Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 3 Var Hannes tullur? Hannes Hafstein varð ungur ástsælt skáld og snaggaraleg- ur sýslumaður ísflrðinga en það sem endanlega gerði hann þjóðfrægan á íslandi var framganga hans 1899 þeg- ar hann fór á árabát ásamt flmm öðrum út að breska tog- aranum Royalist og freistaði þess að taka togarann sem stundað hafði blygðunarlaus landhelgisbrot inni á Dýra- firði. Islendingum hafði sviðið sárt hve grimmilega Bretar gengu fram í landhelginni og tilraun Hannesar ein gerði hann því að hetju í augum þeirra. Bresku togaramennirnir brugðust hart við og hvolfdu bát íslendinganna. Einn maður drukknaði, Jóhannes Guðmundsson, en Hannesi og hinum var um síðir bjargað. Þótti Hannes vinna affek með því að halda tveimur fé- laga sinna uppi en íslendingarnir voru allir ósyndir nema hann. í heimildum kemur víða fram að Dýrfirðingar hafi verið mjög tregir til þess að fara í ferðina út á íjörðinn með Hannesi og hefur það oftast verið túlkað þannig að aðeins hann hafi haft þá dirfsku til að bera sem þurfti tií að standa uppi í hárinu á bresku landhelgisbrjótunum. í þættinum Laufskálanum á Rás 1 nú nýlega kom þó fram önnur skýring. Þar ræddi Finnbogi Hermannsson við Guð- mund Björn Hagalínsson á Hrauni á Ingjaldssandi. Guðmund- ur hafði frá mörgu að segja og gat þess m.a. að þar sem Hann- esi Hafstein hefði um þessar mundir verið lyft mjög upp stall, þá brynni á sér að segja frá því sem hann vissi um ferðina út í Dýrafjörð. Las hann svo úr bréfi sem Bjami Maríus Jónsson sendi honum nýlega en Bjarni er barnabarn systur Jóhannesar sem fórst. í bréfinu sagði: „Amma sagði Jóhannes bróðir hennar hefði neitað að fara með Hannesi enda [væri] rétt að hreppstjórinn skaffaði menn í slíka ferð. Einnig átti Hannes að hafa angað af víni. Þeir voru líka þreyttir eftir erfiði dagsins og þó nokkur handleggur að róa út að togaranum fyrir óþreytta, hvað þá þreytta menn að kvöldi dags. Sýslumaður á að hafa hótað honum öllu illu, þ.á.m. að leysa upp fjölskylduna hans, stinga honum í fangelsi ef að hann hlýddi ekki. Amma kenndi Hannesi alla tíð um dauða bróður síns.“ Síðan bætti Guðmundur sjálfur við: „Þetta er harkalegt en því miður staðreynd. Þannig heyrði maður þetta alltaf þegar maður var krakki og unglingur að Hannes hefði ekld veirð sem best á sig kominn þegar hann kom.“ Nú er spurning hvort þeir Guðjón Friðriksson og Davíð Oddsson, sem báðir fást nú við að skrifa um ævi Hannesar, meðhöndla þessar heimildir. m Spurning dagsins Er ástæða til að setja sérstök lög gegn heimilisofbeldi? Skekkja í refsiákvörðun „Já, mér firwst það í lagi. Það væri verrtd iþvi fólgin efhægt væri að leita til einhvers með visun ílög og láta fjarlægja viðkomandi. Efum heimilis- ofbeldi er að ræða er oftast einhver saga á bak við það, alkóhólismi eða önnur vanlíðan undirliggjandi. Ég held að á hverju heimili sem búi við ofbeldi búi eitthvað andlegt að baki. Þvi þarfí framhaldinu þarfað fara fram einhver meðferð þann sem á i hlut. Engin lausn erað taka manninn og sleppa honum svo út.“ Ruth Reginalds söng- kona. „Það er ástæða til að tekið sé sérstaklega á þessu i hegning- arlögunum ásamt fleiri þáttum sem snúa að konum og kynferðisof- beldi. Það er skekkja í refsiákvörð- unum í samanburði við önnur brot." Atli Gíslason lögmaður og alþingismaður. „Ég heldað það sé ekki ástæða til þess. Heimilið á ekki að vera I einhverjum sér lagaramma. Of- beldi er hið sama hvarsem það birtist og allir eiga að standa jafnir íþeim efn- um, hvortsem ofbeldi er beitt gegn heimilisfólki eða náungan- um á götunni." Guðmundur Týr Þórarinsson - Mummi í Götusmiðjunni. „Full ástæða til að skoða þetta betur. Dómur- inn er talandi dæmi um þörf- ina. Við þurfum að líta til skýrslna sem gerðar hafa verið um heimilisofbeldi, til dæmis á vegum Evrópuráðsins. Guðrún Ögmundsdóttir hefur beðið ráð- herra um utandagskrárumræðu um málið sem verður eftir helgi, og orðið hefur verið við þvi." Margrét Frímannsdóttir alþingismaður. „Núgildandi ákvæði al- mennu hegn- ingarlaganna taka til hvers kyns ofbeldis- brota. En ég er alveg reiðubúinn að skoða hug- myndir um að endurskoða lög- gjöfina með tilliti tilþessa atriðis." Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og alþingismaður. Hluti ástæðunnar fyrir því hversu vægan dóm Sverrir Þór Gústafsson hlaut fyrir ofbeldi gegn tveimur konum er sagður vera að ekki séu í gildi sérstök lög gegn heimilisofbeldi. fréttamaður á Sjónvarpinu eru systradætur. Sú fyrrnefnda er dóttir Guðrúnar Erlendsdóttur hæsta- réttardómara en sú síðarnefnda dóttir Sigriðar Theódóru Erlendsdóttur sagnfræð- ings. Móðir þeirra Guðrúnar og Sigríðar Theódóru hétJóhanna Vigdís Sæmundsson (1899-1981) úr Landsveit sem gekk að eiga Erlend Ólafsson sjómann. Nautilius heitir aðal næturklúbb- urinn í Ríga í Lettlandi. Á Baltict- imes.com er skrifað um heimsókn þangað: „Það jafnast ekkert á við að drepa tímann við house og teknómúsík í risastórum þúsaldar- kafbátnum Nautiliusi, það er að segja ef þú kemst framhjá dyravörð- unum. Þeir svartklæddu útkastarar eru svo gjarnir á að kasta út öllum sem inn koma að það mætti ætla að hver gestur kveikti á blikkandi eld- flaugavarnarkerfi hjá þeim. En hver sá sem lét sér detta í hug að dreifa „drykkjar-kortum“ til viðskiptavin- anna lilýtur að vera snillingur í bissniss. Það er álíka hættulegt og að láta 16 ára ungling fá gullkortið hans pabba. Klúbbgestirnir geta þurrkað upp ævisparnaðinn með nokkxum strokum af kortinu en fá svo áfallið um 5-leytið þegar reilcningurinn kemur. Inngangseyrir er 7 evrur (602 kr.) og kokkteilarnir kosta eitthvað svipað svo Nautilius Mark Twain er ekki ódýrasti næturklúbburinn í bænum en peningar virðast reyndar meira skraut en nauðsynjavara fyrir liðið sem sækir staðinn. Og hvað sem líður verðinu getur maður ekki annað en hrifist af því völundarhúsi af börum og setustofúm sem leynast í þessum þriggja hæða kafbáti. Á efstu hæðinni verður maður að brjóta sér leið gegnum kraðak af liálfberu fólki til að komast út á aðal dansgólfið en svo ér hægt að reika lengi um ranghala sem teygja sig undir steinlagðar gömlu göturnar í Ríga og alls staðar er þrumandi orka af fólki að skemmta sér. Ef ekki væri fyrir útkastarana .sem bíða spenntir eftir að kasta síðasta gestinum út þegar lokar, þá myndu flestir við- staddra sjálfsagt halda áfram að skemmta sér þarna dögum saman.“ Það erutilnokkur góð úrræði til að v erjast freistingum. Það öruggasta er hugleysið. Ef þu hefur tilefnið þá útvegum við veitingarnar mmmmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.