Akranes - 01.11.1946, Side 15

Akranes - 01.11.1946, Side 15
akranes 123 Þú samt ert fagur sýnum alla vega. Þig svífur kringum dularvættaher, með töframáttar taugum undarlega sem toga hugann ósjálfrátt að þér. Og jötunhár með hamrabrjóstið gráa ert hrikastór, en íturvaxinn þó. Af enni þínu hvelfda, bjarta, háa, skín huldra krafta fegurð, tign og ró.“ En það er eigi aðeins hin mikilúðlega og fjölbreytta mynd héraðsins með hinum fríða fjallahring sínum, sem brosir rnér við sjónum í minningunni; hátíðaðhöldin sjálf þennan söguríka og fagra sumardag eru mér jafn minnisstæð, enda fóru þau fram með mikilli prýði undir stjórn Björns Jóns- sonar, formanns Ungmennasambands Borgfirðinga. Fjöl- menni mikið var samankomið, því að talið er, að um 3000 manns hafi sótt hátíðina, enda var það hrífandi sjón af ræðu- pallinum að horfa yfir mannhafið í brekkunni fyrir ofan hann. Skörulegar og tímabærar voru ræður þeirra alþingismanna héraðsins, Bjarna Ásgeirssonar og Péturs Ottesen, en leikur lúððrasveitar Reykjavíkur og söngur Karlakórs Borgarness, undir stjórn Halldórs Sigurðssonar skrifstofustjóra uku drjúg- um á litbrigði samkomunnar. Verður með sanni hið sama sagt um skáldin þrjú, sem fluttu þar frumort kvæði, þá Guð- uiund Böðvarsson, IJalldór Helgason og Guðmund Svein- björnsson. Vanþakklátur væri ég einnig meir en í meðallagi, ef ég minntist þess eigi, hversu mér, sem fulltrúa Vestur- Islendinga, var frábærlega vel tekið á þessari hátíð, og hve þeir voru þar örlátlega hylltir og drengilega. Fyrir það vil ég nú þakka af heilum hug. En lýðveldishátíð þessi var jafnframt fjölþætt íþróttamót, °g varð mér starsýnt á kappglímuna, sem jafnan hleypir heimaöldum íslending kapp í kinn; eigi vakti hin afarfjöl- Wenna skrúðganga frá ræðupallinum og niður á íþrótta- vanginn við Hvítá síður athygli mína, jafn tilkomumikil og hún var með fánaberana í broddi fylkingar. Þetta glæsilega og fjölmenna lýðveldis- og íþróttamót Borg- firðinga á Hvítárbökkum er mér sérstaklega minnisstætt og alltaf mun verða bjart í huga mínum yfir þeim atburðaríka degi; og er ég þakklátur fyrir að hafa fengið að lifa hann °g njóta hans sameiginlega með hérðsbúum. Yfir honum hvíldi andi þeirrar fagnaðarkenndar og þess framsóknar- huga, sem gagntók gjörvalla hina íslenzku þjóð á þessum sigurríku og örlagaríku tímamótum í sögu hennar. Þann anda túlkaði Guðmundur skáld Böðvarsson fagurlega og suilldarlega í hátíðarkvæði sínu „í tilefni dagsins“, meðal annars er hann segir: • „Ei dagur fyrr af djúpi steig með dýrra hlað um brá: Nú rætist eftir aldabið vor ósk um líf, vor bæn um frið: Við leggjum frjálsir frelsissveig um fjöll vor, hvít og blá.“ Drengilega farast skáldinu einnig orð um þær frelsis- hetjur vorar, sem „vöktu hrjáðan lýð“, gengu í fylkingar- hrjósti í hinni löngu sjálfstæðisbaráttu, og „féllu sinni fóst- Urjörð.“ Þá rennir hann sjónum til framtíðarinnar og minn- lr á þá ábyrgð, sem fylgir því að vera frjáls þjóð: „Og enn mun straumur strandir slá og stormur blása um sand. Þá reynist, hversu er heilt vort verk og hvað vor ást er djúp og sterk. -----En meðan Frónið fólk sitt á, á fólkið sjálft sitt land.“ I óbifanlegri trú á það, að hin íslenzka þjóð muni reynast þeim vanda vaxin að fara giftusamlega með fjöregg síns endurheimta frelsis, bið ég Borgfirðingum öllum blessunar Urn leið og ég þakka þeim hjartanlega fyrir síðast. Sr. Friðrik Friðriksson: Starfsárin III Framhald. Næsta sunnudag komu þeir aftur og þá komu líka nærri því eins margar stúlkur úr stúlknadeildinni og settust á fremstu bekkina tvo að norðan verðu. Nú var það eins og hinn fegursti kranz væri fléttaður 1 kringum guðsþjónust- una. Það var eins og kæmi nýr svipur á kirkjuna. Eldra fólkinu þótti þetta svo hátíðlegt og hafði orð á því. Nú má fara fljótt yfir sögu. Börnin héldu áfram að koma sunnudag eftir sunnudag og brátt tók að fjölga við árdegis- messurnar, og loks urðu þær messur nærri því eins vel sótt- ar eins og kvöldmessurnar. Starfið varð mér til mikillar gleði. En mér þótti leiður sá klofningur, sem hafði orðið! meðal íslendinga í bænum í kirkjumálunum. Eg fylgdi auð- vitað stefnu lútherska safnaðarins, því að það var sú stefna, sem ég ávallt hafði fylgt heima, hin svo kallaða „gamla stefna", en skipti mér ekki af deilumálum, bara hélt fast fram fagnaðarerindi Krists. Oft var fjörugt á kvödin heima hjá Jóni Vopna. Það var oft gestkvæmt af ungu fólki. Einn ungur maður vakti at- hygli mína. Hann var æringi mikill og kátur og lék á als oddi. Mér hugðist hann vera mjög léttlyndur og fullur af fjöri og gazt mér vel að honum. Eg spurði hann eitt kvöld hverra manna hann væri. Hann kvaðst heita Edwin Bald- vinsson, fæddur í Reykjavík 1892. Hann bætti við hlæjandi: „Eg var að fæðast, þegar þið í Reykjavík gerðuð aðsúg að föður mínum.“ — Eg svaraði: „Svo? Því kvöldi man ég eftir, en ég vissi ekki að þú værir að fæðast.“ Baldvin, faðir hans, Baldvinsson, hafði verið agent hér heima til vesturfarar, og eitt sinn er hann hélt samkomu 1 Reykjavík (8. 3. 1892) varð að slíta samkomunni vegna ærsla og pípnablásturs. Baldvin var annars mjög mætur og mikil- hæfur maður, og ég held fyrstur íslendinga þar vestur frá, sem þingmaður varð í Manitoba. Hann var unítari, og hafði ekki látið ferma börn sín, en Edwin, sonur hans, hallaði sér alveg að lútherska söfnuðinum í Winnipeg, Eitt kvöld nokkru síðar en ég fyrst kynntist Edwin, eða Edda Badvins, sem hann var oftast kallaður, var ég á Banda- lagsfundi. Þar átti að vera allmikil skemmtiskrá og svo átti ég að flytja eitthvert smáerindi og enda svo fundinn með biblíuorði og bæn. Ég sat þannig, að ég gat séð yfir allan sal- inn. Þar var saman kominn fjöldinn allur af íslenzkum æsku- lýð bæjarins. — Þegar röðin kom að mér að tala, hóf ég mál mitt á þessa leið: „Kæru ungu vinir mínir! Áður en ég byrja á erindi mínu, langar mig til að halda stutta skammaræðu yfir yður. Ég hef verið hér til að hlusta á fagran hljóðfæra- slátt og góðan upplestur. Ég átti samt örðugt með að njóta þess góða, sem fram var borið vegna undrunar á framferði yðar. Ég sá að þér annaðhvort kunnuð ekki að hlusta, eða kærðuð yður ekki um það. Fyrst á skránni kom Miss sú og sú og átti að leika á píanó lag eftir frægt tónskáld. Forseti fundarins auglýsti nafn ungfrúarinnar. Það varð kliður af fjörugu lófaklappi í öllum salnum. Svo byrjaði hún að leika. Þá tóku allir að smáhvíslast á og gjöra að gamni sínu hver við sinn sessunaut. Enginn tók eftir. Svo með það sama og músíkin þagnaði, vöknuðu allir sem af draumi og klöppuðu ákaft, ég er viss um að nálega enginn hafði hugmynd um hvort ungfrúin lék vel eður illa. Sama endurtók sig þegar Mr. sá og sá kom með fiðlu sína. Klappað var undan og eftir, en hvað eða hvernig hann lék kærði enginn sig um.“ — Ég sýndi fram á hvað þetta væri bæði léttúðugt og ósæmilegt. Eftir fundinn fór fjöldi af fundarmönnum niður til H.

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.