Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Side 17
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 17 Verulegur árangur hefur náðst hjá fikniefnalögreglu og tollyfirvöldum í baráttunni gegn flkniefnum en sífellt eykst það magn sem þeir koma höndum yfir. Tugir handteknir Kaupmannahafnarlög- reglan réðst í fyrrinótt inn í fríríkið Kristjaníu og hand- tók rúmlega fimmtíu manns. Rassía lögreglunn- ar er sú umfangsmesta í langan tíma og var beint gegn hasssölumönnum. Aðgerðir lögreglunnar stóðu í tíu klukkustundir og voru hasssölubásar við Pusher Street meðal ann- ars rifnir niður. íbúar Kristjaníu samþykktu bann við sölu á hörðum fíkni- efnum árið 1980. Sala á kannabisefnum hefur hins vegar farið fram fyrir opn- um tjöldum í Kristjaníu en nú vilja dönsk stjórnvöld að tekið verði fyrir slíka verslun. Fregnir herma að 44 verði ákærðir fyrir eitur- lyfjasölu og geti átt allt að tíu ára fangelsisdóma yfir höfði sér. Um þúsund manns búa í Kristjaníu og segir talsmaður þeirra, Peter Plett, aðgerðirnar ekkert annað en fjölmiðla- fár lögreglunnar. Umtalsvenð aukning n nevslu e-pilla ng knkaíns Allt síðastliðið ár var lagt hald á tæp 55 kg af hassi en fyrstu tvo mánuði ársins hafa lögregla og tollgæsla lagt hald á ríflega helming þess magns, þá hefur einnig verið lagt hald á umtals vert meira magn en áður af e töflum og kókaíni. Á landamær um var lagt hald á 23.6 kg af hassi, 228 g af kókaíni og 3,5 g af amfetamíni og 1.000 stk. af e-töflum. Þetta kemur fram í frétt frá ríkislögreglu stjóra. Embætti sýslumannsins á Kefla- víkurflugvelli lagði hald á 14 kg af hassi og 97 g af kókaíni í 19 málum. Rannsókn vegna þessara mála var í höndum lögreglustjórans á Keflavík- urflugvelli, utan tveggja mála er hlutu rannsókn við embætti lög- reglustjórans í Reykjavík. I þeim málum var lagt hald á 10 kg af hassi og 97 g af kókaíni. Embætti tollstjórans í Reykjavík lagði hald á 9.6 kg af hassi og 3 g af amfetamíni, 132 g af kókaíni og 1.000 e-töflur í 15 málum. , Rannsókn vegna kókaínsins I og e-taflanna sem ' tollgæslan lagði hald á fór fram við embætti lög- \ reglustjórans í Keflavík. Þá var einnig lagt hald á mikið af fíkniefnum inni í landinu á tímabilinu og má helst nefna amfetamín en lögreglan í Reykjavík lagði hald á 561,74 g og lögreglan í Keflavík 544,63 g. Lögregla og tollgæsla hafa á liðn- um árum lagt áherslu á að sinna fíkniefnamálaflokknum. Skráðum fíkniefnabrotum hefur því fjölgað mikið um allt land á liðnum árum, eða úr 103 árið 2000 í 240 árið 2004, vegna aukinna aðgerða lögreglu og tollgæslu f240 árið 2004. Kókaín Er að aukast á flkniefnamarkaði hérlendis SHanöa\\s» Askriftar happdrætti Ferð fyrir 2 til London eða Kaupmannahafnar Á hverjum föstudegi til páska verður dregið úr öllum áskrifendum DV og sá heppni fær ferð fyrir 2 með lceland Express til London eða Kaupmannahafnar. , Vinningshafar verða kynntir í Askriftarsíminn er 550 5000 helgarblaði daginn eftir útdrátt. Með DV fylgist þú betur með þjóðmálaumræðunni hverju sinni. Helgarblaðið fylgist með þeim einstaklingum sem skara fram úr. Helgarviðtalið, krossgátan, sérstæð sakamál og margt fleira. DV tekur á málum af harðfylgi og áræðni. DV veitir stjórnvöldum hverju sinni kröftugt aðhald. Á DV duga engin vettlingatök.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.