Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Page 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090 SKAFTAHUÐ24 10SRBYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] 5000 • Lítil ánægja er meðal óbreyttra borgara í Snæfellsbæ með árshátíð bæjarstjórnar og starfsmanna sem haldin var um helgina í Félagsheimil- inu Klifi undir styrkri stjórn bæjarstjórans Kristins Jónas-t sonar. Mikið var um dýrðir ogHljómsveit Geirmundar Val- týssonar frá Sauðárkróki hélt uppi fjörinu. Þá munu veislu- föng Snæfell- inga einnig hafa verið keypti frá Sauðárkróki. Þetta pirraði einhverja bæj- arbúa en verst þótti að eftir að borðhaldi lauk var almenningi ekki hleypt á dansleikinn sem að hluta var greiddur með útsvarspeningum þeirra. Hnípinn almúginn mun hafa safnast að dyrum félags- heimilisins í þeirri von að fá að stíga dansinn undir gleðisveiflu Geirmundar en var harðneitað um aðgang. Sjii lögreglumenn Réðust inn á heimili og létu öryggisvörð strippa Kosningabrella? / Oddur Friðriksson, tvítugur ör- yggisvörður, fór af heimili sínu á fjórða tímanum aðfararnótt fimmtu- dags í þeim tilgangi að kaupa sér inn- eignarkort í farsíma. Hann hafði ver- ið í makindunum heima að horfa á kvikmyndir eftir kvöldvakt. „Á leið- inni heim tók ég eftir því að lögreglu- bíll keyrði nokkrum sinnum framhjá mér og hægði á sér til að horfa á mig. Mér þótti þetta undarlegt og mér var órótt, en síðar ákvað ég að skokka lokakafla leiðarinnar. Þegar ég var næstum kominn heim bmnaði lög- reglubíll á eftir mér,“ segir Oddur. Hann skirrðist við og tók sprett inn á heimili sitt. Nánast samstundis börðu lögreglumaður og lögreglu- kona á hurðina og ráðlögðu honum að opna, því fíkniefni væru á heimili hans og hann ætti sér enga von. Þetta kannaðist Oddur ekki við og krafði lögrelgumenn um húsleitarheimild ef þeir vildu koma inn. „Svo segir lög- reglumaðurinn: Ef þú hleypir okkur ekki inn þá ferðu með okkur." Þá stökk kettlingurinn minn út og ég fór á eftir honum. Um leið ruku lögreglu- þjónarnir inn til mín,“ segir hann. Þegar Oddur kom inn með kett- linginn var honum skipað að setjast niður og hreyfa hvorki legg né lið. Fimm lögreglumenn til viðbótar komu inn, þar af tvær konur og einn óeinkennisklæddur, og allsherjarleit hófst í íbúðinni sem er tveggja her- bergja. Þau sáu öryggisvarðarbúning Odds, en hann jók enn á gmnsemd- Löggur í slag um formennsku Berglind Eyjólfsdóttir rannsókn- arlögreglumaður í Reykjavík hefur ákveðið að leggja út í formannsslag innan Landssambands lögreglu- manna (LL) og freista þess að ná völdunum af Oskari Bjartmarz, nú- verandi formanni LL. Mótframboð Berglindar kemur ekki síst fram í ljósi mikilla deilna að undanförnu um skipulagsbreytingar á LL, en Fé- lag íslenskra rannsóknarlögreglu- manna (FÍR) túlkar boðaðar laga- breytingar sem svo, að verið sé að henda FÍR úr LL. „Ég hef í raun ekkert um framboð Berglindar að segja. Ég býð mína starfskrafta áfram sem formaður og nú er í gangi vinna hóps sem annast uppstillingarmálin og rétt að leyfa því fólki að klára sína vinnu," segir Óskar Bjartmarz aðspurður um formanns- slaginn. Hann sagði að vissulega væru umdeildar lagabreytingatillög- ur á dagskrá þings LL 13.-16. apríl, sem lúta að uppbyggingu sambands- ins, en segir að sér sé ókunnugt irnar. „Svo hélt einn yfir mér ræðu: Ég er hundrað prósent viss um að þú sért með fíkniefni. Það er best að benda okkur á þau, annars lendirðu í meira klandri þegar hundarnir koma.“ Ég var ekki með nein fíkniefni og hef aldrei komið nálægt þeim. Síð- an tekur fýrsti lögregluþjónninn mig inn í eldhús og segir mér að fara úr buxunum. Svo þurfti hann endilega að sjá á mér typpið og rassinn. Ég var niðurlægður á mínu eigin heimili," segir Oddur. Þegar engin fíkniefni komu upp úr kafinu hentu lögreglu- mennirnir latexhönskum sínum á gólfið og létu sig hverfa. Oddur hefur leitað skýringa hjá lögreglunni vegna máisins. Hann fékk þau svör að í lögregluskýrslu standi að hann hafi leyft húsleit. Oddur leitar nú að lögfræðingi til að taka mál að sér gegn lögreglunni. Þegar hann spurði lögregluna hvers vegna hún væri að rannsaka sig fékk hann þau svör að hún fylgdist með Oddur Friðriksson Það getur verið varasamt að fara út að næturlagi, samkvæmt reynsiu Odds Friðrikssonar öryggisvarðar sem lögreglan elti og lét strippa á heimili sínu. Sjö lögreglu- menn umturnuðu heimilinu i leit að fikniefnum en hurfu svo og skyldu eftir latexhanska. umferð fólks á nóttunni. Oddur vill ráðleggja fólki að hlaupa alls ekki að næturlagi ef lögreglubílar eru í sjón- máli. Þá ráðleggur hann fólki að klæðast ekki dökkum fötúm sem telj- ast geti grunsamleg. „Ég vil ekkert ræða þetta mál,“ segir' Karl Steinar Valsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn í Reykjavík, en samkvæmt heimildum DV eru vinnubrögð lögreglumannanna til yf- irferðar hjá lögreglunni. efna til mótframboðs. Berglind segir að auðvitað sé ekk- ert óeðlilegt við að fleiri en einn séu til kjörs til formennsku. Hvað sem því líður þá má sjá á vefsíðu FÍR að frá 2002 hafa ríkt alvarlegar deilur um skipulagsmál LL og stöðu FÍR. Þar er talað um „mikla annmarka" á skipulagshugmyndum forystu LL og um sérstakan fund sem FÍR átti með Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra um þessi mál. FÍR.-segir að hug- myndir LL snúi „aáallega að því að FIR myndi missa félagsaðild sína“ og væri verið að „reka fleyg í stéttarsam- tök lögreglumanna“. Þessar skipu- lagstillögur þurfa að koma á ný fram fyrir þing LL í aprfl og þarf atkvæði tveggja þriðju hluta fundarmanna til að þær öðlist samþykki. FÍR boðar fyrirfram hörð viðbrögð við slíku: „Verði lagabreytingatillögur síðustu þingnefndar Landssambands lög- reglumanna samþykktar óbreyttar að nýju missir félagið aðild sína og skoða þarf möguleika á því hvort að FÍR þurfl að stefna Lands- sambandi lögreglumanna og ógilda þannig samþykktir þingsins." Fulltrúar FÍR munu leggja fram tillögu um að aðild að LL verði einstaklingsbundin. Berglind Eyjóifsdóttir rannsóknarlögreglumaður. MANUDAGUR HLNUEMI, GODAPYLSUR TIL GLEÐI coei Talltafgóðuy ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.