Akranes - 01.05.1949, Page 16

Akranes - 01.05.1949, Page 16
Þœttir úr sögu Akraness, V. 22. Kárabœr. Ölafur B. Björnsson HVERSU AKRANES BYGGÐIST 4. kafli. — 1870—1900. — Byggingar batna. Fram yfir miðja öldina, sem leið, var hér sem annars staðar allt í hinni mestu fátækt og basli. Höfðu allir nóg með að hafa í sig og á, og gekk það á stundum full erfitt. Mikil orsök í þessari niðurlæg- ingu var vitanlega undirokun Dana, og átti verzlunaránauðin eigi minnstan þátt í þessu. Það má gleggst sjá það af þvi, að þegar er einokuninni er aflétt, er eins og nýr dagur hafi runnið upp eftir svart- nættis óveðursnótt. Frá 1855—1870 færist hér á Akranesi ýmislegt í betra horf, og undirbýr jarð- veginn undir síðari umbætur. A þessu timabili eignast menn sjálfir bát sinn eða skip og ábýli. Þeir verða fyrir það sjálf- stæðari og óháðari en áður. Löggilding verzlunarstaðarins 1864 hefur gagnger áhrif til bóta. Á þessu tímabili vaxa hér upp, eða koma hingað, margir dugnaðar- menn sem hafa mikil áhrif, þótt fram- farirnar séu enn ekki stórstígar, ef miðað er við byltingu síðustu áratuga. Á þessu timabili (1863), setti Ritchie hinn enski hér upp hina fyrstu niðursuðuverksmiðju í landinu. 1 upphafi síðasta kafla (sjá 1.—2. tlb. 1948), er gerð nokkur grein fyrir bygg- ingum hér á því tímabili og litlu fyrr. Sú lýsing ber með sér, að þá var bygging ekki beisin. Með þessum kafla hefst hins vegar nýtt tímabil í byggingarsögu Akraness. Nú er farið að byggja timburhús með eða án kjallara. Einnig steinhús, hlaðin úr grjóti, með ákaflega þykkum veggjum og slett á þá kalki utan og innan. Þrátt fyrir þessar miklu og auðsæju framfarir í sambandi við húsbyggingar, eru þó enn byggðir margir torfbæir á þessu tíma- bili. Árið 1870 er ekkert timburhús til á Skaga, en frá 1850—1870 voru torfbæ- irnir þó stærri og betur byggðir en áður, og þá fjölgaði þeim allmikið. Seinni part aldarinnar, frá 1870—1900, batna bygg- ingar nú verulega, því að þá hefst bygging timburhúsa og steinhúsa eins og áður segir. Ef tekið er tillit til allra aðstæðna, er vafasamt hvort menn hafi byggt hér í annan tíma með meiri myndarbrag og rausn, fyrr en þá um og eftir 1925 að útgerðin fer að flytjast heim. Fyrsta húsið byggir Hallgrímur hreppstjóri á Miðteig 1871. Næst byggir Þorsteinn kaupmaður Guðmundsson, verzlunar- og íbúðarhús fyrir vestan Bakka. Snæbjörn Þorvaldsson byggir verzlunar- og íbúðarhús, þar sem 64 nú er Hofteigur. Myndarlegt timburhús er byggt á Bakka, og á Sýruparti. Nokkur steihús eru byggð 1874 og úr því. Milli 1880—go eru byggð stórhýsi á eldri mæli- kvarða, þar sem eru Hoffmannshús, Ge- orgshús (sem enn stendur), Krosshús, Böðvarshús o. fl.. Af því sem hér er sagt. réttlætist því fullkomlega, að hafa yfir- skrift þessa kafla: „Byggingar batna.“ Á þessu timabili fjölgar fólkinu, skipum og skepnum. Einnig eykst kartöflurækt og þilskipaútgerð hefst. Nú fara Akurnes- ingar i vaxandi mæli að ráða sig á skút- urnar í Reykjavík, en þeim fjölgar því meir, sem nær dregur aldamótunum. Á þessum árum er hér mikið misæri. Harð- indaár og fiskleysi svo mikið, að segja má, að við hallæri lægi. Enda þótt margt væri erfitt og andstætt, miðar þó verulega í áttina, svo að telja verður þetta batn- andi timabil. Hingað færist nú mikil verzl- un við uppsveitimar. Hingað fara og að koma skip beint frá útlöndum, og enn hefst á þessu timabili vísir að stórskipa- útgerð. Verður nú haldið áfram að skýra frá byggingu hinna ýmsu bæja og býla eins og áður. Sjálfsagt er það til, að menn hafi ekki þegar í stað gefið býli sinu eða húsi nafn, er það var byggt. Á þetta þó eingöngu við tómhúsin. f þessu sambandi mætti nefna nokkur dæmi, svo sem verzlunar- og ibúðarhús Þorsteins kaupmanns Guð- mundssonar, er hann byggir fyrir vestan Bakka, og löngu seinna var kallað Thom- senshús. Það er um mörg ár talið undir Bakka. Tel ég, að eins sé ástatt um Hall- dórshús, sem byggt er 1877 úr Nýjabæjar- landi. Það er um mörg ár talið undir Nýja- bæ. Það fær fyrst heitið Halldórshús árið 1880, sama árið og sá andast, sem það byggði. Sama gæti og hafa átt sér stað um Kárabæ, sem áreiðanlega er byggður úr Bræðrapartslandi, að hann sé talinn undir Bræðraparti. (Sjá nánar um þetta í 11. tlb. 1945) f úttektarbók hreppsins frá þessum tíma er sagt, að Kári Gunnarsson á Bræðraparti skili af sér, en við taki Tómás Zoega. Að vísu gæti Kári náttúr- lega hafa verið áfram í húsmennsku á Bræðraparti eftir sem áður. Ef til vill má þó fremur segja, að þetta styrki áður um- getna sögn, um gjöf Bræðrapartsbænda á bænum til Kára. Þess er hér fyrr getið (við Bræðrapart), að þar sem Kárabær nú stendur, hafi áður staðið hinn raunverulegi bær á Bræðraparti. Að Tómás Zóega og Þor- steinn Sveinsson hafi, þá er þeir komu að Bræðraparti, byggt þar bæ, en gefið Kára Gunnarssyni (sem þá var ábúandi er þeir komu þangað) þennan litla bæ, — sem ekki þá þegar, — heldur löngu seinna er kallaður Kárabær. Þessa sögu hefi ég eftir Jóni Gunnlaugssyni á Bræðraparti, sem segir sér hana svo sagða af eldri mönnum. Ekki er alveg óhugsandi, að þetta geti verið rétt. Frá því Bræðrapartur kemur aftur í byggð 1828 hafa margir búið þar, og vísl: jafnan verið fátækir leiguliðar, þar til Þorsteinn og Zoega koma þangað. Kári er kominn að Bræðraparti í janúar 1843 og er þar#jafnan síðan. Getur vel verið, að hann hafi byggt þar upp. Gæti hugsast, að þeir hafi ekki viljað hrekja Kára úr bænum, heldur látið honum hann eftir eða selt, með svo litilli lóð, sem Kára'bæ hefur jafnan fylgt. Og óefað er bærinn upphaílega byggður úr Bræðra- partslandi. Ef þetta væri rétt, er ekkert óeðlilegt, þó að bærinn væri ekki skírður fyrr en löngu seinna, og þá kenndur við Kára, sem svo lengi hafði búið þarna. Kárabæjar er fyrst getið í manntalinu í janúar 1872. Hvað sem hæft er í til- gátunni hér að framan, hefur bærinn þó a. m. k. verið byggður 1871. Þá eru talin tvö heimili í Kárabæ: 1) Sigtryggur Guðmundsson, 32 ára, og kona ,hans Halldóra Ásmundsdóttir, 31 árs. Hjá þeim eru þá tveir synir þeirra, Ásmundur, 11 ára, og Guð- mundur, 9 ára. Sigtryggur var sonur Guðmundar í Tungu í Svínadal. 2) Kári Gunnarsson, 62 ára, og Margrét Þorsteinsdóttir frá Nýlendu, bústýra hans, 48 ára. Hún var móðir Þorsteins Danielssonar á Sýruparti. Kona Kára Gunnarssonar var Aldis Brandsdóttir. Aldís var móðursystir Bjarna á Kjaransstöðum. Þau munu ekkert barn hafa átt, en ólu upp þennan Sigtrygg frænda Kára. Á Kára og Gunnar föður hans hefur áður verið minnst í sambandi við Bræðrapart og Miðteig. Kári deyr 20. marz 1886. Sigtryggur og Halldóra í Kárabæ munu hafa átt a. m. k. 8 börn. Flest þeirra munu hafa dáið ung. Tvo fyrrnefnda syni sína missti Sigtryggur af sér í sjóinn 23. apríl 1880, er þeir voru að vitja um grásleppu- nét. Fimm manns voru á bátnum, en drukknuðu allir nema Sigtryggur, sem komst á kjöl og var bjargað þaðan. Þessir synir Sigtryggs, Ásmundur og Guðmund- ur, voru hinir mestu efnismenn. Hall- fríður, kona Bjarna í Bæjarstæði, er eina AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.