Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2004, Síða 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHLÍÐ 24 105 REYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 J SÍMI5S0S000
.9
s
m-
Skjár einn braskar
með enska boltann
• Flutningur Reðursafiisins frá
Reykjavík til Húsavíkur hefur vald-
ið fjaðrafoki í Hafnar-
firði. Samningar á milli
safnsins og Lúðvfks
Geirssonar, bæjarstjóra í
Hafnarfirði, voru komnir
vel á veg þegar Húsavík
hreppti hnossið óvænt. Er mál
manna í Hafnarfirði að bæjarstjór-
inn þar hafi verið tekinn illilega í
afturendann í þessu máli...
Leyndarmál Danska hrúðkaupstertan
á Suðurlandsbraut
fslenskir áhangendur Liverpool í Ölveri í Glæsibæ Bíöa spenntir eftir enska boltanum
hvar sem hann veröur sýndur á næstu leiktið.
m
Skjár einn ætlar að
braska með enska boltann
líkt og útgerðarmenn með
kvóta:
„Við höldum öllum
leiðum opnum en fyrst er
að tryggja dreifinguna og
fjármögnun. í því efni lít-
um við að sjálfsögðu til
þeirra aðila sem geta gert
þetta að veruleika og Magnús Ragnarsson
varðandi dreifinguna er Stendur með enska bolt-
það Síminn og hinar ann' annari hendi og
sjónvarpsstöðvarnar," pdlmann íhinni.
segir Magnús Ragnars-
son, sjónvarpsstjóri á Skjá einum.
„Ríkissjónvarpið hefur sýnt þessu
áhuga enda var stofnunin með
okkur í tilboðsgerðinni á frumstigi
málsins. Við höfum hins vegar ekk-
ert heyrt frá Sýn.“
Samningurinn vegna sýningar-
réttarins á enska boltanum, sem
Skjár einn tryggði sér fyrir viku, er
nú í 30 daga skoðun hjá erlendum
rétthöfum þar sem tryggja
á að öllum skilyrðum sé
fullnægt. Forráðamenn
Norðurljósa flugu utan
strax eftir að ljóst var hvert
stefndi og reyndu að tala
máli sínu í höfuðstöðvum
þeirra ytra: „Við unnum
einfaldlega útboðið.
Flóknara er það ekki,“ seg-
ir Magnús á Skjá einum.
Mikill áhugi er á enska
boltanum og segist Magn-
ús ekki áður hafa kynnst
öðrum eins tilfinningum
varðandi sjónvarpsefni hér á landi:
„Það eru meira að segja starfræktir
Manchester United og Liverpool -
klúbbar á Ólafsfirði," segir hann.
Skjár einn næst hins vegar ekki á
Ólafsfirði, svo dæmi sé tekið, nema
þá að stöðin fari í samstarf við aðrar
sjónvarpsstöðvar með útsendingu á
enska boltanum og umræddur
samningur um sýningarrétt haldi.
Allt í röð og reglu
• Félag plötusnúða á höfuðborg-
arsvæðinu ráðgerði árshátíð í
næsta mánuði og leitaði að hent-
ugum og rólegum degi fyrir félags-
menn til að skvetta úr klaufunum.
Þeir em venjulega að vinna þegar
aðrir skemmta sér og varð mið-
vikudagurinn 7. apríl því
fyrir vafinu. Var pantað-
ur matur á veitingahúsi
fyrir plötusnúðana og
síðan stefnt að djammi á
Sirkus við Klapparstíg
fram eftir nóttu. Heldur brá for-
sprökkum gleðskaparins þegar
þeir komust að því að frátekinn
miðvikudagur er í raun aðfaranótt
skírdags, einn helsti sukkdagur
þjóðarinnar og eftirspum eftir
plötusnúðum sjaldan meiri...
Er líka kominn kvóti
á boltann?
/
Leynileg uppskrift að brúðartertu
Friðriks krónprins í Danmörku og
Mary Donaldson er í fullum bakstri í
bakaríi við Suðurlandsbraut í
Reykjavík og selst eins og heitar
lummur.
„Það voru tveir félagar mínir í
bakarastétt í Danmörku sem hönn-
uðu kökuna og hjá þeim komst ég
yfir uppskriftina," segir Þormar Þor-
bergsson, bakari í Konditori Copen-
hagen, sem bakar dönsku brúð-
kaupstertuna ásamt Tinu Hansen,
danskri eiginkonu sinni. Sjáifur var
Þormar búsettur í Danmörku um
fimm ára skeið og starfaði þá á
konditori f Hellemp ásamt höfund-
um brúðkaupstertunnar, þeim Kim
Andersen og Jörgen Nielsen. „Það
verður mikið um hátíðahöld þegar
Friðrik krónprins kvænist 15. maí og
sérstakt útboð sem fram fór vegna
brúðkaupstertunnar miðaðist við
það að uppskriftin yrði send inn
með sex mánaða fyrirvara. Það verð-
ur þó fyrst á sjálfan brúðkaupsdag-
inn sem kakan verður bökuð í
dönskum bakaríum og er hugmynd-
in sú að Danir borði hana á meðan
þeir fylgjast með brúðkaupinu í
sjónvarpinu eða á götum úti,“ segir
Þormar.
28.500kr.
Hlynur, kirsuber og beyki
Uppskriftin að brúðkaupstert-
unni er leyndarmál í Danmörku og
er hún hvergi bökuð í veröldinni
nema hjá Þormari og Tinu á Suður-
landsbraut:
„Tertan er einföld en þykir mjög
góð. Hún er gerð úr svampbotni,
hindberjum, makkarónukexi,
rjómakremi með vanillu, hind-
berjamauki og svo marsipani frá Óð-
insvéum," segir Þormar sem kaliar
brúðkaupstertuna F&M sem er
stytting á nöfnum brúðhjónanna,
þeirra Friðriks og Mary. í opin-
berum skjölum í Danmörku heitir
tertan hins vegar Den Officielle
Kongeiige Bryllupslagkage. Hún
kostar 1.450 krónur á Suðurlands-
brautinni og er stærðin þá hugsuð
sem eftirréttur fyrir fjóra. „En það er
hægt að fá hana í öllum stærðum,"
segir bakarinn.
Þormar og Tma með dönsku
brúðkaupstertuna Hvergi til i
veröldinni nema I Reykjavik
14.900kr
Beyki, hlynur og kirsuber
4SN
TM - HUSGOGN
SíSumúla 30 -Sími 568 6822
- œvintýri líkust
Beyki og kirsuber
Mán. - fös. 10.00 -18.00 • Laugard. 11.00 -16.00 • Sunnud. 13.00 -16.00
Dýnur í öllum stærðum og
gerðum fyrir fólk sem er
að stækka.
7.000kr.j
V<|| !ur
blár
CD standur
frá 4.40Okr.
Beyki, eik, mahóní
og tekk
i