Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 21
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 21 Henry bestur í Englandi Franski framherjinn Thierry Henry, sem leikur með Arsenal, var í gær valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni af leikmannasamtökum þar í landi. Henry, sem var einnig valinn í fyrra, er fyrsti leikmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun tvö ár í röð en hann hafði betur í baráttunni við við félaga sinn hjá Arsenal, Patrick Vieira, Frank Lampard, leikmann Chelsea, Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool, Jay-Jay Okocha hjá Bolton og Alan Shearer hjá Newcastle. Sex Arsenal- menníliði ársins Sex leikmenn Arse- nal; Lauren, Sol Camp- bell, Ashley Cole, Pat- rick Vieira, Robert Pires og Thierry Henry, voru valdir í lið ársins í ensku úrvalsdeildinni. Auk þeirra voru þeir Tim Howard og Ruud van Nistelrooy frá Man- chester United, Frank Lampard og John Terry hjá Chelsea og Steven Gerrard hjá Iiverpool valdir í Uð ársins. Parker efni- legastur Scott Parker, miðju- maður Chelsea, sem var keyptur frá Charlton í janúar fyrir tíu milljónir punda, var valinn efni- legasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta val kom nokkuð á óvart því fastlega var búist við því að John Terry, félagi Parkers hjá Chelsea, myndi verða fyrir valinu. Karkov spilar með gegnKA Daninn Simon Karkov mun spOa sinn fyrsta leik með FH-ingum á morg- un þegar þeir mæta KA- mönnum í átta liða úrslitum deUdabikars karla í knattspymu sem fram fer í Boganum á Akureyri. Hann hefur fengið félagsskipti úr danska liðinu Herfolge og er því orðinn löglegur með FH-ingum. Undanúrslit RE/MAX-deildar karla í handknattleik hefjast í kvöld með tveimur leikjum. Haukar taka á móti KA á Ásvöllum og á Hlíðarenda mætast Valur og ÍR. DV Sport fékk Ágúst Jóhannsson, þjálfara Gróttu/KR, til að spá í spilin. Hefði viljafi sjá Val og ÍR í úrslitum „Þetta eru Qögur bestu liðin á fslandi í dag og eiga öll skilið að vera í undanúrslitum. Báðar rimmurnar verða mjög spennandi en ég tel að úrslitin í fyrsta leik muni hafa mikið að segja um það hvaða lið fara áfram í úrslitin," sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, þegar hann var beðinn um að spá í spilin fyrir undanúrslitin í RE/MAX-deildinni sem hefjast í kvöld. Sömu lið og í fyrra mætast í undanúrslitunum en þá komust Haukar og ÍR í úrslitin. Varðandi viðureign Hauka og KA-manna sagðist Ágúst halda að Haukar myndu taka fyrsta leikinn á Ásvöllum. „Ég er ekki í vafa um að KA-menn munu selja sig dýrt tO að vinna leikinn og klára síðan einvígið á Akureyri í framhaldinu. Ég hallast hins vegar að sigri Haukanna því þeir hafa breiðari mannskap en KA- menn og eru með reynslumOdð og gott lið. Markvarslan hefur verið jöfn og góð hjá Haukum í vetur en hún er meira spurningarmerki hjá KA. Þeir þurfa svo sannarlega á því að halda að markverðir liðsins taki sig tO og verji átján úl tuttugu skot í þessum leikjum og ef það gengur efth: eru þeir í góðum málum. Við sáum hvað gerðist í bikarúrslitaleiknum þegar Hafþór hrökk í gang í KA-markinu,“ sagði Ágúst. Hann sagðist ekki sjá það í spOunum að Haukar myndu gera sérstakar ráðstafanir til að stoppa Arnór Atlason, líkt og Framarar gerðu með ágætum árangri í átta liða úrslitum. „Það er auðvitað alveg ljóst að „Ég skal reyndar viðurkenna að ég hefði viljað sjá Val og ÍR1 úrslltum því bæði lið hafa á að skipa ungum og góðum leikmönnum." Ilaukar þurfa að stoppa Arnór og Stelmokas. Ég held hins vegar að þeir muni spOa sína hefðbundnu 6:0 vörn og passa sig að ganga ekki of langt á móti Arnóri því að þá myndast pláss fyrir Stelmokas sem hann mun örugglega nýta sér.“ Ágúst sagði að bæði lið spOuðu hraðan bolta og það yrði væntanlega mOdð skorað í þessum viðureignum. Svakalegt einvígi Ágúst sagði að viðureign Vals og ÍR yrði svakalegt einvígi. „Ég skal reyndar viðurkenna að ég hefði vOjað sjá Val og ÍR í úrslitum því bæði lið hafa á að skipa ungum og góðum leOonönnum. Valsmenn eru með meiri breidd en ÍR-ingar, sem treysta nánast eingöngu á byrjunarliðið. ÍR-ingar þurfa að fá Ingimund Ingimundarson og Einar Hólmgeirsson í sama formi og þeir voru gegn okkur. Ef það gerist verða þeir iUviðráðanlegir. Valsmenn spOa aftur á móti framliggjandi vörn sem hentar vel á móú ÍR, markvarslan er yfirleitt góð og þótt sóknarleikurinn sé ekki sá áferðarfaUegasti er hann agaður og hefur skilað mUdu í vetur. Ég haUast að sigri Valsmanna án þess þó að ég geti rökstutt það með öðru en að vörnin er sterkari hjá þeim,“ sagði Ágúst í samtali við DV Sport í gær. EOis og áður sagði fara leUdrnir tveir fram í kvöld. Haukar taka á móú KA-mönnum á ÁsvöUum og Vals- menn mæta ÍR-ingum á Hh'ðarenda. Báðir leikirnir heflast kl. 19.15. oskar@dv.is Heimir Örn mikilvægur Valsmenn þurfa d þviað halda að Heimir Örn Árnason verði isama forminu gegn ÍR og hann var í gegn FH. DV-mynd Valli Sigurður kveður að sinni Sigurður Bjarnason mun ekki þjálfa Stjörnuna á næsta timabili. Sigurður Bjarnason, þjálfari Stjörnunnar, er hættur Of tímafrekt að standa í þessu Sigurður Bjarnason mun ekki þjálfa Stjörnuna í RE/MAX- deildinni á næsta tímabOi. Sigurður, sem tók við Stjörnunni síðasúiðið sumar, tilkynnti leikmönnum liðsins þetta um helgina. Hann sagði Í'". ■ samtali við DV v Sport í gær að ■ ákvörðunin væri alfarið hans eigin. „Ég tók þessa ákvörðun eftir nokkra umhugsun. Það er einfald- lega of tímafrekt fyrir mig að standa í þessu. Þetta er gífurlega mOdð starf sem mér finnst ég ekki geta sinnt eins og ég vil þar sem ég er í ströngu námi og því tók ég þá ákvörðun að hvíla mig aðeins á handboltanum." Sigurður sagði að veturinn hefði verið eins og svart og hvítt, frábær fyrir jól en martröð eftir jól. „Okkur gekk betur en menn höfðu þorað að vona fyrir jól en botninn datt úr þessu í seinni hlutanum vegna meiðsla og annarra hluta. Það var mjög slæmt fyrir mig þegar Gústi Bjarna hætti því þar missti ég mOdnn stuðning og ég fann fyrir auknu álagi það sem eftir lifði íslandsmóts. Ég held samt að það sé fullt af góðum og efnOegum strákum í Stjörnunni sem hægt er að byggja á til framúðar,11 sagði Sigurður og bætti við að hann myndi vera Stjörnunni innan handar áfram ef þess væri óskað. „Ég er og verð alltaf mikOl Stjörnumaður." HaUdór Sigurðsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Stjörnunni, sagði í samtali við DV Sport í gær að það hefði verið vOji ráðsins og leikmanna að hafa Sigurð áffarn en hann hefði því miður ákveðið að hætta. oskar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.