Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Side 18
18 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 Fókus DV ~f Baltasar Kormákur hefur nú snúið aftur íleikhúsið sem leikstjóri leikritsins Þetta er allt að koma, sem er byggt ábók Hallgríms Helgasonar. Leikritið er með þvi mesta sjónarspili sem sett hefur vefið á svið hérlendis, en Baltasar hefur úndanfarið einbeitt sér að kvjkmyndagerð. Myndir hans Hafiðog sérsták- lega 101 Reykjavíkhafaslegið rækilegaígegn oghafaýmis tækifæri boðist að utan, en Baltasar hefur samt sem áðpr kosiðað leikstýraá heimavelli, nú síðast í Þjóðléikhúsirtu. Eftir 101 Reykjavík buðust ýmis stór leik- stjdrnarverkefni og bjóðast reyndar enn, en ég ákvað að gera frekar Hafið. Það er betra að vera héma en að vera týndur í Ameríku, enda er ekki aðalatriði að taka myndir vestra eins og sumir halda, heldur koma þeim í dreifmgu þar. Ég er alls ekki að gera myndir til þess eins að njóta athygli. Ég lít upp til manna eins og Kubrick sem eru alltaf leitandi. Ntí er ég að gera mynd með Forest Whitaker sem gerist raunverulega á engum sérstökum stað og fjailar um trygging- asölumenn. Þemað er ekkert séríslenskt, en ég valdi samt að taka hana héma. Ég væri líka til í að gera mynd sem væri byggð á íslend- ingasögunum þegar fjármagn væri til til að gera það almenniiega. íslendingasögurnar eru eiginiega vestrar. Þær fjalla um mótun samféiags þegar menn eru að reyna að ná samkomulagi um hvernig haga skuli málum og þau átök sem fýlgja því.“ Baltasar Kormákur hefur mögulega náð því að verða einn heppnasti leikari íslands- sögunnar. Kannski er hann einhver heppnasti íslendingur síðan Leifur heppni fann Ameríku og týndi henni aftur. Baltasar fann einnig Ameríku með myndinni 101 Reykjavík, eða öilu heldur fann Ameríka hann. Þegar hann títskrifaðist fékk hann fljótlega stór hlutverk í Rómeó og Jtíh'u og Kæru Jelenu. Hann varð landsþekktur þegar hann fór með hlutverk í kvikmyndinni Veggfóðri. Fyrir mörg- um virðist kannski sem hann hafi aldrei feil- spor stigið, aldrei þurft að upplifa ósigur. En það er þó ekki alveg svo einfalt. Með Veggfóðri varð Balti eitt helsta kyntákn landsins og átrtínaðargoð ungra sttílkna. Örfá- ir fslendingar hafa áður notið sömu hylli og hann, Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens, mögulega Stefán Hilmarsson. En það voru allt poppstjörnur. Þeir kvikmyndaleikarar sem vinsælastir voru fyrir tíma Balta voru flestir gamanleikarar, svo sem Eggert Þorleifsson og Spaugstofu- menn. En það er ekki beint hægt að segja að stelpurnar hafi tekið andköf þegar þær fóru á Nýtt líf eða Með allt á hreinu. Með Baltasar verður fyrst íslensk kvikmyndastjarna til. Hugsanlega er það heppni Baltasars sem fer í taugarnar á mörgum. Hann er það sem flestar konur vilja hafa og flestir karlar vilja vera. Fað- ir hans er Spánverji, og hann fær því að ein- hverju leyti að upplifa það sem alla íslenska karlmenn dreymir um, að vera títlenskur karl- maður á Islandi, og er þar að auki kvikmynda- stjarna. Samt er hann fæddur og uppalinn í Kópavoginum. Það búa raunverulega tvær þjóðir í þessu landi. Það er landsbyggðin og svo þetta 101 gengi, og svo er kannski sú þriðja í úthverfunum. Þó að ég þekki kannski 101 um- hverfið best hef ég verið mikið úti á landi. Ég bjó í sjávarþorpi þegar ég var 14 ára, ég hef siglt mikið og ferðast á næstum því hvern reit á landinu á hestbaki. Ég er miklu meiri íslend- ingur en fóik heldur. Ef þú talar við fólk sem vinnur með mér, þá segir það lfldega að það eru fáir sem vinna jafn mikið og ég. Þannig að það skapar enginn ímynd sfna sjáifur. En þetta stóð mér svolítið fyrir þrifum. Það gerir lítið tír manni þegar það er litið á mann fyrst og fremst sem kyntákn. Það er eins og fólk geti ekki séð aðrar hliðar á manni. Ég man eftir því að þegar ég var kynnir á „Ég fer einstaka sinnum ennþá á Kaffibarínn til að dansa og lyfta mér upp. En ég drekk ekki. Það er auðveldara að vakna núna daginn eftir." stórtónleikum í Laugardalshöllinni var stelpuskari fyrir framan sviðið sem byrjaði að öskra. Þetta var fyrsta kynningin af 14 en ég gekk beint út og fór á barinn. Þetta hefur aldrei höfðað til mín að neinu leyti og þetta var f fyrsta og sfðasta sinn sem ég var kynnir. Ég myndi ekki vilja vera poppstjarna. Ntí í dag er frægðin orðin svo mikið takmark í sjálfu sér, en takmarkið er ekki áhugavert eitt og sér. Maður verður að njóta sköpunarinnar í sjálfri sér. Um leið og maður er kominn með einbýl- ishtís og bfl og allt vill maður enn meira. Þetta er óseðjandi skrímsli. Langflestir sem hafa fengið frægð og frama eru óhamingjusamar. Frægð án tileftiis er tilgangslaus. En f dag þeg- ar það er auglýst eftir stelpum í sttíiknaband fyllist allt Nordica hótel af umsækjendum án þess að nokkur viti um hvað málið snýst, og einhver annar heldur í taumana. Þessi frægð- ardýrkun byrjaði að mörgu leyti með Helg- arpóstinum, og ég og Ingvar og svo aðeins seinna Hilmir Snær vorum fyrsta kynslóð þeirra sem voru settir í sviðsljósið á þennan hátt. Það verður ákveðin tilhneiging til að leita alltaf meiri og persónulegri upplýsinga. En ég hef ekki séð neina sérstaka aukningu í þessu síðan Helgarpósturinn var og hét. Auðvitaðvill maðurekki láta gramsaírusl- inu hjá sér, en það er samt sem áður ákjós- anlegra að opna fyrir allt en að ákveðnir að- ilar séu að þagga niður í málum sem ættu að koma upp í dagsljósið. Ég held að fjölmiðlar séu í miklu betri málum núna en áður. Það er jú best að hafa sem mesta fjölbreytni og fólk velur hvað það vill lesa. Umræðan sjálf er ekki slæm." Baltasar var ekki sáttur við að vera einungis leikari. Hann var einn af stofnendum Flugfé- lagsins Lofts, leikstýrði hinni gríðarlega vin-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.