Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 Fókus DV Eftir helgina kemur út fimmta sólóplata George Michael, Pati- ence, en það er hans fyrsta plata með frumsömdu efni í átta ár. Trausti Júlíusson rifjaði upp feril kappans, sem síðustu ár hefur komist í frétt- irnar fyrir flest annað en tónlistina. George Michael Almenningur stóð með honum þegar hann var gómaður á almenningssalerni i garði i Beverly Hills og handtek- inn fyrir ósæmilega hegðun á almannafæri. Þegar hann réðst að George Bush og Tony Blair í myndbandinu við lagið Shoot The Dog voru viðbrögðin hins vegar harðari. Það kemur íIjós á næstu vikum hvort tónlistin hans á enn upp á pallborðið hjá gömlu aðdáendunum, en nýja platan hans, Patience, kemur i verslanir úti um allan heim á mánudaginn. George Michael loksins séttur við sjálfan sig Astríhufullur og alvörugetinn Það hefur gengið á ýmsu hjá George Michael síðustu ár. Hann fór í mál við Sony og tapaði. Það kostaði hann þrjár milljónir punda. Hann gekk í gildru lögreglunnar í LA og var handtekinn fyrir ósæmilega hegðun á almenningssalerni í garði í Beverly Hills. í kjölfarið gaf hann út yfirlýs- ingu um að hann væri samkyn- hneigður. Hann var harðlega gagn- rýndur fyrir myndbandið við lagið Shoot the Dog, sem rakti glappaskot „hálfvitans George Bush og kjölturakkans hans Tony Blair“. Shoot the Dog seldist lítið og George dró sig að mestu út úr sviðsljósinu. Nú er hins vegar komin út ný smáskífa, Amazing, og stór plata væntanleg eftir helgina. Hún heitir Patience. Nafnið vísar til þess að þetta er fyrsta plata George með frumsömdu efni í heil átta ár, síðan Older kom úr árið 1996. „Takk fyrir þolinmæðina" segir George, sem lýsti því nýlega yfir að árið 2003 hafi verið fyrsta góða árið í lífi hans í 10 ár. En hver er hann þessi rnaður? Wham! Georgios Kyriacos Panayiotou er fæddur 25. júní 1963 í Norður- London. Hann er ættaður frá Kýpur og Grikklandi, foreldrar hans voru innflytjendur sem ráku matsölustað í borginni. Hann var mjög bældur í æsku og lét sig dreyma um að verða frægur og dáður. Hann kynntist Andrew Ridgeley í grunnskóla. Þeir voru báðir í ska-popphljómsveitinni The Executive sem var stofnuð árið 1979, en eftir að hún leystist upp ákváðu þeir að stofna sína eigin hljómsveit. Sú hljómsveit fékk nafn- ið Wham! og náði gríðarlegum vin- sældum með lögum eins og Young Guns (Go For It), Freedom og Wake Me Up Before You Go Go. Wham! sló í gegn 1982 og gaf út þrjár stórar plötur. Árið 1985 hætti George í hljómsveitinni eftir að hann frétti að umboðsmaður hennar, Simon Napier-Bell (sem síðar varð um- boðsmaður Take That) hefði selt suður-afrísku stórfyrirtæki hluta í umboðsskrifstofunni sinni. George vildi ekki styðja aðskilnaðarstefnu S- Afríku. Áður en Whant! hætti hélt hljómsveitin risa kveðjutónleika á Wembley þar sem hún spilaði fyrir 72.000 manns. Bláeygtsoul Það kom engum á óvart að Wham! skyldi hætta, enda hafði George gefið út sína fyrstu sólósmá- skífu, Careless Whisper, árið 1984. Lagið, sem hann samdi ásamt Andrew þegar hann var 17 ára, sló rækilega í gegn og var forsmekkurinn að þeim miklu vinsældum sem hann átti eftir að ná. Fyrsta stóra platan hans, Faith, kom út árið 1987. Hún seldist í yfir 15 milljón eintökum. Hún innihélt soul og grúvskotið popp. Tónlist sem stundum er kölluð „bláeygt soul“. Sama ár söng hann dúettinn I Knew You Were Waiting (For Me) með sjálfri soul-drottning- unni Arethu Franklin. Önnur plata George, Listen With- out Prejudice Vol. 1, kom út 1990 og seldist heldur minna. I kjölfarið fór hann í mál við Sony. Hann hélt því fram að hann væri þræll stórfyrir- tækisins, sem færi með hann eins og neysluvöru í stað þess að meðhöndla hann eins og listamann. Eftir löng og erfið málaferli sigraði Sony og George þurfti að punga út 3 milljón- um punda til þess að losna undan samningnum við fyrirtækið. Hann hefur síðan flækst á milli plötufyrir- tækja. Þriðja platan hans, Older, kom út 1996 hjá Virgin og seldist mjög vel. Á henni var tónlistin með alvarlegri undirtón en áður, enda var platan tileinkuð félaga hans Anselmo, sem dó úr alnæmi. Þvingaður út úr skápnum Áföllin héldu áfram. Árið 1988 missti George móður sína, sem hann var alltaf í mjög nánu sambandi við. Hún dó úr krabbameini. Þegar hann var rétt að jafna sig eftir þann atburð var hann veiddur í gildru lögreglunnar í LA á almenningssalerni í garði nálægt heimili hans í Beverly Hills. Það var óeinkennisklæddur lögreglumaður sem tældi hann og tók hann svo fast- an. Þá reiknuðu margir með því að fer- Ul gömlu Wham! stjörnunnar væri á enda, en það var af og frá. George kom fram og gaf út yfirlýsingu um að hann væri samkynhneigður. Almenningur fékk samúð með honum, enda var hann fórnarlamb vægast sagt vafa- samra vinnubragða. Safnplatan Ladies & Gentlemen The Best of George Michael sem kom út haustið 1998 mokaðist út og vinsældirnar virt- ust síst vera að minnka. I dag er Geor- ge Michael búinn að selja vel yfir 80 milljón plötur. í árslok 1999 gaf hann svo út sína fjórðu sólóplötu, Songs From the Last Century. Hún hafði að geyma 10 af hans uppáhaldslögum, en ekkert fmmsamið efni og þótti ekki mjög merkileg. Poppstjarna breytist í hug- sjónamann „Við ættum að fagna því að for- sætisráðherrann okkar er ekki lyg- ari,“ sagði George Michael í viðtali við franska vikuritið Télérama fyrir nokkru, eftir að Hutton lávarður hafði birt umdeildar niðurstöður rannsóknar sinnar á upphafi íraks- stríðsins og dauða vísindamannsins Davids Kelly, „en í raun þýðir það að hann er ekkert annað en heimskingi. LeUcfang í höndunum á Bandaríkja- mönnum.“ Myndband George við lagið Shoot fite Dog sem kom út í júlí 2002 vakti mikla athygli. Þetta er teiknimynd sem sýnir afar vitgrannan George Bush og hundinn hans Tony Blair við ýmsa iðju, m.a. í rúminu. Mynd- bandið var hugsað sem háðsádeila á utanríkisstefnu Breta. Það voru hins vegar ekki allir sáttir við það að vin- sældalistagarpurinn og fyrmm WhamLgleðipopparinn George Michael væri allt í einu orðinn póli- tískur baráttumaður. Myndbandið hneykslaði marga og dagblöðin New York Post og hið breska The Sun sein bæði hafa mikla útbreiðslu og em í eigu fjölmiðlakóngsins Ruperts Mur- doch, réðust harkalega á tónlistar- manninn. Shoot the Dog seldist líka lítið, en eins og sést á ummælum George hér að ofan er popparinn ekkert þagnaður... „Ómótstæðilegt popp" Eftir að George Michael sagði skilið við Virgin gerði hann samning við Universal, sem gaf út smáskífurnar Freeek! og Shoot tfie Dog. Það sam- starf var ekki að ganga upp og í byrjun ársins 2004 tilkynnti George að hann hefði gert nýjan samning við Sony. Kominn aftur heim og búinn að gleypa stoltið... Og engin skömm að því. Patience er opnari og jákvæðari plata en Older. George segir í viðtalinu við Télérama að hann hafi viljað gera „ómótstæðilega poppplötu". Við- fangsefni textanna em margvísleg. Auk laganna Freeek!, Shoot The Dog og Amazing em á plötunni lög eins og John & Elvis Are Dead, Cars & Trains (fjallar um skyndikynni), American Angel (fjallar um kærastann ltans síð- ustu 7 árin), Through (fjallar um sleggjudóma slúðurblaðanna) og Round Here sem fjallar um uppvaxtar- árin í Norður-London. George Michael er að eigin sögn hættur að umgangast stjörnur. Hann hefur t.d. ekki hitt góðvin sinn Elton John í tvö ár. Hann segir að eina stjarnan sem hann hefur átt samskipti við að undaförnu sé „hvíta píanóið hans Johns Lennon" sem hann keypti á uppboði fyrir 1,45 milljónir punda í október árið 2000. George samdi flest lögin á nýju plötunni á það. Patience er að fá góða dóma í tónlistarpressunni, t.d. fjórar stjörnur í Q.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.