Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Qupperneq 20
Sport DV
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004
/
Keane ekki
með írum
Það verður einhver bið á
að Roy Keane spili með
írska landsliðinu í knatt-
spymu en hann var valinn í
hópinn fyrir leik gegn
Pólverjum á morgun.
Keane, sem hefur ekki
spilað með liðinu síðan
hann var sendur heim frá
HM fyrir tveimur ámm,
meiddist aftan á læri á
æfingu í gær og ákvað að
draga sig út úr hópnum
áður en hann lagði af stað
til Póllands. Keane sagðist
vera hundsvekktur að
missa af leiknum enda
hefði hann beðið eftir
þessum leik lengi.
Nistelrooy í
slagsmálum
Hollenski fram-
herjinn Ruud van Nist-
elrooy hjá Manchester
United virðist eiga í
einhverri tilvistar-
kreppu þessa dagana.
Hann var harðlega
gagnrýndurafRoy
Keane fyrir frammi-
stöðu sína að undan-
förnu og á föstudaginn
lenti hann í slagsmál-
um við David Bellion.
Þeim viðskiptum lauk
með því að van Nistel-
rooy rauk í sturtu.
Ólafuríbanni
gegn KR
Ólafur Jóhannesson,
þjálfari FH-inga, mun ekki
stjórna sínum mönnum í
fyrsta leik liðsins í Lands-
bankadeildinni í sumar þar
sem hann tekur út leikbann
vegna ijögurra gulra spjalda
sem hann fékk á síðustu
leiktíð. Leifur Garðarsson,
aðstoðarþjálfari Ólafs, mun
því stýra liðinu gegn
íslandsmeisturum KR í
Frostaskjólinu 15. maí
næstkomandi.
Duncaníliði
ársins í 7.
sinn
Tim Duncan, fram-
herji SanAntonio, náði
þeim frábæra árangri í
gær að vera valinn £ lið
ársins í NBA-deiIdinni í
sjöunda sinn á sjö árum,
aðeins sjötti leikmaður
sögunnar sem nær því.
Aðrir sem voru £ liði
ársins voru Kobe Bryant
og Shaquille O’Neal hjá
LA Lakers, Kevin Garnett
hjá Minnesota og Jason
Kidd hjá New Jersey.
Frábær stemning Það hefur verið einstök stemning á pöllunum íHveragerði undanfarin tímabil og Hvergerðingar hafa einn besta heimavöllinn á landinu.
DV-mynd Hari
Hamar og Selfoss hafa náð samkomulagi um að tefla á næsta tímabili fram sam-
eiginlegu liði í úrvalsdeild karla í körfubolta. Pétur Ingvarsson hefur verið ráðinn
þjálfari liðsins, sem mun spila heimaleiki sína í Hveragerði og á Selfossi.
Stórsókn á Suðnrlandi
Selfyssingar eru komnir upp í úrvalsdeild karla í körfubolta í
fyrsta sinn en þeir hafa tekið höndum saman við nágranna sína
í Hveragerði og ætla sér að byggja upp sterkt körfuboltalið á
Suðurlandi á næstum árum. Síðasta vetur voru þrjú lið á þessu
svæði í efstu tveimur deildunum en næsta tímabil mun lið
Hamars/Selfoss spila í úrvalsdeild og lið Þórs úr Þorlákshöfn
leika í 1. deildinni.
Hvergerðingar og Selfýssingar til-
kynntu £ gærkvöldi um samkomulag
milli iþróttafélaga bæjanna að þau
spiluðu undir sameiginlegum
merkjum £ körfuboltanum næsta
vetur. Úrvalsdeildarlið Hamars ber
þvf nafnið Hamar/Selfoss £ Inter-
sport-deildinni næsta vetur og eins
mun samstarfið ná yfir kvennalið
félagsins og yngri flokkanna.
Þórsarar féllu í 1. deild
Eftir þetta eru liðin orðin tvö á
þessu svæði en Þórsarar úr Þorláks-
höfn voru með Hamri £ úrvalsdeild-
inni £ vetur en féllu niður f 1. deild.
Selfoss féll hins vegar niður £ 2. deild
þriðja árið £ röð. Það er greinilega
sóknarhugur £ körfuboltanum á
Suðurlandi, sem eignaðist nýtt lið f
1. deildinni þegar Drangur frá V£k f
Mýrdal tryggði sér sæti £ deildinni
næsta vetur. Sameining Hvergerð-
inga og Selfýssinga mun skila af sér
öflugu körfuboltastarfi á svæðinu.
Selfýssingar hafa undanfarin ár
verið að reyna að byggja upp körfu-
boltalið £ bænum en ekkert hefur
gengið að komast £ hóp bestu liða £
1. deild og £ framhaldinu að komast £
hóp bestu liðanna £ úrvalsdeild. Sel-
foss var áður £ samstarfi við Laug-
dæli £ eitt ár og er samstarfið við
Hamar mjög svipað.
Lítill æfingahópur
„Það hefur verið litill æfingahóp-
ur hjá okkur og sem dæmi byrjaði tí-
undi maðurinn hjá okkur £ vor tí'ma-
bilið á að mynda leikina uppi i
stúku. Við komum með stöðugleika i
efstu deild inn £ þetta samstarf en á
móti koma Selfyssingar með stærra
markaðssvæði, fleiri iðkendur og
„Það er í raun allt opið með hvernig líðið okk
ar verður skipað á næsta tímabili."
fleiri áhorfendur," segir Pétur Ingv-
arsson, sem hefur þjálfað Hamar
undanfarin sex ár en eftir að hafa
unnið sig upp £ úrvalsdeildina á
fyrsta árinu undir stjórn hans
hefur liðið á þeim tfma
alltaf komist i úrslita-
keppnina.
Spila á báðum
stöðum
„Það er f raun allt
opið með hvernig liðið
okkar verður skipað á
næsta tfmabili. Þetta eru allt
strákar af Suðurlandi sem hafa
verið i okkar liði en það er enginn
með samning og menn geta þvi
komið og farið. Það kemur til með
að ráða öllu hvaða niðurstöður
koma af ársþinginu um næstu
helgi,“ segir Pétur, sem hefur náð
frábærum árangri með Hamars-
menn i úrvalsdeildinni sfðustu fimm
tfmabiL Pétur hefur skrifað undir
þriggja ára samn-
ing um að þjálfa
lið Hamars/-
Selfoss en
samkomulag
félaganna nær til
fimm ára.
Lið Hamars/Selfoss kemur til
með að spila heimaleiki s£na bæði i
Hveragerði og á Selfossi. Það verður
lagður nýr dúkur á fþróttahúsið £
Hveragerði £ sumar og svo eru Sel-
fyssingar að byggja sér nýtt glæsilegt
fþróttahús. Það verður því spenn-
andi að fýlgjast með þvf
hvernig Selfýssingar taka
undir hina grfðarlegu
körfuboltastemningu i
Hveragerði sem hefur
sett svo mikinn svip á is-
lenskan körfubolta
undanfarin ár.
ooj@dv.is
íslandsmeistarar KR töpuöu 1-3 fyrir HB í Atlantic Cup
Fyrsta tapið fyrir Færeyingum
Fyrsta tapið gegn Færeyjum Willum Þór
Þórsson og lærisveinar hans IKR voru fyrstir
Islenskra liða til þess að tapa gegn Færeyjum.
Tap KR-inga í Færeyjum um
helgina er sögulegt því í fyrsta
sinn tapaði íslenskt lið fyrir
litla bróður í Færeyjum.
íslensk félagslið og íslensk
landslið höfðu leikið fyrstu 22
leikina gegn litlu ffændum
sínum án þess að tapa.
íslenska A-landsliðið vann það
færeyska tvisvar sinnum siðasta
sumar i undankeppni Evrópu-
mótsins og hefur unnið 19 af 20
landsleikjum liðanna £ gegnum
tiðina. Þessi eini leikur sem ekki
vannst endaði með markalausu
jafntefli i Þórshöfh árið 1984.
íslenska landsliðið hefur oftar en
ekki teflt fram B-liði £ þessum
leikjum en það hefur ekki komið að
sök, markatala íslands f A-lands-
leikjum gegn Færeyjum er 63-11
okkur £ vil.
íslensk lið höfðu enn fremur
unnið Adantic-bikarinn £ bæði
skiptin sem meistarar íslands og
Færeyja höfðu mæst f þessum nú
árlega vorleik. Skagamenn unnu B36
2- 1 i Færeyjum 2002 og KR-ingar
unnu HGB 2-0 á KR-vellinum i fyrra
en að þessu sinni vann HB öruggan
3- 1 sigur á KR á gervigrasinu £
Þórshöfn.
Fyrir leikinn á laugardaginn
höfðu færeysk lið aldrei lagt í'slensk
lið að velli, rétt eins og t'slensk lið
höfðu aldrei lagt dönsk lið að velli £
keppni. Nú hafa Færeyingar brotið
fsinn og eru til alls lfklegir gegn
íslendingum £ framtfðinni. ooj@dv.is