Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Side 9
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 9 Á myndinni sjást hinar hrika- legur aðstæður sem menn Arnar- fells vinna við í Hafrahvamms- gljúfri. Og jökuláin sem fossaði þarna áður er horfin. Neðst til hægri sést borvélin sem tvímenn- ingarnir voru að vinna hjá er grjót- hrun úr klifinu fyrir ofan banaði öðrum þeirra, Árna Þór Bjarnasyni úr Sandvík. Vinna á þessu svæði og öðrum vinnusvæðum í gljúfrinu hefur nú verið stöðvuð meðan komið er upp varnargirðingum og netklæðningu á bergstálið. Á með- an sinna þeir verkamenn sem hafa unnið á þessu vinnusvæði öðrum verkum á Kárahnjúkum. Nóg mun að gera á öðrum stöðum á virkjana- svæðinu enda veður með ágætum þessa stundina. Vinnufélagar Árna Þórs sem höfðu samband við DV segjast hafa spáð því að slys yrði vegna grjót- hruns í gilinu. Þeir vildu ekki láta nafns síns getið af ótta við viðbrögð yfirmanna sinna. Þeir segja bíla og vinnuvélar hafa beyglast af völdum grjóthruns og dæmi séu um að steinvala hafi fallið á hjálm verka- manns að ofan. Þeir segja grátlegt að öryggiseftirlit Landsvirkjunar hafi ekki brugðist við aðstæðunum, þar sem grjót féll reglulega á vinnu- svæðið, þrátt fyrir öryggisgirðingu undir Kárahnjúk, ofan við bjarg- brúnina. Ljóst er að í sumar verður verkamönnum að störfum á gils- botninum fjölgað þegar unnið verður að því að klára virkjunar- stæðið. - _ '1 - ‘ .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.