Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004
Fréttir DV
Frumvarp Davíðs Oddssonar um fjölmiðla samþykkt samhljóða á þingflokksfundum Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í gær. Davíð segir frumvarpið eiga að tryggja frelsi fjölmiðla. Halldór Ásgrímsson
segir að Norðurljós þurfi að aðskilja rekstur en væntir þess að það verði létt fyrir fyrirtækið.
Davíð bakkaöi með lög á dagblöö
Davíð Oddsson segist hafa þurft að bakka frá upphaflegum
drögum að fjölmiðlafrumvarpinu en þar vildi hann hafa inni
ákvæði um dagblöð.
reka útvarp og sjónvarp og eru með
leyfi frá ríkinu til þess. Dagblöð eru
ekki háð leyfum, og hafa aldrei verið
það og það er engin tilraun gerð til
slíks í þessu fmmvarpi," sagði Hall-
dór. Davíð segir að í ákvæðinu sé gert
ráð fyrir því að ekki fari saman eignar-
hald á ljósvakamiðlum og prentmiðl-
Halldór Ásgrímsson segir að þeir
möguleikar hafi verið ræddir en nið-
urstaðan hefði verið að
hafa ekkert um
dagblöð
frumvarpinu.
„Það er ekk-
ert komið
inn á rekst-
ur dag-
blaða í
þessu sam-
hengi, ein-
göngu fjölmiðla
sem eru að
Ekkert frelsi blaðamanna
Davíð segir að það sé rangt að
frumvarpið hafl í för með sér eigna-
upptöku. Hann tekur einnig fram að
frumvarpinu sé ekki beint sérstaklega
gegn Norðurljósum. „Þessu frum-
varpi er beint gegn samþjöppun í fjöl-
miðlum,'1 segir Davíð. Hann gerði
fjölmiöla Norðurljósa að umtalsefni
og talaði um að þar ætti sér stað
gauragangur, árásir og stríðsfyrir-
sagnir. Þetta segir Davíð sýna mjög
vel að það sé ekkert frelsi blaða-
manna á þessum fjölmiölum.
„Það er algjörlega og eingöngu
gengið erinda eigendanna. Skoð-
ið þið bara þessi blöð," sagði
Davíð. Spurður hvort hann gæti
nefnt dæmi nefndi hann öll
blöðin. Davíð sagði að vel geti
verið að blaðamenn á Norður-
ljósum færu eftir eigin reglum.
„Það getur verið að þeir
geri það en þá eru það
nákvæmlega sömu reglur
og eigendanna."
Átti ekki að koma á
óvart
Davíð sagði ástandið
orðið óviðunandi. „Það
áttu menn að vita þegar menn voru að
fara af stað því þessi nefndarskipun
var undirbúin og kynnt fyrir alllöng-
um tíma síðan. Það þarf ekki að koma
mönnum á óvart að stjórnvöldin í
landinu töldu að samþjöppun á fjöl-
miðlamarkaði væri ekki æskileg."
Hann sagði frumvarpið eiga að tryggja
frelsi í fjölmiðlum.
Norðurljós
þurfa að
skilja að
rekstur
Halldór
Ásgrímsson
formaður
Fram-
sóknarflokksins segist ekki vera
hræddur um að fjölmiðlafrumvarpið
kippi grundvellinum undan rekstri
Norðurljósa. „Það liggur fyrir að
Norðurljós þurfa að aðskilja áicveðinn
rekstur og ég vænti þess að það verði
þeim tiltölulega léttbært," segir Hall-
dór. „Hins vegar finnst mér eðlilegt til
þess að tryggja fjölbreytni í fjölmiðla-
rekstri að dagblöð séu aðskilin frá
sjónvarps- og útvarpsrekstri. Það er
einfaldlega mín skoðun." Halldór
segir frumvarpið heldur ekki hafa í
för með sér eignaupptöku. „Það tel
ég alls ekki, þetta frumvarp fjallar
um þau skilyrði sem þurfa að
vera til staðar tfl að fyrirtæki fái
að reka sjónvarp og útvarp,
þetta eru takmörkuð
gæði, rásirnar eru tak-
markaðar og ég tel
að það sé eðlilegt að
slfk skflyrði séu sett.
Þau eru einnig í
öðrum löndum,"
sagði Halldór. Hann
segir nú meiri samþjöppun á
fjölmiðlamarkaði en oft áður og það
sé eðlflegt að tekið sé á því.
Halldór sagðist ekki vflja útiloka að
breytingar yrðu á frumvarpinu í með-
förum Alþingis. Hann á von á því að
allir þingmenn flokksins greiði at-
kvæði með frum-
varpinu
setti þó fyr-
irvara við
það þar
sem eftir
væri að
ræða
málið í
þinginu
og
nefnd-
Deiglan á móti Davíð
„Deiglan hefur oftsinnis lýst yfir
stuðningi við stefnu og hugmynda-
fræði Sjálfstæðisflokksins um frelsi
einstaklingsins og lágmarksafskipti
ríkisins. Leyflr Deiglan sér að draga
í efa að þetta frumvarp hefði notið
mikils stuðnings innan Sjálfstæðis-
flokksins, ef það hefði verið lagt
fram af ríkisstjórn án aðildar hans.
Líklega hefði Sjálfstæðisflokkurinn
þá staðið sameinaður í harðri and-
stöðu gegn því," segir ritstjóri deigl-
an.com sem er einn virkasti stjórn-
málavefurinn. Borgar Þór Einarsson
og Þórlindur Kjartansson eru rit-
stjórar vefsins en báðir hafa látið til
Borgar Þór Ein-
arsson Er ekki par
hrifínn afflokksfor-
ystunni i tengslum
við umdeilt fjöl-
miðlafrumvarp.
sfn taka í ungliðahreyfingu Sjálfstæðis-
flokksins.
Fastlega má gera ráð fyrir því að
ungliðahreyflng Sjálfstæðisflokksins
muni setja sig mjög upp á móti fjöl-
miðlafrumvarpi Davíðs Oddssonar
enda virðist það í meginatriðum ganga
þvert gegn stefnu flokksins. Hins vegar
er gert ráð fyrir því að hinir ungu al-
þingismenn flokksins muni láta for-
ingjahollustu ráða atkvæði sínu þegar
frumvarpið verður lagt fyrir atkvæði í
þinginu. Deiglan efnir til könnunar og
þar kemur fram að 78 prósent telja
enga ástæðu til sérstakrar lagasetning-
ar í tengslum við eignarhald ijölmiðla.
Halldór Ásgrímsson vill afnema afnotagjöld RÚV
Afnotagjöldin burt
„Ég er ekkert sérstaklega sáttur við stöðu
Ríkisútvarpsins. Ég tel að Rúdsútvarpið sé á
margan hátt heldur veikt og ég tel að við þurf-
um að eiga öflugt ríkisútvarp og ég tel að það
sé rétt að breyta afnotagjaldakerfinu og af-
nema það," sagði Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra og tilvonandi forsætisráðherra á
blaðamannafundi í gær.
Mega þetta heita tíðindi enda sagði Davíð
Oddsson við sama tækifæri að hann fagnaði
því að Framsóknarflokkurinn væri kominn á
þá skoðun að breyta þyrfti til hjá RÚV. „Menn
hafa ekki komið sér saman um það hingað til,"
segir Davíð sem telur rétt að afnema afnota-
gjöldin. „Ég hef lengi talið að við ættum að
finna flöt á því. Sá flötur hefur ekki fundist og
mér finnst vænt um það ef Framsóknarflokk-
urinn er kominn inn á þá skoðun að breyta þar
tfl."
Davíð talaði um að sjálfur hafi hann barist
fyrir frjálsu útvarpi og frjálsu sjónvarpi á sín-
um tíma en hann telur engu að síður eðlilegt
að RÚV sé sterk stofnun.
Ríkisútvarpið Davið Oddsson vill sterkt ríkisútvarp og
fagnar breyttri afstöðu Framsóknarflokksins til afnota-
gjatdanna en þau vill Davíð afnema.
Baugur og Davíð
utttan
©
öi
22.janúar 2002
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra sagði á
Alþingi að 60 pró-
senta eignaraðild
matvælafyrirtækja á
markaði væri alltof há og að til greina
kæmi að skipta upp slíkum fyrirtækjum.
26.janúar 2002
Davíð Oddsson fund-
aði með Hreini Lofts-
syni á hóteli í May-
flowerhverfinu í
London. Davíð nefndi
fyrirtækið Nordica og
„Gerhard" Sullen-
berger í tengslum við Baug. Hreinn til-
kynnir um afsögn sem formaður einka-
væðingarnefndar.
28. janúar 2002
Hreinn Loftsson lagði fram afsagnarbréf
sitt til einkavæðingarnefndar.
29. janúar 2002
Hreinn Loftsson varaði
stjórnendur Baugs við
hugsanlegum aðgerð-
um yfirvalda. Stjómar-
formaðurinn spurði um
Jón Gerald sem hann
sagði að Davíð hefði
nefnt á Lundúnaf undinum og óskaði eftir
úttektum á Baugi með tilliti til þess hvort
fyrirtækið hefði í einhverju brotið af sér.
14.febrúar
Stjóm Baugs ræðir opinskátt um andúð
Davíðs á Baugi. Stjórnarformaður gerði
grein fyrir Lundúnafundinum.
28. ágúst 2002
Lögregla réðst til inn-
göngu í höfuðstöðvar
Baugs á grundvelli kæru
Jóns Geralds Sullenberger, ’
forráðamanns Nordica. Sjálf-
stæðismennirnir Þorgeir Baldursson í
Odda og Guðfinna Bjarnadóttir í Há-
skólanum í Reykjavík lýstu áhyggjum
sfnum af framgöngu Davíðs.
lO.febrúar 2003
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, forsætisráð-
herraefni Samfylking-
ar, sagði í ræðu í Borg-
amesi að stjómvöld
hefðu óeðlileg afskipti
affyrirtækjum.Hún
nefndi Baug, Kaupþing og Norðurljós.
lO.febrúar 2003
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í
fréttum Stöðvar 2 að
Ingibjörg Sólrún
færi með slúður.
Hann sagðistfyrst
hafa heyrt minnst á j
Jón Gerald eftir að
lögregluinnrásin var gerð í Baug í ágúst
2002.
iætisraðherra
¥
að Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóri Baugs,
hefði gæit við þá hug-
mynd að múta sér með
300 milljónum króna.
Forsætisráðherra sór af
sér vitneskju um Ger-
ald Sullenberger og lýsti því að Hreinn
Loftsson hefði farið rangt með á fundi
Baugs.
FRÉTTABLAÐIÐ
1. mars 2003
Fréttablaðið birti fréttir um ótta Baugs-
manna við forsætisráðherra.
3.mars2003
Davíð Oddsson svaraði fyrir sig og sagði
4. mars. 2003
Hreinn Loftsson stað-
festi í fjölmiðlum það
sem fram kom í Frétta-
blaðinu um ótta
Baugsmanna við for-
sætisráðherra. Hann
sagði að Davíð sneri
öllu á haus.