Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Qupperneq 35
DV Sport LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 35. Hörkutólin mætt aftur Keflvíkingar hafa endurheimt þá Gunnar Einarsson (sjá mynd) og Fannar Ólafsson eftir meiðsli og þeir félagar voru tveir bestu menn liðsins þegar Keflavík vann Tindastól, 98-81, í fyrsta leik átta liða úrslitanna í fyrrakvöld. Gunnar Einarsson skoraði 20 stig og hitti úr 7 af 10 skotum sínum og Fannar Ólafsson var með 17 stig og 18 fráköst auk þess að fara fyrir sínu liði í leikgleði og baráttu. Auk þeirra var Derrick Allen með 18 stig og 13 fráköst. Tindastóll lék án stigahæsta leikmanns síns í deildarkeppninni, Nick Boyd, sem meiddist á ökkla á æfingu en vonast eftir að hann spili annan leikinn sem fer fram á Króknum í dag. Clifton Cook skoraði 20 stig, tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar og landi hans David Sanders bætti við 19 stigum og 5 stoðsendingum. Guðni semur við Fylki Guðni Rúnar Helgason hefur komist að samkomu- lagi við Fylkismenn um að leika með þeim næstu þrjú árin. „Ég er búinn að sam- þykkja tilboðið frá Fylki og ég kem suður í næstu viku til þess að skrifa undir samninginn. Eftir það verð ég væntanlega fluttur aftur suður og get farið að ein- beita mér að boltanum," sagði Guðni í samtali við DV Sport í gær en samkvæmt heimildum DV Sports greiddu Fylkis-menn rúma milljón fyrir Guðna. „Ég er mjög sáttur við samninginn og ég held að báðir aðilar geti verið mjög sáttir," sagði Guðni sem er einnig mjög ánægður með að spila áfram undir stjórn Þorláks Árnasonar en þeir voru báðir í herbúðum Vals. Snæfellingar urðu vitni að skotsýningu í fyrsta leik liðsins í úrslitakeppninni. Dondrell Whtimore skoraði 39 stig og raðaði körfunum niður þegar Snæfell vann ^ fyrsta leikinn í átta liða úrslitunum gegn Hamri með 13 stiga mun. Dondrell skaut stressið Deildarmeistarar Snæfellinga léku sinn fyrsta leik í úrslitakeppninni þegar Hamars- menn komu í heimsókn í Hólminn á flmmtudagskvöldið. Þetta var stór stund fyrir „lið ársins" og þeir stóðust pressuna og unnu öruggan 13 stiga sigur eftir að hafa náð mest 18 stiga forustu, 85-67, um miðjan fjórða leikhluta. Þetta var fyrsti sigur Snæfells í sögu úrslitakeppninnar. Dondrell Whitmore átti frábæran leik í liði Snæfells og það má segja að þessi snjalli Bandaríkjamaður hafí skotið stressið úr Snæfellsliðinu. Dondrell skoraði 12 af fyrstu 18 stigum liðsins í leiknum og setti alls 39 stig auk þess að stela 7 boltum og senda 6 stoðsendingar. Skotnýting þessarar stóru skyttu var frábær, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem hann hitti úr 8 af 12 skotum (3 af 6 í þriggja) og skoraði 22 af 48 stigum liðsins. Snæfell leiddi með 7 stigum í hálfleik. Reyndasti leikmaðurinn Witmore er langreyndasti leikmaður liðsins og það má segja að hann hafi dregið vagninn af stað í þessum fyrsta af væntanlega mörgum stórleikjum í Stykkishólmi það sem eftir er vetrarins. Hann hefur leikið víðvegar um Evrópu og það er ljóst að hann stóðst það traust sem Bárður Eyþórsson setti á hann í þessari frumraun leikmanna Snæfellsliðsins í úrslitakeppni. Snæfell hafði tapað síðasta deildarleiknum eftir að hafa unnið 12 í röð þar á undan og það var því aukaálag á leikmannahópnum að vinna sig út úr því tapi í jafnstórum leik og þessi fyrsti leikur liðsins í úrslitakeppninni var. Liðið er nú búið að vinna sinn fyrsta leik í úrslitakeppni og næst á dagskrá er að vinna fyrsta einvígið. Auk Dondrell var Hlynur Bæringsson allsráður undir körfunum með 18 fráköst þar af 11 þeirra í sókn auk 13 stiga. Þá skoruðu þeir Sigurður Þorvaldsson og Edmund Dotson 12 stig hvor og Corey Dickersson sá til þess að allt byrjunarliðið skoraði 10 stig eða meira en hann gaf einnig 7 stoðsendingar. Það skipti líka máli að Corey tók 20 færri skot en í tapinu gegn KFÍ og fyrir vikið komust aðrir leikmenn liðsins mun betur inn í leikinn. Hafa aldrei unnið útileik Chris Dade skoraði 17 stig fyrir Hamar, Svavar Pálsson var nreð 16 og Faheem Nelson skoraði 14 stig og tók 10 fráköst, Hamarsmenn hafa aldrei unnið á útivelli í úrslitakeppninni en síðustu tvö ár hafa þeir unnið heimaleikinn sinn og tryggt sér oddaleik og nú er að sjá hvað gerist í Hveragerði á laugardaginn. ooj@dv.is Skotnýting þessarar stóru skyttu var frábær, sérstakiega í fyrri hálfleik þar sem hann hitti úr 8 af 12 skotum og skoraði 22 af 48 stigum liðsins. STÓRLEIKUR DONDRELLS Dondrell Whitmore átti frábæran leik fyrir Snæfell þegar liðið vann fyrsta leik sinn gegn Hamri, 99-86, í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Dondrell skilaði sínu allan leikinn eins og sjá má hér fyrir neðan en hann skoraði 7 stig eða meira í öllum leikhlutunum fjórum þar af yfir 10 stig í þremur þeirra. Tölfræði Dondrell Whitmore í fyrsta leik Snæfells og Hamars: 1. leikhluti: (21-21) Stig 12 Stoðsendingar 0 Stolnir boltar 1 Skotnýting 63% (5 af 8) 2. leikhluti: (27-20) Stig 10 Stoðsendingar 3 Stolnir boltar 2 Skotnýting 75% (3 af 4) 3. lelkhluti: (24-21) Stig , 7 Stoðsendingar 2 Stolnir boitar Skotnýting 50% (3 af 6) 4. leikhluti: (27-23) Stig 10 Stoðsendingar 1 Stolnir boltar 2 Skotnýting 40% (2 af 5) Samtals: (99-86) Stig 39 Stoðsendingar 6 Stolnir boltar 7 Skotnýting 57% (13 af 23) Skotsýning í Stykkishólmi Dondrell Whitmore skoraði 39 stig, stal 7 boltum og gafó stoðsendingar í fyrsta sigri Snæfellinga i úrsiitakeppninni frá upphafi. DV-mynd Hari * ★ ★ ★ ir ★ ★ ★ Rafmagnsgítarsett 29.900,- stgr. Rafmagnsgítar magnari poki, ól- snúra -stillir og auka strengjasett. Gítarinn ehf. Stórhöfða 27, sími 552-2125 og 895 9376 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is Söngkerfi Trommusett frá frá 59.900,- 49.900,- stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.