Akranes - 01.05.1949, Page 18

Akranes - 01.05.1949, Page 18
Englandi, átti hann aðeins tvær krónur í vösum sínum. Fargjaldið hafði hann greitt með því að vinna að uppskipun á fiskinum úr Apríl. Guðmundur réðst nú á enskan togara, sem fiskaði við Island, og var þar um eins árs skeið. 3.) Guðríður. Hún er alin upp á Reynir, eftir að hún missti föður sinn. Um tvítugsaldur flutti hún norður til Hallgríms bróður síns, og giftist þar Birni Jónssyni frá Kollafossi í Mið- firði. Þau eignuðust 4 böm. Tvö þeirra, Jóhannes og Ingvar, dóu ung, en þessi tvö eru á lífi: A. Ingibjörg, gift Jóni Sigurðssyni skip- stjóra frá Görðunum. Þau eiga eina dóttur, Ólöfu. B. Hallgrimur, bifreiðastjóri, búsettm: i Hafnarfirði. Hann er kvæntm’ Mar- gréti Þorvaldsdóttur frá Járngerðar- stöðum í Grindavík. Þau eiga einn son, Þorvald að nafni. 4) Jón, skipstjóri, siðar rakari, nú á Grettisgötu 62 ’í Reykjavik. Frá honum er nokkuð sagt í 11—12 tlb. 1946. Hann var lengi rakari á Akureyri, en nú í Reykjavik. Áður en Jón kvæntist, átti hann eina dóttm, er Hulda heitir, og er gift Viktor Gestssyni, lækni. Kona Jóns rakara heitir Jóhanna Ás- grimsdóttir. Þau áttu saman eina dótt- ur, önnu Soffíu, er þau misstu 22 ára gamla. Svo mikið varð móðurinni um dótturmissirinn, að hún missti þá al- gerlega heilsuna, og hefur verið veik síðan. Halldóra Hallgrímsdóttir andaðist hjá Guðmundi syni sínum í Hafnarfirði, 92 ára að aldri. 57. Thomsenshús. Þetta hús, sem var bæði ibúðar- og verzlunarhús byggði Þorsteinn kaupmað- ur Guðmundsson 1873. Þorsteins var rækilega getið í 1. tlb. III. árg.. Árið 1872 flytur Þorsteinn hingað og byrjar að verzla hér eins og áður er getið. Hans er fyrst getið í manntali í jan. 1873 (á Bakka) og er þá talinn 42 ára, en kona hans, María Bóthildur Jakóbína Pétursdóttir Maaok 37 ára. Hjá þeim er þá sonur þeirra, Pétur Andreas Maack, talinn 14 ára gamall. I fyrrneíndu blaði eru böm þeirra talin. Þetta hús var: „timbur-íveruhús, ásamt sölubúð, með einföldu tréþaki, 20X12 al. 1 loft, 2 stofur, 2 ofnar, 1 eldunarvél; kvistur er á- húsinu og kjallari undir því.“ Geymsluhús 12X9 al. Skúr 8X5 al., hey- hús 6Xg al.“ Um fjölda ára er þetta hús ávallt kallað á Bakka, en seinna kallað Akranes, en mun fyrst vera kallað Thomsenshús 1887, eftir að Magnús Ólafsson er orðinn „fakt- or“ þar. Eftir að Thomsen tekur við húsi þessu af Þorsteini kaupmanni Guðmunds- syni, búa verzlunarstjórar Thomsens i húsinu, nema Sveinn Guðmundsson. sem þeirra var siðastur. Fyrstur þeirra verzlunarstjóra Thom- sens var Páll Jóhannesson, sem hér var mjög skamman tíma. I manntalinu í jan úar 1885, er hann talinn 51 árs. Þar eru þá hjá honum þessi börn hans: Þorsteinn 7 ára, Jóhanna Guðrún 6 ára og Elin 4 ára. Ekki hef ég grennslazt eftir hvaðan Páll kom eða hvert hann fór. Hann var liér oddviti part úr ári eða svo. Skrifaði ljómandi fallega hönd, og hefur sennilega verið eitthvað menntaður. Magnús Ólafs- son, síðar ljósmyndari var lengst verzl- unarstjóri við Thomsensverzlun hér. Hans verður rækilega getið í öðrum stað hér í blaðinu, og því ekki frekar nú. Magnús lét af verzlunarstjórastarfinu árið 1900 og fluttist til Reykjavíkur, en við tók Sveinn Guðmundsson i Mörk. Hann gegndi starf- inu þar til verzlunin lagðist niður 1907. Eftir það bjuggu í húsinu, Jón Guðmunds- son, trésmiður og bóndi á Ósi, og kona hans Guðrún Jakobsdóttir. Hjá þeim eru þar 1908 þessi börn þeirra: Helga 7 ára, Elín 5 ára, Soffía 3 ára og Jakob 1 árs. Þau fluttust síðar að Narfeyri á Skógarströnd. en eru nú búsett á Ránargötu 12 i Reykja- vík. Árið 1909 eru í Thomsenshúsum, Gunn- ar Árnason smiður, áður í Nýja'bæ og kona hans Guðrún Sigurðardóttir. Hann 66 ára gamall, en hún 61 árs. Árið 1910 selur Thomsen húsið til nið- urrifs, og gerist meðeigandi í íshúsi því, sem bvggt var upp úr húsunum, og var fyrsta ishús, sem hér var reist, og áður liefur verið getið í þessum þáttum. 58. Ólafsvellir. Þar byggir fyrst bæ Ólafur Jónsson 1872 og nefnir Ólafsvelli. Er þessa býlis fyrst getið í manntalinu i desember 1872. Þá er Ólafur talinn 39 ára, en kona hans Guðrún Bjarnadóttir 25 ára. Ólafur var fæddur að Krossi í Lundareykjadal. Móðir Óla'ís mun hafa verið Guðrún Þorbjarnar- dóttir frá Kvíum i Þverárhlið. Heyrt hefi ég, að foreldrar Ólafs mimi einhvern tím- ann hafa búið í Skipanesi, en ekki hef ég kannað þetta. Eigi munu þau hjón á- vallt hafa verið við bú á eigin spýtur, þvi að móðir Ólafs var eitt sirm vinnukona i Kalmanstungu, hjá Einari Þórólfssyni, og með Ólaf son sinn, en þá var maður henn- ar vinnumaður á Húsafelli, og þar með honum Björn sonur þeirra. Björn þessi var faðir Ásgeirs, sem lengi var í Bakka- koti, og siðas.t í Aðalbóli. Dóttir hans er og Sigurbjörg, tengdamóðir Finns Árna- sonar. Guðrún kona Ólafs á Ólafsvöllum, var dóttir Bjarna í Galtarvík, Bjarnarsonar frá Kalastöðum. Bjami, oddviti á Sýruparti, Guðrún í Merkigerði og Guðrún á Ólafs- völlum voru bræðrabörn. Áður en Ólafur kvæntist og byrjaði bú- skap lærði hann sjó lijá Tómási á Bjargi. Hann mun og um mörg ár hafa verið vinnumaður hér á Akranesi. M. a. hjá Gunnhildi ljósmóður á Bakka. Kristrúnu á Bjargi, Elínu á Háteig og Hallgrimi hreppstjóra. Þessi voru böm Ólafsvallahjóna, er til aldurs komust: 1) Bjarni, nú á Ólafsvöllum, og hér verð- ur nánar getið. 2) Jón, byrjaði búskap á Ólafsvöllum, og einnig verður hér minnst. 3) Guðrún, tengdamóðir Ólafs Jónssonar frá Bræðraparti, útgerðarmanns i Sandgerði. 4) Guðlaug, saumakona, nú i Ásgarði, hér í bæ, og verður siðar getið í sambandi við Hlíðarhús og Ásgarð. g) Guðrún Árný, ógift, nú til heimilis á Litlateig. 6) Ólafur, skósmiður í Ásgarði, og verður nánar getið þar. Guðrún á Ólafsvöllum andaðist g. mai 1912, og er þá talin 63 ára að aldri, en Ólafur deyr 11. júní 1919, og er þá talinn 86 ára gamall. Ólafsvallalóð var af Efstabæjarlandi og var í upphafi allstór. Er hið nýlega bæjar- hús byggt á Óafsvallalóð. Það mun vera árið 1902, sem bræð- urnir, Bjarni og Jón taka við á Ólafsvöllum og byggja þar a'llstórt timburhús. Siðar eignaðist Bjarni það hús einn, reif það 193 7 og byggði sama ár steinhús það, sem hann á nú i félagi við tengdason sinn Jó- hann S. Jóhannsson. Það stendur á Ólafs- vallalóð, en er staðsett við Akurgerði 22. Jón Ólafsson kvæntist 13/10—1903 Ágústu Tómínu Hákonardóttir. Foreldrar hennar voru þau Alfifa Eiríksdóttir frá Breiðinni og Hákon Sigurðsson, sjómaður á Háteig, f. 13. des. 1832. Hákon þessi var einn þeirra, er drukknaði með Þórði Guðmundssyni á Háteig í hinu mikla mannskaðaveðri í janúar 1884. Foreldrar Hákonar voru þau: Sigurður Hinriksson bóndi á Heynesi og kona hans, Gróa Há- konardóttir. Árið 1833 búa þau á Heynesi, hann 34, ára, en hún 32 ára. Hjá þeim eru þá þessi börn þeirra: Sesselja 3 ára, Sig- urður 2 ára og Hákon 1 árs. Þá er þar og hjá þeim Hinrik Guðmundsson, hús- maðmyi árs, og er það að líkindum faðir Sigurðar. Jón á Ólafsvöllum var duglegur sjó- maður og góður drengur, en varð skamm lifur. Hann drukknaði á gufuskipinu Geraldine 27. nóv. 1908. Þau hjón, Jón og Ágústa áttu tvær dætur: í) Friðmeyju, sem er gift Viktor Björns- syni. 2) Guðrúnu, sem er gift Þórði Bjarnasyni frá Sjóbúð. Framhald í næsta blaði. AKRANES 66

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.