Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004
Fréttir DV
Spáir sól
og skýjum
Ný verðbólguspá Seðla-
bankans gerir ráð fyrir að
verðbólgan verði undir
markmiðum bankans eða
2,5% fram á mitt ár 2005 og
hækki síðan lítillega eftir
það. Birgir ísleifur Gunn-
arsson seðlabankastjóri
kynnti spána á blaða-
mannafimdi og samkvæmt
því sem hann segir er bjart
framundan í efnahagsmál-
um, hagvöxtur á uppleið,
gengið sterkt og vextir
stöðugir. Einu skýin á
himninum framundan eru
áhyggjur af útlánum, er-
iendum skuldum og eigna-
verði en þó er ástandið á
þeim vettvangi viðunandi í
augnablikinu að mati
bankans.
Ágreiningur
um Herjólf
bíður
Bæjarráð Vestmanna-
eyja hafnar tillögu minni-
hlutans um að taka
aftur upp formleg-
ar viðræður við
Vegagerðina og
Samskip um
„lausn á nokkrum
samskipta- og
ágreiningsmálum"
vegna ferjunnar
Herjólfs. Arnar Sigur-
mundsson úr Sjálfstæðis-
flokki, sem lagði fram til-
löguna, vill einnig að rætt
verði yið samgönguráðu-
neytið og Vegagerðina um
fjölgun á ferðum Herjóifs
og það að fundið verði skip
í stað Herjólfs þær tvær vik-
ur í september sem skipið
verði í slipp.
Heilbrigðis-
útgjöld illa
sambærileg
„Hagstofan hefur ekki
nægar upplýsingar til að
geta svarað því
með vissu hvaða
lönd séu sambæri-
leg við ísland og
hver ekki," segir f
svörum Davíðs
Oddssonar, forsæt-
is- og hagstofuráð-
herra við fyrir-
spurn Ágústs Ólafs
Agústssonar þingmanns,
sem með fyrirspum sinni
leitaðist við að fá á hreint
hvaða forséndur séu að
baki tölum sem notaðar
eru til að bera saman heil-
brigðisútgjöld þjóða á milli.
Árið 2001 og var það þá
næsthæsta hlutfallið meðal
OECD-landa. Hlutfall hins
opinbera af heildarútgjöld-
um til heilbrigðismála var á
íslandi tæplega 83%, en
meðaltalið í OECD var
71,7%, en hæst 91% í Tékk-
landi og aðeins 44% í
Bandaríkjunum.
Ágúst Ólafur segir að
svörin staðfesti að þessar
tölur séu nokkurn veginn
sambærilegar, en vitaskuld
slæmt að það sé ekki hægt
að segja svo með fullri
vissu. „Sem breytir þó ekki
því, að við sem viljum bæta
heilbrigðisþjónustuna
höldum þeirri baráttu
ótrauð áfram."
Félagsmálaráðherra afhenti einkarekna meðferðarheimilinu Götusmiðjunni hús-
næði að Gunnarsholti endurgjaldslaust í fimmtán ár. Margir eru undrandi yfir for-
gangsröðun ráðherra og hafa bent á hagsmunatengsl innan Framsóknarflokksins.
Framsóknartengsl
Götusmiðjunnar
gagnrýnd
„Ég skora á Inga og aðra gagn-
rýnendur að kíkja einfaldlega í heim-
sókn til okkar. Það er leiðinlegt að
verið sé að gera aðra tortryggilega
„Maður er undrandi á því af hverju Götusmiðjan
skuli fá svona háan styrk meðan önnur úrræða líða
fyrir ijárskort," segir Ingi Bæringsson, áfengisráð-
gjafl á Hvítárbakka. f fyrradag afhenti Árni Magnús-
son, félagsmálaráðherra, Götusmiðjunni nýtt hús-
næði að Gunnarsholti. Götusmiðjan mun' flytja
starfsemi sína þangað 1. júní og þarf ekkert að
greiða fyrir það í fimmtán ár.
Ingi segir það miklum vandkvæðum bundið að
fá peninga í meðferðarstarfsemi og fjölmörg úrræði
líði fyrir fjárskort. Margir séu því undrandi á hve
miklum peningum sé dælt í Götusmiðjuna miðað
við hve fitlar faglegar kröfur séu gerðar til starfsem-
innar.
Ættartengsl og kjördæmi
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi segir
menn vera hissa á forgangsröðun félagsmálaráðu-
neytisins. „Þeir sem maður ímyndar sér að geti ver-
ið sáriryfir þessu em geðlæknar," segir Þórarinn. „Á
meðan alvarlega veikt fólk fær hvergi athvarf er ver-
ið að verja peningum í reið-
skóla fyrir unglinga.“
Ingi Bærin8s'
munapólitík spili inn í ákvarðanir félagsmálará-
herra. „Kannski er það fyrirkomið vegna þess að
framkvæmdastjóri Götusmiðjunar er bæði í mið-
stjórn Framsóknarflokksins og varaborgarfulltrúi."
Eiginkona Mumma er Marsibil J. Sæmundsdótt-
ir. Hún er stofnandi og frtimkvæmdastjóri Götu-
smiðjunnar jafnframt því sem hún situr í miðstjóm
Framsóknarflokksins og skipar 13. sæti á sama
ffamboðslista ogÁmi Magnússon í Reykjavík Norð-
ur.
Ingi segir að ef það sé málið þá hljóti maður að
spyrja sig hvort metnaðurinn í meðferðarstarfi liggi
í því að eiga góða lobbyista eða hæft starfsfólk.
,Ætli meginlögmálin séu ekki eins og alltaf, ætt-
artengsl og kjördæmi," segir Þórarinn Tyrfingsson
varðandi þetta atriði.
Furðulegt ástand
Grímur Atlason hefur starfað við meðferðarmál
á íslandi og erlendis. Hann segir mörg innlagnarúr-
ræði á íslandi og því skjóti það skökku við að þeim
skuli fjölga sem þau gera með þess-
ari ákvörðun ráðherra. „Ef við
tökum Götu-
þá fær hún rúmlega 60 milljónir á ári ffá ríkinu,"
segir Grímur. „Það er í raun gott dæmi um útþenslu
meðferðarkerfisins og segir okkur að leita þarf nýrra
leiða. Lausnin er kannski ekki aukið fjárstreymi og
fleiri innlagnarpláss."
Gunnarsholt er rétt hjá Hellu og segist Guð-
mundur Týr Þótarinsson, betur þekktur sem
Mummi í Götusmiðjunni, vera hæstánægður með
ákvörðun félagsmálaráðherra. „Þetta er frábær að-
staða; meira eins og þorp heldur en hús,“ segir
Mummi og blæs á alla gagnrýni. „Ég skora á Inga og
aðra gagnrýnendur að kíkja einfaldlega í heimsókn
til okkar. Það er leiðinlegt að verið sé að gera aðra
tortryggilega. Þetta sýnir í raun bara ffam á ákveðna
vanþekkingu á starfsemi Götusmiðjunnar. Og ég
hafria því algerlega að þetta hafi með pólitík að
gera. Konan mín, Marsibil, fór að fikta í pólitík
löngu áður en Götusmiðjan varð til.“
Mummi segir einnig að þessi nýja aðstaða skapi
þeim betra umhverfi til að vinna sína vinnu. Nú
hefur Götusmiðjan fengið 30-40 aukapláss og getur
því aðstoðað mun fleiri
ungmenni.
simon@dv.is u
son veltir fyrir
sér hvort
smiðjuna
sem
dæmi
a hags
Þórarinn Tyrfingsson, Ingi Bæringsson, Mummi i
Götusmiöjunni og Arni Magnússon
Hart er aeilt um gjöf félagsmálaráðherra til Götusmiðjunnai
—
Davíð er orðinn Golíat
Svarthöfði er ekki stór maður þó
hann blási sig stundum út, en samt
hefur hann ekkert á móti því að Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra skrifi
um annan forsætisráðherra í bók
sem ráðuneytið þeirra beggja gefur
nú út. Það sem knýr Svarthöfða til
slíkrar áréttingar eru orð Davíðs í
beinni útsendingu á þinginu í gær
um að litlir, pirraðir karlar væru að
skamma hann fyrir eitthvað sem
þykir sjálfsagt erlendis. í Bretlandi,
til dæmis, er fólk ekki svo smátt í
sniðum að það hafi gagnrýnt Harold
Wilson þegar hann var bæði forsæt-
isráðherra og skrifaði um aðra for-
sætisráðherra.
Nú þykir Svarthöfða sem allt hafi
verið eðlilegt í þessu máli. Forsæt-
isráðuneytið skipaði ritnefnd til að
sjá um útgáfuna, og svo las Svart-
höfði á Morgunblaðsvefnum að
Svarthöfði
þetta kosti bara 8 milljónir, eða eins
og meðalskýrslur sem litlu alþingis-
dvergarnir biðja um í sífellu. Davíð
fékk sent bréf undirritað af rit-
stjórninni þar sem honum var boð-
ið að fjalla um kollega sinn, sem
einmitt hefur verið mikið í sviðs-
Ijósinu eins og hann sjálfur. Það má
segja að forsætisráðherrann hafi
mikið unnið til þess að skrifa um
Hannes Hafstein, hann mætti alla-
vegana í partýið hans.
Litlir menn sjá ofsjónum yfir
miklum verkum og hafa áhyggjur af
því að Davíð þurfi að taka sér orlof til
að skrifa ritgerðina. Hvaða vitleysa!
Þeir sjálfir virðast ekki vita að Davíð
er Golíat. Margur heldur mig sig.
Eða eins og vinur Svarthöfða hafði
oft á orði: Allt fer í hringi en samt er
allt eins.
Nú mætti líka útfæra hugmynd
ritstjórnarinnar enn frekar og leyfa
Steingrími Hermannssyni að skrifa
einn kafla og Þorsteini Pálssyni ann-
an, því báðir hafa þeir yfirgripsmikla
þekkingu á því hvað felst í starfi for-
sætisráðherra. Best væri ef þeir gætu
skrifað um hvorn annan.
Svaithöföi