Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Page 31
DV Síðast en ekki síst
MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 31
Málefni eða rógburður
Ágæta ritstjórn DV, ég skrifa hér
vegna stórrar greinar sem birtist í
DVþann 17. mars s.l.
Fyrirsögnin þar er; Nafnleysingi
birti nöfn og kennitölur á netinu.
Með undirfyrirsögn: Hver rógberinn
af öðrum læðist þar um þræði.
Þarna er stór mynd af skjá Mál-
efnanna.com og situr þar hettu-
klæddur maður sem glæpamaður
væri.
Þar sem ég skrifa á þennan vef,
þá finnst mér að mér og reyndar
öðrum félögum mínum vegið með
þessari grein. Sérstaklega er undir-
fyrirsögn og myndin særandi.
Rætni og illt umtal
Málið er að það var birt bréf frá
ungum manni Guðmundi J. Sig-
urðssyni, sem talaði um rætni og illt
umtal á Málefnunum.com. Einn af
okkar vinsælustu málverjum -
„Guðmundur góði“ - sagðist hafa
hringt í þá þrjá Guðmunda J. Sig-
urðssyni sem væru í þjóðskránni, og
spurt hvort þeir hefðu skrifað bréfið.
Þetta varð Guðmundi J. tilefni til
að segjast ætla að kæra vefinn til
Persónuverndar.
Glæpur?
Og þess vegna viJ ég spyrja ykkur
ágætu DV-menn hvort er meiri
„glæpur" að birta kennitölur og
nöfn einstaklinga og spyrja um höf-
und að bréfaskrifum, eða hreinlega
Ásthildur Cesil
Þórðardóttir
skrifar um málefni
Málefna.com
eða Guðmundur Besti fari inn á leit-
arvél slái inn nafninu mínu og finni
út það sem ég helst vil leyna??? Á ég
kannski að kæra til Persónuverndar?
Flestir mjög málefnalegir
Kjallari
segja að ég og mínir félagar séum
rógberar. Mér er illa við þá nafngift,
vegna þess að ég tel mig ekki fara
með róg á hendur mönnum. En með
þessari grein þá er ég stimpluð sem
slík, ásamt rnínum ágætu félögum.
Mér finnst líka undarlegt ef það
er ólöglegt að birta upplýsingar um
fólk svo sem eins og kennitölu, hvað
þá með þjóðskrá og símaskrá? Segj-
um að ég vilji ekki að fólk viti um
aldur minn, hvað get ég gert til að
sporna við
því að Jón
Jónsson
Mér finnst að vefur eins og Mál-
efnin.com sé mjög mikilvægur til
skoðanaskipta. Þarna skrifa menn
úr öllum pólitískum flokkum, og frá
öllum stéttum mannlífsflórunnar.
Þarna eru reifuð ýmís þjóðþrifamál,
sem ekki virðist hægt, eða þorandi
að segja á öðrum vetvangi. Þetta
virðist því miður vera það lýðræði
sem við búum við.
Þó það hendi stundum að sumir
verði ansi orðhvatir og sjáist ekki
fyrir, þá eru flestir þarna mjög mál-
efnalegir og margir góðir pennar.
Það er illt að þurfa liggja undir þvf að
vera rógberi.
Bandamenn um málfrelsið
Mér þykir þetta leitt einnig vegna
þess að ég er ein af þeim sem varð
mjög ánægð þegar skipt var um eig-
endur á DV. Og ennþá meiri var mín
ánægja þegar ég frétti að einn af
mínum uppáhaldspennum Illugi
Jökulsson væri annar tveggja rit-
stjóranna. Seinna bættist svo kernp-
an Reynir Traustason í hópinn. Ég
var viss um að við hefðum fengið
þarna öfluga bandamenn sem
myndu hlú með okkur að málfrels-
inu. Ég vona svo sannarlega að ég
hafi þar rétt fyrir mér, þrátt fyrir
þessi skrif.
Ath. ritstjórnar.
Við skiljum ekki hvað Ásthildur
hefur á móti skrifum okkar. Fréttin
fjaliaði einfaldlega um óánægju og
síðan kæru Guðmundar Jóns Sig-
urðssonar vegna meðferðar á per-
sónuuppiýsingum um sig á Mál-
efni.com. Einnig var greint frá ásök-
unum um rógburð og illmælgi sem
stunduð væri á Internetinu, m.a. á
vefMálefna. „Hver rógberinn aföðr-
um læðist þar um þræði, “ var bein
tilvitnun ískrif Guðmundar Jóns. Og
umræddar ásakanir eru einfaldlega
staðreynd og dæmi til stuðnings
þeim auðfundin, þótt við drögum
ekki í efa að langstærstur meirihluti
„málverja “ haldi sig tryggilega innan
velsæmismarka.
Hvar eru þau nú
Gísli Snær
Gísli Snær Erlingsson vakti fyrst
athygli sem umsjónarmaður Popp-
korns í sjónvarpinu þar sem hann
kynnti tónlistarmyndbönd ásamt
Ævari Erni Jósepssyni. Hann gerðist
síðan kvikmyndagerðarmaður og
hefur m.a. leikstýrt myndunum
Benjamín Dúfa og Ikingút.
Gísli Snær er nú búsettur í Japan
og rekur ásamt japanskri eiginkonu
sinni fyrirtæki sem fæst við allar
mögulegar hliðar kvikmyndagerðar,
myndbandaútgáfu o.s.frv.
• Miklar deilur stóðu í haust vegna
tennisvallar sem Kínverska sendi-
ráðið við Garðastræti 41 kom á
laggirnar án samþykkis nágranna,
þeim til mikillar armæðu. Kín-
verjarnir létu aka talsverðu magni
af jarðefnum inn á lóð sína til að
gera tennisvöllinn nothæfan sem
olli því að lóðin og tennisvöllurinn
er hærri en nærliggjandi lóðir. Rætt
var um óþægindi og jafnvel hættu
sem gæti stafað af fljúgandi tennis-
boltum á allt að 200 kílómetra
hraða, en til að mæta því létu Kín-
verjarnir reisa háa járngirðingu
utan um völlinn, sem var ekki síður
umdeild. Nú ber svo við að Kín-
verjarnir eru orðnir að vorboðum
við Garðastrætið. Á
góðviðrisdegi í síðustu
viku gat að líta fljúg-
andi tennisbolta inn á
nærliggjandi lóðir og
íþróttalega klæddur Kín-
verji sem kom á eftir, lilaðinn tenn-
isboltum. Rætt er um að með
tennisleik Kínverjanna komi vorið...
• Nábýlið við fulltrúa Kína
hér á landi hefur fleira í för
með sér. Starfsmenn sendi-
ráðsins við Garðastræti
halda reglulega
karókíkvöld. Ómþýður og
framandi söngur Kínverjanna á eigin
tungu hljómar um nágrennið, á
meðan flestir íslendingar myndu
gefa frá sér skarkala hinna ölvuðu.
Eru nú sumir nágrannar á því að ef •
sættir næðust um tennisdeiluna í
Garðastræti gæti sendiráðið frá Kína
þjónað í hlutverki félagsmiðstöðvar.
Gagnrýni íslendinganna stafi af öf-
und og æðsti draumur þeirra sé að
fá að vera með í tennis og kara-
ókíkvöldum...
Hildur og Erlingur Það var um miðjan desembermónuð síðla kvölds sem Hildur rak augun í
giftingarhring á gólfi Dubliners.
DV-mynd Róbert
Giftingarhringur á
Dubliners Þín Vallý
„Það hlýtur að vera sárt fyrir fólk að týna giftingarhringnum sínum,“ seg-
ir Erlingur Skúlason. Og það má til sanns vegar færa. Og við gerum fastlega
ráð fyrir því að brotthvarf hringsins frá eiganda sínum hafi verið af misgán-
ingi fremur en að þarna hafi verið um yfirlýsingu að ræða í hita leiks. Erling-
ur og Hildur Sveinbjörnsdóttir voru á Dubliners um miðjan desember mán-
uð og klukkan var komin fram yfir miðnætti. Þá rak Hildur augun í hring sem
lá á bargólfinu og tók hringinn að sér. Inni í hringnum er áletrunin „Þín
Vallý“. Hringurinn virðist vera hrekkjóttur því Hildur gleymdi honum í fór-
um sínum, hann týndist og kom svo ekki fram fyrr en nýlega þegar Hildur var
að flytja. Hildur og Erlingur vilja endilega koma hringnum til síns rétta eig-
anda og sá sem þekkir til getur haft samband við þau í síma 6960847 eða
6995961.
Dæmi um verð í 1 2 MÁNUÐI vaxtalaust
VAXTALAUS HAMINGJA
BJÓÐUM VAXTALAUSAR GREIÐSLUR í 1 2 MÁNUÐI
E F KEYPT E R FYRIR K R . EÐA MEIRÁ*
^BÆJARLIND 14-16 I 201 KÓPAVOGI | SÍmi 564 4400 | FAX 564 4435 | TEKK@TEKi
WWW.TEKK,
□ pid: laugardaga 1 □-1 6 dg sunnudaga 13-16