Akranes - 01.10.1953, Qupperneq 20

Akranes - 01.10.1953, Qupperneq 20
sumar. Á Nanfastöðum var útræði til forna, „hvað aflagt hefur verið vegna brims og útgrynna." Eins og hér- má sjá, hafa sjóróðrar ver- ið stundaðir frá æðimörgum jörðum, eða réttara sagt fleztum, er liggja að sjó, beggja megin Hvalfjarðar, svo og á öðrum sjávarjörðum í landnáminu. Á mörgum þessara jarða var nokkuð stundaður sjór fram undir síðustu aldamót og á sumum þeira lengur. tJr Melahverfi er stutt á ýmis góð lúðumið, enda notfærðu bændur sér tíðum þau hlunnindi, alveg fram um síðustu aldamót. Sjór var jafnvel sóttur af jörðum innan Grundarfjarðar fram und- ir siðustu aldamót. Allt þetta sýnir fiskauðgi flóans, meðan ekki var sorfið óhæfilega með stórvirk- ustu drápstækjum, svo að segja upp í land- steina. Það sýnir einnig dugnað og ár- vekni búendanna, sem sumir hafa auðvit- að stundað sjóinn af brýnni þörf, a. m. k. á hinum smærri og rýrari jörðum, sem ekki báru nema Ktiiin fénað, ónógan til uppeldis þeim og skylduliði þeirra. Eins og hér má sjá, hafa menn lengi litið til sjávar á þessu landsvæði. Eigi að- eins á Skipaskaga sjálfum, heldur á hinum beztu bújörðum héraðsins, sem hinum rýr- ari, því utan Skarðsheiðar eru sjóróðrar stundaðir heima, meira og minna árið um kring á hvorki meira né minna en a. m. k. 36 jörðum á þessu svæði, eins og hér heíur glögglega mátt sjá. Þó er hér ekki öll sagan sögð, 'því á eftirtöldum jörðum hvílir sú kvöð á leigu- liðum af hendi landsdrottins, að leggja til mann í skiprúm á Akranes: Stóra-Botni, Litla-Sandi, Mið-Sandi, Hraifnabjörgum, Ferstiklu, Fúsakoti, Kúhallar-Eyrum, Geitabergi, Draghálsi, Márstöðum i Svina- dal, Kambshóli, Eyri, Hlíðarfæti, Hóli, Tungu, Efra-Skarði, Ytra-Miðfelli, Mýrar- koti, Kalastöðum. Kalastaðakoti, Katanesi, Stóru-Fellsöxl, Klafastöðum, Grund, Kúlu- dalsá, Vik, Kjaranstöðum, Reyni, Krossi, Akrakoti, Hvítanesi, Bekanstöðum, Kjal- ardal, Litlu-Fellsöxl, Litla-Lambhaga, Vogatungu, Neðra-Skarði, Melkoti, Leir- árgörðum báðtun, Læk, Skipanesi, Skor- holtum báðum, Bakkakoti, Eystra-Súlu- nesi, Syðri- og Nyrðri-Melahjáleigum, eða samtals 50 jörðum. Ennfremur innan Skarðsheiðar frá þess- um jörðum: Neðri-Hrepp, Homi, Mófells- stöðum, Mófellsst.koti, Indriðast., Stóru- Drageyri, Ytri-Svanga og Eystri Svanga, Háafelli, Vatnsenda, Grund, Hálsum, Ytri- Skeljabrekku, Innri-Skelajbrekku, Ausu, Kistu, Ásgarði, Hvanneyri, Tungutúni, Sviíra, Bárustöðutm, Hamrakoti, Bakka- koti, Langholti, Bæ, Fossakoti, Syðstu- Fossum, Snartastöðum, Hóli, Englandi, Brennu, Brautartimgu, Oddsstöðum, Arn- þórsholti, Múlakoti, Litla-Kroppi, Klepp- jámsreykjum, Hurðarbaki, Uppsölum, Ulfsstöðum, Rauðsgili. Þá er þessi kvöð nýfallin niður á Búr- felli. Mannslán til sjóróðra á Akranesi hvílir þá einnig á Kalmanstungu. Innan Skarðsheiðar eru þetta því samtals 43 jarðir. Á eirmi jörð í Kjós, Þrandastöðum í Brynjudal hvílir þessi kvöð einnig. Af þeim jörðum, sem þessi kvöð hvíl- ir á, eru 16 eign Skálholtsstóls, 5 eign Saurbæjarkirkju, 4 eign Melakirkju og 1 eign hálfkirkjunnar á Kalastöðum. Undan þessari kvöð gátu menn a. m. k. stundum leyst sig með 10 álna gjaldi. 1 sumum tilfellum mátti og leysa hana með fjórðungi smjörs. Ef miðað væri við núverandi verðlag á 5 kg. smjörs, mundi það svara til kr. 240,00, en langt fram yfir siðustu aldamót svaraði það til kr .6,00. Ymislegt bendir til, að miklar sigling- ar hafi snemma verið í Hvalfjörð, enda eru þar hreinar leiðir og gott að lenda. Siglingar haldast þangað lengi, þvi að enn á dögum Brynjólfs biskups er siglt þangað og er þar samhliða mikil verzlun. Einnig hefur nokkur sigling verið i Grunnafjörð (Leirárvog), þvi að sagt er, að skip ihafi verið hundin við Skipanes, og þaðan er vafalaust komið nafnið á þeirri jörð. Þar er og til hinn svonefndi akker- issteinn. Illt hefur verið þarna aðkomu til innsiglingar nema í góðu veðri, en ör- uggt, þegar inn var komið og góður botn. Kornyrkja. Ymis bæjanöfn hér benda eindregið til þess, að hér hafi komyrkja verið í fomöld. I næst síðasta blaði, skírskotaði ég — að því er tekur til Akraness ■—- til merkrar ritgerðar Björns M. Olsens Um komyrkju á íslandi að fomu. Vil ég enn skírskota til þessarar ritgerðar viðvíkjandi Leirár- og Melasveit, en þar segir svo: . . . .„2. Ás í Melasveit. 1 máldaga Mela- kirkju ca. 1181, er getið um „akurgerði" austan við gil, sem garður liggur að „ofan úr túngarði í Ási.“ ,JÉg gct þess hér þegar, að bæjamöfnin Gerði em oft stytt, fyrir Akurgerði, sem líka er 'haft um bæjamafn. Slík nöfn geta því minnt á akuryrkju, enda em þau lang- almennust í þeim sveitum, þar sem kom- yrkja var helzt stunduð. Ég sét þau þvi í ömefnaskrámar hér á eftir.... Sama er að segja um nöfnin Garður, Garðar, Tröð, Traðir, Lönd o. s. frv., sem geta verið stytt fyrir Akurgarður, -ar, Akurtröð- traðir, Akurlönd o. s. frv.“ Kunnugir menn ættu að geta fundið leifar þessa akurgerðis, ef nokkrar em, eftir þessari tilvísun. (1 Fombrs. I. 272 bls.). Sama stendur enn í máld. sömu kirkju frá ca. 1478 (í Fornbrs. VI. 175. bls.). ömefni: I Leirársveit: Akur, eyðihjá- leiga frá Leirá, Johnsens jarðatal 111. bls., líkl. sapia og nefnt er „Akurey í Vogum,“ þ. e. Leirárvogum í máldaga fyr- ir Leirárkirkju ca. 1500. (I Fornbrs. VII. 58. bls.“ .... „. . . . Greinilegar leifar sáðlands hefur Þórhallur biskup Bjarnar- son séð í Lækjarnesi, norðanvert við Leir- árvoga, að því er hann skýrir mér frá. Hann hefur það og eftir Böðvari bónda Sigurðssyni í Vogatungu, að þar hafi fund- ist í túni bæjarins glöggar leifar sáðgarða, er túnið var sléttað.“ Einnig þykir mér líklegt, að bæjarnafn- ið Leirárgarðar bendi eindregið til þess, að þar hafi upphaflega t. d. verið .kom- akrar frá Leirá, en síðar orðið sjálfstæð býli. Skógar. Allt land í Borgarfjarðarsýslu sunnan Skarðsheiðar hefur verið skógi vaxið, þótt mjög orki tvíímælis, hvort nokkurs staðar 'hafi bann verið svo stór sem Landnáma vill vera láta i Hvalfixði. Hinar allmiklu skógarleifar, sem enn em til hér sanna þetta. Víðast þar sem skógur er eyddur á þessu svæði, sanna skógarleifar í jarð- veginum, að sami skógur haifi verið á milli fjalls og fjöru. Langt mun síðan skógur hvarf úr hinu upphaflega landnámi Akraness. Því þótti mér það næsta merkilegt er Pétur Otte- sen alþm. sagði mér nýlega: Að í landar- eign Ytra-Hólms — og ef til vill viðar þar i námunda, — hafi hann hin síðustu ár séð á nokkrum stöðum nýgræðings birki- plöntur teygja sig upp úr grasinu. Virð- ist þetta þv!í vera ein sönnun þess, að þarna hafi skógur verið, og að auðvelt væri að láta björkina nema þar land á ný. Þá sagði Pétur annað, sem gaman væri að jarðfræðingar vildu kynna sér og rann- saka, en það er þetta: Hér í nágrenninu eru miklar skógarleifar í jarðveginum. Það þykir honum einkennilegast í þessu sam- bandi, að þar eru stofnar og rætur upp, en limið niður, eins og „kollsteypan“ hafi ótt sér stað frá austri eða suðaustri — til vesturs, og sé mest áberandi vestan undir holtum, sem liggi frá norðri til suð- urs. Þessir lurkar virðast honum — að sverleika — vera mjög líkir því sem bezt gerist í þeim skógum, er hann þekkir til, og enn eru við liði. Þar sem Jarðabók Árna Magnússonar frá 1706 er ein bezta heimild um þetta efni, mun ég tilfæra hér það, sem hún hefur að segja um þetta efni. Mun ég einnig þar á eftír gera nokkra grein fyrir, hvemig skógunum hefur vegnað síðan á þessu svæði. Framhald í nœsta blaZi. 128 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.