Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 Fréttir 0V Stakk affrá árekstri Á sunnudagskvöld var ekið á gagnbrautarljós á Austurvegi á Sel- fossi. Ökumaður hvarf á braut án þess að tilkynna óhappið. Lögregla hafði óljósa lýsingu á bifreiðinni og leitaði hennar án árangurs. Öku- maður gaf sig svo fram hjá lögreglu í morgun. Dópfannstvíða í Hafnarfirði Á föstudag gerðu lög- reglumenn £ Hafnarfirði húsleit í tveimur húsum og fundust meint fíkniefni á báðum stöðum. Þá fundust einnig fíkniefni í tveimur bifreiðum sem lögreglan stöðvaði við hefðbundið eft- irlit. Aðfaranótt sunnudags stöðvaði lögreglan bifreið á Vífilsstaðavegi. f bifreiðinni fundust bæði fíkniefhi og einnig meint þýfi úr inn- brotum frá nóttinni áður. Sex innbrot og skemmdir á bifreiðum voru tilkynntar til lögreglu og átti þetta sér stað bæði í Hafnarfirði og í Garðabæ. Lögá fjölmiðla? Guðmundur Árni Stefánsson þingmaður „Það liggur ekki lifíð á. Ég hefði kosið að menn ræddu þessi mál með rósemd og yfirvegun ogað farið yrði yfír starfsemi fjölmiðla afkostgæfni. I þessari umræðu er nauðsynlegra að fmna leiðir til að tryggja sjálf- stæði ritstjórna gagnvarteig- endum sínum heldur en að setja lög um eignarhald manna á þessum miðlum. Það er margs að gæta hér og flas er ei til fagnaðar." Hann segir / Hún segir „Það eru vissulega fordæmi fyrir þvi í öðrum Evrópulönd- um að það hafí verid sett lög um eignarhald. Hins vegar eru tvær leiðirfærar við lagasetn- ingu, önnur er að setja tak- markanir á sjálft eignarhaldið og hin er sú að tryggja rit- stjórnarfrelsi með lögum, þannig að ritstjórnir séu óháð- ar eigendum sínum. Að mtnu mati hefði seinni leiðin verið skynsamiegri, þar sem við búum í landi með takmarkað fjármagn til að halda uppi kröftugri og fjölþættri um- ræðu." Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur Forsætisráðuneytið neitar að taka saman kostnað við utanlandsferðir Davíðs Odds- sonar og að upplýsa um ferðir hans og tilefni ferðanna. Ekki séu „tiltæk aðgengileg gögn“ um þetta í ráðuneytinu. Þó er bent á að fj ármálaráðherra sagði í fyrra að ferða- kostnaður forsætisráðherra á árunum 1999 til 2002 hafi numið 16,7 milljónum króna. „Að athuguðu máli eru í ráðuneytinu ekki tiltæk aðgengileg gögn sem svara til beiðni yðar um útgjöld vegna utanlandsferða forsætisráðherra á árunum 1999 til 2004,“ segir í svari Halldórs Árnasonar, skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins, við fyrirspurn DV um kostnað vegna utanlandsferða forsætisráðherra. DV spurði um sundurliðun á kostnaðinum til dæmis vegna far- gjalda, gistingar, dagpeninga, dag- peninga maka og risnu. Beiðnin var sett fram 31. mars síðastliðinn. Eftir að hún var ítrekuð 23. apríl barst áðurgreint svar ráðuneytisins í gær, rúmum þremur vikum eftir að upp- lýsinganna var óskað. Áður en DV bað um upplýsingar um ferðakostnað forsætisráðherra hafði blaðið óskað eftir að ráðuneyt- ið gerði grein fyrir tilefni utanferða forsætisráðherra og hvert hann fór frá árinu 1991 til þessa dags. Sú fyrirspurn var fyrst sett fram 9. febr- úar síðast liðinn: „Þess er vinsamlegast farið á leit við ráðuneytið að það upplýsi hversu marga daga forsætisráðherra var erlendis á hverju ári fyrir sig árin 1991 til 2004. Einnig hvar ráðherr- ann var og hverra erindagjörða," sagði í erindi DV. Eftir ítrekun af hálfu DV barst loks svar um það frá ráðuneytinu 31. mars, rúmum sjö vikum síðar, að ekki væri hægt að svara fýrirspurn- inni. Þetta erindi var þá endurnýjað af hálfu DV en bundið við mun skemmra tímabil, eða frá árinu 1999 til ársins í ár. Svar ráðuneytisins var þó enn það sama: „Þá eru ekki tiltæk aðgengileg gögn um hversu marga daga ráð- herrann hafi verið erlendis á hverju ári, árin 1999 til 2004, hvar ráðherr- ann var og hverra erindagjörða hann var hverju sinni," segir í áðurgreindu bréfi sem barst í gær frá Halldóri skrifstofustjóra. Þrátt fyrir þetta afsvar forsætis- ráðuneytisins sendi það DV af þessu tilefni sérstakt bréf með svari Geirs Haarde fjármálaráðherra við fyrir- spum sem Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður Samfylkingar, hafði sett fram. Þar kemur fram að kostn- aður vegna utanlandsferða forsætis- ráðherra á ámnum 1999 tU 2002 var 16,7 mUljónir króna. Ráðherrann fékk 4,3 mUljónir í dagpeninga, 1,3 milljónir króna voru risnukostnaður og „annar kostnaður" var 11,2 mUlj- ónir. TU samanburðar má nefna að sambærUegur ferðakostnaður utan- ríkisráðherra á umræddu tímabUi var að sögn fjármálaráðherra 24 mUljónir króna. Menntamálaráð- herra notaði 11,1 mUljón króna og fjármálaráðherra sjálfur 10,7 mUlj- ónir. gar@idv.is Davíð Oddsson Forsætisráðuneytið segist ekki geta skýrt frá þvihvert og ihvaða tilgangi Davið Oddsson fór I utanlandsferðir á siðustu árum. Heldur ekki hver sé kostnaður vegna ferðalaga ráðherrans. Gögnin séu„ekki aðgengileg." ríkisleyndarmál Uppsagnir hjúkrunarfræðmga Þrír af fjórum segja upp Þrír af fjórum hjúkrunarfræðing- um göngudeUdar barna- og ung- lingageðdeUdar Landspítala-Há- skólasjúkrahúss hafa sagt upp störf- um vegna óánægju með kjaraskerð- ingu og taka uppsagnirnar gUdi 30. júní. í byrjun mánaðarins skrifuðu tæplega þrjátíu starfsmenn göngu- deUdarinnar bréf til Eydísar Svein- bjarnardóttur, sviðsstjóra hjúkrunar geðsviðs LHS og lýstu áhyggjum sín- um af þeirri stöðu sem skapast hefur vegna uppsagnanna. Um miðjan mánuðinn funduðu sviðsstjóri og hjúkrunarforstjóri LHS með hjúkr- unarfræðingunum en ákvarðanir þeirra um að segja upp störfum standa óbreyttar. í bréfi starfsmann- anna segir meðal annars „Fyrir starfsemi göngudeildar mun þetta hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar, þar sem um er að ræða mjög reynda starfskrafta sem hafa gegnt lykilhlut- verki á göngudeUd BUGL, t.d. í að vinna með foreldra á biðlistum, sinnt bráðasímtölum utan úr bæ og Reyndir hjúkrunarfræðingar hætta Þrir affíórum hjúkrunarfræðingum göngudeildar barna- og unglingageðdeildar Landspítala- Háskólasjúkrahúss hafa sagt upp störfum. ráðgjöf auk mikUlar eftirfylgdar með sjúklingum og foreldrum." Á göngudeild BUGL er börnum og unglingum 17 ára og yngri veitt þjónusta við geðheUbrigðisvanda. Biðlisti er eftir þjónustu en ef mál þarfnast skjótrar skoðunar og úr- lausnar er það afgreitt sem bráða- mál. Þar starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafar, sálfræðingar og listmeðferðaraðili. Mega aðeins veiða 18 daga á ári Ráðherra íhugar til- lögur trillukarla Smábátaeigendur funduðu í gær með sjávarútvegsráðherra um tUlög- ur st'nar um breytingar á hömlum við veiði smábáta. Frá fiskveiðiárinu 1996 tU 1997 hefur sóknardögum smábáta fækkað úr 84 í 18. Árni Mathiesen ráðherra fer nú yfir tUlög- ur smábátaeigenda, sem kveða meðal annars á um að sóknardagar verði ekki færri en 23. Niðurstöðu ráðherra er að vænta í vikunni. „Við höfum verið að ræða um þessa hluti í tvö ár og erum aUs ekki vonlitlir um að það náist lending í þessu núna. Nú er að renna upp síðasti séns í þessu fyrir þinglok," segir Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda. Smábátar hafa undanfarið veitt mun meira en viðmið sjávarútvegs- ráðuneytisins um hlutdeUd þeirra í afla á íslandsmiðum gerir ráð fyrir. Samkvæmt reglum ráðuneytisins frá Arthúr Bogason Formaður Landssambands smábátaeigenda er von- góður um að sóknardagarnir verði 23. árinu 2001 lækkar fjöldi daga sem þeir mega sækja sjóinn um 10 pró- sent á ári ef þeir fara yfir mörkin. Smábátar veiddu um 11 þúsund tonn af þorski á síðasta fiskveiðiári en heUdarúthlutun í þorskkvóta nemur 209 þúsund tonnum. jontrausti@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.