Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Blaðsíða 10
70 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004
Fréttir DV
Málþing um
Arnald
og félaga
Félagsfræðingafélag ís-
lands stendur fyrir kaffi-
húsaspjalli um íslenskar
glæpasögur á Sólon ís-
landus í kvöld. Formaður
Félagsfræðingafélagsins
segir vinsældir Arnaldar
Indriðasonar og bóka hans
kveikjuna að þessu mál-
þingi. „Við sátum nokkur
úr stjórn félagsins á af-
brotaþingi úti í Helsinki í
fyrrasumar og ræddum
m.a. vinsældir bóka Arn-
aldar," segir Helgi Gunn-
laugsson, „því segja má að
hann hafl tekið þjóðina
með trompi, enda fjalla
bækur hans um afbrot á ís-
landi og þykja gefa nokkuð
raunsannar myndir. Okkur
datt í hug að taka glæpa-
sögurnar fyrir á málþingi;
bera þær saman við okkar
reynslu og rannsóknir til að
reyna að fínna veruleika
þessara sagna í okkar sam-
félagi." Til máls taka í kvöld
þau Sigríður Albertsdóttir,
Katrín Jakobsdóttir, Karl
Steinar Valsson og Helgi
Gunnlaugsson og hefst
þingið kl. 21.
Nýr þing-
flokksstarfs-
maður
Samfylkingin hefur ráð-
ið nýjan starfs-
mann þingflokks-
ins, Olav Veigar
Davíðsson. Hann
er 26 ára stjórn-
málafræðingur frá
Háskóla íslands og
Katholieke Uni-
versiteit Leuven í
Belgíu. Hann sat í
stjórn Stúdentaráðs fyrir
hönd Röskvu og gegndi
fleiri trúnaðarstörfum fyrir
Stúdentaráð, og hefur verið
í forystusveit ungra jafnað-
armanna á Suðurlandi.
Sturla Böðvarsson,
samgöngurdðherra
Sturla er um fram allt hollur
sínu fólki og berst vel fyrir al-
menning í sínu kjördæmi á
Vesturlandi. Hann hefur mikla
reynslu afstjórnmálum sem
hefur gert honum kleift aö
standast atlögur þær er gerö-
ar hafa verið aö honum und-
anfarin ár.
Kostir & Gallar
Hann þykir bera hagsmuni
vina, ættingja og kunningja
um offyrir brjósti og hefur ver-
ið gagnrýndur fyrir það gegn-
um tíðina. Hann þykir einnig
oflinur gagnvart forystu síns
flokks sem hann setur sig
sjaldan á móti og virðist oft
ekki mynda sér sínar eigin
skoðanir.
Forsætisráðherrabókin rædd á þingi. Davíð Oddsson var í stuði og sendi stjórnar-
andstöðunni tóninn um leið og hann upplýsti að heildarkostnaðurinn væri 8 millj-
ónir og ritnefndin hefði leitað til sín um að skrifa eins og einn kafla.
„Ég las mér til mikillar ánægju hér í eina tíð
mjög skemmtilega bók um forsætisráðherra Bret-
lands eftir Harold Wilson, sem skrifaði um alla
sína kollega. Bókin var afar afar áhugaverð og það
var enginn maður á Bretlandi svo lítill, eins og
litlu karlarnir hér, að hafa áhyggjur af því," sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra á þingi í gær.
Ástæða þessara ummæla var fyrirspurn Marð-
ar Árnasonar, þingmanns Samfylkingar, um fyrir-
hugaða útgáfu forsætisráðuneytisins á Forsætis-
ráðherrabókinni sem laut að höfundarlaunum,
kostnaði og öðru sem tengist bókinni. Davíð sagði
að þeir sem hefðu sýnt sig í því að hafa áhyggjur af
kostnaði vegna bókaútgáfu á vegum forsætis-
ráðuneytisins væru þeir hinir sömu og kostuðu
hið opinbera 5 til 10 milljónir með því að kalla eft-
ir tilteknum skýrslum.
Áður en Davíð svaraði lét hann einnig þau um-
mæli falla að sér sýndist sem heimastjórnaraf-
mælið „irriteraði" ýmsa þingmenn. Hann upp-
lýsti að heildarkostnaður vegna bókarinnar yrði
um átta milljónir, ritstjórinn, sem er Ólafur Teitur
Guðnason, fær í sinn hlut 1,6 milljónir fyrir 8
mánaða vinnu og ritlaun eru æúuð 2,6 milljónir.
Forsætisráðherrarnir sem um á að skrifa eru 24
sem þýðir að ríflega hundrað þúsund krónur falla
í hlut þess sem skrifar hvern kafla. Þá kom fram í
máli Davíðs að bókin yrði 350 til 400 síður, hund-
rað myndir og hlífðarkápa í fjórlit.
Jóhann Ársælsson spurði, af gefnu tilefni
vegna frétta sem birst hafa í DV, hvort rétt væri að
Davíð æúaði sér sjálfur að skrifa einn kaflanna og
hvort Davíð ætlaði sér að taka sér orlof, „fæðing-
arorlof" til að skrifa kaflann. Davíð svaraði sem
svo að ritnefndin, sem skipuð er Júlíusi Hafstein,
Sigurði Líndal, Haraldi Ólafssyni, Ingólfi Mar-
geirssyni og Jakobi F. Ásgeirssyni, hefði ritað sér
bréf þar sem þess var farið á leit að
hann ritaði einn kaflann. Vék
hann síðan að ánægju sinni af
lestri bókar Wilsons þannig
að æúa má að Davíð muni
ganga glaður til sinna rit-
starfa.
jakob@dv.is
Davíð Oddsson
Sagði að þeir hinir
sömu og hefðu
áhyggjur afkostn-
aði vegna bókar-
innar kölluðu eft-
irskýrslum sem
kostuðu 5 til 10
milljónir.
Bæjarráð Vestur-
byggðar samþykkti í gær
að hefja samningaviðræð-
ur við Árna Johnsen, fyrr-
verandi cilþingismann, um
að hann taki að sér tíma-
bundin verkefni í atvinnu-
og ferðamálum. Kolbrún
Pálsdóttir, fulltrúi meiri-
hlutans bar upp tillöguna
sem hljóðar svo: „Bæjarráð
samþykkir að fela bæjar-
stjóra að leita samninga við
Árna Johnsen um að hann taki að
sér tímabundið átaksverkefni fyrir
Vesturbyggð við hugmyndasköpun
og tillögugerð við uppbyggingu
ferðaþjónustu og annarrar atvinnu-
starfsemi í sveitarfélaginu. Verkið
skal m.a. felast í skýrslugerð um
hvernig skuli hrundið í framkvæmd
hugmyndum sem fram koma í nýrri
atvinnumálastefnu fyrir
Vestur-Barðastrandarsýslu.
Er við það miðað að bæjar-
stjóri leggi drög að samn-
ingi fyrir næsta fund bæjar-
ráðs, svo verkið geú haflst
þá þegar og að verkinu ljúki
með skýrsluskilum fyrir lok
si9urðury,990S- júnímánaðar 2004".
fyrir starfskrafta Jv™ af þremur bæjar-
Árna Johnsens ráðsmonnum samþykktu að
ganga til samninga við Árna
en Sigurður Viggósson, fulltrú
minnihlutans, greiddi atkvæði á
móti.
„Ég tel að ranglega sé farið að
ráða í starf ferðamála- og atvinnu-
fulltrúa. Ég vil að starfið sé skil-
greint, svo sem hvert við ætlum með
þessu starfl og hvert það á að leiða
okkur. Það liggur ekkert fyrir um það
eða kostnað við starfið. Þetta er ekk-
ert í samræmi við venjulega opin-
bera stjórnsýslu," segir Sigurður. Arni Johnsen
Hann segir að andstaða sín við Semurvið
ráðninguna snúist ekki um það heimamenn i
hvern eigi að ráða heldur hvort þörf Vesturbyggð.
sé fyrir starfsmann í umrædd verk-
efni.
„Ég hef ekki viljað taka þátt í
umræðum um þessa ákveðnu
persónu og hef ekki getað fallist
á þann rökstuðning meirihlut-
ans að viðkomandi sé það
sem við þurfum í Vestur-
byggð," segir Sigurður.
Á bæjarráðsfundinum í
gær var samþykkt ein-
róma að ráða Guðmund
Guðlaugsson, fyrrver-
andi bæjarstjóra
Siglfirðinga, sem
bæjarstjóra í
Vesturbyggð.
Bæjarráð Vesturbyggðar gengur til samninga:
Einn á móti Áma Johnsen