Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Side 45
DV Fókus LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 45 Hin unga breska leikkona Keira Knightley er aö gera allt vitlaust í kvikmynda- heiminum. Þessi glæsilega stelpa heldur aö fólki finnist hún ljót og vill ekki flytj- ast til Los Angeles af hræðslu viö gagnrýni. Keira Knightly Fallegasta wg- M Breta flnnsl iiún wra Ijót Hin gullfallega Keira Knightley hefur heldur betur slegið í gegn í kvikmyndaheiminum. Þessi 18 ára breska leikkona lætur vel- gengnina þó ekki slá sig út af lag- inu og segir af og frá að hún muni fá sér aðstoðarfólk á næstunni. „Ég er svo gríðalega löt að ég bíð ekki í mig ef ég gæti látið fólk gera hlutina fyrir mig,“ segir nýja stjarnan. Keira lék í stórmyndinni Pirates of the Carribbean og Bend it Like Beckham og er nú ein heitasta ungstjarnan í Hollywood þrátt fyrir að búa á Bretlandi. „Ætli það sé ekki kominn tími til að flytja frá mömmu og pabba og reyna að standa á eigin fótum," segir leikkon- an. Þó flytur hún ekki langt, aðeins frá í.. Teddington til Chel- sea svo hún getur alltaf droppað inn til foreldra sinna þegar hún þarf á þeim að halda. Þorir ekki til L.A. Keira hefur engan áhuga á að setjast að í draumaborginni Los Angeles og ástæðuna segir hún aðallega þá að hún sé ekki tilbú- in. „Mér fínnst fólk alltaf verða fyrir vonbrigðum þegar það hittir mig. Það halda allir að ég sé miklu fallegri en ég raunverulega er. Ég er ekki nógu sterk til að flytja til LA strax og upp- lifaallaþáhöfnun sem borgin og fólkið þar bíður upp á,“ segir Keira. „Fólk hefur mikinn áhuga á að segja mér hvernig ég eigi að lifa lífi mínu en þetta er einmitt tíminn sem ég verð að fá að stjórna sjálf og gera mín mistök svo ég læri eitthvað." Á lausu og leitar ekki að kærasta Keira hefur alltaf verið þroskuð miðað við aldur og mamma hennar segir Keira Knightiey Þessi glæsilega 18 ára leikkona er ein stærsta ungstjarnan i dag. Með álfinum Orlando Keira lék með Orlando Bloom i Pirates OfThe Caribbean. Oriando er frægastur fyrir hlutverk sitt sem álfurinn í Hringadróttinssögu. hana hafa fæðst fertuga og sé nú loksins að yngjast. Hún hætti í skólanum til að geta ein- beitt sér að leikli- starferlinum enda gríðarlega áhugasöm um að ná langt. „Ég er hætt í skólanum og skammast mín ekkert fyrir það. Það er alltaf hægt að byrja aftur og á endan- um ætla ég í háskóla en nú gengur leiklistin fyrir." Slúðurblöðin hafa nýlega fjallað um meint sam- band hennar og Óskarsverðlaunahafans Adrien Brody en samkvæmt Keiru eru þau einungis vinir. „Eins og er á ég engan kærasta og er ekkert að leita. Karlmenn sýna mér líka sjaldan áhuga og þar sem allur minn tíminn minn fer í vinnuna er ég lítið að spá í þessum málum, enda er vinnan númer eitt," segir þessi fallega leikkona. Glæsileg Keira heldur að allir verði fyrir vonbrigðum með útlit hennar.„Ég er ekki nógu sæt." Hefðum átt að halda okkur frá sviðsljósmu Ben Affleck hefur ekki liðið sem best síðan hann skildi við Jennifer Lopez. Parið hætti saman stuttu áður en brúðkaupið átti að fara fram. „Þetta er búið að vera mjög erfitt því Jennifer var búin að vera stór hluti af lífi mínu í langan tíma. Ég er búinn að velta mér upp úr sjálfsvorkunn en nú er komið nóg og tími til að halda áfram að lifa,“ sagði leikarinn. Ben segist ekki gera sér grein fýrir hvað það var. sem leiddi sambandið til lykta en margir hafa talað um að kvikmyndin Gigli hafi átt sinn hlut í því. „öll athyglin sem við fengum hjálpaði allavega ekki til og ekki heldur þegar Gigli kolféll. Þá lærði ég að tengja sjálfstraustið ekki algjör- lega við velgengnina því allir lenda í því að gera mistök á ferlinum." Ben er nú á fullu í markaðsetn- ingu nýjustu myndar sinnar, Jersey Girl, en Jennifer fór með hlutverk í þeirri mynd líka. „Ég grátbað hana að taka hlutverkið að sér. Á þeim tíma vorum við hamingjusöm og bjuggumst alls ekki við að vera hætt saman er myndin kæmi út. Ég sé svo sem ekkert eftir því, öllum myndum fylgja tilfinningar og minningar um fólkið sem maður vann með.“ Ben segir að hann og Jennifer séu ennþá góðir vinir og tali reglulega saman í símann. „Ég vil ekki kenna neinum um en ég vildi að við hefðum ekki verið svona mikið í sviðsljósinu. Ég hefði átt að vita þetta, það sama gerðist þegar ég var með Gwyneth Paltrow. Ég er ekki að leita mér að kærustu, enda langt í að ég verði til- búinn í það, en ég mun allavega ekki gera þessi mistök aftur og ætla að halda mér aðeins frá slúðurblöðun- um á næstunni," segir Ben. Jennifer virðist löngu búin að jafna sig á skilnaðinum og er kominn með nýj- an kærasta upp á arminn. Sá er suð- ur-amerískur söngvari sem hefur verið skotinn í J. Lo í langan tíma. Eins og allir. Þegar allt lék í lyndi Ekkert annað samband hefur fengið jafn mikla athygli fjölmiðlanna. Stjörnuspá Sverrir Kári Karlsson, fyrrum Herra (s- land, er 24 ára í dag. „Hann er fær um að sleppa tilfinning- um sínum lausum ján tryggingar um faðfá þær endur- r goldnar og það er já- _ kvæður eiginleiki í fari ** mannsins sem hér um ræðir," segir í l stjörnuspá ’ t hans. Sverrir Kári Karlsson y/Sr \atnsbemn <20.jan.-18. febr.) ■■■■■*■ vv Helgin verður áhugaverð og eflaust koma ýmis mál þér í opna skjöldu þegarfram líða stundir. Mundu að verknaður felur bæði í sér orsök og afleiðingu. F\skm\í (19.febr.-20.mars) H Ábyrgðarfull/ur ertu og traust/ur en átt það til að gleyma eigin óskum í amstri dagsins. Fólkfætt undir stjörnu fiska mun hagnast á ófyrirséðan hátt ef það gefur huga og hjarta lausan tauminn. Varaðu þig á slúðri sem gæti valdið þér vandræðum. Hrúturinn (21. mars-19. april) T Ef það er mikil ábyrgð sem hvílir á þér þessa stundina, munt þú eiga auðvelt með að takast á við það sem bíður þín. Mundu að skipuleggja þig og tíma þinn mjög vei ef þú stend- ur frammi fyrir einhverskonar undirbún- ingi sem tengist starfinu/náminu. Nautið (20. apríl-20. maí) ö Hæfileiki þinn til að leggja mik- ið á þig birtist hér og þér opnast dyr tæki- færa á sama tíma og þér berst aðstoð úr óteljandi áttum. Einnig birtist hér hjálp sem þú átt alls ekki von á innan tíðar. Tvíburarnir (21 . mai-21.júni) Ef þú átt það til að fresta verk- um sem þykja smámunir í þínum aug- um ættir þú að snúa við blaðinu og sinna verkunum sem stýra þér án efa að næsta skrefi og í raun í rétta átt. Þú ætt- ir að sama skapi að deila draumum þín- um með fólkinu sem vill þér vel. KlMm(22.júni-22.júlil ^ Hugsaðu jákvætt. Þú kýst að halda um stjórnvölinn með réttu við- horfi. Þú kannt að vera tilfinningalega fjarlæg/ur þessa daganna til þess að hluta að vernda þig sjálfa/n. Ljónið /23./Ú//-22. dgúst; Stöðuhækkun verður að veru- leika þegar fram í sækir ef þú hugar vel að eigin verðleikum og trúir á sjálfið þegar starf/nám þitt er annars vegar. Ekki missa móðinn þó að á móti blási. Ef þú stefnir hátt munt þú á endanum komast þangað sem þú ætlar þér. Þú ættir að taka það rólega yfir helgina og undirbúa þig fyrir annasama viku. Tfó Meyja n (23. dgúst-22. septj Þú ættir að meta núverandi vinahóp þinn eins og hann er en aðstæð- ur eru mun betri en þær líta út fýrir að vera. Fyrr en varir virðist allt í kringum þig fara í þann farveg sem þú hefur ávallt óskað eftir. Atorka þín og framkoma ein- kennast af miklum metnaði út árið. o VogÍn (23.sept.-23.okt.) Ef stjarna vogar ákveður hérna að halda ótrauð áfram á vit nýrra ævintýra mun hún ekki vera vera fær um að snúa við en hér er um jákvæðar breytingar að ræða svo sannarlega. ' Sýnir í formi drauma eiga vel við og leið vogar að sjálfinu birtist greið. m, Sporðdrekinn (Kokt.-21.n0vj Um þessar mundir er mjög mikilvægt að fólk í merki sporðdrekans átti sig á kostum sínum og ekki sfst ókostum. Þú ættir að leiða hugann að því jákvæða sem þú upplifir yfir helg- . ina. Passaðu þig að mikla hlutina ekki * fyrir þér um þessar mundir. Bogmaðurinn (22.nóv.-2u<u / Ef þú finnur fyrir þörfinni á að gera hluti í höndunum um þessar mundir ættir þú ekki að hika við að gera slíkt og koma þar með ró á at- hafnasaman huga þinn en þannig tengir þú þig betur við efnisheiminn. Steingeitin (22.des.-19.janj Drottnunargirni getur rænt þig sumum vinum þínum ef þú ekki tekur í taumana þegar þú leitar ómeð- vitað eftir valdastöðu í vinahópnum eða á vinnustaðnum. Hér er einungis verið að minna fólk á að hafa tangarhald á styrknum sem það býr yfir. SPÁMAÐUR.IS*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.