Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Page 9
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 9
Frumvarpið kippir fótun- Dómur
um undan Norðurljósum álitsgjafanna
„Það er alveg ljóst að þetta
frumvarp kippir fótunum undan
Norðurljósum," segir Skarphéðinn
Berg Steinarsson, stjórnarformað-
ur Norðurljósa. Stjórnin hit'tist á
fundi í dag. „Það er engin spurning
hvað mennirnir ætlast fyrir og þeir
hafa samið frumvarpið út frá því að
geta hlutað í sundur Norðurljós.
„Fyrirtækið verður ekki skráð á
markað úr þessu og það er sérstakt
að einhverjum detti það í hug,“
segir Skarphéðinn. Hann tel-
ur sérkennilegt að hver
sem er geti átt prent-
miðil en fáir útvaldir
fái að eiga ljós-
vakamiðla.
„Þetta bitnar
fyrst og
fremst á
Stöð 2,"
segir
hann.
Heim-
ildir DV
innan
við-
skipta-
lífsins
telja að „
mögu-
legt sé fyrir eig-
endur Norðurljósa
framhjá ákvæðum
um eignaraðild með því að breyta
hlutafé í Norðurljósum í víkjandi
lán þannig að nokkrir hluthafar séu
eftir í félaginu. Þannig geti menn
varið eign sína. Hins vegar hafa
menn ekki fundið leið til að Norð-
urljós geti átt bæði íslenska út-
varpsfélagið og Frétt ehf. Það virð-
ist því ljóst að frumvarp ríkisstjórn-
arinnar gjörbreytir viðskiptamód-
eli Norðurljósa eins og það var
kynnt fyrir 700 starfsmönnum í
janúar.
Frumvarp til laga
um breytingu á úfvarpslögura nr. 53/2000 og
samkcppnislögum nr. 8/1993.
(I-agt fyrír Alþingi á 130. löggjafiuþingi 2003-2004)
i.gr.
A eftir 3. mgr. 6. gr. útvarjölaga nr. 53/2000 kemur ný málsgrcin, er veröur 4.
mgr. og hljóðar svo:
Útgáfa úrvarpslcyfis er háð cftirfarandi skiiyröum:
a. Óheimiit er að s’eita leyfi til útvarps til fyrirtekis scm hefur að
mcginmarkmiðí rekstur setn er óskyidur íjölmiðlarckstri. Einnig er
óheimíh að veita fyrirteki útvarpslcyfi, sem að hluta eða ðllu lcyti er í eigu
fyrirtaáda cða fyrirtaricjasamsueðu i markaðsráðandi stöðu á eínhvcrju
sviði viðskipta. Þá er óheimilt að veita fyrirteki útvarpslcyfi ef annað
fyrirtxcki á meira cn 25% cignarhlut í þvi Sörauleiðis er óbeimilt að veiia
fýrirtæki útvarpsleyfi cf fyrirtaski í sðmu fyrirtarkjasamstæðu ciga
saraanlagt meira en 25% eignarhlut i þvi. Jafnframt er óheimilt að vcita |
fyTÍrtxki útvarpsleyfi cf þaðeða fyrirtaéki í sömu fyriruckjasamstacðu ciga /
hlut t útgctanda dagblaðs eða það er að hluta eða öllu leytí í eigu díks J
fyrirtxkis eða fyrirtxkjasamstseðu.
ivasóí a-Iíðar á eirrnig við ef á milii fvrirtakia <n>.£
Frumvarpið ífyrstu grein er talað um þau
skilyrði sem þarfað uppfylla til að fyrirtæki
geti fengið útvarpsleyfi.
b.
að komast
frumvarpsins
Hreinn búinn að missa
trúna á flokknum
„Þetta er stór dagur í mínu lífi,"
segir Hreinn Loftsson, stjórnarfor-
maður Baugs og fyrrverandi aðstoð-
armaður Davíðs Oddssonar og for-
maður einkavæðingarnefhdar ríkis-
stjórnarinnar, en hann sagði sig í
gær úr Sjálfstæðisflokknum. „Ég get
ekki hugsað mér að vera lengur í
þessum flokki þar sem menn vega
að grunnreglum réttarkerfisins og
lýðræðisins og stefnu Sjálfstæðis-
ílokksins," segir Hreinn. Hann gekk í
Sjálfstæðisflokkinn 17 ára. „Það
voru tfmamót þegar ég gekk inn í
Galtafell þar sem skrifstofur flokks-
ins voru þá og gekk í Heimdall þegar
ég taldi mig hafa aldur til þess,“ seg-
ir hann. „Ég get ekki seúð undir því
hvernig þetta fólk lætur." Hann seg-
ist hafa láúð ýmislegt yfir sig ganga
og ákveðið að vera áfram í flokknum
eftir deilur þeirra Davíðs á bolludag-
inn í fyrra. „Mér finnst þetta geðleysi
varaformannsins og annarra vera
með þeim hætti að ég hef misst til-
trúna - ég mun ekki styðja þetta
fólk.“ Hreinn fékk í gær leiðbeining-
ar frá skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
því hvernig eigi að segja sig úr
flokknum og hann hafði einnig sam-
band við VISA og bað um að hætt
yrði að draga 1.500 krónur af reikn-
ingi hans í hverjum mánuði fyrir fé-
lagsgjöldum í flokknum.
Davíð Oddsson óskar Hreini alls
hins besta og þykir lakara að hann
hafi kosið að yfirgefa flokkinn. „Það
er nú með flokk eins og minn og
aðra flokka að menn eru þar á eigin
ábyrgð og samkvæmt eigin ákvörð-
un og menn ganga í flokka og fara úr
flokkum. í mínum flokki er það svo
að það ganga í og úr flokknum þrír
til fjórir í viku. Mér finnst auðvitað
sárt að Hreinn skuli kjósa að vera
frekar í Baugi en Sjálfstæðisflokkn-
um.“
Hallgrímur Helgason, rithöfundur
„Efmaöur horfír á þetta úr lofti og til langs
ttma þá erþetta mjög ein-
falt mál. I hundrað ár
hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn haft meirihluta-
vald á fjölmiðlamark-
aði. Nú loksins þegar
hann missirþað vald
ákveður hann að setja lög til
að ná þvt aftur. Einfalt mál og ógeðslegt."
4»
Örn Bárður, sóknarprestur.
„Ég skil vel ótta manna út afhringamynd-
un i hvaða atvinnugrein sem er. Efmaður
setur sig I spor þeirra sem að eiga Norður-
Ijós þá er verið að gripa inn I
þeirra rekstur með mjög
afgerandi hætti með
lagasetningu. Mikilvæg-
ast er að við getum
aldrei náð að fella allt
mannlegt atferli inn i lög
og regtugerðir. Samskipti
manna almennt talað verða að byggjast á
trausti."
Hugleikur Dagsson
„Mér fínnst þetta lykta af
því að Davið sé að reyna
að gera sem mest áður
en hann hættir. Það
finnst mér fyrir neðan
allarhellur. Hefekkisér-
stakar skoðanir á stöðu
fjölmiðla en ég held að þetta
muni ekki leiða til betra ástands."
0»
Andrés Magnússon, blaðamaður
„Ég tel að það þurfi að setja
lög um eignarhald á fjöl-
miðium. Held að það sé
rétt og nauðsynlegt.
Með þetta tiltekna
frumvarp þá sýnist mér
að ákvæði þess geti þjón-
að tiisettum markmiðum -
að koma i veg fyrir eignasamþjöppun."
Davíð Ólafsson, óperu-
söngvari
„Það má beygja öll lög -
efDVog Fréttablaðið
breytast bara i timarit
hugsa ég að þetta
sieppi."
Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri
Skjás Eins
„Ég erí grunninn sammála þessu frum-
varpi. Norðurljós eru í mjög sterkri stöðu
þrátt fyrirað markaðurinn
sé afar litill. Þetta snertir
Skjá Einn litið sem ekk-
ert.Hugsaaðheisti
vandinn sé hvermuni
reka fjölmiðla eftir að
frumvarpið verður að
veruleika. Það er iangt siðan
nokkur hefur hagnast á því að
reka fjölmiðla á islandi."
Ævar Örn Jósepsson,
rithöfundur
„Ég fínn ilm afbanön-
um."
r\
Guðmundur Andri
Thorsson, rithöfundur
„Davið Oddsson hefur til
þessa einkum lagt niöur
ríkisstofnanir sem hafa
ekki farið að vilja hans.
Þetta er nýtt að hann sé
farin að færa sig yfír áhinn
frjálsa markað. iraun erþetta ógnvæniegt."
Gunnar I. Birgisson hefur hótaö því að
yfirgefa ekki Alþingi fyrr en skattalækk-
unartillögur Geirs H. Haarde hafa verið
samþykktar. Jóhanna Sigurðardóttir
gagnrýnir ríkisstjórnina en Davíð Odds-
son segir Jóhönnu sama við sig.
Hlegið að sköttum
Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur hótað
að yfirgefa ekki Alþingi fyrr en að skattalækkunartillögur Geirs
H. Haarde ná fram að ganga. Orðrétt sagði Gunnar: „Ég ætla ekki
heim í sumar fyrr en það er búið að afgreiða skattamálin."
Jóhanna Sigurðardóttir tók málið upp á Alþingi í gær og krafði
forsætisráðherra svara. Hvorki Davíð né Geir gátu staðfest hvort
tillögur um skattalækkanir verði að veruleika fyrir sumarfrí þing-
manna.
„Þeir draga lappirnar eins og þeir
hafa gert hingað til,“ segir Jóhanna
Sigurðardóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar. „Það er greinilega lítil
innistæða á bak við þau loforð sem
þessir menn gáfu fyrir kosningar
enda hafa skattar hækkað það sem
af er liðið kjörtímabilsins en ekki öf-
ugt.“
Jóhanna segir einnig að fróðlegt
verði að fýlgjast með því hvort
Gunnar Birgisson standi við stóru
orðin eða hvort þetta sé í nefinu á
honum. „Kannski vísar þetta til
deilna innan stjórnarflokkanna,“
bætir hún við.“
Geir H. Haarde vildi ekki svara
beint hvort almenningur í landinu
muni sjá skattalækkanir teknar fyrir
á Alþingi fyrir þinglok. Geir var í gær
staddur á Hrafnistu í Reykjavík
vegna fimmtíu ára afmælis Happ-
drætús DAS. Hann hafði þetta að
segja um málið:
Geir - hvað með þessi skattamál
þarna?
Ég ætla ekki að svara neinum
spumingum um það strax. Þetta mál
erbaraívinnslu.
En eins og Gunnar talaði um...
Málið er í vinnslu og skýrist á
næstunni hvað verður
Á ekkert að samþykkja skatta-
lækkanir áður en þessi þingi lýkur?
Þetta þing er nú ekki búið ennþá.
Það er helvíti mikill Qýtingur að
ná hlutum ígegn núna - eins ogfjöl-
miðlafrum varpin u ?
Þingið er ekki bundið af neinni
dagssetningu í rauninni.
Muntu þá sitja með Gunnari
fram í sumarið
Við klárum það sem við ætlum
okkur að klára.
Jdhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, notfærði
sér óundirbúnar fyrirspurnir á Al-
þingi í gær og spurði Davíð hvað liði
skattalækkunaráformum ríkis-
stjórnarinnar. Hún vísaði í ffétt DV
þar sem Gunnar Birgisson sagðist
ekki ætla að yfirgefa Alþingi fýrr en
skatturinn hefði lækkað.
Davíð sló á létta strengi eins og
honum er einum lagið og sagði
spurningu Jóhönnu hafa komið sér
í gott skap því aldrei hefði honum
dottið í hug að hún myndi reka
hann til skattalækkana. Jóhanna
hrópaði fram í að það væri ekki
sama hvort skattar væru lækkaðir á
einstaklinga eða fyrirtæki en Davíð
tók lítið rnark á hrópum Jóhönnu -
hló og sagði: „Svona var hún í ríkis-
stjórninni líka.“
simon@dv.is
Fjöldapóstur á Framsókn
Forystumenn Framsóknar-
flokksins hafa sent frá sér póst á
alla framsóknarmenn varðandi
frumvarp um eignarhald á fjöl-
miðlum. Þar eru þeir hvattir til
að láta ekki gabbast af villandi
umræðu um frumvarpið. Þá eru
leiðréttar hugsanlegar rang-
færslur andstæðinga Davíðs. Að
lokum eru framsóknarmenn
hvattir til að halda sínu og
minntir á að „vegna þess hve
þeim sem mestra hagsmuna eiga
að gæta af óbreyttri stöðu hefur
tekist að afvegaleiða umræð-
una.“
TABLAÐIÐ
fj
7. mars 2003
Þorgeir Baldursson,
framkvæmdastjóri
Prentsmiðjunnar Odda
hf.,og GuðfinnaS.
Bjarnadóttir, rektor Há-
skólans í Reykjavík,
sögðu sig úrstjórn Baugs.Ástæðan var
sögð sá trúnaðarbrestur sem varð til
þess að Fréttablaðið birti úrdrátt úr
fundargerð stjórnar Baugs frá því í febr-
úar 2002.
19. desember 2003
Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra
skipaði nefnd til að
kanna eignarhald á fjöl-
rniðlum. Blaðamanna-
félaginu neitað um að-
ild að nefndinni. Nefndin átti að skila
skýrslu sinni l.mars.
2. apríl 2004 %
Fjölmiðlanefndin skil-
aði skýrslu sinni til Þor-
gerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur mennta-
málaráðherra sem
neitaði að veita upp-
lýsingar um innihald
hennar.
20. apríl 2004
Leyniskýrsla
fjölmiðla-
nefndarinnar
lögðfyrirrík-
isstjórn. Dav-
íð Oddsson lagði samtímis f ram frum-
varpsdrög sem m.a. kveða á um að dag-
blöð og Ijósvakamiðlar megi ekki vera í
eigu sömu aðila. Stöðu Norðurljósa þar
með ógnað og uppskipti sögð blasa við.
ÁaSLiS
wTmr.
25.apríl 2004
Ríkisstjórnin samþykkti fjölmiðlafrum-
varp forsætisráðherra. Hreinn Loftsson,
stjórnarformaður Baugs, sagði að
hleypa yrði„þessari ógnarstjóm frá"
vegna frumvarps Davíðs.
26. apríl 2004
Þingflokkum stjórnarflokkanna kynnt
fjölmiðlafrumvarp Davíðs. Hreinn Lofts-
son sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum
eftir að hafa verið félagi í 37 ár.
26. apríl 2004
Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylking-
arinnar, sagði í DV að
ríkisstjómin væri með
framgöngu sinni að
breyta íslandi í
bananalýðveldi.