Akranes - 01.10.1953, Page 31
UM JÓLIN I NORÐLENZKRI
SVEIT
Framhald af síSu 113.
r
lengst. Þar lutum við strákarnir í lægra
haldi. Við gátum ekki geymt matinn svo
að nokkru næmi. Við vorum alltaf að
narta í hann. — Auk þessa skammts,
fengu menn einhvers konar graut og mjólk,
og svo kaffi með brauði, er fram á jóla-
vökuna leið. Meið diski hvers manns fylgdi
einnig jólakerti, heimastypt lir tólg. Strax
sem við krakkarnir höfðm fengið jólakert-
in o'kkar hehnasteyptu, kveiktum við á
þeim. Við kveiktum einnig á útlendu smá-
kertunum, en sárt var okkur um þau. Þau
voru svo fljót að brenma upp. — Ekki veit
eg til, að aðrar jólagjafir tíðkuðust þá en
þær, að þess var jafnan gætt, að hver mað-
Ur fengi eirihverja nýja spjör til að fara
í um jólin: sokka, illeppa, skó o. s. frv.
Annars gat svo farið, að menn „klæddu
jólaköttinn" eða jafnvel lentu í klónum
a honum, en við ihann vorum við krakk-
arnir býsna hrædd.
Eftir matinn hófust svo samræður í
baðstofunni. Menn sögðu jólaminningar
sínar, töluðu um jólatilhald á hinum og
þessum staðnum, minntust kirkjuferða og
dæmdu um jólamessur, ræddu um presta,
sem þeir ihefðu heyrt til o. fl. o. fl. Var al-
mennt öllu lengur vakað fram eftir á jóla-
nóttina en aðrar nætur. En áður en geng-
ið var til náða, var ljósum fækkað að mikl-
um mun, en þó var látið loga á ýmsum
stöðum í bænum þessa einu nótt á árinu.
Sannarlega sofnuðum við krakkarnir
sæl og ánægð þetta kveld. Við vorum svo
hjartanlega ánægð með kveldið, þó að ykk-
ur, börnunum, sem nú búið á borgum og
kaupstöðum, kunni að þykja lítið til þess
koma i samanburði við ykkar jól. ÞaS kveld
gleymdum viS ekki aS lesa bænirnar okkar,
■— því megið þið trúa, enda gerði fullorðna
fólkið það líka. I hverju rúmi var beðizt
fyrir, annað hvortí hljóði, hálfhátt eða
upphátt, meðan jólaljósin blikuðu og helgi-
Ijóma stafaði um litlu, lágreistu baðstof-
una, og jólafriðurinn gagntók hjörtu gam-
alla og ungra. —
Jæja, kæru börn, — þá er nú þessum
þætti að ljúka. Ég óska ykkur öllum góðra
og blessaðra jóla. Guð gefi ykkur öllum
frið og fögnuð jólanna. Þið farið sjálfsagt
í barnamessu um jólin, þið Akranesbörn,
til séra Jóns. Ég ætla að reyna að koma
líka — í anda. Ég hlakka til að sjá ykkur.
Ég veit, að þið verðið siðprúð og elskuleg.
■— Gleðileg jól, ritstjóri góður og vinur!
Vald. V. Snœvarr.
PILSNER,
BJÓR,
MALTEXTRAKT,
HVlTÖL,
SPUR COLA,
ENGIFER ÖL,
APPELSÍN LÍMONAÐI,
GRAPE FRUIT,
SÓDAVATN.
Hf. Ölgerðin Egill Skallagrímsson
REYKJAVÍK. — Sími 1390. — Símnefni: MJÖÐUR.
f------------------------------------------------------
Hf. Eimskipafélag íslands
Þar sem endurskoðun núgildandi skattalaga
er ekki lokið, hefir stjórn félagsins ákveðið að fresta
aukafundi þeim, sem boðaður hafði verið, til föstu-
dags 12. marz 1954.
Samkvæmt því verður fundurinn haldinn í
fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík kl. 2 e. h.
þann dag.
Dagskrá: Tekin endanleg ákvörðun um innköllun
og endurmat hlutabréfa félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa dagana 9
—11. marz næstk. á skrifstofu félagsins í Reykja-
vík.
Athygli hluthafa skal vakin á því, að á meðan
ekki hefir verið tekin endanleg ákvörðun varðandi
þetta mál, er ekki hægt að taka á móti hlutabréfum
til þess að fá þeim skipt fyrir ný hlutabréf.
Reykjavík, 20. okt. 1953.
STJÓRNIN.
A Ií R A N E S
139