Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004
Fréttir DV
Á laugardaginn var
söfnuðust andstæðing-
ar stríðsins í írak saman
um allan heim og mót-
mæltu framferði ríkis-
stjórna Bandaríkjanna,
Bretlands og banda-
manna þeirra. Eitthvað
vel á annað hundrað
manns söfnuðust sam-
an fyrir framan Stjórn-
arráðið í Reykjavík og
mótmæltu en mót-
mælafundurinn hafði á
sér nokkuð frumlegan
svip. ístað ábúðarmik-
illa ræðuhalda þungbú-
inna fundargesta sner-
ist fundurinn að mestu
um grínaktugar „verð-
launaveitingar" sem
friðarsinnarnir sem
stóðu að fundinum
iöfðu skipulagt. DV var
á staðnum og fylgdist
pennt með hverjir
fengu verðlaun.
FYRIRTÆKI ERU iðulega
vanmetin í stríðsrekstri og
gleymast jafnvel í umræð-
unni. En þó eru þeirra
hagsmunir líklega mestir
þegar um stríð er að ræða og sumar
styrjaldar eru beinlínis háðar ein-
stökum fyrirtækjum til hagsbóta.
Hér koma mörg góð og þjóðholl fyr-
irtæki til grein. Margir urðu hissa á
því að Coca-Cola og Wrigleys sktili
ekki hafa fengið tilnefningu, en hér
eru þau sem tilnefnd eru sem
“fyrirtæki ársins":
ATLANTA Fyrir
flutninga á hergögnum
til Afganistan.
BECHTEL Fyrir þrot-
lausa vinnu við upp-
byggingu íraks og ríka
samfélagsvitund sem
kemur fram í rausnarlegum fram-
lögum til frjálsra félagasamtaka á
borð Repúblikanaflokksins.
FIAJGLETOIR Fyrir £ £
fórnfysi og samfélags-
lega ábyrgð sem lýsir
sér í að hafa vélar
reiðubúnar til flutninga á hergögn-
um hvenær sem er.
HAIUBUKTON Fyrir óeigin-
gjarnt framlag við endurreisn olíu-
iðnaðar
HALLIBURTOIN íraks í
þágu heimamanna og fyrir að gefa
Dick Cheney öðruhvoru frí til að
sinna varaforsetaembættinu.
KÖGUN Fyrir að sýna fram á að
þótt íslendingar eigi ekki her getum
við samt lagt
mörkum til ^ KÖGUN
stríðsreksturs í heiminum við fram-
leiðslu á hergögnum.
Og verðlaunin hlýtur... Atknta.
Hér kemur fulltrúi
Atlanta til að taka við
verðlaununum - að
tr B vísu ekki beinlínis starfs-
maður, heldur piltur sem
íhugaði einu sinni að sækja
um sem flugþjónn. Og hann segir:
„Við hjá Atlanta þökkum kærlega
fyrir. Þetta skiptir fyrirtækið miklu
máli, jafnvel ekki minna máli en sjálf
ríkisábyrgðin. Margir höfðu ekki trú
á okkur og töldu að erfitt yrði að
flytja pflagríma til Mekka með vopn
til að sprengja trúbræður þeirra í
lestinni. En við höfum náð hámarks-
hagkvæmni í þessum flutningum:
Við flytjum vopn frá Bretlandi til
Afganistan, þaðan pflagríma til Sádi-
Arabíu og loks lík fallinna hermanna
heim til Bretlands og þar með er
hringnum lokað. Kærar þakkir!"
UMMÆLIÁRSINS
í þessum flokki var um margt að
velja enda falla mörg gullkorn á
stríðstímum. Nefna má: „Sagan mun
dæma mig,“ hin ódauðlegu orð-
Tonys Blair, eða „Er viðskiptabannið
allt í einu orðið Vesturlöndum að
kenna?" - Sigurður Kári Kristjánsson.
Ekki má heldur gleyma Láru Margréti
Ragnarsdóttur varaþingmanni sem
brilleraði á fundi Menningar- og ffið-
arsamtaka fslenskra kvenna þann 8.
mars síðastliðinn. Ályktun sem for-
dæmdi árásarstríðið gegn Irak var
samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðum nema einu - atkvæði Láru
Margrétar. Hún gerði grein fýrir at-
kvæði sínu með þeim orðum að hún
hefði stutt stríðið en vissi ekki í dag
hvort þú ákvörðun væri rétt.
En tilnefndir eru:
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON „Ég er
stoltur og þakklátur íslensku sér-
fræðingunum fyrir þeirra
stóra þátt í þessu máli.
Þetta er heimsatburður."
Vart þarf að útskýra fyrir
nokkrum um hvað var að
ræða.
DAVÍÐ ODDSSON Fyrir þau um-
mæli að andstaða 90% ís-
lendinga gegn stríðinu
væri í rauninni í ágætu
samræmi við stefnu ríkis-
stjórnarinnar, enda
mundi hann sjálfur líka
hafa verið á móti stríðinu ef hann
hefði verið spurður.
HALLDÓR ÁSGRÍMS-
SON „Það getur oft tekið
langan tíma að finna
hluti."
HJÁLMAR ÁRNASON Fyrir að
draga fram þá smekk-
legu staðreynd að stuðn-
ingur ríkisstjórnar ís-
lands við árásarstríðið
hefði vafalaust fært ríkis-
stjórninni betri samn-
ingsstöðu þegar kæmi að því að
grátbiðja Bandaríkjastjórn um að
halda áfram að reka herstöð í Kefla-
vík.
HAUDÓR ÁSGRÍMS-
SON „Ég hef fengið að sjá
sannanirnar fyrir gereyð-
ingarvopnum í írak, þau
verða gerð opinber síðar.
Ég er sannfærður."
Og verðlaunin hlýtur ... Davíð
Oddsson fyrir það sem
hann sagði um það
sem hann mundi hafa
sagt ... ef hann mundi
hafa verið spurður.
„Fulltrúi Davíðs"
mætti síðan til að taka
við verðlaununum og sagði það sem
hann mundi hafa sagt:
„Ég skil nú ekki þetta upphlaup
allt saman og hér er náttúrulega
verið að hafa endaskipti á hlutun-
um, algjör endaskipti á hlutunum,
því eins og landsmenn, allir lands-
menn vita, þá fóru hinar staðföstu
þjóðir óviljugar í þetta stríð, gjör-
f.