Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Page 29
DV Fókus
MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 29
Geri Halliwell talar um átröskunar-
sín Stelpurnar í Spice
Girls fengu mig til
EsKsssi ðii 9dIq oftin
ull uilfl 01III
liverja máltíð
öllu sem hún hafði innbyrt en
hinar stelpurnar í hljómsveitinni
vissu ekkert um það hvernig
henni leið. Þegar hún fór að
skoða myndir af sjálfri sér frá
þeim tíma sem Spice Girls-æðið
var að byrja fór hún fyrst að gera
sér grein fyrir að eitthvað væri
ekki í lagi og fór að leita sér hjálp-
ar.
Geri er nú virk í baráttunni
gegn anorexíu og búlimíu og tók
meðal annars þátt í ráðstefnu í
Harvard-háskólanum gegn þess-
um illvígu sjúkdómum og nagaði
neglurnar af stressi er hún deildi
sinni sögu með gestunum. Lík-
legt er talið að álagið sem fylgdi í
kjölfarið á hruni hljómsveitar-
innar hafi haft sín áhrif á holda-
far og andlega líðan söngkon-
unnar. „Ég er búin að læra að
hugsa betur um líkama minn og
hætta að kenna honum um allt
sem miður fer.“
vandamál
Geri Halliwell hefur viður-
kennt að hafa átt við átröskunar-
vandamál að stríða og kennir
samverunni með hinum stelpun-
um í Spice Girls um. Henni
fannst hún svo feit miðað við
hinar stelpurnar í hljómsveitinni
að hún vandi sig á að æla öllu
sem hún lét ofan í sig.
„Þegar ég byrjaði í Spice
Girls var ég sú sem var þéttust
og þegar maður býr með öðr-
um stelpum er samanburður
óhjákvæmilegur," segir Geri,
sem viðurkennir að hafa
þjáðst af minnimáttarkennd
gagnvart hinum grönnu
söngsystrum sínum. „Þessi
sjúkdómur er hryllilegur.
Hann læðist aftan að þér og
gerir þig að lygara án þess
að þú gerir þér grein fyrir
því.“
Geri fór upp á herbergi sitt
eftir hverja máltíð og ældi
Kylie hefur
áhyggjur af
aldrinum
PBMBWaain iiu
Kylie Minogue Söngkonan hefur
áhyggjurafþvi aðgeta ekkieign-
ast börn.
Söngkonan Kylie Minogue er í
tilvistarkreppu þessa dagana. Það
sem helst sækir á hana er að hún sé
að verða of gömul til að eignast
börn. Söngkonan rassfagra er orðin
35 ára og segist vel gera sér grein
fyrir því að líffræðileg klukka henn-
ar tifl og með hverjum deginum
verði erfiðara fyrir hana að verða
ófrísk. Hún er sögð sjá eftir að hafa
ekki róast niður, eignast börn og
gifst þegar hún var yngri og horflr
með öfundaraugum á samband
foreldra sinna.
„Þau hafa verið gift í 35 ár og em
enn þá ástfangin. Þau haldast alltaf í
hendur og eru því besta fyrirmyndin
fyrir mig,“ segir Kylie. Söngkonan
hefur verið með franska leikaranum
Olivier Martinez í eitt ár en þau hafa
ekkert gefið upp um giftingaráform
sín.
Stjörnuspá
Árni Johnsen, fyrrum aiþingismaður, er
sextugur í dag. „Maðurinn gefur allt
sem hann kann að eiga ef svo
*■ ' ber undir og nýtur þess að
: ðjj - skemmta sér með því að deila
hamingjustundum sínum
meðal fólksins sem skip-
r stóran sess í hjarta
t hans þessa dagana,"
' k segir í stjörnuspá
l hans.
ÁrniJohnsen
\A, Vatnsberinn (20.jan.-i8. febr.)
W —:-----------------------------
Það sem gerir vatnsberann
aðdáunarverðan er óbilandi hugrekki,
festa og sjaldséður hæfileiki til að lífga
eigin drauma við. Þér er ráðlagt að
gleyma aldrei þínum innstu þrám.
F\skm\f (19.fébr.-20.mars)
Þú sendir greinilega um þess-
ar mundir frá þér fínar bylgjur sem
næmur áhorfandi en undir niðri biður
þú um ástúð og þráir að vera þátttak-
andi og upplifa þínar innstu þrár.
H
Y5 Hrúturinnpi.
mars-19.i
Ef þú tilheyrir stjörnu hrútsins
kemur fram að þú hefur nú þegar sent.
frá þér langanir þínar og mátt vissulega
treysta almættinu fyrir framvindu mála.
Ö
NaUtíð (20. april-20. mai)
Líðan þín sprettur hér af ýmsu
og gæti verið tengd tilteknum aðstæð-
um eins og starfi, námi eða fjölskyldu
sem tengist því eða tilkomin af gömlum
sárindum sem hafa ekkert með nútíðina
að gera af einhverjum ástæðum í byrj-
Tvíburarnir (21. maí-21.júnl)
Þér líkar vel að falla öðrum í
geð en á sama tíma er minnst á að þú
þarfnast mikillar ástar og verndar á
þessum árstíma. Þér hlotnast sú upplif-
un sannarlega ef þú horfir aðeins fram
á við og eflir anda þinn.
faabbm(22.júní-22.júli)__________
Q** Sýndu tilveru þinni samúð og
skilning og útskýrðu tilfinningavið-
brögð þin með skynsemi og rökum og
sér í lagi ef þú stendur frammi fyrir
ákvörðun sem tengist þér persónulega.
J?,
Ljónið (23.júli-22. ágúst)
Vikuna fram undan helgar þú
þig kærleika og með aukinni sjálfsvit-
und gerir þú þér Ijóst að ást og náin
kynni þarfnast meira sjálfstrausts af
þinni hálfu, kæra Ijón.
Meyjanpj. ágúst-22.sept.)
Þú leitar eftir umönnun í fari
náungans og umberð galla annarra en
ekki þína eigin. Þegar þú ert ástfang-
in(n) lærir þú að gefa ekki síður en að
þiggja og ástin kennir þér að þarfir og
tilfinningar annarra eru jafn mikilvægar
þínum. Á sama tíma gætir þú lært að
leyfa persónu þinni að blómstra þegar
þú deilir lífi þínu með öðrum.
o Vogin (23.sept.-23.okt.)
Þú birtist hér sjálfsörugg(ur)
og einnig kemur fram að þú hefur mik-
inn viljastyrk, festu og næga greind til
að vernda þig fyrir smávægilegum erf-
iðleikum sem koma í veg fyrir að þú
upplifir þínar innstu þrár.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0u
/
Peningar og völd fullnægja
aldrei sönnum ástríðum, mundu það.
Þú gefur þig á vald ástinni og er mest
umhugað að upplifa traust og heiðar-
legt samband. Þú ert fær um að nálgast
líðan þína og annarra með réttu hugar-
fari og skilja nægtaflæði tilverunnar.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.des.)
Hófsemi er lykillinn að framhald-
inu þar sem jákvæðar tilfinningar upphefja
þig sannarlega. Þú hefur ákveðnar hug-
myndir um hvað eigi að gerast þessa dag-
ana og ef þú ert njörvuð/-aður niður við þá
hugmynd ert þú búin(n) að útiloka spenn-
andi ókannaða möguleika.
'y/ Steingeitin (22.des.-19.jan.)
■ Þér tekst án efa að leysa
vandamálin sem fylgja lífsmáta þínum
hérna og þú virðist nota starf/nám til að
fá útrás fyrir vandamál þín. Þú virðist
vera fær um að njóta frelsisins sem ein-
kennir þig um þessar mundir og líkar
vel að vera sjálfstæð(ur).
SPAMAÐUR.IS