Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 25
I DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 25 ikhússtjórastólinn húsgestir eru 80 til 100 þúsund á hverju ári. Húsið í rúst? Búast má við að verðandi leik- hússtjóra bíði erfið verkefni, frá- brugðin þeim störfum sem fráfar- andi leikhússtjóri hefur þurft að glíma við. Húsið þarfnast verulegra endurbóta, nánast engar fram- kvæmdir hafa átt sér stað síðan 1990 þar sem allir fjármunir endur- byggingasjóðs hafa horfið til upp- byggingar Þjóðminjasafnsins. Eftir þá fjárhagslegu ringulreið sem ríkt hefur við uppbyggingu Þjóðminja- safnsins verða gerðar mun meiri kröfur til bygginganefndar Þjóðleik- hússins og leikhússtjóra þess um rekstrarlega yfirsýn. Það verður því ekki einungis verkefni næsta þjóð- leikhússtjóra að marka listræna stefiiu þessa flaggskips íslenskrar leiklistar og musteris íslenskrar tungu heldur er tröllaukið verkefni að ráðast fyrir alvöru í löngu tíma- bæra endurbyggingu og viðhald hússins. Ríkið hefur verið tregt í taumi að leggja fé til verkefhisins, kannski ekki síst eftir Árna Johnsen málið en hann var formaður bygg- inganefndar. Frá Bifröst í Þjóðleikhúsið? Einn af frummælendum á Leik- listarþingi í Borgarleikhúsinu á dög- unum var Magnús Árni Magnússon aðstoðarrektor á Bifröst. Magnús hefur Kúl sem engin afskipti haft af leikhúsi síðan hann hætti í Leik- listarskóla íslands eftir tveggja og hálfs árs nám. Magnús er þannig eins og Guðlaugur Rósinkranz hag- fræðingur og kemur frá Bifröst og hefur því sama grunn og Guðlaugur á sínum tíma. Magnús er hins vegar samfylkingarmaður þó svo að flestir sem til hans þekkja segi hann vera lengst hægra megin við fylkinguna og flest hennar gildi, að Evrópumál- um undanskildum. En til þess að ráða mann sem hætti í miðju leiklist- arnámi eða aðra þyrfti að koma til lagabreytinga. Þjóðleikhússtjóri þarf að vera leiklistarmenntaður til þess að vera lagalega gjaldgengur. „Mér finnst hugmyndin skemmtileg, held ég láti þar við sitja. Ég er ekkert á leiðinni héðan frá Bifröst," sagði MagnÚS. freyr@dv.is í 1949-1972 Guðlaugur Rósinkranz 1972-1983 Sveinn Einarsson 1983-1991 Gísli Alfreðsson 1991-2005 Stefán Baldursson Yndisleg bók um Ytri-Von Nýlega kom út í Neon-klúbbi Bjarts bókin Fimm mílur frá Ytri- Von efúr Nicolu Barker í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Nicola Barker þykir vera einn efni- legasti rithöfundur Breta og ef tek- ið er mið af þessari yndislegu bók sæúr það engri furðu. Sögusviðið er lítil eyja rétt utan við Devon á því herrans ári 1981. Þar hefst við í hálfhrundu art déco-hóteli vægast sagt furðuleg fjölskylda. Þar ber fyrst að nefna stúlkuna Medve sem er risavaxinn 16 ára unglingur og lifir í kvöl og pínu yfir því ömurlega hlutskipú. Enda kemur hún fremur illa út í samanburði við aðra fjölskyldu- meðlimi sem allir eru í smávaxnari kantinum og elsta systirin að auki íðilfögur. Sú er reyndar fjarstödd lungann úr bókinni en lætur eftir- minnilega til skarar skríða undir lokin. Móðirin er einnig fjarri góðu gamni en hún stundar furðulega rannsóknarvinnu í Bandaríkjun- um á meðan pabbinn, Big, reynir af veikum mætú að ala upp börn- in. Auk Medve eru það þau Patch, liúa, feiúagna systirin sem er síles- andi og mjög upptekin af ástand- inu í heiminum, og Feely, sem er fögurra ára og dýrkar að heyra aft- ur og aftur sögur um dauðann. Big þjáist af stöðugri magakveisu og hefur því gripið til þess ráðs að ala fjölskylduna á lítt girnilegu græn- metisfæði á milli þess sem hann iðkar sína uppáhaldsiðju: hekl! Ekki er alveg ljóst á hverju þessi undarlega fjölskylda lifir en svo virðist sem aðaltekjuleiðin sé fólg- in í krúsum sem Medve málar á og selur ferðamönnum sem hvergi bólar reyndar á! Súrrealískt ástand Medve er aðalpersóna sögunn- ar sem sögð er í fyrstu persónu frá sjónarhóli hennar. Eins og ung- lingum er tamt er Medve afar upp- tekin af útliti og eigin líðan og þær pælingar aukast úl mikilla muna eftir að óvænt fjölgun verður í fjöl- skyldunni. Inn á sögusviðið stígur heldur ólánlegur piltur (að mati Medve) frá Suður-Afríku, La Roux að nafni. Þau La Roux og Medve elda saman grátt silfur frá upphafi, þola hreinlega ekki hvort annað en dragast samt saman á ólíklegustu stundum. Öll orka þeirra fer í að gera hvort öðru skráveifu og svo fer að fjölskyldan tekur einlægan þátt í valdabaráttu þeirra sem að sjálfsögðu er sprottin af unglinga- ást. Á kærleikanum átta þau sig ekki fyrr en löngu síðar en ala þess mun meira á hatrinu sumarið 1981 með dyggri aðstoð annarra fjöl- skyldumeðlima. Áður en yfir lýkur er andrúms- loftið rafmagnað og ástandið væg- ast sagt súrrealískt þar sem engin leið er að sjá hver stendur með hverjum eða á hverjum er verið að Nicola Barker Fimm milur frá Ytri-Von Þýðandi: Eiisa Björg Þorsteins- dóttir Bjartur 2004 ■ Bækur ■■■■■ Nicola Barker Hún þykir einn efnilegasti rithöfundur Breta og Sigríður Albertsdóttir segir vonirnarsem við hana eru bundnar, ekki sæta furðu sé tekið mið afbók hennar sem núer komin út á íslensku. klekkja þá stundina. Frásögnin er fjörleg og sumar senur svo brjál- æðislega fyndnar að engu er við líkjandi. En undir niðri kraumar sársauki og hrikaleg einsemd sem titill bókarinnar sýnir e.t.v. gleggst. Aðeins er minnst á Ytri-Von í stuttu samtali þeirra systra, Medve ^ og Patch, þar sem Patch spyr: „Hver er raunverulega munurinn á Innri- og Ytri-Von?" (49) Innri og Ytri-Von eru bæir skammt frá eynni en hafa enga þýðingu nema sem nöfn og þá í táknrænum skilningi þess að sögupersónur bókarinnar virðast ekki eiga sér neina von, þó glettilega vel rætist úr lífi þeirra flestra þrátt fyrir allt. Persónurnar búa við firrt sam- skipti í hálfhrundri veröld og end- urspegla póstmódernískan veru- leika í sinni skýrustu mynd. Afrek þýðandans Elísu Bjargar Þýðing bókarinnar er aðdáun- arvert afrek. Orðfæri Medve er furðulegt og mikið um orðaleiki sem ekki eru til á íslensku en öllu þessu skilar þýðandi á máta sem undrum sætir. Áður en ég vissi af var ég föst í huga Medve sem talar dæmigert unglingamál, æðir úr einu í annað, leggur fáránlegar áherslur á mál sitt (sem sýndar eru með skáletrunum) og hugsar í yfir- máta furðulegum myndhverfmg- um. Ég steingleymdi mér í heimi undurs ogstórmerkja og bið þegar í stað um fleiri bækur frá Nicolu Barker í þýðingu Elísu Bjargar Þor- steinsdóttur! Sigrfður Albertsdótár Enn nóg til af Það hefur vart farið fram hjá neinum að mikill fjöldi erlendra tón- listarmanna æúar að leggja leið sína til landsins í sumar til þess að halda tónleika. Þegar hafa Violet Femmes spilað fýrir fullu húsi á Broadway og Sugababes héldu tónleika í Laugar- dalshöllinni sem voru þokkalega sóttir þótt ekki hafi verið uppselt. Löngu er orðið uppselt á Pixies sem koma í lok maí en ekki er byrjað að selja miða á aukatónleika sveitar- innar. Eitthvað er til af miðum á tón- leika Kraftwerk sem haldnir verða 5. maí og þá er slatti eftir af miðum á aukatónleika Korn. Miðasala á Placebo fór þokkalega af stað í byrj- un mánaðarins en þó er ekki orðið uppselt enn. Miðar á Deep Purple ruku út og uppselt varð á mettíma. Sala á aukatónleika þeirra hófst í gær og fór hún mjög vel af stað þótt ekki hafi selst upp. Þá var líka byrjað að selja miða á Metallica um helgina og fóru 4000 miðar fyrsta daginn. Aðdáendur þurfa þó ekki að ör- vænta þar sem um 6000 miðar eru enn eftir. Pink mun síðan halda tvenna tónleika í ágúst en miðasala á þá fór hægt af stað þótt uppselt sé orðið í stúku á fyrri tónleikana. Kraftwerk - nokkur hundruð miðar efúr. Pixies - uppselt. Sala á aukatónleika hefst á föstudag. Korn - uppselt en slatti af miðum til á aukatónleikana. Deep Purple hvað eftir á aukatonleikana. Placebo - slatú af miðum enn til taks. Metallica - 4000 miðar seldir fyrsta dag. 6000 miðar eftir. Pink - uppselt í stúku en annars nóg úl af miðum. % ( #

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.