Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Blaðsíða 19
DV Sport FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 19 Nú er orðið ljóst hvaða íjögur lið komast í undanúrslit úrslitakeppni Intersportdeildarinnar í körfubolta. Snæfell mætir Njarðvík og Grindvíkingar glíma við Keflvíkinga en sömu lið mættust einmitt í undanúrslitum bikarsins. Þróun úrslitakeppninnar í ár samsvarar mjög úrslitakeppninni fyrir fjórum árum en það er í eina skiptið í sögunni sem báðir undanúrslitaleikirnir hafa farið í 5 leiki. Fjögur efstu liðin í Intersportdeildinni í körfubolta í ár tryggðu sér öll sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar en 8 liða úrslitunum lauk með tveimur stórskemmtilegum og æsispennandi oddaleikjum í fyrrakvöld. Snæfell og Njarðvík þurftu bara tvo leiki til að slá út sína mótherja og þau ríða á vaðið í undanúrslitaeinvígi sínu í Stykkishólmi á föstudaginn en Grindavík og Keflavfk sem unnu nauma sigra í oddaleikjum byrja sitt einvígi í Grindavík á laugardaginn. Líkt og fyrir fjórum árum mætast sömu lið í undanúrslitum bikarkeppninnar og í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Þá fóru úrslitin á sömu leið, heimaliðin, það er liðin á heimavelli í bikarleikjunum og með heimavallarréttinn í úrslitakeppninni, voru bæði slegin út. Þá var líka ein mest spennandi úrslitakeppnin frá upphafi því í fyrsta og eina skiptið fóru báðir undanúrslitaleikirnir í fimmta leik. Fyrir fjórum árum mættust lið Njarðvíkur og KR annarsvegar og lið Hauka og Grindavíkur hinsvegar í báðum undanúrslitaleikjum tveggja stærstu keppna tímabilsins. Lið Njarðvíkur og Hauka voru bæði með heimavallarréttinn í undanúrslitum Islandsmótsins og voru á heimavelli í undanúrslitaleikjunum í bikar- keppninni en í bæði skiptin voru það KR og Grindavík sem komust í úrslitaleikina þar sem Grindavík vann bikarinn og KR varð íslandsmeistari. Bæði alla leið í oddaleik Bæði undanúrslitaeinvígin í úrslitakeppninni fóru alia leið í oddaleik þar sem KR og Grindavík unnu bæði síðasta leikinn á útivelli og tryggðu sér sæti í lokaúrslitunum. Þetta er í fyrsta og eina skiptið í sögu úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar til þessa þar sem báðir undan- úrslitaleikimir fara alla leið í fimmta leik en það er nú leikið eftir þessu fyrirkomulagi í 10. skipti í ár en á ámnum 1984 til 1994 þurfti bara að vinna tvo leiki til þess að komast í úrslitaeinvígið um íslandsbikarinn. Bæði lið KR og Grindavíkur sýndu mikinn karakter í þessum undanúrslitaleikjum á þessu eftirminnilega tímabili fyrir fjómm ámm. Bæði voru sem dæmi undir í hálfleik í undanúrslitaleikjum bikarkeppninnar, KR 6 stigum undir í Njarðvik en Grindavík 13 stigum undir gegn Haukum í Strandgötu og komu bæði til baka og unnu leikina. í undanúrslitaeinvígjunum komust síðan bæði Njarðvik og Haukar 2rl yfir í einvígjum sínum og fengu því tvö tækfæri til að tryggja sér sæti í úrslitum, þar af oddaleikinn á heimavelli. En líkt og í bikar- leikjunum komu KR og Grindavík til baka og unnu einvígin 2-3. I undanúrslitum bikarkepp- ninnar í ár var svipað upp á teningnum. Grindavík leiddi með fimm stigum fyrir síðasta leikhlutann í leik sínum gegn Keflavík og Snæfell hafði 8 stiga forskot gegn Njarðvík fyrir síðasta leikhlutann. En Keflavík og Njarðvík unnu bæði fjórða leikhlutann sannfærandi (Keflavík með 15 stigum og Njarðvík með 13 stigum) og tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum þar sem að Keflavík tryggði sér síðan bikarmeistaratitilinn. Hafa unnið 18 af síðustu 23 Tímabilið í ár samsvarar sér mjög gangi mála fyrir fjórum árum og fari svo stefnir í oddaleiki í báðum undanúrslitaeinvígjunum og svo úrslitaeinvígi milli nágrannanna og körfuboltarisanna úr Keflavík og Njarðvík sem hafa unnið saman 18 af síðustu 23 fslandsmeistaratitlum. Lið Snæfells og Grindavíkur hafa þó örugglega ekki sagt sitt síðasta í þessu máli. Bæði lið náðu því mikla afreki að vinna öll hin liðin í deildinni í einni röð án þess að tapa í vetur, Grindavík fyrir jól og Snæfell eftir jól og bæði ætla sér örugglega að nýta sér betur heimavöllinn en Njarðvík og Haukar gerðu fyrir fjórum árum. Það stefnir því í mikla spennu og skemmtun í komandi undanúrslitaeinvígjum. Hér á síðunni má sjá samantekt á tölfræði átta liða úrslitanna sem lauk í fyrrakvöld. Hér má sjá hvaða leikmenn sköruðu framúr í hverju einvígi fyrir sig og ennfremur hvar munurinn lá á milli liðanna í töl- fræðinni. ooj@dv.is Kom að 54 körfum Grindavíkur í 8 liða úrslitunum Athony Q.Jones átti 37 stoðsend- ingar og skoraði 17 körfur með Grindavík í einvíginu gegn KR. Jones náði einu þreföldu tvennu 8 liða úrslitanna i oddaleiknum erhann varmeð 11 stig, 12fráköstog 10 stoðsendingar. HÆSTA FRAMLAG í EINVÍGI SNÆFELLS OG HAMARS Leikmaður Framlag Stig Frák. Stoös. Skot% Víta% Hlynur Bæringsson, Snæfelli • 287) 14,5 18,0 1,5 59% 64% Dondrell Whitmore, Snæfelii 257) 24,0 1,5 3,0 63% 75% Edmund Dotson, Snæfelli 177) 12,5 8,5 2,0 50% 50% Svavar Pálsson, Hamri 1« 14,0 5,0 0,5 64% 67% Marvin Valdimarsson, Hamri 12,5 13,5 6,0 1,0 52% ' HÆSTA FRAMLAG í EINVÍGI GRINDAVÍKUR OG KR Leikmaður Framlag Stig Frák. Stoðs. Skot% Víta% Joshua Murray, KR 334 28,3 13,7 4,0 58% 72% Darrel Lewis, Grindavík 30,7 31,7 8,7 4,7 53% 82% Elvin Mims, KR 23,0 20,3 8,7 2,0 52% 44% Anthony Q. Jones, Grindavfk 227) 17,3 8,3 12,3 40% 67% Guðmundur Bragason, Grind. 15,7 8,0 5,0 1,7 65% 50% HÆSTA FRAMLAG í EINVÍGI NJARÐVÍKUR OG HAUKA HÆSTA FRAMLAG í EINVIGI KEFLAVÍKUR OG TINDASTÓLS Leikmaður Framiag Stig Frák. Stoðs. Skot% Víta% Leikmaður Framiag Stig Frák. Stoðs. Skot% Víta% Brandon Woudstra, Njarðvík 257) 22,0 5,0 3,5 52% 100% Derrick Allen, Keflavík 25,7 26,7 11,7 2,7 48% 75% Páll Kristinsson, Njarðvík 247) 16,5 11,5 3,5 58% 43% Clifton Cook, Tindastól 23,7 29,3 5,7 5,3 44% 87% Brenton Birmingham, Njarðvfk 22,5 16,0 9,5 5,0 48% 100% David Sanders, Tindastól 217) 20,0 4,7 4,0 49% 67% Friðrik Stefánsson, Njarðvík 207) 7,5 10,0 2,0 58% 83% Nick Bradford, Keflavik 184 17,0 5,7 4,0 53% 67% Michael Manciel, Haukum 197) 16,5 10,0 2,0 48% 100% Svavar Birgisson, Tindastól 15,3 13,0 7,3 0,3 42% 79% SNÆFELL- HAMAR 2-0 Úrslit leikjanna: Snæfell-Hamar 99-86 Hamar-Snæfell 75-78 Leikhlutar: 1. leikhluti Snæfell +2 2. leikhluti Snæfell +10 3. leikhluti Hamar +6 4. leikhluti Snæfell +10 Tölfræðisamanburður: Stig Snæfell 177-161 Fráköst Snæfell 76-65 Skotnýting Snæfell 45%-42% Vítanýting Hamar 75%-67% Tapaðirboltar Hamar 35-38 Varin skot Hamar 8-6 Villur Snæfell 34-46 3ja stiga körfur Snæfell 14-9 Stig frá bekk Hamar 46-26 GRINDAVÍK-KR 2-1 Úrslit leikjanna: Grindavík-KR 95-99 KR-Grindav(k 95-108 Grindavík-KR 89-84 Leikhlutar: 1. leikhluti Grindavlk +38 2. leikhluti Jafnt 3. leikhluti KR+13 4. leikhluti KR+11 Tölfræðisamanburður: Stig Grindavík 292-278 Fráköst KR 115-111 Skotnýting KR 49%-48% Vítanýting Grindavík 71%-69% Tapaðir boltar Grindavik 52-62 Varin skot KR 20-13 Villur KR 58-65 3ja stiga körfur Jafnt 17-17 Stig frá bekk KR 70-28 KEFLAVÍK -TINDAST. 2-1 Úrslit leikjanna: Keflavik-Tindastóll 98-81 Tindastóll-Keflavík 89-86 Keflavik-Tindastóll 98-96 Leikhlutar: 1. leikhluti Keflavlk +2 2. leikhluti Keflavík +15 3. leikhluti Tindastóll +16 4. leikhluti Keflavlk+15 Tölfræðisamanburður: Stig Keflavík 282-266 Fráköst Keflavík 130-86 Skotnýting Keflavík 49%-45% Vítanýting Tlndastóll 72%-69% Tapaðir boitar Tindastóll 45-61 Varin skot Keflavlk 13-10 Villur Keflavík 52-58 3ja stiga körfur Tindastóll 21-19 Stig frá bekk Keflavík 99-28 NJARÐVÍK- HAUKAR 2-0 Úrslit leikjanna: Njarðvík-Haukar 100-61 Haukar-Njarðvík 61-104 Leikhlutar: 1. leikhluti Njarðvík +23 2. leikhluti Njarðvík +4 3. leikhluti Njarðvlk +28 4. leikhluti Njarðvík +27 Tölfræðisamanburður: Stig Njarðvík 204-122 Fráköst Njarðvík 91-67 Skotnýting Njarðvík 51 %—31 % Vltanýting Njarðvík 78%-67% Tapaðir boltar Njarðvík 27-37 Varin skot Njarðvík 18-3 Villur Njarðvík 36-42 3ja stiga körfur Njarðvík 29-14 Stig frá bekk Njarðvlk51-35

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.