ingur frá hernum mun gæta hags- muna Escalantes í framhaldinu. Tveir heimildarmenn DV fullyrða að Escalante hafi nú þegar verið vik- ið úr hernum og sé að pakka saman föggum sínum. Friðþór Eydal, upp- lýsingafulltrúi varnarliðsins ber þetta þó til baka. „Escalante sjóliða hefur ekki verið vikið úr starfi sínu hjá vamarliðinu," segir Friðþór. Escalante er kvæntur íslenskri myndlistarkonu frá Keflavík. Þess má geta að áðurnefndur Rehm er í farbanni og dvelur í her- stöðinni á Keflavíkurflugvelli á með- an mál hans er til meðferðar hjá Hæstarétti íslands. Hann mun vera frjáls ferða sinna, að minnsta kosti á varnarsvæðinu. Samkvæmt einum heimildarmanni DV vakti Rehm að nýju athygli á sér með uppákomu á samkomustað óbreyttra hermanna, barnum Privateers. Þar er Rehm sagður hafa verið á föstudagskvöldi fyrir rúmri viku og greitt manni höf- uðhögg þannig að undan blæddi. Þetta hefúr ekki fengist staðfest. gar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.