Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004
Fréttir DV
Halldór ræðir
mansal
Utanríkisráðuneytið
stendur fyrir ráðstefnu um
alþjóðlega baráttu
gegn mansali föstu-
daginn 19. mars
næstkomandi. Ráð-
stefnan verður
haldin í Norræna
húsinu.
Talið er að allt
að fjórar milljónir manna,
einkum konur og börn, séu
seldar mansali ár hvert, oft-
ast til kynlífsþrælkunar. Á
ráðstefnunni verður lögð
áhersla á baráttuna gegn
mansali í alþjóðlegu sam-
hengi, fjallað um starfsemi
alþjóðlegs vinnuhóps gegn
mansali á vegum Stöðug-
leikasáttmálans fyrir Suð-
austur-Evrópu og fram fer
kynning á verkefni jafnrétt-
is- og dómsmálaráðherra
Norðurlandanna og Eystra-
saltsríkjanna um átak gegn
verslun með konur. Á ráð-
stefnunni verður jafnframt
íjallað um samning SÞ gegn
skipulagðri glæpastarfsemi.
Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra mun flytja
inngangsávarp við upphaf
ráðstefnunnar.
Grindvíkingar
beltafælnir
Aðeins 52,6% ökumanna
í Grindavík reyndust nota
öryggisbelti við
akstur f könnun
sém umferðar-
fuUtrúi Slysa-
vamafélagsins
Landsbjargar
gerði ásamt félögum í slysa-
vamadeildinni Þórkötlu í
Grindavík í fyrradag. Könn-
unin var gerð á ijölförnum
gatnamótum í bænum frá
kl. 14:00 til 14:30. Alls var
171 bíll í úrtakinu og þar af
notuðu ökumenn 90 bfla ör-
yggisbelti en 81 ekki. „Þetta
em óvenjuslæmar niður-
stöður og ljóst að ökumenn
í Grindavflc þurfa að taka sig
verulega á í þessum mál-
um,“ segir Umferðarstofa
um þessa niðurstöðu.
Óttastu
hryðuverká
fslandi?
Elma Lísa Gunnarsdóttir
Leikkona.
„Já, ég óttast hryðjuverk á Is-
landi. Við studdum stríðið í
Irak og þá getur þetta alveg
eins gerst hér eins og á Spáni."
Hann segir / Hún segir
„Nei, en ég óttast óttann við
hryðjuverk á Islandi."
Andri Snær Magnason
Rithöfundur
Lögreglurannsókn stendur yfir á meintum mistökum læknis á kvennadeild Land-
spítalans vegna dauða barns sem þar fæddist og lést í nóvember fyrir rúmu ári.
Foreldrar barnsins, Helgi Magnús Hermannsson og Björk Baldursdóttir, ætla í kjöl-
farið að höfða einkamál gegn Þóru Fischer lækni en þau telja að mistök hennar
við legvatnsprufu hafi valdið dauða barnsins.
LækniPinn ber ábyrgð
á dauúa barnsins nkkar
„Ég geri ráð fyrir að synirokkar hjóna eigi eftir
að fara upp á fæðingardeild til að taka á móti
börnum sínum og við viljum tryggja það eitt að
éinhverju skikki verði komið á mál þarna á deild-
inni. Við erum ekki í neinum vafa um að Þóra
Fischer læknir hafl með aðgerðarleysi sínu ekki
brugðist við hættuástandi og beri þannig ábyrgð á
dauða barnsins okkar," segir Helgi
Magnús Hermannsson fasteignasali.
Sonur hans og Bjarkar Baldursdótt-
ur, Hermann Kári, andaðist á fæðing-
ardeild Landspítalans eftir meint mis-
tök Þóru og hafa hjónin átt erfltt upp-
dráttar við að fá málið rannsakað.
Lögreglan var treg
Atburðurinn átti sér stað í nóvem-
ber 2002. Skömmu eftir andlát barns-
ins kærðu Helgi Magnús og Björk Þóra F. Fisher a/a noð-
starfsfólk Landspítalans og þá sérstak- ist I Þóru igær, þrátt fyrir
lega Þóru til landlæknis og var málið ítrekuð skilaboð.
kært til lögreglunnar í nóvember 2003.
Lögreglan neitaði þó að taka málið til rannsóknar
þá en þeirri ákvörðun var áfrýjað til ríkissaksókn-
ara sem gerði lögreglunni að rannsaka málið. Til
rannsóknar er andlát barnsins og sú staðreynd að
starfsfólk sjúkrahússins tilkynnti andlátið ekki á
sínum tíma, eins og vera bar. Málið er nú í hönd-
um lögfræðideildar lögreglunnar, áður en frekari
rannsókn á sér stað.
„Að lokinni lögreglurannsókn á þessu máli
munum við höfða einkamál gegn Þóru Fischer
með kröfu um að henni verði vikið úr starfl. Þetta
snýst ekki um peninga heldur öryggi," segir Helgi.
„Þarna hefði mátt bjarga
barninu með keisaraskurði en
þess í stað biæddi því út í
fyigjunni"
Þess í stað er hún hvítþveginn af yf-
irmönnum sínum og landlækni.
Venjan virðist sú að mistök sem
þessi komist aldrei upp á yfirborðið
en við það ætlum við ekki að una,“
segir Helgi Magnús, staðráðinn í að
fara alla leið með mál sitt.
Fæddi frekar í Skotlandi
Eftir þennan sorgaratburð, sem
hér hefur verið greint frá og er ástæða
lögreglurannsóknar sem nú
stendur yfir, hafa þau
Helgi Magnús og
Helgi Magnús Hermannsson
ásamt syni sínum Þorði
i að iáta eiginkonuna
fæða á Landspitalanum
og fórþvi til Skotlands
þar sem sonurinn
fæddist og allt gekk
vel.
Hvítþvegin af yfirmönnum
Martröð Helga Magnúsar og Bjarkar hófst
þegar þau mættu í legvatnsprufu hjá Þóru Fischer
lækni þegar Björk var langt gengin. Þeim hjónum
brá óneitanlega þegar þau sáu blóð koma í
sprautu læknisins en Þóra fullvissaði þau á staðn-
um að allt væri með felldu. Eða svo segir Helgi
Magnús: „Þarna hefði mátt bjarga barninu með
keisaraskurði en þess í stað blæddi því út í fylgj-
unni. Þóra Fischer brást og við viljum ekki að fleiri
lendi í þessu."
Tæpum fimm tímum eftir legvatnsprufuna og
aðgerð Þóru F. Fischer fæddist barnið. En þá var
allt um seinan og því varð ekki bjargað. „Okkur
sárnar og við erum reið út af því að Þóra sé ekki
einu sinni sett af á meðan á rannsókn stendur.
Björk kona hans eignast
annan son: „Hann
er nú tveggja
mánaða
gamall og
við þorðum
ekki að eiga hann á
fæðingardeild-
inni. Heldur fór-
um við til
Skotlands þar
sem hann var
tekinn með
keisaraskurði
og allt gekk vel.
Það er illa kom-
ið fyrir foreldr-
um þegar þeir
þora ekki lengur
að eiga börnin sín
á Landspftalanum
vegna óhæfra
lækna sem virðast
vaða þar uppi sama á
hverju gengur," segir Helgi
Magnús Hermannsson.
Þóra Fischer sinnti ekki
ítrekuðum skilaboðum DV
um samtal í gær.
Baldvin Þorsteinsson EA var á leið til EskiQarðar en fór til Noregs
Blómahaf tilbúið fyrir Baldvin
Fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteins-
son er komið á flot á ný og var í gær-
dag á leið tii Esldfjarðar. Skipið
strandaði f Skarðsfjöru á þriðjudag-
inn á síðustu viku í mikilli brælu.
Mildi þykir að allir skipverjanna hafi
sloppið heilu og höldnu eftir strand-
ið, en því er að þakka þeirra eigin
snarræði sem og björgunarsveita og
þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.
Á Eskifirði fóru fyrirtæki og ein-
staklingar á fullt og pöntuðu blóma-
haf sem mæta átti skipinu við kom-
una. Anna Jóna Hauksdóttir, eigandi
búðarinnar Fjarðarblóma, segir
óvenjumikið hafa verið að gera í gær.
„Það er mikill góður hugur hérna hjá
fólki. Það tala allir um hversu
ánægjulegt það hafi verið að áhöfnin
bjargaðist."
Baldvin Þorsteinsson var við veið-
ar um eina mflu, ígildi tæpra tveggja
kflómetra, úti fyrir Skarðsljöru í
hvössum álandsvindi þegar
loðnunótin festist í skrúfunni og
skipið rak upp í fjöru. Eskfirðingar og
aðrir í Fjarðarbyggð þekkja sjósókn
vel, sem og hættur hennar. Þeir
brugðust því skjótt við þegar fregnir
bárust þess efnis að Baldvin væri á
floti og á leið til Eskifjarðar.
Norska dráttarskipið Normand
Mariner mun draga Baldvin til Nor-
egs þar sem skemmdir verða kann-
aðar og lagfærðar, en talið er að við-
gerð taki skemmri tíma ytra en á ís-
landi.
Starfsmenn fyrirtækjanna fyrir
austan munu því að líkindum sjálfir
njóta ánægjunnar af vorlegri blóma-
lykt vegna samhugarins.
jontrausti@dv.is
Blómadrottning á Eskifirði Fjöldi fyrirtækja iFjarðabyggð pantaði blóm handa áhöfninni
á Baldvin Þorsteinssyni EA sem strandaði i síðustu viku en náðist á flot i fyrrinótt. Anna Jóna
Hauksdóttir, eigandi Fjarðarblóms á Eskifirði, segir samhug rlkja fyrir austan með skipverjum.
DV-mynd Emil Thorarensen