Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjórar: lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjóran ReynirTraustason Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um Gibson 1 Hvar og hvenær fæddist Gibson? 2 í hvaða bíómynd vakti hann fyrst athygli? 3 Hvað heitir persónan sem Gibson lék í Lethal Weapon-myndunum? 4 Fyrir hvað voru einu ósk- arsverðlaun hans til þessa? 5 Sem kornungur leikari fór hann með hlutverk Rómeós á sviði í Ástralíu. Hver lék Júlíu? Svör neðst á síðunni. Svör neðst á síðunni Skilaboð Gibsons í skoska blaðinu Scotsman skrifar George Kerevan um Passíusálm Mels Gib- son og segir um kvik- myndina: „[Hlín] sniðgengur alveg blygðunarlaust þær ráðleggingar sem hinn frægi Hollywood-framleiðandi Samuel Goldwyn gaf kvik- myndagerðarmönnum á sfnum túna: Ef þií vilt senda skilaboð, notaðu þá sfrn- skeyti. Með öðrum orðum, ekki blanda saman áróðri og kvikmyndum. En það er einmitt það sem Mel Gib- son gerir í myndinni The Passion. Því Gibson er ákafur stuðn- ingsmaður bókstafstrúaðra kaþólikka, minnihlutahóps sem þó sækir í sig veðrið um þessar mundir. Hópur- inn hafnar þeim endurbdt- 3 um sem Annað Vatíkans- £ þingið stóð fyrir á árunum -o 1964-1965 og fólust m.a. í - að messan á latínu var lögð á hilluna. The Passion er ekkert annað en allt að því œ flokkspóiitfskur áróður fyr- s ir þessa hreyfingu og álíka «, gróft fram settur og þegar " Gibson rak áróður fyrir e flokk skoskra þjóðernis- ™ sinna með myndinni Braveheart." «■ Steingrímur Málið Þá er komið að Steingrimi J. Sigfússyni i hinni vinsælu um fjöllun okkar um hvaö þýða nöfn hinna helstu stjórnmálaieið- toga okkar.„Stein" skýrir sig sjálft svo algengt forskeyti sem það er í norrænum málum og eftirsóknarvert að kenna allt möguiegtvið grjóthart grjótið. „Grímur" er einfaldlega sama orðið og„gríma" sem I fornum norrænum málum þýddi reyndar ekki aðeins venjulega grlmu eða andlitshulu afein- hverju tagi, t.d. hjátm, hetdur líka óhreinindi ýmiss konar, s.s. slý eða slím á vatni. Loks segir Orðsifjabók Ásgeirs Blöndal að Grlmur sé heiti á Óðniyfirguði en merki ennfremur slöngu, geithafur og dverg. Svörvið spurningum: 1. Bandaríkjunum 1956; fluttisttil Ástralíu á 12. ári - 2. Mad Max - 3. Martin Riggs - 4. Fyrir leikstjórn Braveheart - 5. Judy Davis. Bragð er að Aársafmæli upphafsins á stríði Banda- ríkjamanna og Breta við írak dugði að sjálfsögðu ekki minna en að Morgunblaðið skrifaði Reykjavíkurbréf um málið. Og er óhætt að segja að þar kveði við nokkuð nýjan tón hjá blaðinu. Morgunblaðið hefur hingað til reynt af al- efli að fylgja „línunni" að vestan í öllu sem snertir framgang mála í írak. Meðan hróp- að var í Washington og London um gereyð- ingarvopn Iraka þá hrdpaði Morgunblaðið líka um gereyðingarvopnin sem Saddam Hussein átti að hafa undir höndum og eng- inn efi fékk að komast þar að. Þegar hinn vandræðalegi sannleikur rann upp að í Irak hefðu ekki verið nein gereyðingarvopn og Bush&Blair sneru við blaðinu og héldu þvf fram að það skipti litlu máli, því meginat- riðið hefði alltaf verið að koma Saddam Hussein frá völdum, þá kinkaði Morgun- blaðið kolli sem ákafast. Eins og þeir Davíð og Halldór sem apað hafa upp hverja stefnuvendinguna af annarri frá þeim Bush&Blair. En í Reykjavíkurbréfinu í gær kom á dag- inn að Morgunblaðið er orðið þreytt. Þreytt á málflutningi sem öllu heiðarlegu fólki á Vesturlöndum er löngu farið að blöskra. Því það liggur svo berlega í augum uppi, Snati minn, að allt Íraksstríðið og reyndar öll framganga Bandaríkjanna síðustu árin, hefur það markmið eitt að þjóna afar þröngum hagsmunum afar lítillar valda-, auð- og trúfíflastéttar í Bandaríkjunum. Vitaskuld er orðbragð Morgunblaðsins hógvært og ekki hægt að segja að blaðið gagnrýni beinlínis Bandaríkjamenn, eða þá sem þeim hafa fylgt í blindni. Þá myndi það líka fljótt hitta sjálft sig fyrir. En tónn- inn fer þó ekkert milli mála. Nú er að vísu liðin fyrir alllöngu sú tíð að Morgunblaðið sé sá „Thunderer" í íslensku þjóðfélagi sem allir verði að leggja eyrun við þegar þrumar. En Reykjavíkurbréfið segir samt sína sögu: Að jafnvel dyggustu stuðn- ingsmenn Bush&Blair á Islandi eru búnir að fá nóg af því að apa eftir þeim vitleysuna. Og bragð er að þegar barnið finnur. Og þeim mun meira æpandi er sú þögn sem enn ríkir hjá Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra. Eða fleiprið í Davíð Oddssyni sem enn heldur fast í stuðning- inn við Bush&BIair. Eins gott að hann verði ekki utanríkisráð- herra. Illugi Jökulsson Vefritið Deiglan.com er einn af þeim fáu sem þorir að horfast í augu við þau miklu tímamót sem urðu í lið- inni viku þegar spurningálið Mennta- skólans í Reykjavík beið lægri hlut fyr- ir liði Borgarholtsskóla í keppninni Gettu betur í Sjónvarpinu. Sigurganga MR-liðsins hefur verið svo langvinn að sigur MR var orðin jafnárviss og koma lóunnar og spóans. Nú getur spurningakeppni fram- haldsskólanema í sjónvarpi að sjálf- sögðu ekki talist til „stórviðburða" í samfélaginu í venjulegum skilningi en keppnin, og einkum stöðugir sigrar MR, eru þó þess konar hlutir sem í þjóðarvitundinni öðlast ekki síðra mikilvægi en ýmislegt sem „merki- legra" verður að teljast. Og gott hjá Borgari Þór Einarssyni skrifara á Deiglunni að átta sig á því. Hann skrif- ar m.a.: “[Þjegar sigurganga MR hófst árið 1993 var Borgarholtsskóli ekki til og Grafarvogur frumstætt samfélag í raun ... Þá var kreppa í íslensku samfélagi, internetið var ekki til, tölvur á stangli, engir gsm-símar en þó eitthvað um að menn væru að rogast með 3 kílóa NMT-síma um bæinn, hrópandi sig hása við slæm móttöku- og sendingar- skilyrði - en samt að þykjast vera fínir menn. Á þeim tíma sem síðan er liðinn hefur spurningalið Menntaskólans staðið af sér ótrúlegar breytingar á ís- lensku samfélagi. Það hafði t.a.m. eng- in áhrif á staðfestu liðsins og einbeitt- an sigurvilja þegar samningurinn um Evrópska efnahagssyæðið var lögfest- ur hér á landi árið 1994. Sama má segja um sölu ríkisbankanna og þá miklu einkavæðingu sem riðið hefur yfir samfélagið á þessum tíma. Og MR-ingarnir stóðu einnig af sér tilkomu Netsins í íslenskt samfélag, gsm-væðingu ungu kynslóðarinnar og nýtt form á geymslu og sýningu hreyfi- mynda, svokallað DVD. MR-ingar stóðu það meira að segja af sér að sjá KR vinna loks titil árið 1994 og verða síðar íslandsmeistara. „Á meðan þjóðar- skútan logaði stafnanna á milli í deilum um ör- yrkjadóma, um brottkast og mið- lægan gagna- grunn á heilbrigð- issviði, héldu MR- ingar sínu striki í Gettu betur." Fyrst og fremst Þeir stóðu líka af sér áður óþekkta uppsveiflu í íslensku efnahagslífl, komust í gegnum hlutabréfaæðið og - fallið án teljandi vandkvæðna og fóru í raun varhluta af alþjóðavæðingunni. Á meðan þjóðarskútan logaði stafn- anna á milli í deilurn um öryrkjadóma, um brottkast og miðlægan gagna- grunn á heilbrigðissviði héldu MR- ingar sínu striki í Gettu betur. ■ Sigurganga MR í þessari vinsælu spurningakeppni hefur þannig verið haldreipi á erfiðum og viðsjárverðum tímum - fasti sem iiægt var að miða alla áætlanagerð við, klettur í hafi breytinga. Sigur Borgarholtsskóla er hins vegar tímanna tákn; hið nýja ryð- ur burt því gamla. Fyrir flralds- menn og MR-inga - en pistlahöf- undur er hvort tveggja - getur ver- ið erfltt að kyngja þessu, en ef lítum blákalt á málið var sigur Borgarh’oltsskóla á MR í gær ekki einungis sanngjarn og verðskuldaður, heldur í raun nauðsynlegur fyrir íslenskt samfélag í heild sinni. MR-ingar verða víst, eins og aðrir menn, að sætta sig við að líflð er hverf- ult. Ósigur MR ... markar vissulega endalok merks tímabils - end of an era, eins og kaninn segir - og menn verða einfaldlega að takast á við það. En það sem kannski gerir þessi tímamót enn erf- iðari að kljást við er sú stað- reynd, að árið 2004 virðist ætfa að verða ár mikils urnróts í íslensku sam- félagi. Sem kunnugt er mun Davíð Oddsson láta af embætti forsæt- isráðherra í haust, en hann tók við því embætti stuttu áður en sigurganga MR í spurningakeppninni hófst ... Það er auðvitað erfitt að takast á við þessar breytingar, þetta umrót, sérstaklega þegar allt virðist ætla að lenda á manni á sama ti'ma." Mogginn og peningarnir sem villtust Stundum verður aðdáun okkar á Morgunblaðinu slfk að við beinlínis kiknum í hnjáliðunum. Efdr að DV flutti á föstudag fréttir af því að háttsettur lög- reglumaður hjá flknó hefði stolið 900 þús. krón- um úr vörslu löggunnar og lagt inn á prívatreikning sinn gat Mogginn náttúrlega ekki annað en sagt frá málinu. En hann gerði það af þvflíkri nærgætni að við stöndum agndofa. f laugardags-Moggan- um segir í fyrirsögn að „fjármunir fóm á reikning" yfirmannsins og í fréttinni að „fjármunir ... römöu inn á reikning í eigu lögreglumanns". Hér er sögnin „að rata“ að vísu nomð í öfugri merkingu og þetta þýðir eiginlega að peningamir hafi einhvem veginn „villst" í ógáti inn á reikninginn. Og hið þriðja sinni segir í frétt- inni að „peningar ... fóm inn á reikning lögreglu- mannsins". Atnningja lögreglumaðurinn! Þama situr hann blásaklaus meðan hellingur af peningum beinlfnis ryðst inn á reikninginn hans, að því er virðist án þess að hann hafi hugmynd um... 6, hve lífið er hverfult

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.