Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Qupperneq 21
DV Fókus LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 21 NOKKUR VERK A GÓÐU VERÐI Jón Helgason Þorvaldur Skúlason Þórarinn B. Þorláksson Gömul hús I Reykjavlk Fjallasýn, 1931. Flötubakkar, ca. 1901. Þorvaldur Skúlason Kristján Davíðsson Ásgrímur Jónsson Módel,ca.l935. Fígúrur. Portrett,ca.l908. Ásgrímur Jónsson Þórarinn B. Þorláksson Jóhannes Geir Skissa frá Þjórsá. Islenskt landslag, 1931. Ca.1950. Komposition, 1945. Þórarinn B. Þorláksson Kjarval Útsýni,ca.l901. Þingvellir. Kjarval Kjarval Þórarinn B. Þorláksson Frá Kaupmannahöfn. Stúlkavið hörpu. Kirkja í Friðrikshöfn, 1901. Ásgrímur Jónsson Gunnlaugur Blöndal Kýr viö Stigagil. Siki i París. eftir Ásgrím og Kjarval sem má finna þarna á uppboðinu." Jónas Freydal fagnar því að myndunum skuli ekki hafa fækkað eftir að hann hætti að kaupa og selja íslensk listaverk. „Ég hef haldið þvf fram að ekkert væri að marka þessa sjálfskipuðu listaspekúlanta og er reyndar þeirrar skoðunar að þeir hafi skipulega falsað og rangtúlkað listasöguna. Til marks um það er þessi fjöldi mynda sem ekki þekkt- ust en eru nú komnar fram í dags- Ijósið hjá Bruun." Ótrúlega hagstætt að kaupa Slík uppboð eins og það sem Bruun mun standa fyrir hafa reynst listaverkasölum drjúg tekjulind þó svo að frost ríki á þeim markaði í kjöl- far umræðu um falsanir. Jónas metur það svo að nú sé hagstætt að kaupa, því verðið sem sett er á myndirnar á uppboðinu er í flestum tilfellum af- skaplega lágt. Þannig er þarna að finna stórt Kjarvalsverk sem meta má á 1,5 milljónir en í fljótu bragði má slá á að meðalverð þessara 27 mynda sé 250 þúsund. Þarna ætti því að vera hægt að gera góð kaup. Annað dæmi gæti verið stór Ásgrímsmynd en ásett verð er um hálf milljón hjá Bruun. ITæglega má meta myndina á tvær milljónir. En ertu alveg viss um aö þú hafir Þarna er stór Ásgríms- mynd en ásett verð er hjá Bruun er um hálf milljón. Hæglega má meta myndina á tvær milljónir. ekki málaö einhverjar þessara mynda, Jónas? „Nei, ég hef hvorki átt, selt né mál- að neina af þessum myndum. Ég hef hins vegar hugsað mér að kaupa nokkrar þeirra. Þó svo að ég selji ekki myndir á fslandi í augnablikinu hef ég nú ekki hugsað mér að láta þessa kumpána sitja eina að þessum mynd- um,“ segir Jónas og telur ýmsa þá að- ila sem stóðu fyrir málarekstri á hend- ur sér hugsa sér gott til glóðarinnar. Hann telur að mál sitt verði tekið fyrir af Hæstarétti í síðasta lagi fyrir næstu jól. „Því fyrr, því betra. Ég er mjög sáttur við að hafa áfrýjað þó að ég hafi verið sýknaður í öllum tilfellum af að hafa falsað eða látið falsa einhverjar myndir. En mér firinst ég bara skulda gömlu meistumnum það að leggja mitt af mörkum til að hreinsa þá af þessum barnalegu ásökunum." jakob@dv.is ^rSTAN'DT MORQDNBLADID Valtýr, Árvakur og Morgunblaðið Jakob F. Ásgeirsson rithöfundur heldur því fram í nýlegri bók Valtýr Stefánsson. Ritstjóri Morgunblaös- ins að Valtýr sé „einn áhrifamesti maður í sögu fjölmiðlunar á fs- landi." Enn fremur að svo örlagaríkt hafi starf hans verið fyrir útbreiðslu, hljómgrunn og vöxt Morgunblaös- ins á fyrri hluta 20. aldar að hann sé réttnefndur „höfundur" blaðsins. Útgefandi og ritstjóri Valtýr var ritstjóri Morgunblaðs- ins í fjörutíu ár, frá 1924 til 1964 er hann féll frá tæplega sjötugur að aldri. Vegna veikinda gegndi hann þó ekki ritstjórastarfinu með virkum hætti síðasta áratuginn. Eftir hann liggja nokkrar bækur, aðallega við- talsbækur með efni úr blaðinu, og svo ævisaga Thors Jensens í tveimur bindum. Hann var áberandi maður í íslensku þjóðlífi á sinni tíð, en ólík- legt er að nafn hans sé mjög þekkt nú á dögum. Kannski á hin nýja ævi- saga eftir að vekja athygli á honum. í því sambandi ætti ekki að spilla fyrir að ýmislegt sem dregið er fram í bókinni „kallast á“ við umræðuefni líðandi stundar um sjálfstæði fjöl- miðla, flokkstengsl og fyrirtækja- blöð. Þegar Valtýr var ásamt Jóni Kjart- anssyni ráðinn ritstjóri Morgun- blaðsins 1924 voru eigendur þess nokkrir kaupmenn og heildsalar í Reykjavík, rétt innan við tuttugu að tölu; átti enginn þeirra ráðandi hlut. Valtýr hafði þegar í upphafi trú á blaðinu gagnstætt mörgum hluthöf- unum, fann lífsfyllingu í starfinu og hófst fljótlega handa um að „treysta stöðu sína með veigamiklu eignar- haldi". Virðist hann hafa haft hljótt um áform sín því það kom öðrum hluthöfum útgáfufélagsins, Árvak- urs hf., í opna skjöldu þegar upplýst var á aðalfundi í mars 1928 að hann ætti 44% hlut í félaginu. „Þar með var Valtýr í raun orðinn sinn eigin útgefandi, þótt aldrei eignaðist hann meirihluta í Árvakri," segir Jakob F. Ásgeirsson. Ekki óumdeildur ritstjóri „Valtýr var ekki óumdeiidur á sínum vettvangi. Hann vissi að stjórnarmenn íÁrvakri voru ekki all- ir jafn ánægðir með störf hans þótt þeir kynnu vissulega að meta að verðleikum að hann hafði gert blað- ið arðbært í rekstri," segir Jakob. Hann segir að togstreita hafi einkum verið á milli Valtýs og Garðars Gísla- sonar stórkaupsmanns, stjórnarfor- manns útgáfufélagsins, sem taldi Valtý ekki skrifa nægiiega skelegg- lega um verslunarmál og gegn kaup- félögunum. Á fjórða áratugnum var óánægja með „linkind" Valtýs og Og flokksblöðin svo- nefndu sýndu þrátt fyrir allt á stundum metnað í almennum fréttaskrifum sem gat skákað því sem birtist í Morgunblaðinu. Heimur fjölmiðlanna var hvorki þá né nú svartur og hvítur. samstarfsmanna hans á Morgun- blaðinu í verslunarmálum orðin svo útbreidd meðal hluthafa að efnt var til sérstaks hluthafafundar sumarið 1936 til að ræða málið. Var þar hald- ið uppi harðri gagnrýni á ritstjórana fyrir tómlæti þeirra um verslunar- höft og misbeitingu gjaldeyris- og innflutningsleyfa í þágu kaupfélag- anna. Einhver áhrif virðist þessi fundur hafa haft á umfjöllun blaðs- ins í kjölfarið, þótt ekki væru allir umkvörtunarmenn ánægðir. Fram kemur í bókinni að hluthaf- ar, sem réðu meirihluta í Árvakri, en það voru sem fyrr kaupmenn og heildsalar, hafi þegar í kjölfar hinna leynilegu hlutabréfakaupa Valtýs 1928 tekið sig saman um að koma í veg fyrir að hann eignaðist meiri- hluta í félaginu. Forystumenn þeirra virðast þá, auk Garðars Gíslasonar, hafa verið Hallgrímur Benediktsson, Jes Zimsen og Ólafur Johnson en síðar varð Sveinn M. Sveinsson í Völundi áhrifamikill í þessum hópi. Öðrum þræði endurspegla átök- in í Árvakri hagsmunatogstreitu sem forðum daga var í röðum atvinnu- rekenda á milli útgerðarmanna og kaupsýslumanna. Heyrist bergmál hennar raunar enn í dag. Var Valtýr í nánu persónulegu sambandi við helsta málsvara útgerðarinnar, Ólaf Thors, og bræður hans í Kveldúlfi. Samstaða um að efla blaðið Þrátt fyrir þennan núning voru eigendur Morgunblaðsins samstíga um að efla blaðið sem fréttamiðil og vinna því brautargengi með þjóð- inni. Valtýr virðist hafa haft frjálsar hendur um ritstjórnarstefnuna og ráðningu blaðamanna. Jakob F. Ás- geirsson ræðir ekki, líklega vegna skorts á heimildum, hvort hluthafar hafi með einhverjum hætti reynt að hafa áhrif á dagleg fréttaskrif blaðs- ins, fyrir utan það sem áður er rakið; er alls ekki víst að um það hafi verið að ræða enda var staða kaupsýslu- manna á þessum tíma allt önnur en Guðmundur Magnússon Skrifar um ævisögu Valtýs Stefánssonar eftir Jakob F. Ásgeirsson Söguþræðir nú á dögum. Hafa fyrirtæki hluthaf- anna þó hugsanlega getað gengið að ýmiss konar kynningu vísri í blað- inu, umfram það sem önnur fyrir- tæki fengu. „Sjálfstæði" ekki sama og „hlutleysi" Jakob F. Ásgeirsson telur að Morgunblaðið hafi í ritstjórnartíð Valtýs Stefánssonar rutt nútímalegri blaðamennsku, faglegri og sjálf- stæðri, braut hér á landi. Rekur hann í því sambandi hvernig breyt- ingar urðu á efni og efnistökum blaðsins allt frá því á þriðja áratugn- um og fram á hinn sjötta. Hann leggur áherslu á að menn megi í þessu sambandi ekki láta það villa sér sýn að Morgunblaðið var mjög pólitískt og eindregið stuðningsblað Sjálfstæðisflokksins. Vill hann gera skýran greinarmun á Morgunblað- inu og flokksblöðunum svonefndu, sem hafi ekki aðeins verið „málpíp- ur stjórnmálaflokka heldur ýmist í eigu þeirra eða áttu fjárhagslegan tilverurétt sinn undir stuðningi þeirra". Tekur Jakob síðan svolitla rispu gegn útbreiddum misskilningi um að „sjálfstæði" fjölmiðla sé hið sama og „hlutleysi". Ruddi nýjar brautir Mikill sannleikur er fólginn í orð- um Jakobs um muninn á sjálfstæði dagblaða og hlutleysi þeirra í þjóð- málum. Dagblað getur verið áreiðan- legur og faglegur fréttamiðill þótt það beiti sér fyrir ákveðnum sjónarmið- um í ritstjórnargreinum og með áherslum í fréttaflutningi. Gildir hér að veldur hver á heldur. Hitt er svo annað mál að Morgunblaðið á tíma Valtýs var ekki, hvað sjálfstæði og fagleg vinnubrögð áhrærir, sambæri- legt við stóru fféttablöðin í ná- grannalöndum okkar, enda sé ég ekki að Jakob haldi því ffam. Og flokks- blöðin svonefndu sýndu þrátt fyrir allt á stundum metnað í almennum fréttaskrifum sem gat skákað því sem birtist í Morgunblaðinu. Heimur fjöl- miðlanna var hvorki þá né nú svartur og hvítur. En hitt er áreiðanlega rétt að með metnaði sínum og dug ruddi Valtýr Stefánsson íslenskum dag- blöðum nýjar brautir og er við hæfí að halda því á lofti eins og gert er í þessari stórfróðlegu bók. gm@intemet.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.