Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Qupperneq 13
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 13
Landsbankinn
tútnar út
Bankaráð Landsbankans
hefur ákveðið að hækka
hlutafé bankans um allt að
600 milljónir króna. Á aðal-
fundi bankans var sam-
þykkt heimild til bankaráðs
til að ákveða hækkun
hlutafjár um allt að einn
milljarð að nafnverði og þá
vísað til mögulegrar hag-
ræðingar á íslenskum fjár-
málamarkaði og mögulegri
aukningu á starfsemi er-
lendis. Ástæða ákvörðunar
bankaráðsins nú er þó ekki
síður mikill innri vöxtur í
starfsemi bankans á síðasta
ári sem og á fyrstu tveimur
mánuðum þessa árs.
Sala á hlutafjáraukning-
unni hefur farið fram með
beinni sölu til fagfjárfesta.
Gengi í viðskiptunum var
7,6 og eykst því eigið fé
bankans um 4,6 milljarða
kr. við söluna.
Með falsaðan
milljónaseðil
Bandarísk kona, Alice
Pike, hefur verið ákærð
fyrir að greiða fyrir
varning í vöruhúsi
Wal-Mart með
fölsuðum milljón
dollara seðli.
Varningurinn
kostaði rúma 1600
dollara og því ljóst
að Alice hefði átt
að fá ríflega upphæð til
baka. Bandaríski seðla-
bankinn prentar ekki slíka
seðla og er hæsti dollara-
seðillinn 100 dollarar.
Seðill konunnar var að
sögn fremur illa gerður og
afgreiðslumanninum ljóst
frá fyrstu sekúndu að hann
væri ekki ekta. Tveir sams
konar seðlar fundust við
leit á heimili konunnar.
Sjálf ber hún því við að
eiginmaður sinn hafí gefið
sér seðlana.
Pilla gegn tó-
baki og offitu
\ v-
Risastórt flutningaskip Atlantsskipa í erfiðleikum við að komast inn í Kópavogshöfn.
Úlfar Eysteinsson, kokkur á Þremur Frökkum, býr rétt hjá og stóð ekki á sama
Eitt af flutningaskipum Atlantsskipa, hið 3.500
tonna Raderplain, lenti í miklum vandræðum við
að leggja að í Kópavogshöfn í gærmorgun vegna
veðurs og varð frá að hverfa eftir fjórar tilraunir.
Úlfar Eysteinsson, kokkur á Þremur Frökkum, býr
rétt hjá hafnarbakkanum og honum stóð ekki á
sama á tímabili. „Það má segja að ég hélt ég fengi
stefni skipsins inn um stofugluggann hjá mér,“
segir Úlfar. „Sem betur fer létu þeir svo skyn-
semina ráða í lokin og hættu við eftir að hafa gert
fjórar atrennur að innsiglingunni."
Samkvæmt upplýsingum frá hafnarstjórn í
Kópavogshöfn var mikið rok er skipið reyndi að
leggja að. „Eiginlega hjólandi vitlaust veður" eins
og það var orðað og því var ákveðið að bíða þar til
eftir hádegið með að sigla skipinu inn. Gekk það
gæfulega enda hafði veðrið þá gengið niður.
Úlfar Eysteinsson segir að hann sé sjálfur
með pungapróf og hefði staðið öðruvísi að því
að koma þessu skipi upp að hafnarbakkanum.
„Þetta skip var greinilega þunghlaðið og þar að
auki var dýpkunarprammi til staðar í innsigling-
arrennunni þannig að aðstæður voru með
versta móti. Þetta leit því mjög glæfralega út á
tímabili en sem betur fer hættu þeir við enda
ekkert vit í öðru."
Boðið honum í mat
Aðspurður um hvað hann hefði gert ef stefni
Raderplain hefði rekist á hús hans og jafnvel al-
veg inn í stofu segir Úlfar að sennilega hefði
hann boðið skipstjóranum í mat. „Það var
komið fram undir hádegi þegar þeir gáfust upp á
þessu en ég var klár með hádegismatinn hér
heima á þeim tíma."
Að vanda hefði skipstjórinn lent í veislu hjá
Úlfari því hádegismaturinn var lúðukinnar í súr-
sætri sósu með hrígrjónum.
Flutningaskipið Raderplain Fjórar atlögur að hafnar-
bakkanum árangurslausar. Úlfar Eysteinsson kokkur var til-
búinn með hádegismatinn handa skipstjóranum.
Ómar Jóhannsson látinn
Vísindamenn vinna nú
að þróun lyfs sem talið er
að muni hjálpa fólki við að
hætta að reykja og grenna
sig á sama tíma. Lyfið kall-
ast rimaonabant og hefur
þau áhrif á heilastarfsemina
að löngun til að reykja og
borða minnkar. Offita og
reykingar eru sem kunnugt
er meðal mestu skaðvalda í
vestrænu þjóðfélagi og
valda flestum dauðsföllum.
Tilraunir á lyfinu lofa góðu
og til dæmis tókst um þriðj-
ungi þátttakenda að hætta
að reykja með hjálp lyfsins
samanborið við 16% þeirra
sem fengu lyfleysu. Vonir
standa til að lyfið komi á
Inarkað á næsta ári.
Ómar Jóhannsson, revíuhöf-
undur og sagnamaður af Suður-
nesjum, er látinn á 53. aldursári
eftir erfiða baráttu við krabba-
mein. Ómar fæddist á Seyðisfirði
31. desember 1951. Hann bjó
lengst af á Suðurnesjum en
síðustu tólf árin bjó hann í Reykja-
vík. Foreldrar hans voru þau
Jóhann Jónsson kennari og Anna
Birna Björnsdóttir húsmóðir.
Ómar kvæntist Guðnýju Rann-
veigu Reynisdóttur 26. febrúar
2004 en áður hafði hann verið gift-
ur Ingu Stefánsdóttur. Ómar lætur
eftir sig tvö börn og barnabörn.
í viðtali við DV 16. febrúar sagði
Ómar:
„Áður en þetta [sjúkdómsjferli
hófst var ég orðinn þreyttur á
ástandinu, var í raun alveg búinn á
því... En nú er ég búinn að sætta
mig við þetta... Maður verðurbara
að njóta þess augnabliks sem
maður á. Pirringurinn sem
gagntók mig áður er horfinn og
maður reynir að njóta þess sem
maður á. Ég er rólegur að eðlisfari
og er ekkert að æsa mig og það
hefur óneitanlega hjálpað mér í
baráttunni."
Hann sagði ennfremur:
„Það er alveg kristaltært frá
minni hendi að til sé líf eftir dauð-
ann. Ég tel að það séu til mismun-
andi tilverustig sem maður færist
á milli... Maður á samt alltaf sínar
svörtu hliðar. Þegar ég hætti að
drekka fyrir nokkrum árum og (
öllu því rugli sem fylgir fór maður
að ná áttum. Þá fer maður að sjá
aftur þá góðu vini sem maður á og
Ómar Jóhannsson
fjölskylduna. Þá verður rnaður
rosalega þakklátur og fremur til-
búinn að mæta þeim dómi sem
maður fær með æðruleysi."