Akranes - 01.10.1953, Blaðsíða 29

Akranes - 01.10.1953, Blaðsíða 29
Aflaföng: Akurey: J3/io mest karfi.................... 63.000 kg. 9/11 ísfiskur ..................... 40.000 — Saltfiskur ................... 101.00 — 23/11 Isaður þorskur............... 231.300 — 7/12 mest þorskur ................ 194.000 — Abkomuskip: 5/10 Hafliði, með karfa.......... 174.000 — 6/11 Gylfi, með karfa............ 310.500 — 15/n Öl. Jóhanness ca. helmingur afla ....................... 155.000 — 21/11 Gylfi ca. helmingur afla .... 154.000 — 4/12 Gylfi, (allur afli) ........ 163.000 — 4—6 mótorbátar hafa róið frá mánaðamótum okt.—nóv. Hefur aflinn verið frá 3—7 tonn, þorsk- ur og ýsa. Varnað landbroti. 1 haust hefur verið byrjað á að varna frekara landbroti í Krókunum. Hefur verið keyrt þangað um 3000 tonnum af stórgrýti. Er gert ráð fyrir að landeigendur geri í vor viðbótárráðstafanir til þess að þetta komi að fullkomnum notum. Til þessa verks lagði Sparisjóður Akraness 100 þús. kr., en það sem komið er mun hafa kostað 116 þús. kr. Elding h. f. annaðist grjótkeyrsluna. Til kaupenda. Kæru vinir! Enn þá er mér Ijúft og skylt aS þakka ykkur fyrir liðið ár, fyrir hina traustu, staðföstu vináttu ykkar við mig og blað- ið. Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika og agnúa, hefur mér ekki komið til hugar að breyta um efni blaðsins að meiru éða minna leyti í efnislaust þvaður, til þess að fjölga kaupendum, — eins og sumir gera nú til þess að grœða peninga. — Ég mundi miklu fremur vilja hœtta við útgáfuna, heldur en að sigla „háan vind með slíkum seglum.“ Ég hefi œtlað mér að reyna að þrauka „þorrann og góuna“ þangað. til að það tækist að út- vega ritinu svo marga kaupendur „hugs- andi fólks,“ að því vœri borgið. Ykkur, kœru vinir, þakka ég fyrir þann skerf, sem þið hafið lagt, til þess að ritið mætti lifa, — og rœkja það hlutverk eftir megni, — sem það hef- ur þjónáð til þessa. Um leið og ég þakka ykkur þetta, óska ég ykkur öllum, vinum ykkar og vandamönnum, gléðilegra jóla, heilla og blessunar á komandi ári. Vinsamlegast Ól. B. Björnsson. A K R A N E S Akraness Hjúkrunarvörur, Hreinlætisvörur og alls konar fegurðarvörur. Gléöileg jól! Þökk fyrir viðskiptin PnL Pn roppe Sími 57. DÓMKIRKJAN I NIÐARÖSI Framhald af síSu 112. selja bæjarbúum stein úr vesturturnum kirkjunnar. Laust eftir aldamótin 1700 var þó áform- að að reyna að koma langhúsinu undir þak aftur. En þá kom nýr bruni í Niðarósi, 1708, og eyðilagði 460 hús og skemmdi kirkjuna, og aftur brann kirkjan árið 1719. Var þá dyttað eitthvað að hákómum og langkómum, og í þessu ástandi var kirkj- an þangað til endurreisn hennar var haf- in fyrir rúmum 80 árum. Þama i gólfinu er legstaður Magnúsar Ólafssonar, Ólaifs kyrra, Hákonar Magn- ússronar, Ólafs Magnússonar, Eysteins Magnússonar, Hákonar herðubreiðs, Gutt- orms Sigurðssonar og Inga krypplings, en ekld þekkjast aðrar þessara konungagrafa en Hákonar herðubreiðs og Inga. Einnig þekkja menn grafir Erlings skakka og Skúla jarls, og erkibiskupinn Eysteinn er grafinn í skrúðhúsinu. Kristskirkja í Niðarósi eignaðist að sjálf- sögðu fleiri helgi- og dýrgripi en nokkur kirkja önnur í Noregi, en iflestir eru þeir glataðir nú. Sigurður Jórsalafari hafði með sér „brot úr krossi Krists," er hann kom að austan, og gaf kirkjunni, og silfur- kross einn mikinn gaf systursonur Ólafs helga kirkjunni og var hann jafnan borinn fyrir skrúðgöngunni, er fram fór á Ól- afsmessu, 29. júlí. Sá kross er löngu glat- aður, en árið 1930 gáfu Norðmenn vest- an hafs kirkjunni annan silfurkross, sem nú stendur í kórdyrum og er um mann- hæðar hár. Merkasti gripur kirkjunnar til foma var þó skrin Ólafs helga. Var þar innst silfurkista, sem vóg 6500 lóð og ut- an um hana tvær eikarkistur og var sú ytri prýdd gulli, silfri og gimsteinum. Ei- ríkur Walkendorf ríkisstjóri lét t. d. greypa í kistuna gimstein, sem hann hafði keypt fyrir 240 tunnur smjörs.------ Þegar Norðmenn fóru að vakna til með- vitundar tnn sjálfstæði sitt, eftir hina löngu vanmættisnótt, sem undirlægjur Dana, fundu þeir sárt til þess ófremdar- ástands, sem ýms forn mannvirki þeirra voru komin í. Um miðja öldina sem leið settu þeir nefnd til að vinna að endurreisn hinnar fomu dómkirkju. Og árið 1868 var byrjað á kirkjuviðgerðinni, samkvæmt áætlun húsameistarans Heinrich Schirmer, en norski húsameistarinn Ghristie hafði tunsjón með framkvæmdum í 34 ár, eða til ársins 1906. Eftir fráfall hans var mjög deilt um fyrirkomulag á þeim hlutum kirkjunnar, sem gerfallnir voru, og urðu fræg afskifti sagnfræðingsins Macody Lund, er kom fram með mjög sérkennileg- ar tillögur um gerð kirkjuimar, í riti einu miklu, er hann samd iog nefndi „Ad quadr- Tilkynning til sparifjáreigenda Athygli sparifjáreigenda er vakin á þvií, að frestur til að sækja um bætur á sparifé hef- ur, samkvæmt ákvörðun við- skiptamálaráðuneytisins, verið framlengdur til næstu áramóta. Þeir einir, sem áttu sparifé í innlánsstofnunum frá 31. des- ember 1941 til 30. júni 1946, eiga rétt til bóta. Sjá fréttatil- kynningu bankans um mál þetta. LANDSBANKI ÍSLANDS. 137

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.