Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 1.MARS 2004 9
Vilja fleiri
meðmælendur
Ungir jafnaðarmenn
leggja til að meðmælend-
um með forseta-
framboði verði
fjölgað í ljósi fjölgun-
ar þjóðarinnar frá því
að lög um lágmarks-
fjölda voru sett. Þeir
benda á að þjóðinni
bafi fjölgað um 126% frá
því ákveðið var að með-
mælendur þyrftu að vera
að lágmarki 1500.
Þeir leggja til að
ákveðið hlutfall kjós-
enda mæli með
framboði hverju
sinni, í stað þess
fyrirkomulags sem
nú er. Þannig væri hægt að
koma í veg fyrir að þörf
verði á frekari breytingum í
framtíðinni.
Jafnræði
homma og
lesbía
Frjálshyggjufélagið hvet-
ur íslensk stjórnvöld til að
jafna réttindi samkyn-
hneigðra og gagnkyn-
hneigðra. í tilkynningu frá
félaginu segir að það eigi
ekki að vera hlutverk hins
opinbera að velja fjöl-
skyldumynstur fólks. Mikil-
vægt sé að réttindi samkyn-
hneigðra verði viðurkennd
að fullu, líkt og annarra
hópa sem ekki hafa notið
fullra réttinda á undan
þeim. Á það er bent að
frelsi hvers einstaklings til
að finna hamingjuna á eig-
in forsendum sé mikilvægt
og á að vera handa öllum
en ekki aðeins þeim sem
kjósa sér maka af gagn-
stæðu kyni. Frjálshyggjufé-
lagið hvetur Alþingi til þess
að endurskoða löggjöf sem
mismunar fólki eftir kyn-
hneigð, með það að leiðar-
ljósi að samkynhneigðir
njóti sömu réttarstöðu og
gagnkynhneigðir í hví-
vetna.
Bæði Fjármálaeftirlitið og Kauphöllin hafa rannsakað grun um mögulega mis- notk-
un innherjaupplýsinga í viðskiptum með hluti í Pharmaco. Kauphöllin stöðvaði við-
skipti með fyrirtækið á föstudag þegar gengið hafði rokið upp um 12 prósent í mikl-
um viðskiptum án augljósra ástæðna. Pharmaco staðfesti að það væri í viðræðum
um kaup á fyrirtæki og ítrekar að fleiri en starfsmenn vissu af þeim þreifingum.
Það hringdu viðvörunarbjöllur á föstudag
þegar gengi hlutabréfa í Pharmaco skaust upp úr
öllu valdi. Verðið á bréfum hefur verið tiltölulega
stöðugt í kringum 44 til 45 á hvern hlut. í við-
skiptum föstudagsins, þar sem stórir hlutir
skiptu um hendur, hækkaði verðið ört og náði
gengið því að fara í nærri 50. Hækkunin nam 12
prósentum á tveimur til þremur klukkutímum.
„Þarna voru einfaldlega miklar hækkanir fram
eftir degi án þess að sjá-
anlegar ástæður væru
fyrir þeim,“ segir Þórður
Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar. „Við
höfðum samband við
fyrirtækið og tókum síð-
an ákvörðun um að loka
á viðskipti þar sem hugs-
'anlegt var að einhverjir
hefðu þarna aðgang að
upplýsingum sem væru
ekki opinberar öllum." I
kjölfar þessara grun-
semda um innherjasvik
barst tilkynning frá fyrir-
Páll Gunnar Pálsson, tækinu þar sem staðfest
Viðskipti með Pharmaco var að Pharmaco væri í
rannsökuð að frumkvæði viðræðum við þriðja að-
ila um kaup á öðru fyrir-
tæki. Tekið var fram að þær viðræður væru á
frumstigi og óvíst hvort þeirn myndi lykta með
samkomulagi. Það kom einnig fram það mat að
Pharmaco hefði ekki talið sig þurfa að tilkynna
um þessi fyrirhuguðu fyrirtækjakaup og væri það
aðeins gert vegna óútskýrðu verðhækkunarinnar
sem varð á bréfunum.
Rannsókn um helgina
Málið hefur verið rannsakað á tveimur stöð-
um um helgina, bæði innan Kauphallar og hjá
Fjármálaeftirlitinu (FME). „Við fórum að skoða
þetta mál að eigin frumkvæði á föstudag og öíl-
uðum upplýsinga hjá Kauphöllinni og eftir atvik-
um eftir öðrum leiðum,“ segir Páll Gunnar Páls-
son, forstöðumaður FME. „Málið er í skoðun og
það á eftir að ráðast hvað gert verður í kjölfarið.
Robert Wessman
Fleiri en starfsmenn
vissu afþreifingum
um kaup á
fyrirtækinu.
Það ræðst af framvindu málsins," segir Páll
Gunnar.
Það gefur augaleið að það verður skoðað ofan
í kjölinn hverjir stóðu að baki þessum viðskipt-
um og hvort viðkomandi voru í aðstöðu til að afla
sér upplýsinga sem gaf þeim ástæðu til að rjúka
til og tryggja sér hlutabréf í Pharmaco með hagn-
aðarvon í huga. Miðað við feril málsins eru sterk-
ar vísbendingar um að upplýsingar hafi lekið út
og leitt til kapphlaups um hlutina. Gengi hluta-
bréfa í Pharmaco hefur hækkað verulega síðustu
misseri og meira en tvöfaldast á síðustu 6 mán-
uðum. Á liðnum tveimur mánuðum hefur
gengið þó lítið hreyfst og verið um 45 og því vakti
athygli þetta stóra stökk upp undir 50 fyrir helgi.
Framhald ræðst í dag
RóbertWessman, forstjóri Pharmaco ít-
rekar að upplýsingar um möguleg fyrir-
tækjakaup voru ekki bundnar við
Pharmaco. „Það voru ekki bara starfs-
menn sem vissu þetta. Það koma meðal
annars ráðgjafar og bankamenn að mál-
um,“ segir Róbert. Hann vill eki upplýsa
hvaða fyrirtæki Pharmaco vill kaupa enda
gæti það komið viðkomandi fyrirtæki illa.
Robert staðfestir þó að þetta sé fyriræki
sömu starfsemi og Pharmaco. Hann vill
ekkert tjá sig um það hvort leitað sé að
lekanum innan Pharmaco og segir að
rannsókn málsins sé í höndum Fjár-
málaeftirlitsins. „Við munum eiga
fund með Kauphöllinni í fyrramálið
(í dag) en ég geri ráð fyrir því
viðskipti með hlutabréfin verði
með hefðbundnum hætti eftir
það,“ sagði Róbert Wessman
í samtali við DV í gær.
Hormónastautur mun taka við hlutverki pillunnar
Pillan óþörf
Hormónastautur Skipta sæðisfrumurnar öllu?
Bráðlega munu konur geta lagt
getnaðarvarnarpilluna á hilluna og
látið karlmenn um hormónainntök-
una. Lengi hefur verið vitað um
þessa aðferð en vegna tæknilegra og
menningarlegra aðstæðna varð að
þaulrannsaka alla hugsanlega þætti
sem gætu farið úrskeiðis.
Staut á stærð við tannstöngul er
komið fyrir í handlegg mannsins
sem gerir honum ókleift að fram-
leiða sæðisfrumur í þrjá til sex mán-
uði. Stautnum myndu því fylgja
ómæld þægindi þar sem smokkur-
inn væri ekki lengur þarfur sem ætti
að gleðja margan karlmanninn.
Ástæða þykir þó til að nefna að
hormónastauturinn kemur ekki í
veg fyrir kynsjúkdóma og eyðni.
En þar sem frjósemi karla hefur í
vestrænni menningu tengst karl-
mennsku þeirra efast Christian
Graugaard, formaður Kynlífsstof-
unnar f Danmörku sem stendur fyr-
ir rannsókninni, stórlega um að
margir karlmenn myndu gangast
undir þessa aðgerð stolts sfns vegna.
„í samfélagi okkar eru getulausir
menn allt annað en karlmennskan
uppmáluð því það sem gerir þá að
karlmönnum vantar í þá,“ sagði
Graugaard.
Hormónastauturinn verður lík-
lega kominn í apótek innan fimm
ára og því geta konur farið að hlakka
til þess að losna undan aukaverkun-
um pillunnar, sem eins og margar
konur kannast við eru eymsli í
brjóstum, ógleði og aukakíló. Nú er
bara að bíða og vona að hugarfars-
breyting verði í samfélaginu og að
hinir stoltu karlmenn muni brjóta
odd af oflæti sínu á komandi árum
og taka hormónainntökuna að sér.
Aðalfundur Fasteignafélagsins Stoða hf.
Aðalfundur Fasteignafélagsins Stoða hf. verður hald-
inn fimmtudagínn 18. mars 2004 að Hotel Nordica,
Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík í sal H, 2. hæð og
hefst fundurinn kl. 14:00.
Dagskrá
1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar félagsins.
4. Ársreikningur félagsins fyrir starfsárið 2003.
5. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað
félagsins á reikningsárinu.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
7. Kosning stjórnar og endurskoðanda.
8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur
málefni sem löglega eru upp borin.
Fasteignafélagið Stoðir hf.
FASTE1G NAFÚLAGIÐ STOÐIR 11K
' yj 1 12 * H < krbiid
Stwplcl * VilöWí.lH *