Akranes - 01.10.1953, Side 8
Skálinn eins og hann er nú.
I höfuðstöðvunum.
I fyrri grein minni um þetta efni, i 1.—
3. tbl. þ. á., minntist ég aðeins á byrjrm-
ar starf síra Friðriks, ennfremur Sunnu-
dagaskólastarfið, svo og Kvöldskóla K. F.
U. M. 1 þessari grein hefr hins vegar ver-
ið lítillega minnst á útilíf og sumarstarf
'félagsins. Hefur hér aðeins verið talað um
starfið fyrir drengina. Ekki er það þó af
gleymsku, sem gengið hefur verið fram hjá
K. F. U. K., en vonamdi gefst síðar tæki-
færi til að gera því einhver skil, svo mik-
ilvægt, víðtækt og giftudrjúgt sem það
einnig hefur verið. K. F. U. K. hefur einn-
ig hafið sumarstarf, og komið sér upp
skemmtilegu sumardvalarheimili í Vind-
áshlíð á Kjós.
Árið 1935 var reist mikil viðbygging
við húsið, úr steini, og gamla húsið mik-
ið endurbætt.
Árið 1946 skenxmdist húsið mikið af
eldi, sem orsakaðist af bruna annars húss
í nágremnimu.
Vetrarstarfið í húsi félagsims fer í aðal
atriðum fram sem hér segir:
Húsið er á þremur hæðum. Á efstu
hæðinni eru raunverulega 3 stórir salir.
Þá tvo, sem liggja með suðurhlið húss-
ins, er þó hægt að gera að einum sal, og
tekur hann þá 350—400 manns í sæti. Á
hverju sunnudagskvöldi allt árið um kring
eru þarna haldnar almennar samkomur.
Venjulega að vetrinum er stærri salurinn
fullsetinm, þ. e. um 200 manns, en við sér-
stök tækifæri, og einnig, þegar haldnar
eru Æskulýðsvikur, eru báðir salirnir þétt
setnir og nokkrum sinnum kemur fyrir,
að staðið er í ganginum. Á sumrin mætir
þar nokkru færra, eða um 150 manns.
Að vetrinum til er húsið ákaflega mikið
notað. Á sunmudögum, byrjar sunnudaga-
skólinn eins og að hefur verið vikið áður.
Kl. U/2 þann dag mæta svo 10—13 ára
drengir og eru oftast mikið á þriðja hundr-
að. Á sama tíma er svo fundur í svonefndri
Vinadeild — í öðrum sal — þar mæta
drengir undir 10 ára aldri, og eru venju-
lega hátt á annað humdrað. Stundum fylkja
þeir svo liði, að tvískipta þarf deildinni
og fara þá með nokkum hlutann í annan
sal á neðri hæð hússins.
Þessi starfi stjórnar fyrst og fremst síra
Magnús Runólfsson með aðstoð Ingvars
Ánnasonar, ásamt rúmlega 20 sjálfboða-
liðiun, sem hver sér um sína deild eða flokk
barna í hinum ýmsu bæjarhverfum og
fylgjast með þeim eftir því sem þeir geta.
Á virkum dögum halda þessar deildir svo
sérfundi, hver fyrir sína sveit, um það bil
hálfsmámaðarlega .1 hverri sveit eru frá
40—80 drengir. Á öllum þessum fundum
er mikið sungið, sagðar og lesnar sögur, svo
og lesið Guðs orð.
Á sunnudögum kl. 5 eru svo 'fundir fyrir
drengi frá 1314—17 ára (Unglingadeild),
en þar mæta frá 40—60 drengir.
I aðaldeildimni eru svo 17 ára ungling-
ar og eldri menn. Hún heldur fimdi á
fimmtudögum og mæta þar venjulega frá
60—80 félagar.
Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði eru
haldnar svonefndar fórnarsamkomur, en
á þeim sa.fnast árlega um 20—25 þúsund
kr. Á kristniboðsviku, sem haldin var í
haust komu inm 14 þúsund kr.
I haust fékk félagið nýtt forkunnargott
orgel, en þegar það var vígt til starfsins,
söfnuðust 5000 kr. til þess að flýta fyrir
því, að það yrði skuldlaust. Ýmsir góðir
félagar hafa oft verið örlátir við K. F. U.
M. og K., t. d. gaf einn félagi 25 þús. kr.
til byggingar nýs félagshúss í Laugarnesi.
Einnig til byggingar kapellunnar í Vatna-
skógi o. fl.
Hvern dag er húsið meira og minna
notað af ungu fólki, .sem er þar að leik eða
alvarlegu starfi. Þar eru setustofur, þar
sem lesið er eða teflt, eða spilaður borð-
tennis. Þar halda sveitarstjórar sérstaka
fundi til þess að ræða og skipuleggja starf-
ið, svo og til að uppbyggja hver annan.
Þá er og starfandi í félaginu 20 manna
blandaður kór. Einnig hefur K. F. U. K.
sérstakan kvennakór, en báðir 'kórarnir
syngja á fundum og við hátíðlega tæki-
færi.
I skjóli þessa starfs hafa einnig vaxið
upp kristileg skólasamtök, sem hér halda
einnig fimdi sína. Sömuleiðis kristilegt
Stúdentafélag, sem og heldur hér fundi og
býður þá þangað skólafólki.
I Laugamesi er búið að byggja
hluta hins nýja húss, þar sem fund-
ir em haldnir tvisvar í viku. Þar
mæta að jafnaði yfir 100 drengir og
40—50 unglingar.
Þá hefur félagið einnig fest sér lóð
við Langagerði, og verður þar vænt-
anlega hafið starf á þessum vetri.
Snemma stofnsetti sr. Þ. Briem K.
F. U. M. í Hafnarfirði. Þegar sr. Frið-
rik er hér á landi, fer hann þangað
að jafnaði á hvern fund. Það fólag
hefur einnig sumarstarf í Kaldárseli.
Á þessu örstutt yfirliti um starf-
semi þessa merka 50 ára félagsskapar má
sjá, að hér er um umfangsmikla starfsemi
að ræða. Starf, sem krefst mikillar um-
sjónar og mikillar vinnu, eigi aðeins ör-
fárra, heldur margra. Það þarf ekki ann-
að en koma í hús félagsins til að sjá, að
þar er öllu vel við haldið, og hugsað um
allt af ást og umhyggju sívakandi fólks
fyri-r ábyrgu starfi.
Þeim, sem sjá þessar eignir og það starf,
sem hér er af höndum innt, kemur sjálf-
sagt til hugar, að fé til þess ha'fi seint og
snemma verið sótt í bæjar- og rikissjóð.
Þangað hefur aldrei verið kvakað, og það-
an hefur að vonum aldrei verið boðinn
styrkur til þessa starfs. Þegar til þessara
aðila yrði kvakað um fjárframlög til þess
að halda uppi hinu sikvika starfi K. F.
U. M., væri lítið eftir af þeim áhuga og
innri eldi, sem um áratugi hefur borið
starfið uppi, og þegar svo væri komið,
yrði þá heildar- árangur eftir því.
Flest önnur félög í landinu heimta bygg-
ingarstyrki og ölmustugjafir í einhverri
mynd af riíki eða bæjum — oft og tíðum —
til lítilfjörlegs, og óraunhæfs starfs. Nú
kostar K. F. U. M. um 100 þús. kr. árlega
að reka hús sitt eða þess mikla starf.
Þessa miklu fúlgu sækja þeir í eigin sjóði
sína, sem þeim hefur áskotnast á löngum
tíma, eða þeir greiða sjálfir sem fórnir,
þótt árgjöld séu engin fyrir drengina,
heldur eldri félaga, sem greiða eftir ástæð-
um og geðþótta, minnst 10 og mest 200 kr.
Hér er þvi unnið mikilvægt starf til
heilla uppvaxandi æsku hins fjölmenna
bæjar, þar sem hætturnar eru á hverju
leiti, og hinum ungu þvi svo hætt við hrös-
un. Hér er slegið Skjaldborg um kirkju og
kristindóm og myndaður traustur kjarni
kristilegs safnaðarlífs. Félagið er beinlín-
is verndari hins unga fólks. Einda hafa
margir þá sögu að segja, og margir stað-
festa, að í þess raðir sæki þeir helzt ung
linga til starfs, því að þar 'fer venjulega
saman staðfesta og þroski heimilanna, sem
mótast af sambandinu við hinn ágæta fé-
lagsskap. Þennain félagsskap þyrftu fleiri
bæir og héruð að taka sér til fyrirmyndar,
og hjálpa til að byggja upp, til þess að vei'ta
æskunni skjól fyrir nístandi næðingum
efnis'hyggju vorrar aldar.
116
AKRANES