Akranes - 01.10.1953, Side 3
r
OLAFUR helgi Noregskonungur hefur átt mikil ítök í hugum fólks
hér á landi. því a. m. k. 16 kirkjur hafa veriö helgáðar Ólafi kon-
ungi. Það vekur undrun, hve Ólafs-dýrkun er hér lengi viö líöi, langt
fram yfir siöaskipti. í Þjóöminjasafninu hér eru til tvœr líkneskjur af
Ólafi helga. Önnur þeirra er gefin Kálfafellsstaðakirkju 1698, eöa rétt.
eftir 1698, af síra Jakobi fíjarnasyni presti þar. Líkneskjan er skorin í tré
og hefur verið vcl máluö á sínum tí(ma og gyllt. Styttan sjálf er 1 m
á hœö, en fótstallurinn undir henni er 3/ cm.
IJin líkneskjan er 67,5 cm á hæö, líka skorin úr tré, er hann þar
í riddarabúningi.
Enn er til í Þjóöminjasafninu altaristafla meö mynd af Ólafi helga,
(líkl. íslenzk), frá síðari hluta 17. aldar. Hún er gefin Berufjaröarkirkju
af Jóni sýslumanni Þorlákssyni (d. 1712). Jón þessi var sonur Þorláks
biskups Skúlasonar og konu hans Kristínar Gísladóttur, lögmanns Há-
konarsonar. Ó. fí. fí.
Dóikirkjon í Kiðarósi
ÞAR á melnum, sem Ölafr. koungur
hafði í jörðu legit, kom upp fagr
brunnur, og fengu menn bót meina sinna
af því vatni. Var þar veittr umbúnaður, ok
hefir þat vatn verið jafnan síðan vandliga
varðveitt. Kápella var fyrst gör og þar sett
háaltárit, sem verit hafði leiðit konungs-
ins, en nú stendr í þeim stað Kristskirkja.
Lét Eysteinn erkibiskup þar setja háalt-
árit í þeim sama stað, sem leiðit hefði ver-
ið konungsins, þá er hann reisti þetta it
mikla musteri, sem nú stendur; hafði ok
verið i þeim stað altárit í fornu Kristkirkju
Svá er sagt at Ólafskirkja standi nú þar,
sem þá stóð sú eyðiskemma, er lík Ölafs
konungs var náttsett i. Þat er nú kallað
Ólafshlíð, er heilagur dómr konungs var
borinn upp af .skipi, og er þat nú í miðj-
um. bænum.“
Þannig lýsir Snorri stofnun hinnar elztu
Kristkirkju í Niðarósi í Ólafs sögu helga,
©n í Ólafs sögu kyrra segir, að Ólafur
kyrri „lét gera steinmusteri í Niðarósi ok
setti i þeim stað, sem fynst hafði verið jarð-
at lík Ólafs konungs og var yfir sett altárit.
Urðu þá þegar margar jartegnir . . . .“ Og
í lok þeirrar sögu segir Snorri að „lík Ól-
afs konungs (kyrra) var flutt norður til
Niðaróss ok jarðsett at Kristskirkju, þeirri
er hann lét sjálfur gera.“ Og hefði Ólafur
kyrri þó lengstum setið í Björgvin og látið
gera veglega kirkju úr steini þar. Samt
kaus hann sér legstað í Kristskirkjunni í
Niðarósi, og sýnir það, að helgi hennar
hefur þá þegar verið talin meiri en ann-
ara kirkna í Noregi.
-----Og svo er það enn. Dómkirkjan í
AKRANES
Niðarósi er helgidómur allra landa, á sama
hátt og Ólafur helgi Haraldsson er fræg-
asti dýrlingurinn á Norðurlöndum.------
Eftir fall Óla'fs helga á Stiklastöðum,
29. júlí 1030 fóru að berast sögur um yfir-
náttúrlega atburði í sambandi við hann.
Meðal annars um lækningamátt lindar-
Helgimynd af likneskju Ólafs helga, úr safni
Arna Magnússonar Á. M. 673 a III. 4. to.
AKRANES
XII. árg. okt.—des. 1953. — 10.—12. tbl.
Otgefandi, ritstjóri og ábyrgSarmaSur:
ÓLAFUR B. BJÖRNSSON
AfgreiSsla: MiÖteig 2, Akranesi,
PRENTAÐ I PRENTVERKI AKRANESS H.F
innar, sem spratt upp á eyrinni við Nið,
þar sem vinir Ólafs höfðu grafið hann á
laun nokkrmn nóttum eftir að hann féll.
Það var iðrun þjóðarinnar, sem olli þess-
um átrúnaði; hún sá, að Ólafur helgi
hafði verið norskur sjálfstæðismaður, en
andstæðingar hans, er veittu Sveini Knúts-
syni hinum danska lið, landráðamenn. Nú
reis sjálfstæðisaldan svo hátt, að Sveinn
og hans menn gátu ekki rönd við reist, og
veturinn eftir fall Ólafs mun lík hans
hafa verið í Klemensarkirkju á Niðarósi,
sem Ólafur Tryggvason hafði látið byggja.
Og einu ári eftir ifall Ólafs helga var
kista hans vafin í „pell og purpura“ og
■sett yfir háaltari kirkjunnar. Þetta gerð-
ist 3. ágúst 1031.
En á melnum við Nið var reist bæna-
hús og stóð altari þess yfir lindinni. Og i
Saurhlíð, þar sem likið hafði verið falið
nóttina áður en það var grafið, lét Magn-
ús konungur Ólafsson siðar reisa konungs-
garð sinn í Niðarósi ásamt kirkju, til minn-
ingar um föður sinn. Haraldur harðráði
fullgerði þessa kirkju kringum 1050 og
var lík Ólafs þá flutt þangað úr Klemenz-
arkirkju. Eftir þessa kirkju sjást nú engar
menjar, en undirstöður yngri kirkju, sem
reist var þarna á 12. öld og brann 1331,
fundust 1886. Á þeim stað stendur nú
ráðhúsið í Niðarósi.
Á dögum Ólafs kyrra var föst skipun
gerð á biskupsdæmum i Noregi. Undir
biskupinn í Osló féllu þá Eiðsifja- og Borg-
arþing, en Gulaþing undir biskupinn á
Selju og Frostaþing imdir Niðaróssbiskup.
Voru biskupa- eða dómkirkjur reistar á
þessum stöðum og hin nýja dómkirkja i
Niðarósi fullger árið 1093, þar sem bæna-
húsið á melnum hafði áður staðið. Kirkj-
an var úr steini, helguð Ólafi Haralds-
syni og altarið stóð þar, sem hin fyrsta
gröf hans liafði verið. En sagnirnar um
Ólafsbrunn rekast á og er svo að sjá að
brunnarnir hafi verið tveir. En í hina
nýju kirkju, sem síðan hét Kristskirkja
eða Ólafskirkja, en venjulega er kölluð
Dómkirkjan i Niðarósi nú á dögum, var
'fluttur helgur dómur Ólafs. Þessi kirkja
er venjulega talin byggð af Ólafi kyrra,
þó að ekki entist honum aldur til að full-
íii