Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Side 13
E>V Fréttír
MÁNUDACUR 22. MARS 2004 7 3
Símaauglýsing
valin á Shots
Ein auglýsinga Símans
hefur verið valin úr hópi
fjölda annarra
auglýsinga á
Shots.
Shots er sýn-
ingarkassi fyrir
bestu auglýsingar
í heimi og er biblfa auglýs-
ingafólks. Mikill heiður er að
eiga auglýsingu þar. Einu
sinni áður hefur íslensk aug-
lýsing komist þangað en það
var auglýsingin fyrir Thule-
bjór, sem Gott fólk McCann
framleiddi fyrir Vífilfell.
Væntanlegur er nýr
mynddiskur frá Shots með
öllu því besta sem er að ger-
ast í auglýsingum í Skandin-
avíu. Á þennan disk var Flas-
hmob-auglýsing Símans valin
sérstaklega. Auglýsingin er
framleidd af Góðu fólki
McCann og Saga film. Leik-
stjóri auglýsingarinnar erÁmi
Þór Jónsson frá Saga film.
BHM styður
kröfur ASÍ
Miðstjóm Bandalags há-
skólamanna samþykkti fyr-
ir skemmstu eftirfarandi
ályktun um
stuðning
við lífeyris-
kröfur ASÍ:
„Miðstjórn
Bandalags
háskóla-
manna (BHM) lýsir yfir
stuðningi við kröfu stéttar-
félaga innan Alþýðusam-
bands íslands gagnvart
fjármálaráðherra um að
félagsmenn þeirra njóti
sama lífeyrisréttar og ríkis-
starfsmenn innan annarra
samtaka launafólks. Þá
hvetur miðstjórn BHM til
þess að reglur um sam-
skipti aðila á vinnumarkaði
verði samræmdar."
Lögreglan
verðlaunar
Tveir Bandaríkjamenn
deila með sér 35 milljóna
króna verðlaunum fýrir
upplýsingar sem
leiddu til handtöku
leyniskyttunnar Johns
AUens Muhammad og
hins 17 ára Lees Boyds
Malvo sem skutu 10 manns
til bana nálægt höfuðborg-
inni Washington haustið
2002. Annar þeirra sem
hlaut verðlaunin var vinur
Muhammads, en hinn benti
á Chevrolet Caprice-bifreið
lians. Mohammad og Malvo
skutu fóik af handahófi úr
farangursgeymslu biffeiðar-
innar og var Mohammad
dæmdur til dauða en Malvo
í lífstíðarfangelsi. Lögreglan
fékk 60 þúsund ábendingar
vegna málsins.
Eigandi malefni.com segist tilbúinn að ræða við Persónuvernd en telur að dómsúr-
skurð þurfi til að rekja ummæli til föðurhúsanna. Segist hafa fulla stjórn á nafn-
leysingjunum og ef rógur birtist þá hendi hann slíku út.
Samvinnufds um leit
að kennitöluflassara
„Mér finnst þetta kennitölumál vera rugl.
Kennitölur fólks er að finna allstaðar á vefnum,"
segir Stefán Helgi Kristinsson, eigandi og ábyrgð-
armaður spjaUveijarins malefni.com. Vefur Stef-
áns hefur sætt harðri gagnrýni vegna þess að þar
fari um þræði rógberar í skjóli nafnleyndar. Guð-
mundur Jón Sigurðsson lýsti því í lesendabréfi DV
á laugardag að ástæða væri til að vara fólk við
heimsóknum á vefinn. Viðbrögð nafnleysingj-
anna á malefni.com létu ekki á sér standa og
einn þeirra, Guðmundur góði, birti kennitöl-
ur þriggja alnafna og heimilisföng þeirra.
Naftileysinginn sagðist hafa hringt í alla og
þeir hefðu svarið af sér lesendabréfið. Guð-
mundur Jón Sigurðsson, Ferjubakka, gaf sig
þá fram undir kenninafninu Guðmundur
betri og sagði Guðmund góða segja ósatt um
upphringinguna. Hann krafðist afsökunar-
beiðni frá vefstjóranum og nafnleysingjanum
en við því var ekki orðið. Þá kærði Guðmundur
Jón vefinn til Persónuverndar. Eftir að DV
sagði frá kærunni í gær tók fjöldi nafnleys-
ingja sig til og birti kennitölu Guðmundar
Jóns. Stefán Helgi segir að kennitala manna
eigi ekki að vera slíkt viðkvæmnismál. Sjáifur birt-
ir hann kennitölu sína og númer bankareiknings
á vefnum þar sem hann biður um fjárhagsstyrk til
að halda vefnum gangandi.
„I þjóðskránni er að finna allar upplýsingar um
mig og ég birti hana á vefnum. En það er rétt að
fólk á eldci að vera að nota kennitölur út um allt á
vefnum,"
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuvernd-
ar, sagði í DV í gær að erfitt væri að rekja slóð þeirra
sem væru á vef sem bæri .com endingu. Stefán
Helgi segir að ef Persónuvernd vOji eiga við sig orð
þá muni hann verða
við því.
Stefán Helgi Kristinsson Eigandi og ábyrgðar-
maður umdei/ds spjallvefjar sem nú hefur verið
kærður til Persónuverndar. Hann heitirþvi að veita
yfirvöldum liðsinni sitt en telur að dómsúrskurð
þurfi til þess að leita uppi meinta lögbrjóta.
Samsett mynd. DV/Róbert
„Ég verð samvinnufús við öll yfirvöld eins og
sæmir löghlýðnum borgara," segir hann.
Stefán Helgi vefstjóri segir að þrátt fyrir að
hann sé fús til samvinnu við yfirvöld þá kunni að
verða erfitt að fletta ofan af Guðmundi góða.
„Ég er ekki lögfróður maður en held að það
myndi þurfa dómsúrskurð til að rekja uppruna
einhverra ummæla," segir Stefán Helgi,
Hann segist aðspurður hafa fulla stjórn á nafn-
leysingjunum. Ef einhver þeirra 3.000 málverja
sem skráðir eru láti frá sér fara róg sé ummælun-
um eytt. Sjálfur vakti hann vefinn á daginn en hafi
aðstoðarmann í öðru tímabelti til að standa vakt-
ina yfir nótt.
„En til þess kemur sjaldan, kannski einu sinni
í viku. Ég hef enn ekki þurft að setja neinn í
bann," segir Stefán Helgi.
rt@dv.is
„Ég verð samvinnufús við $11
yfirvöld eins og mm\t lög-
hlýðnum borgara"
Sönnuðu ekki ölvun löggunnar
Lést á leið
áleik
Bresk fótboltabuUa lést
er hann fékk brot úr fljúg-
andi auglýsingasldlti í haus-
inn á leið sinni á fótbolta-
leik. Maðurinn var á leið á
leikinn ásamt fjölskyldu
sinni með fyrrgreindum af-
leiðingum. Vindurinn fór
aUt upp í 75 metra á
sekúndu og varð tU þess að
leiknum var frestað. Margir
á leiknum slösuðust einnig
þegar auglýsingaskiltin gáfu
sig og hmndu ofan á áhorf-
endur. Maður og kona lét-
ust á sama tíma þegar tré
lenti á bU þeirra.
Hæstiréttur hefur veitt lögreglu-
þjóninum Birni Ó. Helgasyni upp-
reisn æm og fellt niður áminningu
sem lögreglustjóraembættið í
ReykjavUc hafði veitt honum í maí
2002 samfara ásökun um að Björn
hefði mætt ölvaður til lögreglu-
starfa. Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu að yfirmenn Björns
hefðu ekki aflað sér fuUnægjandi
sönnunar um ölvunarástand Björns
og áminningin því verið óréttmæt.
Hæstiréttur komst og að þeirri nið-
urstöðu að áminningin hefði verið
til þess fallin að skaða æru Björns og
ætti hann því rétt til miskabóta.
Áminningin var veitt af varalög-
reglustjóra og niðurstaðan var að
þann hefði skort vald til að veita
áminninguna. Varalögreglustjóri
hefur frá því í október 1999 veitt
áminningar í samráði við lögreglu-
stjóra en Hæstiréttur segir slíkar
áminningar vera „íþyngjandi stjórn-
arvaldsákvarðanir” sem kalli á ríkar
sannanir. Á slíkar sannanir hafi
skort í þessu tiltekna máli, enda
virðist sem í fyrstu hafi átt að láta
duga að senda Björn heim úr vinn-
unni. Hæstiréttur taldi að æra
Björns eftir 32 ár í lögreglunni hefði
verið sköðuð og hann færður til í
starfi vegna málsins. Garðar Gísla-
son hæstaréttardómari skilaði sérá-
liti og taldi að ekki hefði þurft að
koma til blóðmælingar að kröfu yfir-
mannanna en það hefði verið Birni í
lófa lagið að biðja um slíka mælingu
til að sýna fram á sakleysi sitt. Taldi
Garðar áminninguna lögmæta.
Lögreglumaður var talinn ölvaður
og sendur heim en síðar fékk
hann áminningu.