Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Side 16
16 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004
Sport DV
Ragnarog
félagar í úrslit
Ragnar Óskarsson og
félagar í franska liðinu
Dunkerque tryggðu sér um
helgina sæti í úrslitum
Áskorendakeppni Evrópu.
Ragnar og félagar unnu
fyrri leikinn gegn Constanta
með fimm mörkum, 24-19,
í Rúmeníu og því átti seinni
leikurinn að vera auðveld-
ur. Svo var ekki því
Rúmenarnir bitu vel frá sér
og náðu á tímabili fimm
marka forskoti. Leikmenn
Dunkerque bitu þá í
skjaldarrendur og
minnkuðu muninn og
endaði leikurinn með
tveggja marka sigri
rúmenska liðsins, 25-27.
Ragnar skoraði þrjú mörk í
leiknum og var hann liðinu
mjög mikilvægur á loka-
kafla leiksins.
íslandsmet
hjá Önju
Ríkeyju og
Ragnheiði
Anja Ríkey Jakobsdóttir
setti í gær íslandsmet í 100
metra baksundi á Innan-
hússmeistaramóti íslands í
Vestmannaeyjum. Anja
Ríkey synti á tímanum
1:03,10 mínútum og bætti
met Kolbrúnar Ýrar
Kristjánsdóttur um 57/100
úr sekúndu. Ragnheiður
Rangarsdóttir úr SH setti
einnig íslandsmet í 100
metra fjórsundi í gær en
hún synti á tímanum
1:04,33 mínútum. Lára
Hrund Bjargardóttir átti
gamla metið sem var sett
árið 1999 en það var 1:04,54
mínútur.
Brynjar
kominn
til Stoke
Brynjar Björn Gunnars-
son er kominn til Stoke á
nýjan leik en hann var lán-
aður til félagsins í mánuð
frá Nottingham Forest.
Brynjar Björn hefur ekki
fengið mörg tækifæri lii að
spila með Forest að undan-
förnu og því er kærkomið
fyrir hann að komast til
Stoke. Hann spilaði þó ekki
með liðinu um helgina þar
sem leik liðsins gegn West
Brom var frestað vegna
veðurs.
Fjögurra ára einokun Sifjar Pálsdóttur í kvennaflokki á íslandsmeistaramótinu í fimleikum
lauk á laugardaginn þegar 12 ára gömul stúlka úr Gerplu, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, fór
meö sigur af hólmi. Viktor Kristmannsson, einnig úr Gerplu, bar sigur úr býtum í karlaflokki.
Það fæddist ný fimleikadrottning í Laugardalshöllinni á laugardaginn.
Hin tólf ára gamla Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, fimleikastúlka úr Gerplu,
gerði sér lítið fyrir og vann íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki eftir
harða baráttu við stöllu sína úr Gerplu, Ingu Rós Gunnarsdóttur og
íslandsmeistara síðustu fjögurra ára, Sif Pálsdóttur úr Gróttu. Viktor
Kristmannsson úr Gerplu bar sigur úr býtum í karlaflokki en sigur hans
voru nokkuð öruggur.
Viktor Kristmannsson úr Gerplu
hafði mikia yfirburði í karlaflokki.
Hann vann íslandsmeistaratitilinn í
samanlögðu á laugardaginn með
nokkrum yfírburðum og var með
1,50 stiga forystu á Jónas
Valgeirsson úr Ármanni. Viktor var
einnig í fantaformi í gær þegar keppt
var á einstökum áhöldum og fór
með sigur af hólmi á fjórum áhöld-
um af sjö. Hann vann gullverðlaun á
gólfi, bogahesti, hringjum og tvíslá,
silfur á svifrá og brons í stökki. Jónas
Valgeirsson úr Ármanni fékk gull á
svifrá og Gunnar Sigurðsson, einnig
úr Ármanni, fékk gull í stökki.
Tólf ára meistari
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, sem
er aðeins tólf ára gömul, vann
Islandsmeistaratitilinn í saman-
lögðu í kvennaflokki og batt þar með
enda á fjögurra ára einokun Siíjar
Pálsdóttur úr Gróttu. Kristjana
Sæunn, sem verður ekki þrettán ára
fyrr en í júní, var þó ekki nema 0,275
stigum á undan stöllu sinni úr
Gerplu, Ingu Rós Gunnarsdóttur, og
0,675 á undan Sif Pálsdóttur. Á
einstökum áhöldum hlaut Tanja
Björk Jónsdóttir úr Björkunum
tvenn gullverðlaun, í stökki og á
tvíslá, Kristjana Sæunn ein, á slá, og
Inga Rós Gunnarsdóttir ein á gólfl.
Yfirburðir Stjörnunnar
Lið Stjörnunnar í Garðabæ bar
sigur úr býtum í hónfimleikum .gfe
en keppni þar lauk
laugardaginn. Stjarnan hafði _
mikla yfirburði og fékk alls t
51,20 stig. Lið Gerplu P1
varði í örðu sæti með<
46,40 stig og lið Gróttu hafnaðij
í þriðja sæti með 45,70 stig.
Stjörnuliðið mun keppaj
sem gestalið á danska i
meistaramótinu sem fram fer í 1
Danmörku 3.-4. apríl
næstkomandi. Þá hefur liðiðB
einnig tryggt sér keppnisrétt á I
Evrópumótinu í hópfimleikum
sem fram fer í Austurríki í
október.
oskar@dv.is
ÚRSLITÍ FIMLEIKUM
Karlaflokkur Viktor Kristmannsson Gerplu
JónasValgeirsson Ármanni
Anton Heiðar Þórólfsson Ármanni
Gólf Viktor Kristmannsson Gerplu
Róbert Kristmannsson Gerplu
Jónas Valgeirsson Ármanni
Bogahestur Viktor Kristmannsson Gerplu
Róbert Kristmannsson Gerplu
Anton Heiðar Þórólfsson Ármanni
Hringir Viktor Kristmannsson Gerplu
Jónas Valgeirsson Ármanni
Grétar K. Sigþórsson Ármanni
Stökk Gunnar Sigurðsson Ármanni
Jónas Valgeirsson Ármanni
Viktor Kristmannsson Gerplu
Tvíslá Viktor Kristmannsson Gerplu
Jónas Valgeirsson Ármanni
Gunnar Sigurðsson Ármanni
Svifrá Jónas Valgeirsson Ármanni
Viktor Kristmannsson Gerplu
Anton Heiðar Þórólfsson Armanni
Kvennaflokkur Kristjana Sæunn Ólafsd. Gerplu
Inga Rós Gunnarsdóttir Gerplu
Sif Pálsdóttir Gróttu
Stökk Tanja Björk Jónsdóttir Björk
Kristjana Sæunn Ólafsd. Gerplu
Sif Pálsdóttir Gróttu
Tvlslá t Tanja Björk Jónsdóttir Björk
j Kristjana Sæunn Ólafsd. Gerplu
Hera Jóhannesdóttir Gróttu
Slá Kristjana Sæunn Ólafsd. Gerplu
Karitas Harpa Ólafsdóttir Gerplu
Hera Jóhannesdóttir Gróttu
Gólf Inga Rós Gunnarsdóttir Gerplu
Sif Pálsdóttir Gróttu
Fríða Rún Einarsdóttir Gerplu
12 ára meistari Kristjana Sæunn Ólafs-
dóttir sést hér sýna glæsileg tilþrifá slá en
hún varð Islandsmeistari i áhaldafimleikum
á laugardaginn. DV-mynd Vilhelm
Eitt mark af fimm Ólafur Víðir Ólafsson skorar hér eitt affimm mörkum sinum fyrir HK án
þess að KA-mennirnir Jónatan Magnússon og BjarturMáni Sigurðsson komi nokkrum vörnum
við. DV-mynd Vilhelm
RE/MAX-úrvalsdeild karla í gær
Annar sigurHKíröð
HK-menn virðast hafa öðlast
nýtt líf eftir að Vilhelm Gauti Berg-
sveinsson tók við þjálfun liðsins af
Árna Stefánssyni í síðustu viku. í
gær vann liðið sinn annan leik á
þremur dögum þegar það bar
sigurorð af KA, 32-30, í Digranesi.
Fyrri hálfleikur var markasúpa af
bestu gerð og leiddu HK-menn með
þremur mörkum, 21-18, þegar
honum lauk. KA-menn komu sterkir
til leiks í síðari hálfleik, náðu
fljótlega forystunni en heimamenn,
með Björgvin Pál Gústavsson í
fantaformi í markinu, voru öflugir á
endasprettinum og innbyrtu að
lokum mikilvægan tveggja marka
sigur, 32-30.
Andreus Rackauskas skoraði
ellefu mörk fyrir HK, Ólafur Víðir
Ólafsson skoraði fimm mörk, Atli
Þór Samúelsson skoraði íjögur,
Pavíð Höskuldsson þrjú, Alexander
Arnarsson, Már Þórarinsson og
Samúel Árnason skoruðu tvö mörk
hvor- og Jón Heiðar Gunnarsson,
Haukur Sigurvinsson og Elías Már
Halldórsson skoruðu eitt mark hver.
Björgvin Páll varði 28 skot í marki
HK.
Arnór Atlason skoraði tíu mörk
fyrir KA, Andreus Stelmokas og
Jónatan Magnússon skoruðu sex
mörk hvor, Bjartur Máni Sigurðsson
skoraði þrjú mörk, Sævar Árnason
og Einar Logi Friðjónsson skoruðu
tvö mörk hvor og Þorvaldur Þor-
valdsson skoraði eitt.
Vilhelm Gauti Bergsveinsson,
þjálfari HK, var að vonum sáttur við
sína menn að leik loknum.
„Strákarnir hafa stigið upp og
þjappað sér saman. Þeir hafa stórt
hjarta og eru loksins farnir að sýna
hvað í þeim býr. Þetta mót er langt
frá því að vera búið,“ sagði Vilhelm
Gauti. oskar@dv.is