Akranes - 01.11.1946, Blaðsíða 5

Akranes - 01.11.1946, Blaðsíða 5
IV. árgangur Jólablað 1946 11.—12. tölublað. VILLTA i! MANNKYN líttu upp Tækniþróun vorra tíma verður með ári hverju ótrúlegri. Ef það orð og hugtak þess væri bundið við það eitt, sem verða ^iætti mannkyni öllu til blessunar, væru sár síðustu tíma færri en raun ber vitni um. Ef hugvit mannanna og mögu- leikar þeirra í jörðu og á væru notaðir til sameiginlegs hags þeirra og heilla, þyrfti enginn að svelta eða líða nauð. Allt þetta gæti verið með ágætum. En af hverju er það þá 1 flestum tilfellum öfugt? Af því mennirnir koma sér ekki saman. Af því þeir berjast sífellt í stað þess að batna. Miðaldra menn hafa lifað tvær ægilegustu styrjaldir ver- aldarsögunnar. í báðum tilfellum sögðu sigurvdgararnir að þetta yrði síðasta stríðið. Að þeir hefðu farið í stríðið til þess að fyrirbyggja að þessi villimennska geti oftar átt sér stað. Hvar eru þær efndir? Ekki er nema um hálft annað ár síðan lokið var hinum ógurlegustu stríðsógnum, sem sagan getur Urn, og þó eru enn taldar álíka miklar líkur fyrir ófriði, sem Varanlegum friði. Æðstu menn sigurvegaranna í þessu stríði lýstu því óaf- Mtanlega yfir, að þjóðir þeirra þyrftu að sigra til þess að ^yggja heiminum fullkominn frið og þjóðunum frelsi og öryggi. Sjálfsagt hefur og aldrei verið lagður meiri trúnaður á þessi fögru orð en einmitt nú. Aldrei hefur heldur verið auð- Veldara að tryggja þetta en að afloknu þessu ægilega stríði. Sigurvegararnir voru bandamenn og mestu stórveldi heims- ins. Meðal þeirra voru hinar fjölmennustu þjóðir, ríkustu og ^ezt menntu. Hinir sigruðu voru hins vegar svo gersigraðir, að þvílíkt hefur ekki fyrr þekkzt. Þá þurfti því ekki að ótt- ast a. m. k. 1 bráð. Nei, daginn eftir hina löngu þraut má Hernur segja að sigurvegararnir hafi óttast hverir aðra. Nú eða aldrei er því hægt að snúa við. Nú eða aldrei á að þætta að slá ryki í augu alheims. Hætta að ljúga fólk út í latlausar ógnir, með loforði um nýtt og betra líf. Loforð, Sem tengja saman áframhaldandi glæpakeðju vegna sífelldra Svika þessa fagurgala meðan ógnirnar ganga yfir. Ef sigurvegararnir sjálfir byrja nú ekki nýtt líf, hafa þeir enn, og alvarlegar en nokkru sinni fyrr, brugðist eigin þjóð- urn og alheimi. En ef þeir haga sér eins og sönnum sigur- Vegurum sæmir, geta hinir sigruðu sætt sig við það sem koma skal, og neyddir til, eða af frjálsum vilja tekið þátt í rettri og raunverulegri uppbyggingu þess heims, sem ekki lengur notar fá friðarár til 'þess að „hlaupa til“ í næsta stríð. Hugsað bandalag allra þjóða heimsins er engin vitleysa. En það er vonlaust, nema að ráðamenn ríkjann og allur al- Kristsmynd. Nýjasta stónmynd Einars Jónssonar. menningur skilji hlutverk sitt. Skilji að á þeim og þjóðun- um sjálfum hvílir fyrst og fremst fögur eða fáránleg fram- tíð. Engum er um að kenna ófarir mannanna og vandræði nema þeim sjálfum. Engin hugsjón eða félagsleg samtök fela í sér slík fvrirheit til bjargar og blessunar — ef hér er snúið við — sem kirkjan og boðskapur hennar til allra

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.