Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004
Fréttir DV
Með verkfær-
in á djammið
Aðfaranótt laugardags-
ins óskuðu dyraverðir veit-
ingastaðar í miðborginni
eftir aðstoð lögreglu vegna
manns sem þeir grunuðu
um að vera með vopn á sér
inni á staðnum. í ljós kom
að maðurinn var með eina
öxi, þrjá hm'fa og skrúfjárn
innanklæða. Að sögn lög-
reglunnar í Reykjavík mun
maðurinn ekki hafa ógnað
neinum með þessum vopn-
um og gefið þær skýringar
að hann hafi ætlað til vinnu
um morguninn og þurft
þess vegna að hafa vopnin
með sér.
Svíi kryfur
heilbrigðis-
þjónustuna
Göran Dahlgren pró-
fessor frá Svíþjóð verður
fyrirlesari á málþingi
BSRB sem haldið verður
miðvikudaginn 5. maí kl.
9.00 tUl 1.00 áHótel
Lofdeiðum. Fyrirlestur
hans mun fjalla um heil-
brigðisþjónustuna,
reynslu af kerfisbreyting-
um og framtíðarsýn.
Málþingið er öllum opið
og hvetur BSRB alla sem
láta sig heilbrigðismál
varða til að koma til mál-
þingsins.
Göran mun svara
fyrirspurnum að lokn-
um fyrirlestri. Hann hef-
ur síðan á níunda ára-
tugnum verið áhrifa-
maður á alþjóðavett-
vangi á sviði heilsu-
gæslu-, heilbrigðis- og
lýðheilsumála.
Stálu 18 feta
rörabát
Lögreglunni í Reykjavík
barst á laugardag tilkynn-
ing um að stolið hafi verið
svörtum og bláum 18 feta
rörabát af Sea Rover-gerð,
með 70 hestafla Suzuki-
fjórgengisvél, sem stóð á
gráum tveggja hásinga
vagni við Eyjaslóð. Að sögn
lögreglunnar munu bátur-
inn og vagninn hafa fundist
síðar um helgina í Hafnar-
firði en þá var búið að taka
vélina úr bátnum.
Skúli Alexandersson
„Hér er mikið um aö vera því á
Gufuskálum eru staddar stór-
stjörnurí tengslum við kvik-
mynd sem Friörik Þór er að
taka hér undir Jökli," segir
Skúli Alexandersson, fyrrum
alþing-
ismað-
ur á Hellissandi, og neitar ekki
aö stjörnurnar setji svip á
byggðina.Já, já, leikararnir
versla I Kaupfélaginu og þú
getur rétt imyndað þér hvort
menn hafí ekki eitthvað til að
tala um þessa dagana I
byggöarlaginu. Annars er at-
vinnuástand gott og nóg að
gera hér, mikil gróska í mann-
lífinu," segir Skúli og tekur ekki
undir að krlan sé komin.
Stjörnulögfræðingarnir Mark Geragos og Benjamin Brafman hafa yfirgefið Michael
Jackson, en Jackson hefur ráðið sér nýjan stjörnulögmann, Thomas Mesereau, sem
á að bjarga því sem bjargað verður. Gert er ráð fyrir því að Jackson segist saklaus
af öllum ákæruliðum.
LögMingar Jagksons
pakka saman
Stjömulögfræðingarnir sem hafa annast barnaníðingsmál
Michaels Jackson eru hættir störfum. Jackson á að svara til saka
næstkomandi föstudag vegna ásakana um að hafa beitt ungan
dreng kynferðislegu ofbeldi.
Þeir Mark Geragos og Benjamin
Brafman hafa ekki gefið upp
ástæðu þess að þeir kjósa að hætta,
það eina sem þeir láta uppi eru ósk-
ir um að Jackson farnist vel.
Brafman og Geragos, sem vinna nú
að vörn leikarans Scott Peterson
sem ákærður er fyrir að hafa myrt
eiginkonu sína, ætía þó að fylgja
Jackson í dómshúsið næsta föstu-
dag en þá verður málið gegn hon-
um þingfest. Fastlega er gert ráð
fyrir að Jackon muni neita sakar-
giftum enda hefur hann frá upphafi
sagt ásakanir um barnaníðslu úr
lausu lofti gripnar.
Málskjölin bera Jackson ekki
vel söguna
Jackson var handtekinn í desem-
ber.síðastíiðnum eftir að kæra barst
lögregluyfirvöldum í Santa Barbara
um að hann hefði beitt tólf ára
krabbameinssjúkan dreng kynferð-
islegu ofbeldi. í ákæruskjali frá því
fyrir áramót er greint frá því í sjö lið-
um hvernig Jackson á að hafa mis-
notað drenginn og auk þess veitt
honum áfenga drykki í tvö skipti. f
síðustu viku bárust svo fregnir úr
málsskjölum sem báru Jackson síð-
ur en svo vel söguna. Var þar meðal
annars vitnað til fórnarlambsins í
málinu, Gavins Arviso, og bróður
hans. Haft var eftir þeim að Jackson
hefði sýnt þeim klámmyndir á tölvu-
tæku formi og síðan haft í frammi
kynferðislega tilburði við gínu sem
hann geymir á heimili sínu.
Ekki af baki dottinn
Þrátt fyrir að lögfræðingarnir séu
að pakka saman er Jackson ekki af
bald dottinn og hefur þegar ráðið
nýjan mann til starfans. Sá heitir
Thomas Mesereau og þykir af svip-
Skiptir um lögfraeöing Tveir
stjömutögfræðingar hafa yfir-
gefið Michael Jackson. Hann
hefur þegar ráðið Thomas Mes
ereau, sem þykir firnasterkur í
málum afþessum toga.
Þrátt fyrír að lögfræð-
ingarnir séu að pakka
saman er Jackson
ekki afbaki dottin
og hefur þegar ráðl
nýjan mann til
starfans.
uðum toga og hinir tveir. Hann
er nýhættur að vinna fyr-
ir aðra stórstjörnu en
hann var þar til und-
ir það síðasta verj-
andi Roberts Blake
sem ákærður e
fyrir morð.
Michael
Jackson gengur
laus gegn þriggja
milljón dala
tryggingu. Sjálf
réttarhöldin yfir
söngvaranum
fara að líkind-
um ekki fram
fýrr en undir
lok árs og ef
Jackson
verður
sekur
fundinn á
hannyfir
höfði
sér allt
að átta
ára
fang-
elsi.
íslensk auglýsing valin í SHOTS-úrvalið
Símaauglýsing keppir við þær bestu
„Við erum náttúrlega rosa-
lega stoltir og ánægðir með
þetta," segir Gunnlaugur Þrá-
insson, framkvæmdastjóri aug-
lýsingastofunnar Góðs fólks
McCann, en sjónvarpsauglýs-
ingin Flash Mob sem auglýs-
ingastofan gerði í samstarfi við
Sagafilm fyrir Símann hefur
verið valin í nýjustu útgáfu
breska fagtímaritsins SHOTS.
„Þetta þýðir að kollegarnir er-
lendis eru að meta verk okkar
að verðleikum, þetta er mikill
heiður í okkar bransa" segir Gunn-
laugur. í auglýsingunni er vísað til
tískubylgju sem gengið hefur yfir í
Evrópu og Ameríku og felst í því að
ókunnugir nota fjarskiptatæknina til
að fremja gjörning saman. Hópur-
inn safnast saman í miðbæ Reykja-
vlkur og þegar klukkan slær þrjú
leggjast allir niður nokkra stund.
Símagjörningurinn Vekurathygli iútlöndum.
Síðan stendur mannfjöldinn upp og
hver heldur sína leið. Þetta er í ann-
að sinn sem sem auglýsing frá Góðu
fólki McCann er valin í úrval en
sjónvarpsauglýsingin Beautiful
Women sem auglýsingastofan gerði
fyrir Thule-bjór var valin í maíútgáfu
SHOTS árið 2002. Hugmynda-
vinnan við Flash Mob var í
höndum Gary Wake og Jóns
Árnasonar hjá Góðu fólki
McCann. Árni Þór Jónsson,
leikstjóri Sagafilm, leikstýrði
og í timaritinu er hann sérstak-
lega kynntur sem nýr og
áhugaverður leikstjóri.
Fagtímaritið SHOTS velur
annað hvert ár sautján sjó-
varpsauglýsingar sem gefa
eiga yfirlit yfir það besta í aug-
lýsingagerð á Norðurlöndum.
Það var stofnað fýrir rúmum þrettán
árum með það að markmiði að gefa
yfirlit yfir framúrskarandi vinnu á
svði auglýsingagerðar í heiminum.
Auglýsingarnar sem valdar eru fylgja
tímaritinu á DVD- og VHS-formi og
fá yfir fjörutíu og tvö þúsund sér-
fræðingar í auglýsingagerð þær í
hendur hverju sinni.
Hjóluðu á braut
f rá afa
Lögregl-
unni í Reykja-
vík barst á
sunnudag til-
kynning um
að tvö börn,
þriggja og
hálfs árs og
fjögurra ára,
værutýnd.
Þau höfðu far-
ið út að hjóla
með afa sínum en hjólað það
greitt að afinn, sem er hjartveik-
ur, gat ekki fylgt þeim eftir. Börn-
in fundust skömmu síðar heil á
húfi. Þá var sama dag tilkynnt um
óhapp þar sem hjón höfðu farið
út að hjóla en ekki vildi betur til
en svo að hjólin rákust saman.
Við það féll konan af hjólinu og
slasaðist á hné þannig að flytja
varð hana á slysadeild. Lögreglan
segir að það sé því Ijóst að margt
beri að varast í umferðinni.