Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Page 8
8 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004
Fréttir DV
Kennarar
með hórum
Hópur sænskra kennara
er í slæmum málum eftir
að nemendur þeirra sýndu
opinberlega myndband þar
sem kennararnir sáust með
vændiskonum. Krakkarnir
voru á skólaferðalagi í
Kenía og misbauð svo at-
hæfí kennaranna að þeir
ákváðu að elta þá með
upptökuvél. Myndbandið
sýnir kennarana á tali við
hórurnar og hverfa síðan
með þeim inn á hótel. Þeg-
ar skólastjórinn vildi ekki
gera neitt í málunum
ákváðu nemendurnir að
fara með myndbandið í
fjölmiðana.
Fær breskan
passa
Handalausi pilturinn,
Ali Abbas, fær breskt ríkis
fang innan tíðar. Ali,
sem er 13 ára, missti
báða handleggi þeg-
ar Bandaríkjaher
varpaði sprengju á
heimili hans. For-
eldrar Ali og þrettán
ættingjar létust í
sprengjuárásinni. Pilturinn
hefur dvalið í London frá
því síðasta sumar og dvelur
hjá frænda sínum. AIi hefur
fengið gervihandleggi og
stundar skóla eins og aðrir
unglingar.
Sparkaði og
hárreytti
Rúmlega tvítug kona var
dæmd í héraðsdómi Vest-
fjarða til að greiða 20 þús-
und króna sekt í ríkissjóð
fyrir að sparka í sköflung 18
ára stúlku á dansgólfi
skemmtistaðarins Sjaiians
á ísafirði fyrir ári. Konan
játaði að hafa sparkað í
vinstri fót stúlkunnar og
togað í hár hennar, þannig
að hún marðist og bólgnaði
upp. Konan var einnig
dæmd til 40 þúsund króna
sektar fyrir brot á hegning-
arlögum síðar sömu nótt.
Páll Heimir Einarsson guðfræðingur kynntist séra Baldri Gauti Baldurssyni á Net-
inu og í gegnum SMS-skeyti. Páll kom upp um sóknarprestinn með því að þykjast
vera 19 ára piltur. „Ég reyndi að ráða honum heilt,“ segir Páll sem trúði presti
þjóðkirkjunnar fyrir athæfi séra Baldurs.
GuðfræDingur leiddi
séra Baldur í gildru
Guðni Th. Jóhannesson
sagnfræðingur
„Það liggur i sjálfu sér ekkert
á nema kannski það að þeir
sem að útgáfunni standa
hafa verið í miklu hátíðar-
skapi út af 100 ára afmæli
mZog imiiLyjiy
vilja koma
bókinni út á afmælisárinu
sjálfu," segir Guðni Th. Jó-
hannesson sagnfræðingur
en hann ritar kaflann um
Bjarna Beneditksson í bók-
inni Forsætisráðherrar Is-
lands sem kemur út 15. sept-
ember.„Hvað mig sjálfan
varðar þá kemur Bjarni
Benediktsson svo mikið við
sögu í þvísem ég hefverið
að rannsaka, landhelgismál-
um eftirseinni heimsstyrjöld,
að ég verð ekki í neinum
vandræðum með að skrifa
um hann á þessum tíma
sem er til stefnu. Þar að auki
tók ég eitt sinn saman mikið
efni um Svein bróður hans
og það kemur að gagni i
þessum skrifum."
„Hann var alltaf að biðja um unga stráka," seg-
ir Páll Heimir Einarsson guðfræðingur og starfs-
maður barna- og unglingageðdeildar Landspítal-
ans, sem ginnti séra Baldur Gaut Baldursson,
prest á Kirkjubæjarklaustri, í gildru við Laugar-
dalslaugina. Páll Heimir kynntist séra Baldri í
gegnum vin sinn á spjallsíðum Netsins þar sem
séra Baldur notaði nafnið „Hjalti" á spjallsíðu fyr-
ir samkynhneigða, þar sem hann sóttist eftir vin-
fengi við unga stráka haustið 2002.
„Vinur minn hafði samband við mig og sagðist
hafa verið að spjalla við mann og vera kominn
með símann hans, en væri orðinn svolítið leiður á
honum því hann skildi ekki alveg hvað hann væri
að fara, væri sífellt að tala um að hann langaði að
hitta unga stráka. Þessi vinur minn var ekki ungur
og ekki ég heldur," segir Páll Heimir. „Hjalti" hafði
þá sagt Páli og félaga hans að hann væri fráskilinn
sölumaður í Reykjavík og nýkominn út úr skápn-
um. Vinirnir höfðu upphaflega áhuga á að spjalla
við téðan Hjalta um sameiginlega reynslu þeirra
allra; að koma út úr skápnum. í janúar 2003 var þá
farið að gruna að Hjalti vildi ekki hitta aðra en
unglinga.
„Við skildum ekkert í því að hann var alltaf að
hafa samband öðru hverju, en langaði samt ekk-
ert að hitta okkur eða spjalla við okkur, nema bara
að spyrja okkur hvort við þekktum einhverja. Þá
sagðist vinur minn viss um að hann væri að ljúga
til nafns,“ segir Páll Heimir.
Hjalti var séra Baldur
„Mig fór að gruna að þetta væri ekki alveg eins
og hann sagði, hann var tvísaga. Þá datt okkur í
hug að flnna út hvað hann héti. Ég fékk netfang
annars félaga okkar og hafði samband við Hjalta
undir þeim formerkjum að ég væri 19 ára piltur
sem vildi hitta hann. Ég ætlaði að láta hann bíta á
agnið og flnna út hvað hann héti. Svo þegar ég sá
það fékk ég áfall."
Páll Heimir stakk upp á því að þeir hittust við
Laugardalslaugina næsta mánudag klukkan átta
að kvöldi. Sagði Hjalti þá að ef hann myndi ekki
finna hann í lauginni og færi upp úr á undan, þá
væri hann á bláum jeppa af tilgreindri tegund.
„Þetta kvöld fór ég auðvitað ekki ofan í laugina en
leitaði að bláum jeppa af þessari tegund. Þetta var
eini blái jeppinn af sömu tegund á planinu. Ég tók
niður númerið og þá kom í ijós að bíllinn var
skráður á sóknarprestinn á Kirkjubæjarklaustri."
Páli Heimi brá mikið þegar í ljós kom að það
„Ég veit að þú heitir ekki
Hjalti. Þú heitir Baldur Gautur
Baldursson... og ég heiti Páll
og er guðfræðingur í Reykja-
vík og mér fannst mjög óþægi-
legt að komast að þessu"
var presturinn á Kirkjubæjarklaustri
sem sóttist eftir vinfengi við unga
stráka. Hann byrjaði að tala um
fyrir honum með smáskilaboð-
um úr farsíma. „Ég tala þá við
hann og segist vita hver hann
sé. Ég segi: „Ég veit að þú
heitir ekki Hjalti. Þú heitir
Baldur Gautur Baldursson
og ert giftur sóknarprest-
inum á Kirkjubæjar-
klaustri. Og ég heiti Páll og
er guðfræðingur í Reykjavík
og mér fannst mjög óþægi
legt að komast að þessu.""
Vildi 15 til 18 ára
í apríl 2003 hafði séra
Baldur samband á ný, þá ölv-
aður á hótelherbergi í Reykja-
vík. Innti hann Pál eftir því
hvort hann þekkti unga pilta á
aldrinum 15 til 18 ára sem hefðu
áhuga á að hitta hann. Páll frá-
bað sér allt slíkt og sagði séra
Baldri að gera eitthvað í sínum
málum, hann væri á villigötum.
Séra Baldur svaraði með skæt-
ingi. „Ég sagði við hann: „Ég er að
reyna að ráða þér heilt með því að
þú gerir eitthvað í þínum málum og
áttir þig á því að þú ert á villigötum."
Svo heyri ég ekkert meira frá hon-
um. Það sem er að naga mig
núna er þetta sem gerðist á
Akranesi í maí skömmu
eftir aö ég talaði við
hann. Og ég er að
pæla í því, hvað
ég hefði getað
gert. En það var ekkert hægt að gera,“ segir Páll
Heimir.
Séra Baldur hefúr nú játað kynmök við 15 ára
dreng á Akranesi.
Páll Heimir kveðst hafa rætt óformlega við
prest í Reykjavík um það sem hann hafði orðið
vísari um séra Baldur í febrúar 2003. Þá fannst
honum hann vera maður í skápnum sem færi
reglulega til Reykjavíkur til að hitta karlmenn og
vonaði að presturinn myndi
reyna að hjálpa hoöl-
skyldu hans.
jontrausti@dv.is
Séra Baldur
Á sama tima
og hann var
starfandi
sóknar-
presturá
Kirkju-
bæjar-
klaustri,
á meðan
eigin-
kona
hansvari
fæðingar-
oriofi, leit-
aði hann að
15til 18ára
strákum á
Netinu og
gekk undir
nafninu
Hjaltr.
Lögreglan rannsakar nauðgun á 15 ára dreng í janúar
Barnaklámsmaður kom lögreglu á slóð séra Baldurs
Lögreglan í Reykjavík rannsakar
hver hafi nauðgað 15 ára gömlum
dreng frá Akranesi í janúar. Dreng-
urinn er sá sem séra Baldur Gautur
Baldursson hefur viðurkennt að
hafa átt kynmök við í tvígang á síð-
asta ári. Drengurinn hefur verið í
SMS-samskiptum við þrjá karl-
menn sem hafa skipst á upplýsing-
um á textavarpinu og er einn þeirra
grunaður um að hafa nauðgað
honum.
Grunur beindist að Ágústi
Magnússyni sem situr í varðhaldi
vegna meintra kynferðisbrota gegn
ungum drengjum.. Hann viður-
kennir að hafa sent þessum dreng
SMS-skilaboð en þverneitar að hafa
hitt hann eða nokkru sinni talað við
hann. „Ég kom ekki nálægt þessu
máli, þetta er strákur sem ég hef
aldrei á ævinni hitt,“ segir Agúst
„Þegar ég heyrði
þetta númer, þá kann-
aðist égvið það því
éghafðiséðþaðá
textavarpinu"
sem hefur játað önnur brot sín
greiðlega fyrir dómi. Það vinnur
gegn Ágústi að drengurinn benti á
hann við sakbendingu. „Þegar ég
heyrði að það væri verið að bendla
mig við þetta mál, þá var ég kominn
að því að gráta, því ég ætlaði ekki að
trúa því að það ætti að dæma mig
fyrir eitthvað sem ég hefði ekki
gert,“ segir Ágúst við DV.
Ágúst segir að lögreglan hafi vilj-
að halda því að honum að hann ætti
þetta mál. Drengurinn gaf upp
númer við yfirheyrslur hjá mannin-
um sem nauðgaði honum. „Þegar ég
heyrði þetta númer, þá kannaðist ég
við það því ég hafði séð það á texta-
varpinu. Ég gat sagt lögreglunni að
þessi maður væri sam- eða tvíkyn-
hneigður og hefði verið að leita sér
að einhverjum á textavarpinu en ég
vissi ekki að hann væri í ungu á ís-
landi."
Ágúst lýsir skeytasendingum á
textavarpinu: „Hann setur fram
skeyti á textavarpinu á síðum 671
og 672 einhvern veginn þannig:
„er bi KK, strákar, sms“ og gefur
upp númerið sitt,“ segir Ágúst.
„Þarna sá ég þetta númer og gat
sagt lögreglunni það.“ í framhaldi
af þessu komst lögregla á slóð séra
Baldurs.
Ágúst Magnússon Bjó til klámefni með
börnum en harðneitar dð hafa nauðgað pilti
frá Akranesi.