Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Side 43
DV Fókus
LAUGARDAGUR 13. MARS 2004
Mariah Carey
Þegar Mariah fékk taugaáfall árið 2001 kom það
fáum á óvart. Talsmaður söngkonunnar sagði
blaðamönnum að Mariah hefði fengið andlegt
og líkamlegt áfall og væri í meðferð gegn stress-
inu. Hún hafði skrifað á heimasíðu sína að hún
væri á kafi í vinnu og hún væri ekki metin að
verðleikum. Þegar hún kom fram í sjónvarps-
viðtali bjuggust áhorfendur við hvað af hverju
að hún brotnaði niður. Mariah hafði átt erfitt
ár, þar sem skelfilega kvikmyndin Glitter kolféll
og hún hafði hætt með kærastanum sínum Luis
Miguel. Líf hennar virðist hins vegar alls ekki
ætla að rétta sig af þar sem miðasala á tónleika
hennar gengur ekki neitt.
Michael Jackson
Jackson telst kannski ekki til fallega fólksins en
frægur er hann. Lífshlaup Michaels Jackson er
það ldikkað að hann hlýtur að hafa fengið
taugaáfall einhvern tímann á leiðinni. Með lýta-
■aðgerðum og fáránlegum uppákomum virðist
vanta nokkuð margar skrúfur í söngvarann en
árið 1994 byrjuðu vandræðin fyrir alvöru þegar
hann var fýrst sakaður um kynferðislega mis-
notkun. Síðan þá hefur líf hans breyst úr furðu-
legu yfir í fáránlegt og ekki bætti úr skák þegar
hann dinglaði barni sínu fram af svölunum.
Með alla sína peninga ætti hann að hafa efni á
geðlæknum og sálfræðingum en kannski er
hann bara of klikkaður til að þiggja hjálp og ein-
hvern veginn kæmi það ekld á óvart að frétta af
sjálfsmorði Wacko Jackos á næstu misserum.
Michaei JacJcson Hvað þolir hann
þetta lengi?
Robbie Williams
Eftir að strákahljómsveitin Take That hættó*--
vissi Robbie ekki í hvorn fótinn hann ætti að
stíga. Draumnum var lokið og hann þorði varla
út úr húsi en sneri sér þess í stað að flöskunni
og dópinu. Með hjálp fjölskyldu og vina, með
sir Elton John í broddi fylkingar, náði strákur-
inn sér upp úr ruglinu og hefur verið á hraðri
uppleið síðan. Aðrar stjörnur gætu tekið
Robbie til fyrirmyndar því hann brotlenti á
botninum en náði sér snögglega á strik með því
að leita sér hjálpar.
BritneySpears
Aiveg síðan poppskvísan hætti á föstu með
Justin Timberlake hefur allt gengið á afturfót-
unum hjá greyinu. Hún fór að drekka, reykja
og dansa upp á borðum. Kyssandi alla, konur
og karla og grenjar svo í beinni vegna ósann-
gjarns hlutskiptis. Stuttu seinna giftist hún
vini sínum á fylliríi, fjölskyldu sinnar til mikill-
ar gremju. Tími til kominn fyrir prinsessuna
að hætta að velta sér upp úr fortíðinni og
halda áfram að gera það sem hún gerir best.
Hvað sem það nú er.
’*5
Kaupendur DV framvísa kassastrimli við útgang og fá góðgætið afhent.
í tilefni opnunar á stórglæsilegri
verslun Bónus í Hafnarfirði í dag
verður tilboð á Helgarblaði DV
- þú kaupir Helgarblað DV og
færð í kaupbæti Coke og Twix.
7